Morgunblaðið - 29.01.1981, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981
13
Mývatnssveit:
32 gráða hitamismun-
ur áeinum
Mývatnssveit. 28. janúar.
HÉR í Mývatnssveit hefur verið
mjög umhleypingasamt tíðarfar
að undanförnu. Sl. sunnudag
mældist frostið í Reykjahlíð 28
gráður, en það var stillt og bjart
veður.
Á mánudagsmorgun var kominn
4ra stiga hiti. Hitamismunur var
því yfir 30 stig þann sólarhring.
sólarhring
Mikil hálka hefur verið síðan í
gær og snjór og svell hafa tekið
mikið upp. Tveir menn fóru á
vélsleðum austur undir Jökulsá og
nokkuð suður með henni sl. sunnu-
dag. Ekki urðu þeir kinda varir,
annars gekk ferðin vel þó hörku-
frost væri.
Kvenfélag Mývatnssveitar hef-
ur um árabil staðið fyrir þorra-
blóti í SKjólbrekku fyrsta dag
Geysilegt vatnsflóð vegna
leysinga á Sauðárkróki
Sauúárkrúki. 27. janúar 1981.
í GÆR gerði asahláku hér á
Sauðárkróki, með tilheyrandi
vatnsflaumi úr brekkunum
fyrir ofan bæinn. Rann vatn-
ið einkum eftir Skagfirðinga-
braut og fyllti hliðargötur og
opin svæði í miðbænum.
Faxatorg var um tíma eins og
hafsjór yfir að líta.
Starfsmenn bæjarins höfðu
ærið að starfa því niðurföll
fylltust og höfðu ekki undan.
Björgunarsveitin var kölluð út
til aðstoðar, svo og slökkvilið
staðarins. Vatn rann víða inn í
íbúðarhús og olli umtalsverð-
um skemmdum, sem þó munu
ekki allar vera komnar í ljós.
Mikið vatn flæddi inn í
sundlaugarhúsið, og voru dæl-
ur þar í gangi í alla nótt.
Einnig flæddi inn í barnaskól-
ann, og varð að fella þar niður
kennslu í morgun. Það er
algengt að vatnagangur af
völdum skyndilegrar hláku
geri Sauðárkróksbúum
óskunda. Fyrr á árum rann
Sauðáin gegnum bæinn og í
leysingum olli hún oft tjóni og
óþægindum en fyrir löngu
hefur henni verið veitt í aðra
átt. Engu að síður geta bæjar-
búar átt von á svona uppá-
komu þegar þannig viðrar, og
er afar brýnt að gera frekari
ráðstafanir til að fyrirbyggja
tjón af þessum sökum.
— Kári
Innhverf íhugun
Trancendental Meditation
Almennur kynningarfundur
verður í kvöld kl. 20 að Hverfis-
götu 18, (gegnt Þjóðleikhúsinu).
Fjallað verður um áhrif tækninn-
ar í daglegu lífi.
Allir velkomnir.
íslenzka íhugunarfélagið,
sími 16662 og 35646.
Léttir ,4
myndarammar
fyrir grafik, listaverk
og Ijósmyndir.
Stærðir frá 13X18 til 50X70 cm. (plakatstærð).
Verðfrákr. 15.55-
i.
ym HANS PETERSCN HF
BANKASTRÆTI AUSTURVER GLÆSIBÆR //
S: 20313 S: 36161 S: 82590 ý//i
Umboösmenn um allt land
Skákþing Reykjavikur:
Þorra. Svo var einnig gert nú sl.
föstudagskvöld. Vonzkuveður var
þá hér, hvöss norðanátt og skaf-
renningur. Allmargt fólk sótti
þessa samkomu, sem tókst vel
þrátt fyrir óhagstætt veður. Mikill
og fjölbreytilegur matur var á
borðum. Þá var einnig gert sér
ýmislegt til gamans. M.a. var
Gervasoni-málið sett á svið á
skoplegan hátt og höfðu menn af
því góða skemmtun. Hljómsveit
frá Akureyri átti að leika fyrir
dansi, en komst aldrei alla leið
vegna veðurs. Komst hún við illan
leik í skýli Slysavarnafélagsins á
Hólasandi og óskaði eftir aðstoð.
Menn frá Björgunarsveitinni Stef-
áni fóru fljótlega til aðstoðar og
komið var í Reykjahlíð að ganga
þrjú um nóttina eftir mjög erfiða
ferð. Þá lentu hjón, sem voru að
koma á snjóbíl austan frá Hóls-
fjöllum í villu og töfum á leiðinni.
Farið var á móti þeim og komust
þau í tæka tíð á Þorrablótið.
— Kristján
Jón heldur
SKÁKÞING Reykjavíkur hef-
ur gengið heldur skrykkjótt
vegna veikinda og er staðan
mjög óljós vegna fjölda
frestaðra skáka.
Á sunnudaginn var 6. umferð
tefld og urðu úrslit þau að
Bragi Halldórsson vann Karl
Þorsteins, Björgvin Víglunds-
son vann Hilmar Karlsson og
Sævar Bjarnason vann Dan
Hansson. Öðrum skákum lauk
ekki. í fyrradag tefldu Sævar
Bjarnason og Jón L. Árnason
frestaða skák úr 3. umferð og
hefur Sævar betri stöðu, hefur
peði meira.
Staðan er sú eftir 6 umferðir
að Jón L. Árnason er efstur
forystunni
með 4 vinninga og lakari bið-
skák. Bragi Halldórsson hefur 4
vinninga, Helgi Ólafsson hefur
3 vinninga, eina biðskák og 2
frestaðar skákir og Þórir
Ólafsson hefur 3 vinninga og
eina frestaða skák. Sævar
Bjarnason hefur 2 vinninga og
tvær biðskákir, þar sem hann
stendur betur.
7. umferð verður tefld í kvöld
að Grensásvegi 46. Á sunnu- -
daginn verður tefld athyglis-
verð skák er þeir mætast al-
þjóðlegu meistararnir Helgi
Ólafsson og Jón L. Árnason, ef
Helgi hefur þá náð sér eftir
veikindi, sem hafa hrjáð hann
undanfarna daga.
a.y-.
MmM
mtm
MÆ
A&alstrætí4
Símí 150 05
JAKKAUTSALA
Bjoöum alla staka jakka a otrulegu veröi.
Aöeins í 2 daga.
mmmm
wmm