Morgunblaðið - 27.01.1981, Page 1

Morgunblaðið - 27.01.1981, Page 1
 48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI tri0nw®íllíifeií> 21. tbl. 69. árg. ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Níu þingmenn til liðs við Jenkins London, 26. jan. — AP. NÍU þinKmcnn Verkamanna- flokksins Keniíu i lið með „fjór- menningaklikiT hæKrimanna i flokknum i da«. ok lýstu yfir stuðninKÍ við „Lýðra“ðisjafnaðar- ráð“ þeirra, sem stjórnmálaflokk- Gíslarnir við messu West Point, 26. jan. AP. BANDARtSKU gislarnir og fjölskyldur þeirra sóttu þakk- arKjörðarmessu i kapellu herskólans I West Point og Kislarnir sungu sálmana, sem hjálpuðu þeim að lifa af þreng- ingarnar i Iran. Einn gfslanna fyrrverandi. Kathrayn Koob, kallaði cndurhcimt frelsi sitt „ástarbað“. í Washington skrifaði Ronald Reagan forseti undir tilskipun um að næsti fimmtudagur skuli verða þakkargjörðardagur þjóð- arinnar vegna endurheimtar gíslanna. Þeir gíslanna, sem kæra sig um skýra þjóðinni frá reynslu sinni á blaðamannafundi í fyrramálið, en fara svo til Washington, þar sem ríkis- stjórnin mun tjá þeim þakklæti sitt fyrir 14* l/i mánaðar fórn, sem var þröngvað upp á þá. Sex þúsund gestum er boðið að verða við athöfnina á lóð Hvíta hússins og 600 munu vera við móttöku í Hvíta húsinu. ar spá að verði fjórði stjórnmála- flokkurinn i Bretlandi. Vaxandi klofningur í Verka- mannaflokknum eykur líkur Mar- garet Thatcher forsætisráðherra á að haldast við völd um árabil, þrátt fyrir núverandi óvinsældir ríkis- stjórnar íhaldsflokksins. Roy Jenkins, fyrrverandi vara- leiðtogi Verkamannaflokksins, og þrír aðrir hægrisinnar hófust handa um helgina að skipuleggja flokksbrot sitt. Þótt fjórmenn- ingarnir skildu ekki algerlega við flokkinn var því spáð í dag, að nýr lýðræðisj afnaðar man naf lokkur yrði stofnaður fyrir næsta sumar. Auk Jenkins eru í fjórmenninga- klíkunni David Owen, fv. utanríkis- ráðherra, Shirley Williams, fv. menntamálaráðherra og William Rodgers, fv. landvarnaráðherra. Hinir óánægðu þingmenn Verka- mannaflokksins birtu stutta yfir- lýsingu eftir fund í skrifstofu Owens og blaðið New Standard segir að hún „gæti breytt yfir- bragði brezkra stjórnmála". Þeir hétu því að „berjast hver fyrir sig og í sameiningu, innan þings og utan, fyrir málstað lýðræðisjafnað- arstefnu". Fréttaskýrandi The Guardian, Peter Jenkins, sagði í dag, að sigur vinstrisinna á flokksþinginu á laugardaginn væri „þríþætt áfall fyrir Verkamannaflokkinn", sem byði upp á „fullkomið tækifæri" til að stofna nýjan stjórnmálaflokk. Sjá einnig bls. 47. Arabar bjóða PLO hergögn Taif, Saudi Arrabtu, 26. jan. AP. LEIÐTOGAR múhameðstrúarrikja ræddu i dag á fundi sinum i Taif tillögu um að einangra ísrael hjá SÞ og veita palestinskum skærulið- um hernaðaraðstoð. I tillögunni segir að stefna beri að því að beita vini ísraels þrýstingi til að neyða Gyðingaríkið til þess að hætta hernámi arabískra svæða, sem voru hertekin í stríðinu 1967. Sagt er, að múhameðstrúarríki eigi að beita öllum hernaðarlegum, pólitiskum og efnahagslegum ráð- um, þar á meðal olíuvopninu, til að berjast fyrir réttindum Palestínu- manna. Ef tillagan verður samþykkt munu múhameðstrúarríki heita Frelsis- samtökum Palestínu (PLO) hergögn- um og sérfræðiaðstoð og beita sér fyrir samræmdri stefnu þeirra ríkja, sem liggja að Israel. Aðildarríki Arababandalagsins hafa þegar skuldbundið sig til að veita Jórdaníu og Sýrlandi 2,5 millj- arða dollara aðstoð á ári til þess að tryggja hernaðarviðbúnað ríkjanna, og auk þess PLO 150 milljónir dollara. Vegna innbyrðis ágreinings ríkj- anna þykja litlar líkur á því, að áskoranir Khaleds konungs um ein- ingu og aðgerðir geti orðið að veruleika. Vegna ágreiningsins og versnandi sambúðar Sovétríkjanna og Bandaríkjanna sagði Kurt Wald- heim, framkvæmdastjori SÞ, á fund- inum í dag, að horfur á lausn deilumála í Miðausturlöndum væru alls ekki góðar. íranar sækja ekki fundinn vegna stríðsins við íraka. Stærstu and- spyrnusamtök Afghana tilkynntu fundinum í dag að þau mundi leggjast gegn öllum tilraunum til að leysa Afghanistanmálið án beinnar þátttöku þeirra. I Washington sagði talsmaður í kvöld, að Reagan-stjórnin væri að endurskoða alla stefnu Bandaríkj- anna gagnvart Miðausturlöndum, en það þyrfti ekki endilega að tákna breytingu. Frá flóðunum í Suður-Afríku. Þjóðvegurinn milli Ilöfðaborgar og Jóhannesarborgar hefur rofnað á nokkrum stöðum. Gífurleg flóð í Suður-Afríku Jóhannesarborx. 26. jan. AP. HUNDRUÐ manna misstu hcimili sín og óttazt er að rúmlega 100 hafi farizt í flóðum, sem fylgdu i kjölfar úrhellisrigningar i hérað- inu Karoo i suðvesturhluta Ilöfða- fylkis i Suður-Afriku. P.W. Botha, forsætisráðherra, sagði á þingi, að ástandið væri „alvariegt“ og þyrlur hefðu verið sendar með hjúkrunargögn, lyf, matvæli, tjöld og rúm til Laings- burg, lítils markaðsbæjar, þar sem öll mannslátin hafa orðið af völd- um flóðanna. Ríkisútvarpið í Suður-Afríku sagði, að flóðin í Karoo, sem er flatlent svæði, þekkt fyrir þurrka og með býlum þar sem stunduð er hveitirækt, sauðfjárrækt og nautgriparækt, væru talin mesta slys af völdum náttúruhamfara í sögu Suður-Afríku. Enn er unnið að því að meta tjón, sem hefur orðið á heimilum, býlum, brúm, vegum og járnbrautarlínum, en samkvæmt bráðabirgðatölum nemur það milljónum dollara. 99 Mafíósar“ teknir fastir Reggio Calabria. 26. jan. AP. ÍTALSKA lögreglan segist hafa handtekið 123 menn sem eru grunaðir um að vera félag- ar úr Mafíunni i Calabria- héraði á Suður-Ítalíu og hafa tekið þátt í fjárkúgunum, mannránum og öðrum glæp- um. I hópi hinna handteknu er Concretta Rottura, sem er grunuð um að vera vinkona Michelangelo Franconieri, sem er grunaður um að vera foringi undirheimanna. Lögreglan hef- ur árangurslaust leitað að Franconieri í 25 ár. Buffels-áin (Vísundaá), sem venjulega er aðeins 30 jnetra breið, flæddi yfir bakka sína og flóðbylgja skall á bæinn Laingsburg, sem er 256 km norðaustur af Höfðaborg. Fréttamaður suður-afríska sjón- varpsins, sem flaug í þyrlu til Laingsburg, sagði að eyðileggingin væri „aldeilis ótrúleg". Hann sagði, að þegar flóðin stóðu sem hæst í dag hefði aðalþjóðvegurinn, sem liggur um Laingsburg og tengir Jóhannesarborg og Höfðaborg, ver- ið 10 metrum undir vatni. A knattleiksvelli bæjarins sást aðeins glitta í marksúlurnar þar sem þær stóðu upp úr leðjunni, sagði fréttamaðurinn. Hann sagði, að venjulega sæist aldrei vatn í Laingsburg, en á síðastliðnum sól- arhring hefði þorpið næstum því skolazt í burtu. Leðjuhaugar og brak hamla björgunarstarfinu og leitinni að likunum. Mótmæli stúdenta í Póllandi breiðast út Varsjá. 26.Jan. AP. VERKALYÐSLEIÐTOGINN Lech Walesa fór í skyndi í dag til bæjarins Rzeszow 1 Suðaustur-Póllandi til að reyna að koma í veg fyrir árekstra milli yfirvalda og 300 reiðra verkamanna og bænda, sem eru í setuverkfalli, og jafnframt hvatti stjórnmálaráð kommúnistaflokksins til aðgcrða til að leysa eínahagsvandann. Mótmæli stúdenta breiðast auk þess út í borginni Lodz og ókyrrðin í Póllandi er því greinilega að færast á nýtt stig. Samkvæmt fréttum frá Lodz hófu um 2.000 stúdentar í háskólanum þar setuverkfall fyrir einni viku og síðan hafa um 1.000 stúdentar við læknadeildina farið að dæmi þeirra. Setuverkföll eru ráð- gerð í tveimur öðrum háskóladeild- um. Stúdentar krefjast þess, að ríkis- stjórnin geri ýmsar tilslakanir, til dæmis að skyldunám í marxisma, heimspeki og hagfræði verði lagt niður og útilokað verði með öllu að lögreglu sé beitt f háskólum til að halda uppi lögum og reglu. Ríkisstjórnin hefur tilkynnt að vinnustöðvun milljóna Pólverja á laugardaginn hafi kostað 1,5 millj- arða Zlotya ( um 150 milljónir dollara) og jafnframt kom stjórn- málaráðið saman til fundar til að fjalla um ástandið. í tilkynningu, sem var gefin út eftir fundinn, sagði að stjórnmála- ráðið hefði skorað á ríkisstjórnina að gera nákvæma úttekt á tíðum fjarvistum verkamanna, svo að unnt yrði að gera nauðsynlegar ráðstaf- anir til að koma í veg fyrir að efnahagsástandið héldi áfram að versna. Tilkynnt var í dag, að svokallað ríkissamvinnuráð kæmi saman til fyrsta fundar síns í þessari viku í Rzeszow. Upphaflega átti að halda fundinn í Gdansk á miðvikudag eða fimmtudag, en vegna ástandsins í Suðaustur-Póllandi var ákveðið að fundurinn skyldi fara fram þar. 1 Rzeszow hafa bændur og verka- menn frá um 30 svæðum gengið í lið með bændum og verkamönnum, sem hafa hreiðrað um sig í fyrrverandi aðalstöðvum ríkisverkalýðshreyf- ingarinnar. Þeir bera fram 70 kröf- ur, flestar þeirra staðbundnar, en aðalkrafan er sú, að leyfð verði stofnun verkalýðshreyfingar bænda, svokallaðrar Sveita- Samstöðu. Verkfalli er hótað, ef ríkisnefnd með samningsumboð kemur ekki fyrir hádegi á morgun til bæjarins. í ráði er að fyrst verði gerð verkföll í nokkrum verksmiðjum, en síðan í héraðinu öllu frá og með 28. febr., sem hefur verið lýstur dagur sam- stöðu bænda með verkamönnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.