Morgunblaðið - 27.01.1981, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 27.01.1981, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981 Krefjast samkomulags um fiskistefnu EBE sjómanna kom í dag til Brussel gagngert til að kreíjast skjóts samkomu- lags um fiskimálastefnu Efnahagsbandalagsins. 47 Bru88el, 26. janúar. — AP. NEFND þýzkra stjórn- málamanna og leiðtoga Pínupils ná sér á strik Parin. 26. janúar. — AP. IIINN virti tizkufatahönnuður Pierre Cardin kynnti huj{- myndir sinar að klæðnaði árs- ins á mikilli tizkusýningu i Paris í «a r. þar sem mest bar á stuttum pilsum. Áhrif hans á klæðatizkuna eru mikil. Sýndi Cardin yfir 100 afbrigði pínupilsins, þar sem hugmynda- flug hans naut sín til hins ýtrasta. Hann hyggst héðan í frá eingöngu efna til einnar tízkusýningar á ári í stað fjög- urra eins og venjulega. Hann leggur nú áherzlu á að kynna hugmyndir sínar að klæðnaði fyrir allar árstíðir á einni sýn- ingu. Viðeigandi þótti, að með- an spengilegar tízkusýningar- stúlkur gengu um sali, var leikin tónlist Vivaldis, „Árstíð- irnar“. Á morgun, þriðjudag, koma sjávarútvegsráðherrar EBE-ríkja saman til fundar til að freista þess að ná samkomulagi um sameigin- lega fiskistefnu, en um þau mál hafa þeir þráttað í fimm ár án niðurstöðu. Þar sem aðildaríkin vantar enn sameiginlega fiskistefnu geta ein- stök ríki bandalagsins ekki endur- nýjað gamla samninga við önnur lönd, t.d. Noreg og Kanada. Af þessum sökum hafa vestur- þýzkir sjómenn orðið að hverfa af miðum Kanadamanna. Sjómenn- irnir leggja ríka áherzlu á að samkomulag náist um sameigin- lega fiskistefnu á fundi ráðherr- anna á morgun, því þá eiga þeir kost á að halda áfram veiðum á kanadísku hafsvæði, en vertíð á þeim svæðum lýkur eftir tvo mánuði rúma. Fréttir í stuttu máli Sjónvarpsmynd eítir Brezhnev Moskvu. 26. janúar. AP. NÝ SEX klukkustunda lög heimilda- kvikmynd, sem byggð er á bók Brezhnves, „Nýræktarlöndin", verður tekin til sýninga í sovézka sjónvarp- inu í þessari viku. Kvikmyndin verð- ur sýnd þrjú kvöld í þessari viku og þrjú kvöld í þeirri næstu. Haft er eftir framkvæmdastjóra upptökuver- anna að myndin sé byggð á „bók- menntaverki sem kvikmyndaleik- stjóra venjulega dreymdi um að gera mynd eftir". „Fjölskyldumynd“ af Maf- íuleiðtogum. Chicago. 26. janúar. AP. LÖGREGLAN í Chicago hefur kom- ist yfir mynd þar sem saman eru komnir 10 helztu leiðtogar undir- heima borgarinnar. Myndin var tekin er leiðtogarnir komu saman til há- degisverðarfundar árið 1978. Talið er víst að þetta sé í eina skiptið sem þeir hafa látið taka mynd af sér saman. Leiðtogarnir þykjast ekki þekkja hvorn annan við lögregluyfir- heyrzlur. Ekki er vitað hvað er til umræðu á leiðtogafundinum, en ljóst að það hefur skipt alla undirheima- leiðtogana miklu máli, þar 'sem þeir tóku þá áhættu að hittast saman. Kenny Rogers kaupir villu New York, 26. janúar. AP. KENNY Rogers, söngvari, hefur keypt villu ítalska kvikmyndafram- leiðandans Dino Delaurentiis í Bev- erly Hills á 14,5 milljónir Banda- ríkjadollara. Hærra verður hefur ekki fyrr verið greitt fyrir fasteign í einkaeign í Bandaríkjunum. Rogers sá villuna, sem er með 35 herbergjum í fyrsta skipti í síðastlið- inni viku. Villan er á fjögurra hektara landi. í bílskúrunum er aðstaða fyrir 13 bíla og er þar þriggja herbergja íbúð einnig, ásamt fullkominni aðstöðu bifvélavirkja. í aðalbyggingunni eru níu svefnher- bergi, átta baðherbergi, sjö þjóna- herbergi, vínkjallari, bókasafn og byssuherbergi. Michael Foot, formaður Verkamannaflokksins David Owen, fyrrv. utanrikisráðherra Roy Jenkins, fyrrum vara- formaður Verkamannaflokksins Stórbreytingar í aðsigi i breskum stjórnmálaheimi London, 25. jan. AP. LEIÐTOGÁR hægri arms breska Verkamannaflokksins tilkynntu i dag, sunnudag. að þeir hefðu stofnað „sósialdemó- kratískt ráð“ og þykja nú hörf- ur á þvi að til fulls klofnings komi i flokknum. Á aukaþing- inu i gær báru vinstri menn sigurorð af hinum hófsamari og má nú heita að verkalýðsleið- togarnir hafi töglin og hagld- irnar i fiokknum. í tilkynningu fjórmenn- inganna, leiðtoga hægri armsins, sagði, að fyrir flokksmönnum lægi nú að taka erfiða ákvörðun, en þeir sögðust trúa því, að „uppstokkun í breskum stjórn- málum" væri óhjákvæmileg. Fjórmenningarnir, sem að Jafnaðarmannaráðinu" standa, era Roy Jenkins, fyrrum vara- formaður flokksins, David Owen, fyrrum utanríkisráðherra, Shir- ley Williams, fyrrv. mennta- málaráðherra, og William Rod- gers, fyrrum varnarmálaráð- herra. Ef af nýrri flokksstofnun verður er það í fyrsta sinn í 60 ár sem meiriháttar breytingar verða í breskum stjórnmálum. Michael Foot, formaður flokksins og löngum einn helsti talsmaður vinstri manna, skor- aði í dag á Owen og félaga hans að kljúfa ekki flokkinn og sagði það aðeins verða vatn á myllu andstæðinga hans. Roy Jenkins svaraði áskorun Foots með því að segja, að nú væri svo komið, að fáir valdamiklir verkalýðs- leiðtogar hefðu öli ráð í hendi sér og að hin skelfilega niður- staða aukaþingsins kallaði á uppstokkun í bresku stjórnmála- lífi. Fjórmenningarnir svokölluðu sögðu í dag, að þeir mundu brátt skýra frá því hverjir stuðn- ingsmenn þeirra væru en fréttaskýrendur telja, að um 20 af 268 þingmönnum Verka- mannaflokksins muni koma til liðs við þá. Frammámenn Frjálslynda flokksins, sem aðeins hefur II sæti á breska þinginu, hafa látið í ljós von um samstarf við hugsanlegt flokksbrot úr Verka- mannaflokknum en ekki er talið að til formlegs klofnings komi fyrr en eftir sveitarstjórnar- kosningarnar í vor. í stefnuskrá fjórmenninganna er kveðið á um blandað hagkerfi, velferðarríki, sem þó ekki dræpi allt frjálst framtak í dróma, stuðning við Efnahagsbandalag- ið og Atlantshafsbandalagið, vamarsamtök vestrænna þjóða. Efnahagserfiðleikarnir í Svíþjóð: Samdrátturinn eykur líkur á gengisfellingu krónunnar Fíl stolið í Danmörku Kaupmannahöfn. 26. janúar. AP. DANSKA lögreglan leitaði i dag til lögregluyfirvalda i Sviþjóð, V-Þýzkalandi og fleiri löndum um aðstoð við leit að indverskum fil er stolið var i dýragarði Kaup- mannahafnar rétt eftir mið- nætti siðastliðið laugardags- kvöld. Athygli lögreglunnar bein- ist að júgóslavnesku fjölleika- hússfólki sem kom með fílinn til Danmerkur fyrir tveimur mánuðum. Dönsk yfirvöld lögðu þá hald á fílinn og komu honum í vörzlu í dýragarðin- um, meðan verið var að ganga úr skugga um ágæti fylgi- skjala með fílnum, en grunur leikur á að hann sé í upphafi illa fenginn. Sjónarvottar voru að því er tveir eða þrír menn leiddu fílinn á brott frá dýragarðin- um, en þeir höfðu skorið stærðar gat á girðingu garðs- Stokkhúlmi. 26. jan. Frá frúttaritara Mbi. NEYÐIST SÆNSKA rikisstjórnin til að fella krónuna? Það er spurning, sem margir velta fyrir sér þessa dagana. Eftir að vextir voru hækkaðir um tvö prósent, úr 10 i 12 prósent, þann 20. janúar sl. hefur spennan i sænsku efnahagslifi aukist að mun. Vaxtahækkunin gefur rikisstjórninni timabundið svigrúm en flestir eru þeirrar skoðunar, að timi stjórnarinnar til efnahagsað- gerða sé mjög naumur. Vaxtahækkunin sýnir, að ástandið er mjög alvarlegt og mikil hætta er á gengisfellingu ef stjórninni tekst ekki mjög fljótlega að leggja fram nýjar sparnaðaráætlanir, sem geta styrkt krónuna. Áætlað var, að stjórnin legði fram ýmsar áætlanir þann 1. mars en hætta er á að sænska krónan þoli ekki svo langa bið. Ríkisstjórnin situr nú á stöðug- um viðræðum um nýjar sparnað- aráætlanir og gert er ráð fyrir, að hægt sé að spara þrjá-fjóra millj- arða sænskra króna með því að skera niður fjárhagsáætlunina og breyta sköttum. En hvernig þetta á að framkvæma eru stjórnar- flokkarnir ekki sammála um. Hægri flokkurinn hefur fyrst og fremst barist fyrir sparnaði á öllum sviðum. Þjóðarflokkurinn vill auk sparnaðar hleypa nýju lífi í iðnaðinn og m.a. vill hann auka og bæta lánamöguleika fyrirtækja í sambandi við vinnu og verkefni fyrir vanþróuð lönd en mörg sænsk fyrirtæki hafa að undan- förnu misst af stórum verkefnum í vanþróuðu löndunum vegna óhag- stæðra lána. Betri lán, segir Þjóð- arflokkurinn, geta veitt um 9000 manns vinnu í iðnaðinum. Flest bendir til, að samkomulag geti náðst milli Hægri flokksins og Þjóðarflokksins en Miðflokkurinn hefur enn ekki tekið ákvörðun um stefnu. Ekki er búist við neinum meiri- háttar nýjungum í sparnaðaráætl- uninni. Trúlega minnkar niður- greiðsla á mat enn meira en verið hefur en húsaleigustyrkir og aðrar niðurgreiðslur í sambandi við hús- næði munu sennilega ekki lækka. Vaxtahækkunin hefur þegar gert mörgum húseigendum og leigjend- um erfitt fyrir. Lækkun á ríkisstyrkjum til sveitarfélaga er einnig rædd og útsvör þeirra hafa hækkað um 500 millj. sænskra kr. í sambandi við vaxtahækkunina. Auk efnahags- erfiðleikanna bætast nú við launa- og kjarasamningar verkalýðsfé- laganna og atvinnurekenda og fátt bendir til þess að þar fáist nokkur skjót lausn á. Ástandið í sænskum iðnaði hef- ur versnað mjög á undanförnum mánuðum. Sl. þrjá mánuði hafa 18.000 manns misst vinnuna og 13.000 eiga uppsagnarhótun yfir höfði sér innan sex mánaða. Sé litið á vinnumarkaðinn í heild hefur atvinna einnig minnkað og ríkið og bæjar- og sveitarfélög hafa dregið saman seglin og fækk- að nýráðningum. Alls voru 86.000 manns eða 2% vinnufærra manna, atvinnulaus í desember og búist er við enn hærri tölum fyrir janúar. Af þesum 86.000 eru 35.000 ungl- ingar en verst er ástandið hjá unglingum og konum. Tala at- vinnulausra í desember sl. var ERLENT 15% hærri en á sama tíma árið áður. Auk þessa eru um 115.000 manns við störf eða nám fyrir tilhlutan atvinnumálasjóðsins. Ástandið er eins og undanfarið verst í Norður-Svíþjóð þar sem 10.000 atvinnulausir eiga kost á sex hundruð störfum. En svipað ástand er að finna víðar þar sem skipasmíðastöðvar, námugröftur og pappírsverksmiðjur leggja niður störf. Á Skáni munu t.d. 4000 manns missa vinnuna þegar Kochums-skipasmíðastöðin í Málmey og Eyrarsunds-skipa- smíðastöðin í Landskrona segja upp fólki. í vesturhluta Norður-Svíþjóðar munu um 1200 manns missa vinn- una þegar trjávörufyrirtækið MGB minnkar starfsemina, en fyrir í héraðinu eru margir at- vinnuleysingar. Trjávöruiðnaður- inn hefur einnig dregist mjög saman í Vermlandi þar sem 5700 manns eru atvinnulausir. Og ástandið hjá stáliðjufyrirtækinu FSA, með 16.000 manns, sem ríkið rekur að hálfu, er mun verra en ætlað var. Tapið á sl. ári mun vera um 500 milj. sænskra kr. og nú bendir flest til að segja verði upp starfsfólki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.