Morgunblaðið - 04.01.1981, Qupperneq 27
27
Kvlkmyndir
eftir ÓLAF M.
JÓHANNESSON
Leikstjóri: Blake Edwards.
Handrit: Blake Edwards.
Myndatokustjóri: Frank Stan-
ley.
SýninKarstaður: Austurbæjar-
bió.
Loks er kyntröllið Bo Derek
komið í bæinn. Gefst mönnum
tækifæri til að skoða gripinn í
Jólamynd Austurbæjarbíós
„10“. Ég verð að játa að nokkur
fiðringur var í sumum bíógesta
þegar fyrirbrigðið birtist, enda
eiginmaður Bo, John Derek bú-
inn að undirbúa jarðveginn
rækilega. Er ég ekki frá því að
Bo sé jafnvel betur heppnuð hjá
John Derek en t.d. fyrri eigin-
konan hans Ursula Andress sem
karl græddi þó vel á. Samt er
stúlkan ekki ýkja fríð til munns-
ins. Líkaminn er hins vegar
rennilegur og vöðvarnir til dæm-
is á fótunum eins og á antilópu,
hefur ræktunin tekist vel að
þessu leiti. Það er reyndar hrein
unun að sjá Bo hreyfa sig, röddin
er einnig silkimjúk og augun
með rafurgrænni glóð. Hárið er
sett upp líkt og á myndum
Babiloníumanna. Raunar er öll
persónan sveipuð huliðshjúp.
Það er ef til vill of mikil áhætta
að kynna persónuna bak við
nafnið nánar fyrir áhorfendum?
Hins vegar fá bíógestir að nálg-
ast aðalleikara „10“ Dudley
Moore. Og verð ég að segja að því
nánar sem maður kynntist þeim
ágæta manni því vænna þótti
manni um kauða, slíkur galdra-
leikari er hann.
Dudley Moore leikur hér
George nokkurn Webber sem er
miðaldra tónskáld. Webber er
einmitt á þeim punkti lífsins
sem sumir kalla „síðara gelgju-
skeiðið“. Þá ku mönnum finnast
sem æskan sé að baki og nú sé
um að gera að sanna karlmanns-
þróttinn. Liggur þá ekki beinast
við að snúa sér að ungum og
ferskum blómarósum? Webber
En er þetta ekki lífsins saga:.
Menn leita drauma sinna á
fjarlægri strönd en hafna að
lokum við gamla túngarðinn, þar
sem þeir leggjast og taka að
jórtra; auðsveipir sauðir í eigin
hjörð.
Er sagan sem sögð er í „10“
þannig ekki sú sama og Laxness
hittir Bo og býðst þar tækifæri
til að sanna karlmennsku við
undirspil Bolero Ravels. Bo hin
alfrjálsa ástargyðja vekur hins
vegar upp allar þær siðferðis-
hömlur sem hinn miðaldra „tán-
ingur" hefur hlaðið um hjarta
sitt og að lokum fer allt í baklás.
Er grátbroslegt að fylgjast með
þegar Webber skríður aftur
heim til sinnar gömlu vinkonu
Samantha Taylor sem Sound of
Music hetjan Julie Andrews
leikur af húsmóðurlegu öryggi.
segir okkur nú í Paradísar-
heimt? Draumar Steins bónda
og George Webber eru ólíkir en
báðir snúa aftur heim. Annar að
föllnu koti á hjara veraldar en
hinn að opnum Rolls Royce
Silver Shadow og villu í Beverly
Hills, Summit Drive. Ólíkar um-
búðir utanum einn kjarna.
Þannig er ólíkt léttara yfir „10“
enda leikstjórinn Blake Edwards
þekktur fyrir skemmtimyndir.
Hver man ekki eftir Bleika
Pardusinum?
Blake er mjög tæknilegur
brandarakall ef svo má að orði
komast. Brandarar hans eru
nauða ómerkilegir en birtast svo
óvænt að hláturtaugarnar ná
ekki að verjast. Er ég viss um að
Edwards hefur oft hugsað til
samtalsins milli Chaplins og
leikritaskáldsins Charles Mac-
Arthur en þar spyr sá síðar-
nefndi: „Hvernig er best Chaplin
að fá fram hlátur þegar maður
lætur feita frú sem er á labbi
niður Fifth Avenue, detta um
bananahýði eins og þegar er búið
að gera milljón sinnum? Gæti
maður ekki til dæmis fyrst sýnt
bananahýðið, þá feitu frúna
nálgast. Næst þegar hún dettur
... eða fyrst feitu frúna þá
bananahýðið og svo þegar hún
dettur?“
„Hvorugt ...“ svaraði Caplin
að bragði „... þú sýnir feitu
konuna að nálgast, síðan ban-
anahýðið, þá feitu konuna og
bananahýðið saman, svo stígur
hún yfir bananahýðið og hverfur
niður uin gangstéttarop."
Einföld lausn hjá Chaplin, en
hvar verðið þið með flóknu
lausnirnar eftir 50—60 ár, sann-
arlega ekki á hvíta tjaldinu eins
og litli maðurinn með stafprikið
og kúluhattinn. „10“ verður
væntanlega ekki á tjaldinu á
þeim tíma en samt á hún erindi í
skammdegið sem stundargaman,
fyrir fullorðna.
Þorkell Gislason.
Skipaður
borgarfógeti
FORSETI íslands hefur að til-
lögu dómsmálaráðherra skipað
Þorkel Gíslason borgarfógeta við
embætti Yfirbogarfógetans í
Reykjavík frá 1. janúar sl.
Þorkell tekur við starfi \sbergs
Sigurðssonar, sem hefur verið
skipaður deildarstjóri \ ið við-
skiptaráðuneytið frá sama líma og
mun hafa yfirumsjón með skrán-
ingu hlutafélaga í samræmi við ný
lög þess efnis, sem gengu í gildi
um áramótin.
Þorkell Gíslason er l(> ára
gamall, fæddur í Re\l.javík 9.
janúar 1934, sonur Gísla Þorkéls-
sonar og Rannveigar Jónxlóttur.
Hann varð stúdent frá MR 1954 og
lauk lagaprófi frá HÍ 1900. Hann
var um hríð lögreglustjori í Bol-
ungarvík, var síðar fulltrui sýslu-
mannsins í Stykkishólmi og hefur
nú um nokkurra ára skeið verið
fulltrúi yfirborgarfógeta.
Kona Þorkels er Margrét Sjöfn
Davíðsdóttir.
Hafís er nokkuð
yfir meðallagi
Hafísrannsóknadeild Veður-
stofu íslands sendi í gær eftirfar-
andi frettatilkynningu og kort af
legu hafíssins við strendur lands-
ins.
Meðfylgjandi kort sýnir hafís-
inn í Islandshafi milli íslands,
Grænlands og Jan Mayen í árslok.
Kortið er dregið samkvæmt ís-
könnun íslensku landhelgisgæsl-
unnar norðvestur af íslandi, veð-
urtunglamyndum og ýmsum öðr-
um gögnum. ís er í meðallagi og
meiri en um sama leyti í fyrra.
Hafsvæðið, sem táknað er á
myndinni með heildregnum ská-
línum og hringjum, er þakið að 7
til 9 tíundu hlutum, en nær
Grænlandi er sjór alþakinn. Lóð-
rétt smástrik tákna nýmyndun.
Brotalínur á auðu hafi austur af
ísjaðrinum gefa til kynna í stórum
dráttum, hvernig háttað er hita
við yfirborð sjávar. Sjórannsókna-
dpild Hafrannsóknastofnunar
kannar um þessar mundir hita og
seltu í sjónum norður af íslandi.
Seltan ákvarðar ásamt hitanum
eðlisþyngd sjávarins og þar með
ísmyndunarskilyrði við ísland
næstu mánuði.
Fjölmiðlar Islendinga ættu að
sýna mikinn áhuga á Islandshaf-
inu öllu og rannsóknum á því.
Stöðug vitneskja um hafísinn á
Islandshafi er mikilvæg. Hafsvæði
þetta var nýlega „lagt undir"
Island með miklum látum. Þar eru
miðin og þangað sækja menn
björg í bú til hagsældar landi og
lýð.
Illt er þegar hafnir lokast, en
það er landkrabbaháttur að láta
sig einungis varða hafís í sjónmáli
frá ströndum íslands. Þess ber
einnig að gæta, að því meiri
vitneskju sem menn hafa um hafís
á íslandshafi hverju sinni, þeim
mun minna kemur hann á óvart,
þegar hann gerist nærgongull við
strendur landsins.
• •*••***•••*••••••••••••••••••••••?•••••••••••iíií•••iiii•••••••? •.
A*iMt*l*«**M*t***********t*****tM#t*ltl***IV«*tMM*MI«*tttaZ^ •
V* • 0 •••••••*••••••••••••••••••••••••••••••••••• m •••••••••• • •••• * I ~ • 9 A
_............................................
.......................................................... 'r>*
::: Bridgeskólinn Bridgeskólinn
( »#•••
»•••
»#••*
| Næstu námskeiö Bridgeskólans:
LÆRIÐ BRIDGE
A) fyrir byrjendur, hefst mánudaginn 12. janúar, 10 skipti,
vikulega til 16. marz
0G BRIDGE FYRIR ALLA
B) fyrir lengra komna, framhalds- og endurhæfingarnám-
skeiö, hefst þriöjudaginn 13. janúar vikulega til 17. marz.
>#•••
>••••*
#••••
#••••
Upplýsingasíminn er 19847
Innritun dagana 6., 7. og 8. janúar kl. 18.00
til 20.00 á kennslustaö í húsi Sparisjóös
vélstjóra, Borgartúni 18.
Spilaklúbburinn er opinn öllum fyrrverandi nemendum
skólans á miövikudagskvöldum kl. 20.30 í félagsheimili
> !•••
{ >•••
I >•••
«•••
I >•••
( >•••
flugfelagsstarfsmanna, Siöumula 11
( ►#♦•••
( >•••*-
( >••*•■
••••-
•••-
#•••*-
#••••>
•••*;.'
••;:*
•v
Bridgeskólinn
s. 19847
Bridgeskólinn
»• **••••••••••••••••■■••••••••••••••••••••••••••••••••«■• • •••••• • • • • •
i _• **•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• • •••••• • •• •
**••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••*•••••••• ••••••• ••• »
•/•••••••••••••••••••••••*•••••••••••••••••••••••••••••••••••*«•*(
*•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• •