Morgunblaðið - 27.01.1981, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.01.1981, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981 Áhugalausir KR-ingar töpuðu með tuttugu stigum LIÐ VALS gjörsigraði KR í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í Laugardalshöllinni i gærkvöldi. Lokatölur leiksins voru 86—66 fyrir Val en sá sigur hefði hæglega getað orðið enn stærri. „Mótio er búið fyrir okkur og því gaf ég ungu leikmönnunum tækifæri í kvöld. Ég er hinsvegar alls ekki ánægður með það baráttuleysi sem var i liðinu,“ sagði Einar Bollason þjálfari KR eftir leikinn í gærkvöldi. KR-liðið lék án Jóns Sigurðs- sonar sem var meiddur í baki. Og jafnframt var alveg ljóst á leik KR að leikurinn hafði ekki mikla þýðingu fyrir liðið. Baráttuleysi og oft á tíðum kæruleysi í leiknum var einkennandi fyrir leik liðsins. Þetta varð til þess að Valsmenn voru i engum vandræðum með mótherja sína. Lið Vals lék á köflum vel og áttu leikmenn skemmtilegar sendingar og góð barátta var í leikmönnum framan af. En er líða tók á leikinn og yfirburðirnir voru ljósir fóru leik- menn Vals að taka lífinu með ró og fóru sér í engu óðslega. Valsliðið hafði ávallt frum- kvæðið í leiknum og staðan í hálfleik var 45—31 þeim í hag. Þeir byrjuðu líka síðari hálfleik- inn mjög vel og komust fljótt í 53—31. Smátt og smátt juku þeir við forystu sína og tuttugu stig skildu liðin í lokin. Torfi Magnús- son átti góðan dag í liði Vals og skoraði 25 stig. Pétur og Miley léku báðir vel svo og Ríkharður. Lið Vals hefur mjög sótt sig eftir Kar 86-66 að liða tók á mótið og leikur nú mun betur en í upphafi þess. Lið KR var frekar dauft í leiknum. Garðar Jóhannsson var besti leikmaður KR og sá eini sem barðist. Ágúst Líndal er í stöðugri framför og lék hann all vel gegn Val. Yow skoraði 17 stig í leiknum en skaut líka mikið. Stig Vals: Torfi 25, Pétur 14, Miley 14, Ríkharð 11, Kristján 8, Jóhannes 8, Jón 4 og Guðmundur 2. Stig KR: Yow 17, Garðar 15, Ágúst 14, Ásgeir 8, Gunnar 6, Bjarni 6. — þr. • Liði Vals hefur verið mikill fengur í því að fá hinn hávaxna og sterka leikmann Pétur Guðmundsson til liðs við sig. Pétur er mjög sterkur undir körfunni hvort heldur er í fráköstum eða í þvi að skora. Hér sést kappinn einbeittur á SVÍp. Uém. Raxnar Axelsaon. Vorum slegnir út heima „VIÐ VORUM slegnir út heima, ástæðu til að vera óánægðir með en ekki hér í Lundi, leikurinn í hann. Það var aumingjaskapur- dag var góður og við höfum ekki inn heima, sem réð úrslitum,“ Þróttur og IS sigruðu ÍSLANDSMÓTIÐ í blaki var á fullri ferð um helgina og tveir leikir fóru fram í 1. deild karla. Efsta liðið, Þróttur, sigraði Fram 3—1 i slökum leik. Þróttur vann fyrstu tvær hrinurnar 15—6 og 15—9, en síðan sneru Framarar vörn i sókn og unnu þriðju hrinuna 15—13. En Þróttarar létu það ekki á sig fá og tryggðu sér sigur i lokahrinunni, 15—8. Virðist það veikia lið Þróttar mjög, að Jason Ivarsson hefur yfirgefið félagið og gengið til liðs við lið Samhygðar, sem leikur i 2. deild. ÍS lagði Víking að velli 3—0 og sýndi stórleik. Hrinurnar enduðu 15—<8, 15—13 og 15—5. Víkingur sigraði Þrótt 3—2 í 1. deild kvenna og í 2. deild vann ÍBV lið Hvera- gerðis 3—1. sagði Þorbergur Aðalsteinsson, markhæsti leikmaður Vikings eftir leikinn f Lundi. Bjóstu við að vinna leikinn i dag? „Ég geng alltaf til leiks til að vinna og þess vegna gerði ég mér nokkrar vonir, en þrátt fyrir frábæran stuðning íslenzku áhorf- endanna tókst okkur ekki að vinna. Mér fannst það einnig talsvert athyglisvert að leikmenn Lugi kunnu alveg á öll okkar leikkerfi og það er engu líkara en að þeir hafi fengið upplýsingar að heiman. Mér finnst einnig að lið eins og Víkingur, með 4 til 7 landsliðsmenn ætti að geta unnið sænskt félagslið. En þó að við höfum ekki komizt áfram, er fullur hugur í okkur og við munum halda okkar striki í þeim mótum, sem enn eru eftir heima." - IIG Steinar Birgisson lék vörn Lugi oft grátt en að þessu sinni var hann tekinn Jafnt í I Víkingui ÍSLANDSMEISTARAR Víkings féllu út úr Evrópukeppni meistara- liða í handknattleik þegar þeir gerðu jafntefli við sænsku meistar- ana frá Lundi, 17—17. í æsispenn- andi leik voru Vikingar aðeins hárshreidd frá þvi að komast i undanúrslit Evrópukeppninnar. Þeir sýndu mjög góðan leik — börðust til siðustu stundar en urðu i lokin að sætta sig við jafntefli. Og það jafngilti ósigri, þvi Vikingur tapaði fyrr leiknum i Reykjavik 17—16 eftir að hafa náð sex marka forustu þegar langt var liðið á siðari hálfleik. „Hamingjudísirnar voru í liði með Lugi — því kemst liðið áfram," sagði sænskur kollegi minn eftir viðureignina í Lundi. Og það er vissulega rétt — sigurinn gat fallið hvoru liði sem var í skaut. Svo jöfn voru þau. Hins vegar virtust Sví- arnir hafa fengið góðar upplýsingar um leikaðferðir Víkings og kann það að hafa ráðið úrslitum. Hvaðan þær upplýsingar komu er óráðin gáta en ljóst, að einhverjir leikmanna Vík- ings munu ekki gefa kost á sér í íslenzka landsliðið. Viðureignin í Lundi var æsi- spennandi. Lugi fékk óskabyrjun í leiknum, — komst í 4—1. Víkingar hins vegar létu ekki deigan síga og náðu að jafna, 4—4, og raunar gott betur, þeir komust í 5—4. Skömmu síðar var Þorbergi Aðalsteinssyni vísað útaf í annað sinn og Víkingar breyttu um leikaðferð í vörninni. Þorbergur settur í það að taka Ribendahl úr umferð en Páll tók stöðu hans í vörninni. Leikmenn Lugi náðu að komast yfir á ný — komust í 7—5 og staðan í leikhléi var 9—7. Víkingar höfðu þá misnot- að tvö vítaköst — Mats Ohlson varði frá þeim Páli Björgvinssyni og Árna Indriðasyni. Það var greinilegt að Bogdan Kowalczyk hafði talað hressilega yfir sínum mönnum í leikhléi — Víkingar mættu tvíefldir til síðari hálfleiks og náðu að snúa leiknum sér í vil. Skoruðu þrjú fyrstu mörk síðari hálfleiks, Guðmundur Guð- mundsson, Þorbergur Aðalsteinsson og Árni Indriðason. Staðan breytt- ist í 10—9, Víking í vil. Heinonen náði að jafna, 10—10, en Þorbergur svaraði með tveimur mörkum, stað- an 12—10 þegar 12 mínútur voru af síðari hálfleik. Hinir fjölmörgu áhangendur Víkings sem voru í Lundi létu vel í sér heyra og stemmningin gífurleg. Heinonen minnkaði muninn í 12—11 en Þor- bergur svaraði, 13—11. Vikingar léku gífurlega sterkan varnarleik og leikmenn Lugi áttu í erfiðleikum með að komast í gegn um vörn Víkings. En engu að síður náðu þeir að minnka muninn í eitt mark, 13—12, Davidson skoraði úr víti. Aftur svaraði Þorbergur sem nú var óstöðvandi, 14—12 og þrettán mín- útur til leiksloka. Skömmu síðar var Árna Indriða- syni vísað af leikvelli og það reynd- ist Vikingum afdrifaríkt. Svíarnir náðu að jafna, 14—14, og ellefu mínútur til leiksloka. Árni kom aftur inná og þá gerðist umdeilt atvik — hann náði að rífa sig lausan úr gæzlu Ribendahl en gróflega var brotið á honum. Þýzku dómararnir dæmdu ekkert og Svíarnir fengu knöttinn, og komust yfir á ný, 15—14. Aðeins fjórar mínútur til leiksloka og Víkingar áttu nú mjög á brattan að sækja. Þorbergur náði að jafna 15—15 en Heinonen svar- aði fyrir Lugi, 16—15. Aftur svaraði Þorbergur með þrumuskoti, og jafn- aði 16—16. Spennan í íþróttahöll- inni í Lundi var með ólíkindum, bæði lið voru óspart studd af áhangendum sínum og rétt um tvær mínútur voru til leiksloka. Þegar Jonsson skoraði sautjánda marka Lugi og rétt ein og hálf mínúta til leiksloka virtust Víkingum öll sund lokuð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.