Morgunblaðið - 27.01.1981, Side 14

Morgunblaðið - 27.01.1981, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981 Matthías Bjarnason, ív. sjávarútvegsráðherra, flutti fróðlegt yfirlitserindi á ráðstefnu Sjálfstæðisflokksins um sjávarútvegsmál í lok síðustu viku. Hér fer á eftir fyrri hluti þessa erindis en síðari hluti þess verður væntanlega birtur í Mbl. á morgun. Staöa sjávar- útvegsins Hver er staða íslenzks sjávar- útvegs í okkar þjóðfélagi? Hvernig stendur hann í samkeppni við aðrar þjóðir? Þetta eru spurn- ingar sem leita fyrst á hugann þegar maður fer að ræða um sjávarútvegsmál. Fyrri spurning- unni verður svarað í sem fæstum orðum á þá leið, að sjávarútvegur- inn er undirstaða atvinnulífsins, útflutningsins og efnahagslegrar stöðu þjóðfélagsins af þeirri einu ástæðu að hann er langstærsti atvinnuvegur okkar og hann er það sem aðrar greinar atvinnulífs- ins byggja stöðu sína á og þá ekki síður samfélagið eða ríkissjóður. Þegar við lítum á samkeppnis- stöðu íslenzks sjávarútvegs gagn- vart þeim sem við keppum við um sölu á sjávarafla, þá er ólíku saman að jafna. Margar fiskveiði- þjóðir greiða útgerð sinni og vinnslu mikla ríkisstyrki, en ís- lenska samféiagið greiðir ekkert til sjávarútvegsins. Hann verður að standa á eigin fótum í sam- keppni við erlenda aðila, sem njóta styrkja úr sínum ríkissjóð- um. Þetta er í stuttu máli staða sjávarútvegs í okkar þjóðfélagi. Samt heyrum við, að þráfaldlega er á því stagazt að sjávarútvegur- inn njóti fríðinda og styrkja frá íslenzka ríkinu. Sjávarútvegurinn nýtur engra styrkja. Hann verður að standa á eigin fótum og eins og ég sagði áðan í harðri samkeppni við niðurgreidda framleiðslu en á síðustu árum hefur þeim farið ört fjölgandi og aukin menntun hefur átt sér stað í sambandi við fiskvinnslu og stjórn útgerðar. Þetta eru ánægjulegar breytingar, sem ber að fagna. Ríkisvaldið á hverjum tíma hef- ur mikil áhrif á stöðu sjávarút- vegs, hvernig er að honum búið á hverjum tíma, og þar hefur mönnum sýnzt sitt hvað í þeim efnum og hvernig þar hafi verið unnið. En þrátt fyrir það að nú syrti í álinn í rekstri sjávarútvegs, þá hafa verið unnir stórir og Matthias Bjarnason, alþingismaður. 1967, að þá veiddu erlendar þjóðir 53,5% af bolfiskaflanum. Það var sjáanlegt að þrátt fyrir að árið 1972 hafði fiskveiðilögsag- an verið færð út í 50 sjómílur, þyrfti að halda áfram og stíga róttækt skref hvað sem hver segði. Sjálfstæðisflokkurinn lagði á það höfuðáherzlu í sambandi við samninga um myndun ríkisstjórn- arinnar, sem tók við í ágústlok 1974, að fiskveiðilögsagan yrði færð út í 200- sjómílur, en sam- starfsflokkurinn vildi bíða átekta hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna til næsta árs en að lokum náðust samningar um það, að reglugerð yrði gefin út 15. júlí 1975 um útfærslu fiskveiðilögsögu okkar í 200 sjómílur. Þar með var fiskveiðilögsagan stækkuð úr 216 þús. ferkm í 758 þús. ferkm og var þessi ákvörðun sú mikilvægasta, sem tekin hefur verið. í fyrsta lagi til þess að tryggja lífsafkomu þessarar þjóðar og í öðru lagi til þess að ráða sjálfir yfir 200 sjómílna hafsvæði umhverfis ís- land. Þessi ákvörðun átti eftir að draga dilk á eftir sér, því að við vorum fyrstir hér í hinum vest- ræna heimi, sem stigum þetta mikilvæga skref. Viðbrögð þeirra þjóða sem hér höfðu stundað veiðar í allt að 6 aldir voru mótmæli og aftur mótmæli, sem fylgt var eftir, eins og allir þekkja, með tilstyrk herskipa að halda áfram að veiða innan íslenzkrar fiskveiðilögsögu. En við skulum líta yfir farinn veg. Ég nefndi áðan, að árið 1967 fiskveiðilögsögu 6 mánuðum síðar. Með þeim sama samningi fengum við tryggingu fyrir því að tolla- samningur sá er við höfðum gert við Efnahagsbandalag Evrópu tæki gildi frá 1. júlí það ár. Eg minnist nú þeirra mótmæla sem þá áttu sér stað og tveir stjórn- málaflokkar stóðu að og kröfðust þess, að Alþingi yrði kallað sam- an, því að þeir töldu, að hér hefði verið gerður stórfelldur svika- samningur, sem yrði til skaða fyrir land og þjóð um langa framtíð og töldu að Bretar myndu ekki fara úr íslenzkri fiskveiði- lögsögu. Þessi boðskapur varð að engu. Bretar fóru út eins og um var samið og tollasamningurinn tók gildi. Það var lítið gert úr gildistöku þessa samnings af mörgum andstæðingum okkar sjálfstæðismanna, en tollasamn- ingurinn gaf okkur í tollafríðind- um á sl. ári á milli 11—12 milljarða kr. Þessi samningur hefði trúiega ekki tekið gildi, ef samningurinn við Breta hefði ekki verið gerður. Sú ríkisstjórn sem sat á þessum árum eyddi löngum tíma í land- helgismálið og þurfti að taka vandasamar og erfiðar ákvarðanir í sambandi við það. Henni tókst að koma þessu máli heilu í höfn. Eftir sitjum við með þrjá samn- inga: í fyrsta lagi samning við Belga, sem smám saman fjarar út með gömlum skipum, sem þeir gera hér út og fara ekki fram á annað en fá að halda útgerð þeirra áfram og veiða hér takmarkað magn. Lítils háttar samningur við Norðmenn, sem skiptir þá engu og okkur sama sem engu. Samningur við Færeyinga, nágranna okkar og frændur, sem nú nýlega hefur verið framlengdur. Ég hef alltaf verið stuðnings- Matthías Bjarnason: Brottför útlendra mikilvægasta fiskverndaraðgerðin Framtak einstaklinga aflgjafinn í sjávarútvegi margra keppinauta okkar um sölu á fiskafurðum. Það er athyglisvert, að sjávarút- vegurinn er byggður upp af ein- staklingum og félagasamtökum þeirra. Útgerðin er að verulegu leyti í höndum einstaklinga og félaga. Sama er að segja um fiskvinnsluna, allar greinar henn- ar að undanskildum örfáum bæj- arútgerðum. Hverjir eru þessir einstaklingar, sem standa í farar- broddi fyrir íslenzkan sjávarút- veg? Flestir menn sem standa í fararbroddi í sjávarútvegi hafa lifað og starfað við sjávarútveg frá blautu barnsbeini. Það er áberandi að sjómenn, sem hafa unnið sig áfram á sjónum, síðan gerzt eigendur í útgerð, eru lang- fjölmennastir í sambandi við stjórnun útgerðar og fiskvinnslu í þessu landi. Fram til þessa dags má því segja að skóli forvígismanna fyrirtækja í sjávarútvegi á íslandi hafi verið hinn harði skóli lífsins, skólinn á sjónum, skólinn við fiskvinnsluna. Langskólamennt- aðir menn hafa verið örfáir í sjávarútvegi fram á þennan dag, miklir sigrar. Eg get ekki látið hjá líða að minnast þess, að frá árunum 1947—1956 voru sjávar- útvegsráðherrar allan þennan tíma úr Sjálfstæðisflokknum. Á þessu tímabili hófst uppbyggingin eftir stríðið, á þessu tímabili voru sett landgrunnslögin, sem við höf- um byggt á allar okkar aðgerðir í landhelgismálinu. Á síðustu 25 árum hefur Sjálfstæðisflokkurinn farið með forystu í ríkisstjórn í 12 ár, en hann hefur aðeins farið með sjávarútvegsmál í 4 ár á þessu aldarfjórðungstímabili, árin 1974-1978. Afliútlendinga við ísland Af því að ég þekki af vissum ástæðum vel til þessara starfa á þessum árum, þá langar mig að draga hér upp nokkra mynd af því sem helzt gerðist og hvernig staðan var þegar að var komið í ágústlok 1974. Bátaflotinn var þá rekinn með miklum halla, togara- flotinn, einkum stóru togararnir, höfðu ekki rekstrargrundvöll, frystiiðnaðurinn og aðrar greinar útflutningsframleiðslu áttu við mikla örðugleika að etja. Verðfall hafði orðið á flestum mörkuðum okkar, en verðlag á innfluttri vöru tii sjávarútvegsins, einkum olíu, fór sífellt hækkandi. Það þurfti því að gera margar og víðtækar breytingar, en erfiðast var það að verðfallið hélt áfram allt árið 1975, en fór ekki að rétta við fyrr en í ársbyrjun 1976. Auk verðfallsins olli það mönnum mestum áhyggjum, hve aflinn fór síminnkandi og vil ég nefna, að á árinu 1970 varð botnfiskaflinn samtals 820 þús. lestir, en á árinu 1974 fór hann niður í 650 þús. lestir og árið þar á eftir niður í 628 þús. lestir. Hitt, sem olli mönnum miklum áhyggj- um var hve erlendar þjóðir tóku gífurlega hátt hlutfall af þessum afla. Erlendar þjóðir hafa lengst af veitt um og yfir 50% af bolfiskaflanum og þarf ekki að líta lengra aftur í tímann en til ársins hefðu erlend ríki veitt hér af bolfiskaflanum 53,5% 1973, tveim- ur árum eftir útfærsluna í 50 sjómílur, var veiði þeirra 41,1%. En 1978 voru veiðar útlendinga komnar niður í 4,6% og eru nú á sl. ári komnar niður í 3,67%, en þær veiðar eru með frjálsum samningum okkar íslendinga við þrjár þjóðir. Árangurinn sem náðist með þessum hætti lagði grundvöllinn að aukningu okkar í fiskveiðum, grundvöllinn að betri rekstri fyrir íslenzka útgerð og þar með fyrir þjóðina í heild. Oslóarsamningurinn Samningur okkar við Breta, sem gerður var í Osló árið 1976, er einhver stærsti sigur sem við íslendingar höfum unnið í sjálf- stæðisbaráttu okkar frá því að ísland varð lýðveldi 17. júní 1944. Með þeim samningi skuldbundu Bretar sig að fara út úr íslenzkri maður þessara þriggja samninga alveg jafnt á meðan ég var í stjórn og nú sem stjórnarandstæðingur. Ég breyti ekki um skoðun eftir því hvernig vindurinn blæs hverju sinni. Ég iefyi mér að hafa sömu skoðun á málum hvort sem ég er í stjórn eða stjórnarandstöðu. Belg- ar brutu ísinn fyrir okkur í Efnahagsbandalaginu, Færey- ingar eru nágrannar okkar og vinir. Við myndum hljóta fyrir- litningu annarra þjóða, ef við rækjum þá út úr íslenzkri fisk- veiðilögsögu með öllu. Samningur við Norðmenn er undir stjórn sjávarútvegsráðherra á hverjum tíma. Læt ég svo útrætt um samninga við útlendinga og um þennan þátt fiskveiðilandhelginn- ar. Fiskverndaraðgerðir Að sjálfsögðu var mikilvægasta fiskverndaraðgerðin að losna við veiðar útlendinga úr 200 sjómílna fiskveiðilögsögu. En samhliða því höfum við tekið upp ströng ákvæði um stjórnun veiða til verndar ofveiddum eða fullnýttum fisk-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.