Morgunblaðið - 27.01.1981, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 27.01.1981, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981 Fárviðri í Grikklandi Aþenu, 26. janúar. — AP. NEYÐARÁSTANDI var lýst I tveimur norðurhéruðum Grikk- lands á laugardag vegna fann- ferjfÍN og vatnavextir trufluðu samgdngur og ollu tjóni viða um land. Florinahérað við júgóslavnesku landamærin varð verst úti, þar sem snjó kyngdi niður. Hermenn voru kvaddir út til að ryðja götur og leita að týndu fólki. Aflýsa varð öllum járnbrautar- ferðum í norður- og norðaustur- héruðunum. Mikil flóð urðu á eynni Krít, syðstu eyju Grikklands, og hlaust talsvert tjón af. Ýmsar útborgir Alþenu voru hálfar á kafi í vatni vegna mikilla rigninga í höfuð- borginni. Fyrir utan tjón á mannvirkjum og truflanir á samgöngum má rekja dauða alidýra og uppskeru- tjón til votviðrisins. David Frost og Lynne Frederick eftir hjónavígsluna i þorpinu Theperton i Suffolk. Brúðurin er ekkja leikarans fræga, Peter Sellers, og er sjálf kunn leikkona. Þetta geröist 1606 — Réttarhöldin gegn Guy Fawkes og öðrum samsærismönnum hefjast í London. 1695 — Mustafa II verður Tyrkja- soldán við lát Ahmed II. 1822 — Sjálfstæði Grikklands formlega lýst yfir. 1865 — Sjálfstæði Perú viðurkennt með samningi Perú og Spánar. 1914 — Oreste forseti leggur niður völd á Haiti og bandarískir land- gönguliðar koma til að koma á reglu. 1916 — „Spartakus“-samtök komm- únista stofnuð í Berlín. 1926 — Sjónvarp sýnt í fyrsta sinn opinberlega í Bretlandi. 1944 — Leníngrad frelsuð að fullu úr höndum Þjóðverja. 1950 — Bandaríkin samþykkja að útvega aðildarlöndum NATO her- gögn. 1964 — Frakkar taka upp stjórn- málasamband við Kínverja. 1965 — Herforingjar í Suður- Víetnam steypa stjórn Tran Van Huong. 27. janúar Veður víða um heim Akureyri 10 hétfskýjaó Amsturdam 5 heióskírt Aþena 12 skýjaó Beríín 2 lóttskýjaó BrUtsel 8 skýjaó Chicago 11 skýjaó Feneyjar 3 lóttskýjað Frankfurt 1 rigning Ftareyjar 6 úrkoma Genf 0 þoka Heltinki 0 heiöskírt Jerútalem 11 skýjaó Jóhannetarb. 24 skýjaó Kaupmannahðfn > 3 lóttskýjaó Las Palmas 20þokumóöa Lissabon 17 lóttskýjaó London 11 skýjaó Lot Angeles 21 haiósklrt Madrid 13 haióskírt Malaga 14 haiósklrt Mallorca 14 heiótkírt Miami 20 haióskírt Moskva -o sáýtaö wt Vttab rWW T OT K 5 skýjaó öiX 2 léttskýjaó Parts 10 skýjaó Reykjavík 6 rigniný Ríó da Janeiro 31 skýjaó Rómaborg 7 heióskírt Stokkhólmur +2 lóttskýjaó Tal Aviv 11 skýjað Tókýó 8 skýjaó Vancouvar 8 rigning VínarborJ 2 heiöskírt 1967 — Þrír bandarískir geimfarar farast í eldsvoða í Apollo-geimfari sínu á jörðu niðri (Virgil Grissom, Edward White og Roger Chaffee). 1969 — Fjórtán menn, þar af níu Gyðingar, líflátnir í trak, sakaðir um njósnir. 1973 — Samningar undirritaðir í París er binda endi á Víetnamstríð- ið. Afmæli. Wolfgang Amadeus Moz- art, austurrískt tónskáld (1756— 1791) — Edouard Lalo, franskt tónskáld (1823—1892) — Lewis Car- oll, enskur rithöfundur (1832—1898) — Vilhjálmur II Þýzkalandskeisari (1859—1941) — Jerome Kern, bandarískt tónskáld (1885—1945). Andlát. 1901 Giuseppe Verdi, tónskáld — 1951 Carl Gustaf vor Mannerheim, hermaður og forseti. Innlent, 1878 d. Þorleifur Þorleifs- son bóndi og smáskammtalæknir í Bjarnarhöfn — 1891 Verzlunar- mannafélag Reykjavíkur stofnað — 1940 Útför Einars Benediktssonar gerð — 1945 Loftferðasamningur við Bandaríkin undirritaður — 1960 „Óðinn“ kemur — 1976 Viðræðum Geirs Hallgrímssonar og Harold Wilsons í London lýkur — 1980 Lútherskur prestur messar í Landa- kotskirkju — 1893 f. Jón Eyþórsson veðurfraeðingur. Orð dagsins. Makk stunda þeir sem skortir manndóm — Rudyard Kipl- ing, breskur rithöfundur (1865— 1936). Gíslarnir fyrrverandi við komuna til Bandarikjanna — i Stewart-flugstöðinni i Newburgh, New York ríki. Hetjur heimt- ar úr helju Washinston, 26.1.81, fri rtnnu Bjarna- dóttur fréttarltara Mbl. BANDARÍSKU gíslarnir fyrr- verandi komu loks heim á sunnudag. Fjölskyldur þeirra fengu að fagna þeim i kyrrþey i West Point, New York, en það var eins og þjóðin öll væri að heimta syni sina og dætur úr helju. Á þriðjudag mun Ronald Reagan bjóða þá velkomna heim í Hvita húsinu. Þangað munu gíslarnir og fjölskyldur þeirra keyra frá Andrewsher- flugstöðinni skammt fyrir utan Washington. Þeir munu aka sömu leið frá þinghúsinu að Hvita húsinu og Reagan ók i broddi fylkingar fyrir viku sið- an, þegar hann hafði tekið við embætti forseta og gislarnir voru nýlagðir af stað frá Teher- anflugvelli. Mikils mannfjölda er vænst við komu gislanna til Washington, en 200.000 manns hyiltu þá við komuna til West Point. Fátt hefur þjappað banda- rísku þjóðinni eins saman og fangavist sendiráðsstarfsmann- anna í Iran. Fjölmiðlar hafa verið fullir af fréttum af þessum 52 Bandaríkjamönnum og fjöl- skyldum þeirra undanfarna daga, og ekki leið sá dagur, á meðan þeir voru í varðhaldi, að ekki væri minnzt á þá. Sumar fjölskyldur kusu að hleypa fréttamönnum inn á gafl hjá sér til að halda áhuga þjóðarinnar á gíslunum vakandi, en aðrar kusu að bera angist sína í einrúmi. í vikunni kom í ljós, að margir gíslanna voru undrandi yfir, að þjóðin lítur á þá sem hetjur. Þeir voru þreyttir og slæptir eftir erfiða dvöl í Iran, og margir vildu helst ró og hvíld eftir erfitt ferðalag þaðan. Það mun vænt- anlega taka nokkurn tíma, áður en áhugi þjóðarinnar dvín og gislarnir geta aftur hafið hvers- dagslegt líf, lausir við martraðir og áminningar annarra um fangavist þeirra í Iran. Þjóðin sýnir gleði sína á ýms- an hátt. Gulir borðar hafa verið hnýttir út um allt, en þeir hafa verið merki gíslanna síðan skömmu fyrir jól 1979. Tvær systur tóku sig þá til og gáfu vinum sínum og vandamönnum gula borða til að minna á gíslana. En í borgarastríði Bandaríkjamanna á síðustu öld voru gulir borðar á höttum norðurríkjamanna merki þess, að þeir ætluðu að snúa aftur heim heilir á húfi. Gleði stórfyr- irtækja kemur fram í auglýsing- um þeirra. Texaco olíufyrirtækið birti óð til fánans í auglýsingu sinni, McDonalds hamborgara- staðirnir bjóða þá velkomna heim stórum stöfum við mynd af starfsmanni matstaðanna að draga upp fánann og Safeway matvörubúðirnar birta kvæðið „America the beautiful" við hlið tveggja blaktandi bandarískra fána í fullum lit. Onnur fyrir- tæki og einstaklingar hafa sent gíslunum gjafir og kveðjur, og allir óska þeim vel. Flugvélin, sem gíslarnir flugu með frá Þýzkalandi til New York, var kölluð Freedom One og strætisvagnar, sem fjölskyldur þeirra tóku í Washington á sunnudag, út á flugvöll á leið til New York með viðkomu í Hvíta húsinu, voru númer 52 H fyrir hostages. Heiftin í garð íran er nokkuð mikil þó til séu þeir, sem minna á að ekki megi dæma þjóðina alla af verkum ofstæk- ismannana, sem fara með völd. Warren Christopher, fv. að- stoðarutanríkisráðherra, sem sá um samningagerðir við íran fyrir hönd Bandaríkjanna, Ed- mund Muskie fv. utanríkisráð- herra og Charles Percy formað- ur utanríkisnefndar þingsins sögðu allir á sunnudag í sjón- varpsfréttaþáttum, að Bandarík- in ættu að standa við samning- ana við Iran. Aðrir, eins og George W. Ball fv. aðstoðarut- anríkisráðherra og William Safier dálkahöfundur New York Times telja, að virða eigi samn- inga gerða við hryðjuverkamenn að engu. Á næstu vikum og mánuðum mun það verða rætt fram og aftur, en utanríkisnefnd þingsins hefur ákveðið að kynna sér til hlýtar alla málavöxtu í gíslamálinu. Réttarhöldunum í Peking lokið: Ekkja Maós fær skil- orðsbundinn dauðadóm Pfklnx. 25. jan. — AP. í HINUM löngu og viðamiklu réttarhöldum, sem nú er nýlokið i Peking, voru kveðnir upp dómar yV.T 10 V?!í?amestu mönnum i Kinaveldi á dögum „menningar- byltingarinnar“. Auk Jiang Qing, ekkju Maós, voru fimm aðrir menn sakaðir um að hafa ætlað að koma «-ó fyrir kattarnef en allir tiu voru þeir sai'»íí.r um Harnsapri ofsóknir i þeim tilgangi að irýs*j- sér völdin. Jiang Qing, ekkja Maós og ein úr svokallaðri „fjórmenningaklíku", var dæmd til dauða en fullnusta dómsins fer eftir því hvort hún sér að sér og iðrast gerða sinna næstu tvö árin. Henni var gefið að sök að hafa „stefnt ríkinu í voða, reynt að steypa stjórnvöldum og ofsótt al- menning" auk annarra glæpa. Zang Chun-qiao, annar fjór- menninganna í frá og fyrrum vara- forsætisráðherra, var einnig dæmd- ur til dauða með sömu skilmálum og Jiang Qing en hann var ákærður fyrir að hafa ofsótt Liu Shao-chi, fyrrum forseta, ýtt undir æsingar og oltoul °? la5,1 á ráðin ,um uppreisn hersins. neitaði að segja nokkuð við réttarhöldin. Wang Hong-wen, fyrrum vara- formaður kommúnistaflokksins, var dæmdur í lifstíðarfangelsi fyrir að standa að heruppreisn í Shang- hai og að ýta undir ofbeldisverk. Yao Wen-yuan, fyrrum meðlimur stjórnmálanefndarinnar og áróð- ursfulltrúi „klíkunnar" var dæmdur í 20 ára fangelsi en rétturinn taldi hann fremur vera verkfæri í hönd- um klíkunnar en að hann hefði sjálfur lagt á ráðin. Auk “fjórmenningaklíkunnar" voru kveðnir upp dómar yfir „klíku Lin Piaos", en hún er kennd við fyrrum varnarmálaráðherra, sem er sagður hafa farist í flugslysi jg.ýý l'0|'ar hann reyndi að flýja úr landi eftir samsíT.1 5e8n Maó. Auk ásakananna um að hafa tekið þátt í samsæri Lin Piaos um að myrða Maó var þeim gefið að sök að hafa ofsótt fólk og myrt og haft sam- vinnu við „fjórmenningaklíkuna" um önnur glæpaverk. Li Zuo-peng, fyrrv. stjórnmála- fulltrúi sjóhersins, var dæmdur í 17 ára fangelsi; Qiu Hui-zuo, fyrrv. yfirmaður í hernum, fékk 16 ár; Jiang Teng-jiao, fyrrum stjórn- málafulltrúi flughersins, hlaut 18 ár; Chen Boda, fyrrum einkaritari Maós, 18 ár; Huang Yong-sheng, fyrrum yfirmaður herforingjaráðs- ins, fékk 18 ára fangelsi, og Wu Faxian, fyrrum yfirmaður flughers- ins, var dæmdur í 17 ára fangelsi. Lítil viðbrögð hafa enn sem komið er orðið erlendis við dóms- uppkvaðningunni í Peking að und- anskilinni þjóðernissinnastjórninni á Formósu en þar sagðist talsmaður stjórnarinnar ekki telja dómana vera til vitnis um að valdabarátt- unni í Kína væri lokið. Þvert á móti sagði hann þá vera til marks um óeiningu og að búast mætti við auknum átökum innan skamms.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.