Morgunblaðið - 27.01.1981, Page 26
Fólk og fréttir í máli og myndum
mm
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981
WILLE van de Kerkof ann-
ar hinna frægu Kerkof-
brædra í hollenska landslió-
inu i knattspyrnu skoraði
um daginn mark með liði
sínu PSV Eindhoven. Það er
i sjálfu sér ekki í frásögur
færandi nema vegna þess að
markið kom 23 sekúndum
eftir að leikurinn hafði verið
flautaður á. Þetta var i leik í
1. deildinni hollensku gegn
MVV Maasstricht. Þetta er
þó ekki heimsmet. Landi
hans Johan Cruyff á metið.
Hann skoraði einu sinni i
leik eftir 10 sekúndur. Það
var árið 1971 er kappinn var
að komast á hátind frægðar
sinnar.
• Eins og þið vitið þá hefur liði okkar gengið mjög illa að kljást við
alla skallabolta á keppnistimabiiinu. Ég hef því keypt nýjan
leikmenn, og hann verður með i dag.
• ítalska fyrir-
tækið Cerutti
framleiddi
þennan glæsi-
lega skíðabún-
ing á Sten-
mark. Hann
mun keppa i
honum i vetur.
• Ann Uvhagen fylgist spennt með sinum heittelskaða
Ingemar Stenmark. Ann er frá Finnlandi. Samband hennar
við skiðakónginn hefur farið mjög leynt fram til þessa. En
nú er hún farin að fara með honum í allar keppnisferðir.
Sumir vilja halda þvi fram að við það hafi Stenmark misst
þá einbeitingu sem þarf til þess að vera á toppnum.
• Þeir byrja snemma að sparka bolta i Englandi sem viðar. Og þar
sem umferðin getur verið hættuleg ungum börnum er ekki slæmt ráð
að tjóðra þau við staur eins og gert hefur verið við þennan snáða.
Mirus Yfter, sigurvegar-
inn í 5 og 10 km metra
hlaupunum á OL—leikunum
í Moskvu, heimsótti Finn-
land nýlega. Hér sést hann
kasta peningum út f hinn
stóra Havis Amanda-gos-
brunn. Peningarnir sem
safnast í þennan gosbrunn
eru sendir barnahjálp Sam-
einuðu þjóðanna.
• Skiðakóngurinn Ingemar
Stenmark ætlar sér að vinna
í 11 svig og stórsvigskeppn-
um i heimsbikarnum i vetur
og slá þar með met það sem
Anne Marie Moser Pröll
setti. Stenmark hefur ekki
gengið of vel i keppni til
þessa í vetur en virðist vera
að sækja sig.
• Brun þykir vera einna hættulegast af þeim greinum sem stundaðar
eru af skiðamönnum. Þá er eins gott að vera vel búinn til höfuðsins.
Hér að ofan má sjá skiðahjálm þann er Ingemar Stenmark notaði i
það eina skipti sem hann hefur keppt i bruni. Hann sagði eftir þá
keppni að það gerði hann aldrei aftur.