Morgunblaðið - 27.01.1981, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.01.1981, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981 VIDTÖL: Anders Hansen MYNDIR: Emilía Björg Björnsdóttir Jón Scheving við talninifti í einum skála Rimskips. Jón Scheving: Dagsbrún þarf að kynna félags- mönnum betur hvað um er að vera „ÉG HEF verió til skiptis i Daifs- brún og Sjómannafélaxinu undan- farin ár. enda er þar ekki svo mikill munur á,“ saifói Jón Schevinif, þar sem hann var við vinnu sína við Sundahófn í itœr. „Launin eru þann- ilf" bætti Jón við, „að það er hæift að lifa af þeim ef unnið er meira o« minna alla daxa til klukkan 10 á kvoldin — átta tímarnir ifefa ekki nema 100 þúsund kall á viku o|f því þarf meira til. Kjörin nú betri eða verri en áður? — Þau eru ekki verri, en aðalatriðið er að þau eru rýr og erfitt að láta enda ná saman. Þrátt fyrir þetta er ég hlynntur þeirri kjaraskerðingu sem boðuð hefur verið, en þó að því tilskildu að við verkamenn verðum ekki látnir einir um að rétta landið af. Við eigum ekki að taka á okkur skerðinguna, en verði um það sam- staða, stendur ekki á okkur að leggja lið við að rétta skútuna við.“ Jón sagðist ekki gera mikið af því að sækja fundi hjá Dagsbrún, og yfirleitt væru fundir þar heldur illa sóttir. „Bæði er vafalaust að menn eru þreyttir" sagði Jón „og vilja því nota tímann til hvíldar, og svo hitt að mönnum finnst held ég sem það sé búið að ákveða alla hluti fyrirfram. En þetta hangir auðvitað saman, ef til vill eru hlutirnir fyrirfram ákveðnir vegna þess að hinn almenni félagsmaður sækir ekki fundi til að hafa áhrif á mótun stefnunnar. En aðalatriðið er það að mínu áliti, að stjórn Dagsbrúnar ætti að gera mun meira af því að kynna starfsemi sína, og upplýsa félagsmenn betur um hver réttur þeirra er.“ Helgi Bjarnason, þar sem hann gaí sér tíma til að stöðva lyftarann augnahlik til að ræða við blaðamann í gær. Helgi Bjarnason: Skiptar skoðan- ir um bráðabirgðalögin „ÉG HEF unnið nú um nokk- urn tíma á lyftara, en var áður i lest, en alls hef ég verið í um eitt og hálft ár félags- maður í Dagshrún“ sagði Helgi Bjarnason, ungur mað- ur á lyftara, sem við hittum um kaffileytið í gær inni við Sundahöfn. Helgi sagði að sér gengi sæmilega að lifa af laununum, enda væri hann einhleypur. Hann sagðist halda að það væri betra að lifa núna af laununuin en fyrir einu og hálfu ári, en þar kæmi þó raunar inní, að hann hefði betri laun á lyftara en hann hafði áður í Iestum. „Jú það er mikið rætt um kaup og kjör hérna á vinnu- stað“ sagði Helgi, „en illa mætt á fundi í Dagsbrún. Mikið er til dæmis rætt um bráðabirgðalögin og kjara- skerðinguna, og sýnist sitt hvorum. — Mín skoðun? Ég hef varla kynnt mér þessi mál nægilega til að taka afstöðu til þeirra ennþá." Sigurður Sveinsson, verkamaður hjá Eimskip, fyrrum sjómaður. Sigurður Sveinsson: Fór ekki í afmælis- kaffið - á nóg ka „Ætli það séu ekki ein tíu eða tólf ár sem ég er búinn að vera í Dagsbrún, en þar á undan var ég lengi á sjó,“ sagði Sigurður Sveinsson, einn starfsmanna Eimskipafélags íslands, er blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins hitti við Sundahöfn í gær, síðdegis. „Mér fellur það ágætlega að vera í landi núorðið," sagði Sigurður „en mér leiddist það óttalega fyrst í stað. Þá fannst mér leiðinlegt í landi og tíminn var lengi að líða, en nú er mér alveg sama. — Af hverju? — Ég

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.