Morgunblaðið - 27.01.1981, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981
17
Trjádrumbum landað úr einum fossa Eimskipafélagsins við Reykja
víkurhöfn i gær.
Verkamannafélagið Dagsbrún átti sjötíu og fimm ára afmæli í gær, og hefur þess verið minnst með
margvíslegum hætti. Morgunblaðið leitaði í gær til nokkurra verkamanna, félaga í Dagsbrún, og
spurði þá álits á kaupi og kjörum, og fleiru því er að þeim lýtur nú, hvað sem ræður hástemmdum
hátíðarræðum og glasaglaumi á stórafmælum. .
Kalt var í veðri og slagveðursrigning, er blaðamaður og ljósmyndari voru á ferðinni við
Reykjavíkurhöfn og Sundahöfn, og ekki var að sjá að afmælisdagurinn byði upp á mikla tilbreytingu
í lífi þeirra er eru grundvöllur félagsins og hefur verið allar götur frá stofnun.
Það var kuldalegt inn við Sunda-
höfn í gær, þar sem Dagsbrún-
armenn unnu við lestun og losun
skipa, enda virtust veðurguðirnir
ekki hafa áhyggjur af 75 ára Aðeins utar! Aðeins utar!
afmæli Dagsbrúnar.
ffi heima!
fór aðallega í land vegna þess að
ég var orðinn hálf slappur,
veikur í maga.“
Sigurður sagðist lítið vilja tjá
sig um kjörin, vinnuaðstöðuna
eða félagið, Dagsbrún. „Ég sæki
lítið fundi, og það gera víst alltof
fáir, sjálfsagt væri hægt að ná
meiri árangri ef menn skiptu sér
meira af félagsmálum en nú er.“
— En hvað með 75 ára afmæli
Dagsbrúnar, fórst þú í afmæl-
iskaffið?
„Nei, ekki gerði ég það nú,
enda hef ég nóg kaffi heima hjá
mér!“
Sigurður Árnason handleikur
mjölpokana, ekki alla mjög
létta að því er virðist.
Sigurður
Árnason:
Ahuga-
leysið
er það
versta við
„LAUNIN verða að duga, ef þau
gera það ekki verður maður að
vinna meira eða þá að herða
sultarólina," sagði Sigurður
Árnason. félagsmaður í Dags-
brún, sem Morgunblaðsmenn
hittu við Reykjavíkurhöfn i gær,
þar sem hann var að stafla
mjölsekkjum á palla. „Ég hef
verið í Dagsbrún í um 20 ár,"
bætti Sigurður við, „og mér
sýnast kjörin vera svona svipuð
og þau hafa verið, ekki verri
held ég.
Nei, ég nennti nú bara ekki í
Dagsbrúnarafmælið, ég var að
vinna allan laugardaginn, og svo
Dagsbrún
þessi kuldi úti. — En það versta
við félagið er annars hvað menn
eru áhugalausir um það, sinntu
menn því meira væri sennilega
um betri kjör að ræða hjá okkur
en raun ber vitni.
Menn ræða ekki mikið þjóðmál
hér, og kemur það sjálfsagt til af
því, hve menn eru í mörgum
stjórnmálaflokkum og hafa mis-
jafnar skoðanir á hinum ýmsu
málum. — Varðandi 7% kjara-
skerðinguna segi ég það fyrir
mína parta, að ég sætti mig við
hana. Það verður að lækna verð-
bólguna, þótt það hafi nú gengið
illa undanfarið.“
Jón Ragnarsson við vinnp sína
við Sundahöfn í gær. Hann
sagðist vera frá Akureyri, en
hefði þó búið hér sunnan heiða i
fimmtiu ár.
Jón
Ragnarsson:
Vil ekki
segja allt
sem mér
finnst um
„Ég hef verið í Dagsbrún í
um það bil átta ár. og kjörin
eru að ég held mjög svipuð nú
og þau voru er ég kom fyrst í
félagið," sagði Jón Ragnarsson,
sem við hittum þar sem hann
var við vinnu sína í einum skála
Eimskipafélagsins við Sunda-
höfn í gær. „Það er hins vegar
alveg augljóst," sagði Jón
ennfremur, „að það er mun
betra að lifa núna en fyrir 50
árum er ég fór að vinna fyrir
mér."
Jón kvaðst yfirleitt ekki sækja
fundi Dagsbrúnar, „enda er það
alveg tilgangslaust," sagði hann.
Dagsbrún
„Ég vil nú helst ekki segja allt
sem mér finnst um Dagsbrún, en
ekki er ég ýkja hrifinn af þeim
félagsskap."
— Hver er skoðun þín á
vísitöluskerðingunni, sem ríkis-
stjórnin hefur boðað núna í
mars?
„Ég veit það varla, verst er
líklega að þetta er allt til einskis,
ástandið lagast ekkert. En svo
mikið veit ég, að það væri
eitthvað talað um þetta ef Sjálf-
stæðisflokkurinn væri í stjórn.
Hætt er við að þá gengi eitthvað
á, en nú er allt samþykkt."