Morgunblaðið - 27.01.1981, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 27.01.1981, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 70 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö. Dagsbrún og Versl- unarmannafélagið jr Asunnudaginn var þess minnst, að 75 ár voru liðin frá stofnun verkamannafélagsins Dagsbrúnar í Reykjavík og í dag, þriðjudag, eru 90 ár liðin síðan Verslunarmannafélag Reykjavíkur var stofnað. Að ýmsu leyti er fróðlegt að bera sögu þessara tveggja verkalýðsfélaga saman. I vitund flestra hefur Dagsbrún verið meira áberandi félag á starfsferli sínum en Verslunarmannafélagið. Raunar eru ekki mörg ár liðin síðan verslunarmenn þurftu að berjast harðri baráttu fyrir aðild félaga sinna að Alþýðusambandi íslands. Kjarabaráttan siðustu misseri hefur bent til þess, að hagur félaga í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur sé síst verri en í Dagsbrún. Það hefur nefnilega oftar en einu sinni borið við, að félagsmenn í Dagsbrún hafa talið sig betur setta með því að ganga í Verslunarmannafélag Reykjavíkur. Raunar segir það sig sjálft, að félag eins og Dagsbrún, sem gætir hagsmuna manna, er vinna til dæmis við upp- og útskipun, hlýtur að staðna í félagatölu, þegar með tækni er reynt að gera mannshöndina sem næst óþarfa nema til að stjórna vélum á hafnarbakkanum. Verslunarmannafélag Reykjavíkur hefur á sama tíma verið félag í örum vexti. Félagatala þess endurspeglar þá breytingu á þjóðfélagsháttum, þegar vinnuaflið leitar í hvers kyns þjónustugreinar. Ohætt er að fullyrða, að í almennum umræðum hér á landi geri menn alltof lítið af því að vega og meta áhrif þeirrar þróunar, sem lýsir sér í sögu þessara tveggja verkalýðsfélaga. Sé það gert innan verkalýðshreyf- ingarinnar sjálfrar, er erfitt að sjá merki þess í störfum hennar, að umræður um aukið gildi ákveðinna starfa hafi einhverjar breytingar í för með sér. Líklega er þar komið inn á of viðkvæma hagsmuni einstakra ráðamanna og félaga þeirra. Ýmsa grunar, að af sömu rót sé tregða forystmanna verkalýðshreyfingarinnar í heild til að fjalla opinskátt um eitthvert mesta misrétti þjóðfélagsins: lífeyrismálin. Á því sviði hafa forystumenn Verslunarmannafélags Reykjavíkur verið á framtíðar- braut, því að frá þeim eru komnar hugmyndir um gjörbreytingu á lífeyriskerfinu, sem leiða mun til réttlátari skipan. Grein Benedikts Igrein í Alþýðublaðinu á fimmtudaginn, sem vakið hefur verðskuld- aða athygli, lagði Benedikt Gröndal fyrrum formaður Alþýðuflokks- ins höfuðáherslu á nauðsyn þess, að koma Alþýðubandalaginu úr núverandi ríkisstjórn. Hvatti hann til þess að lýðræðisflokkarnir þrír, Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur, gengju til samstarfs í ríkisstjórn. Auðvitað má deila um áhrifamátt þess, þegar menn segja þannig hug sinn um brýn úrlausnarefni. Að mati ýmissa geta opinberar umræður um viðkvæma þætti stjórnmála tafið fyrir skynsamlegustu niðurstöðunni. Telja verður, að slík viðhorf styðjist við æ veikari rök. Menn vilja sjá meira af ísjaka stjórnmálanna nú á tímum en 1/10. Grein Benedikts Gröndals hefur þegar leitt til þess, að kommúnistar leggja hann í einelti, en eins og kunnugt er þola þeir varla, að brotabroti af fortíð þeirra sé haldiö á loft af þeim, sem skoða sögu þeirra og stefnu af hlutlægni. Benedikt Gröndal kemst að niðurstöðu sinni með því að meta núverandi stefnu Alþýðubandalagsins í ljósi uppruna þess og tengsla við heimsvaldakerfi leiðtoganna í Kreml. Lesendum Morgun- blaðsins ætti ekki að vera ókunnugt um þau haldgóðu rök, sem fyrrum formaður Alþýðuflokksins hefur máli sínu til stuðnings í því efni. En í umræðum við Svavar Gestsson, formann Alþýðubandalagsins, í útvarpinu í gærmorgun, minnti Benedikt auk þess á það, að hann hefði setið með nýrri forystusveit kommúnista hér á landi í ríkisstjórn og þekkti hana því af eigin raun. Viðureign þeirra Svavars og Benedikts í útvarpinu sýndi, hve mjög kommúnistar óttast fortíð sína og uppruna. Þegar á þessa þætti var minnst, ætlaði Alþýðubandalagsformaðurinn varla að geta bundið endi á mál sitt fyrir slagorðaflaumi. Árásin á Ellert Kommúnistar grípa gjarnan til hinna frumstæðustu slagorða, þegar að þeim er þrengt. Greinilega telja þeir stöðu sina ekki góða í umræðunum um ráðningu nýrra fréttamanna til útvarpsins. Ellert Schram útvarpsráðsmaður svaraði ágengum spurningum fréttamanns um þessar mannaráðningar. Vegna þess fær hann eftirfarandi kveðju í leiðara Þjóðviljans: „Þeir Adolf Hitler og McCarthy spurðu ekki um flokksskírteini frekar en Ellert Schram." Er það nýráðnum fréttamönnum á útvarpinu í hag, að umræðurnar um þá séu færðar yfir á þetta sérsvið Þjóðviljans: órökstutt skítkast með fúkyrðum? Þeir menn, sem slíkum aðferðum beita, óttast mest sannleikann um sjálfa sig. Þeim má ekki takast að eyðileggja allar þjóðfélagsumræður á íslandi með þröngsýni sinni, afturhaldssemi og munnsöfnuði. Birgir ísl. Gunnarsson: Þegar Viðreisnar- stjórnin afnam bóta- og millif ærslukerfið Eftir því sem árin líða verða æ fleiri þeirrar skoðunar að við- reisnarstjórnin, sem sat árin 1960—1971, hafi verið ein dug- mesta og sterkasta ríkisstjórn, sem hér hefur verið. Þrátt fyrir margvíslega yrti erfiðleika tókst þeirri ríkisstjórn að sigla þjóð- arskútunni áfallalítið í gegnum brim og boða og hún lagði grunn að þeim lífskjörum, sem við njótum í dag. Grundvallarbreyt- ing á efnahagskerfi Sú ríkisstjórn braut upp á ýmsum nýjungum og eitt af því var að gera grundvallarbreyt- ingu á efnahagskerfi landsins. Horfið var frá rangri og marg- faldri gengisskráningu og því flókna kerfi millifærslu og upp- bóta, sem lengi hafði verið við lýði. Jafnframt var margvís- legum höftum aflétt. Menn þurftu ekki lengur að standa í biðröðum til að fá leyfi fyrir innflutningi eða ferðagjaldeyri og öll varð sú afgreiðsla einfald- ari og léttari í vöfum. Um árabil hafði íslensk króna ekki verið skráð í bönkum erlendis og hvergi var hægt að fá henni skipt. Þetta breyttist allt, þegar viðreisnarstjórnin afnam bóta- og millifærslukerfið og leiðrétti gengisskráninguna. Rök viðreisnar- stjórnarinnar Þegar við nú stöndum frammi fyrir því að ríkisstjórn íslands lýsir því yfir að hún ætli að hverfa aftur til þess gamla kerfis, sem viðreisnarstjórnin afnam, er fróðlegt að lesa helstu rök viðreisnarstjórnarinnar fyrir því að afnema millifærslu- kerfið. Viðreisnarstjórnin gaf út „hvíta bók“, þar sem ítarlega var gerð grein fyrir göllum þess kerfis svo og þeim tillögum, sem þá voru gerðar. Um uppbóta og millifærslukerfið segir m.a.: „Þess er þá fyrst að geta, að ýmsum greinum útflutnings- framleiðslu og gjaldeyrisöflunar eru greiddar misháar bætur. Ef gengið væri eitt eða bætur jafn- ar, myndi verðlag erlendis og framleiðslukostnaður innan- lands hafa úrslitaáhrif á út- flutningsframleiðsluna, eins og hagkvæmast er frá þjóðhagslegu sjónarmiði. Framleiðslan myndi beinast inn á þau svið, þar sem erlent verðlag er tiltölulega hag- stæðast og framleiðslukostnaður tiltölulega minnstur, en það er einmitt framleiðsla á þeim svið- um, sem gefur þjóðarbúinu mest í aðra hönd. Þegar bætur eru mismunandi, beinist framleiðsl- an hinsvegar inn á þau svið, þar sem bæturnar eru tiltölulega hæstar samanborið við fram- leiðslukostnað, og það má ein- mitt gera ráð fyrir, að hæstar bætur séu greiddar með þeirri framleiðslu, sem ella ætti örðug- ast uppdráttar." Mismunandi gengi Síðar segir: „Sömu afleiðingar hefur hinn miklu mismunur, sem er á raunverulegu innflutn- ingsgengi ýmissa vörutegunda. Sumar atvinnugreinar, sem að öðrum kosti ættu hér góð lífs- skilyrði, berjast í bökkum, eða geta ekki komist á fót, vegna þess að framleiðsla þeirra verð- ur að keppa við vörur, sem fluttar eru inn á gengi, sem er langt fyrir neðan meðalgengi. Aðrar framleiðslugreinar, sem að öðrum kosti ættu hér engin eða lítil lífsskilyrði, blómgast vegna þess að þær keppa við vörur, sem flytjast inn á gengi, sem er langt fyrir ofan meðal- gengi.“ Hér hefur verið gripið niður í lýsingu viðreisnarstjórn- arinnar í millifærslu- og upp- bótakerfinu og þó ótalinn einn megingalli kerfisins, þ.e. það milla fjármagn, sem ríkið þarf að afla til að halda kerfinu gangandi. Víðtækar breytingar Niðurstaðan um þetta atriði var orðuð svo í greinargerð viðreisnarstjórnarinnar: „í ljósi þess, sem sagt hefur verið hér að framan, telur ríkisstjórnin það ekki álitamál, að nauðsynlegt sé að afnema bóta- og gjaldakerfið og leiðrétta gengisskráninguna að fullu. Hitt er ríkisstjórninni vel ljóst, að þetta verður ekki gert nema með víðtækum breyt- ingum á öllu efnahagslífinu. Þessar breytingar eru erfiðar í framkvæmd, vegna þess hve víðtækar þær eru, og hversu mjög þær varða hagsmuni allra stétta þjóðfélagsins. Engin ríkis- stjórn myndi gera slíkar tillögur að óþörfu. Það er vegna þess að ríkisstjórnin er sannfærð um, að þjóðarvoði sé fyrir dyrum, ef slíkar ráðstafanir séu ekki gerð- ar, að hún gerir nú tillögur um víðtækari ráðstafanir í efna- hagsmálum en gerðar hafa verið hér á landi síðasta áratuginn að minnsta kosti.“ Af hálfu Sjálfstæðisflokksins höfðu forgöngu fyrir hinni djarf- huga stefnu þeir Ólafur Thors, Bjarni Benediktsson og Gunnar Thoroddsen. Þessi stefna leysti úr læðingi íslenzkt efnahagslíf og létti af hinni þungu og dauðu hönd ríkisvaldsins. ótrúleg stefnuyfirlýsing Það setur óneitanlega að manni ugg, þegar núverandi ríkisstjórn lýsir því yfir sem stefnuatriði að hún ætli að stefna að rangri gengisskrán- ingu, mismunandi gengi og að tap verði greitt með fjármunum, sem ríkið útvegi einhversstaðar frá. Menn segja að vísu nú, að þetta eigi aðeins að verða í litlum mæli, en ef dyrnar hafa verið opnaðar á annað borð er erfitt að snúa við og þess skulu menn minnast að það varð aðal- reglan að lokum en ekki undan- tekning að tapið væri greitt með sköttum, sem ríkið varð að afla í einhverju formi. Það er því vel skiljanlegt að forsvarsmenn allra atvinnu- greina á íslandi skuli síðustu daga hafa eindregið varað við þessari stefnubreytingu. Ríkis- stjórnin hefur að vísu ekki enn upplýst, hvernig hún ætli að framkvæma þessa stefnu. Von- andi sér hún að sér í tíma og hverfur frá þessum fyrirætlun- um. Nýtt fiskverkunarhús Ennis tekið í notkun Ólafnvlk, 27. jannar. SÍÐASTLIÐINN laugardag var formlega tekið í notkun nýtt fiskverkunarhús, sem eigendur Ennis hf., Guðlaugur Guð- mundsson og synir hafa reist. Enni hf. hefur gert út bátana Auðbjörgu og Jökul. Seldu þeir Jökul til Sandgerðis á sl. vori og reistu þetta hús þar sem þeir ætla að verka afla sinn. Hús þetta er hið myndarlegasta og vel fyrir- komið á 520 fermetra fleti. Teikn- ingar gerði Jóhannes Pétursson, sveitarstjóri. Eftir vinnu á laugardaginn var boðið til veitinga í kaffistofu stöðvarinnar ýmsum þeim er lagt höfðu hönd á plóginn við byggingu hússins. Var þar vel veitt og var glatt á hjalla og stóð Laui Guð- munds þar fremst’í flokki eins og oft áður. A.m.k. þrír gestanna þökkuðu fyrir sig með vísu. Tókst fréttaritara að komast yfir eina þeirra gjörða af Jóni Arngríms- syni, rafvirkjameistara: Gefi drottinn tið OK icnvA af fiski Htðkkum. Undir hilfri KnnishliA i ÓlnfHvikurhðkkum. — Ilelgi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.