Morgunblaðið - 04.01.1981, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1981
30
+
Móöir mín,
GUÐRÚN JÓNMUNDSDÓTTIR,
lést 27. desember 1980.
Jaröarförin ákveðin þriöjudaginn 6. janúar 1981 í Fossvogskirkju
kl. 10.30.
Jónmundur Jensson.
Eiginmaöur minn,
HANNES SVEINSSON,
fyrrverandi veghefilsstjórí,
Skriöustekk 23,
Reykjavík,
lézt 31. desember sl.
Arndís Jónsdóttir.
+
Eiginmaöur minn op faöir okkar,
RIKHARÐUR HALLGRÍMSSON
byggingaeftirlitsmaöur,
er lést á jólanótt, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju
miövikudaginn 7. janúar kl. 3. e.h.
Þórdís Stefánsdóttir og börn.
+
Eiginmaður minn og faöir okkar,
SIGURDUR JÓHANNESSON,
Njálsgötu 85,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 6. janúar kl.
1.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuö en þeim sem vildu
minnast hans er bent á minningarsjóð Landspítalans og
Krabbameinsfélagiö.
Ingibjörg Úlfarsdóttir,
Anna Ósk Sigurðardóttir,
Sigurður Sigurðsson,
Unnur Siguröardóttir,
Ásta Nína Siguróardóttir,
Bragi Hrafn Sigurösson.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför
eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur og ömmu,
ELÍNAR ÞORKELSDÓTTUR.
Valdimar Þórðarson,
Þorkell Valdimarsson, Sigríður A. Valdimarsdóttir,
Sigurður Valdimarsson, Bryndís Frióþjófsdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jaröarför fööur okkar,
tengdafööur, afa og langafa,
SIGURÐAR HARALDSSONAR,
Ingjaldsstöóum.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Bestu þakkir fyrir auösýnda samúö og skeyti viö útför
ÓLAFS Þ. INGVARSSONAR,
Baldursgötu 3B.
Guð gefi ykkur gleöilegt nýár.
Guórún Olafsdóttir
og aórir vandamenn.
+
Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jaröarför
MATTHÍASAR JÓNSSONAR,
Amtmannsstíg 5.
Börn og tengdabörn.
Þetta gerðist
4. janúar
1762 — Bretar segja Spáni og
Napoli stríð á hendur.
1797 — Napoleon Bonaparte sigr-
ar Austurríkismenn við Rivoli á
Ítalíu.
1919 — Rússneskir bolsévíkar
taka Riga, Lettlandi.
1921 — Indverska þingið kemur
fyrst saman.
1932 — Japanir sækja að Shan-
haikwan við Kínamúrinn —
Neyðarástandslög á Indlandi.
Kongressflokkurinn bannaður og
Mahatma Gandhi handtekinn.
1935 — íbúar Saar samþykkja
sameiningu við Þýzkaland.
1938 — Bretar fresta áætlun um
skiptingu Palestínu.
1948 — Burma verður sjálfstætt
lýðveldi.
1951 — Norður-Kóreumenn og
Kínverjar taka Seoul, Kóreu.
1959 — Óeirðir brjótast út í
Leopoidville, Kongó.
1978 — Fundur Jimmy Carters og
Anwar Sadats í Aswan.
1979 — Fundur Jimmy Carters,
James Callaghans og Valery Gis-
card d’Estaings á Guadeloupe.
Afmæli. James Usher, írskur
biskup fræðimaður (1581 — 1656)
— Jakob Grimm, þýzkur þjóð-
sagnafræðingur og málfræðingur
(1785-1863).
Andlát. 1941 Henri Bergson,
heimspekingur — 1958 Ralph
Vaughan Williams, tónskáld —
1960 Albert Camus, rithöfundur
- 1965 T.S. Eliot, skáld.
Innlent. 1656 d. Þorlákur Skúla-
son biskup — 1883 d. Jón landrit-
ari Jónsson — 1891 d. Konráð
Gíslason prófessor — 1907 Hér-
aðsskólinn að Núpi tekur til
starfa — 1917 Fyrsta íslenzka
ráðuneytið tekur við stjórn —
1969 Stórbruni á Akureyri —
1961 d. Björgvin Guðmundsson
tónskáld.
Orð dagsins. Stefnur eru eins og
mannfólkið — þær snúa aftur til
upphaflegra heimkynna sinna —
Giovanni Ruffini, ítalskur rithöf-
undur (1807-1881).
Þetta gerðist
5. janúar
1477 — Orrustan við Nancy.
Svisslendingar sigra og fella Karl
djarfa af Búrgundi.
1809 — Bretar og Tyrkir semja
um Dardanellasund.
1895 — Þýzki eðlisfræðingurinn
Wilhelm Röntgen kunngerir upp-
götvun röntgengeisla.
1899 — Aguinaldo hershöfðingi
krefst þess að Bandaríkin veiti
Filippseyjum sjálfstæði.
1919 — Uppreisn Spartakista
hefst í Berlín — Flokkur þjóðern-
isjafnaðarmanna stofnaður í
Þýzkalandi.
1929 — Alexander konungur I
nemur stjórnarskrá Júgóslavíu úr
gildi og tekur sér alræðisvald.
1964 — Páll páfi VI og Benedikt-
os patriarki hittast í Landinu
helga — fyrsti fundur páfa og
patriarka rétttrúnaðarkirkjunnar
í fimm aldir.
1969 — Rússar senda ómannað
geimfar til Venusar.
1972 — Brezkum hermönnum
veitt aukið svigrúm til að skjóta
skæruliða á Norðurírlandi.
1976 — Sjónvarp leyft í fyrsta
sinn í Suður-Afríku.
Afmæli. Konrad Adenauer, þýzk-
ur kanzlari (1876—1967) — Juan
Carlos de Borbon y Borbon Spán-
arkonungur (1937 —).
Andlát. 1589 Catherine de Medici
Frakkadrottning — 1762 Elísabet
keisaradrottning af Rússlandi —
1858 Josef Radetzky, hermaður —
1922 Ernest Shacídeton, land-
könnuður — 1941 Amy Johnson,
flugmaður.
Innlent. 1874 Stjórnarskráin gef-
in út — 1959 Fjórir farast í
flugslysi á Vaðlaheiði — 1965
Útför Ólafs Thors — 1972 Cessna
flugvél nauðlendir við Engey —
1979 Fyrsta breiðþota íslendinga
kemur — 1874 f. Jón Krabbe.
Orð dagsins. Diplómat er maður,
sem man eftir afmælisdegi konu,
en aldrei hvað hún er gömul —
Robert Frost, bandarískt skáld
(1874-1963).
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Pilturinn vinur minn er „gæðablóð“. Ilann er alltaf að
tala um atriði eins og siðgæði og verðmæti, en ég botna
ekkert í þess konar tali. Honum finnst eg hafi ekki neina
„kjölfestu“, en eg er ung og þrái að njóta lífsins. Haldið
þér, að eg ætti að slíta sambandinu við hann?
Mér býður í grun, að þú verkir frekar á piltinn þinn
eins og áskorun en að hann beri til þín rómantískar
tilfinningar. Þér finnst, eins og mörgu æskufólki nú á
dögum, að kjölfesta sé gamaldags orð og óþarft í
köldum og hraðfara heimi.
En þú ættir, stúlka mín, að taka þér tíma til að lesa
mannkynssöguna, og þá kemstu að raun um, að það
eru einmitt menn, sem höfðu fasta skapgerð og þunga
kjölfestu, sem gerðu heiminn svo úr garði, að hér er
líft, en ekki ólíft.
Ef þið, unga fólkið, farið ekki að reyna að „botna í“
orðum eins og siðferði, verðmæti og hegðum, stefnum
við heiminum í hreina vitfirringu.
Eg hef helgað krafta mína því hlutverki að predika
fagnaðarerindið um Jesúm Krist, ekki vegna þess að
eg er alinn upp á kristnu heimili, heldur af því að eg
hef komizt að raun um, að Kristur getur gefið
mönnum kjölfestu.
Eg veit vel, að sumir segjast fylgja honum, en eru
ekki annað en skrípamynd raunverulegra lærisveina
Krists og nota heitið „kristinn" til að hylja yfir
vonzku sína. En eg hef séð með eigin augum
frámunalega lítilsiglt fólk umbreytast í menn, sem
mátu mikils orðin siðferði, heiðarleika og mann-
gæzku, og það var allt að þakka trúnni á Jesúm Krist.
+
Þökkum innilega samúö og hlýhug vegna andláts og útfarar
eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
GUÐLAUGAR K. KRISTINSDÓTTUR,
Hólsvegi 6, Bolungarvík.
Eyjólfur Júlíusson,
Guómundur H. Eyjólfsson,
Bjarni Aóalsteinsson,
Guörún Kristjánsdóttir,
Sigurrós F. Elíasdóttir
og barnabörn.
Hershöfð-
ingi myrt-
ur á ítaliu
Rómaborg, 2. janúar. AP.
MEÐLIMIR Rauðu her-
deildanna á Ítalíu myrtu
Enrico Galvaligi hershöíð-
ingja á gamlárskvöld.
Morðingjarnir dulbjuggu
sig sem sendla og fóru að
íbúð hershöfðingjans. Þeg-
ar hann kom til dyra
skutu þeir hershöfðingj-
ann umsvifalaust. Enrico
Galvaligi var næstæðsti
maður herfögreglunnar og
var yfirmaður öryggiseft-
irlits í fangelsum þar sem
fjölmargir dæmdir hermd-
arverkamenn eru hafðir í
haldi.
I orðsendingu Rauðu herdeild-
anna segir, að Galvaligi og Gio-
vanni D’Urso, dómari, en hann er
einn helsti yfirmaður fangelsis-
mála á Ítalíu, hafi verið nánir
samstarfsmenn og fulltrúar
„kúgunar borgarastéttarinnar".
Sandro Pertini, forseti Ítalíu,
batt endi á heimsókn sína til
Frakklands þegar Galvaligi var
myrtur og hann var viðstaddur
útför hershöfðingjans. Meðal
þeirra sem fylgdu Galvaligi til
grafar var Arnaldo Frolandi,
forsætisráðherra landsins.
Hermdarverkamenn Rauðu her-
deildanna hafa koinið upp víð-
tæku upplýsinganeti til að velja
fórnarlömb sín. Einn helsti hers-
höfðingi landsins, Umberto Gap-
uzzo, skýrði frá þessu í blaðavið-
tali. „Þau sapnindamerki sem við
höfum aflað okkur henda til, að
þeir (hermdarverkamennirnir)
hafi komið víðtæku upplýsinga-
neti og búi sig vandlega undir
ódæði sín auk þess að þeir velja
sem fórnarlömb þá, sem eru
auðveld skotmörk," sagði hers-
höfðinginn í blaðaviðtali.
liASIMINN KK: pA
22480 'sjí
JHaruimblnbiti