Morgunblaðið - 29.01.1981, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981
23
Rússar unnu
á hársbreidd
Þvert ofan i útreikninga
okkar bárust þær fréttir að
andstæðingar okkar i síðustu
umferð yrðu ólympíumeistar-
arnir frá 1978, Ungverjar.
Þetta kom okkur þvi mcira á
óvart vegna þess að bæði Ilanir
og Sviar voru fyrir ofan okkur,
en þær þjóðir höfðu litið teflt i
toppnum. Dönum var raðað
KCRn Rússum, en Sviar sluppu,
þvi þeir höfðu þetíar teflt við
Unirverja. Þá vorum við næstir.
I sænsku blaði sá ég nýletja
grein eftir einn i sænsku sveit-
inni þar sem það var staðhæft
að Sviar hafði reynt að haira
úrslitum í keppnum sinum
þannÍK að þeir kæmust hjá þvi
að mæta Rússum og jafnvel
gefið jafntefli ef svo bar undir.
Það má e.t.v. segja að slik
aðferð sé að vissu leyti skyn-
samlei;, en ber aftur á móti ekki
vitni um mikinn kjark.
Eftir velgengnina gegn Hol-
lendingum mættum við vongóðir
til leiks, en snemma kom í ljós
að Ungverjarnir voru sem tví-
efldir, enda til mikils að vinna
fyrir þá.
Helgi — Portisch 0—1
Jón — Ribli 0—1
Margeir — Sax xk — 'k
Jóhann — Pinter 0—1
Portisch, Ribli og Pinter
tefldu allir skínandi vel og þrátt
fyrir harða mótspyrnu okkar
manna voru þeir allir vel að
sigrum sínum komnir. Reyndar
leit á tímabili út fyrir 4—0 sigur
Ungverjanna, því Sax hafði þá
unnið tafl, en rétt fyrir bið lék
hann illa af sér og mér tókst að
hanga á jafntefli.
Hvítt: Margeir Pétursson.
Svart: Gyula Sax
Katalan-byrjun
1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. g3
— c5,4. Rf3 — cxd4,5. Rxd4 —
d5, 6. Bg2 - e5.
(Þessi leikaðferð hefur notið
talsverðra vinsælda upp á síð-
kastið, ekki síst fyrir tilstuðlan
Kasparovs).
7. Rb3 - d4, 8. 0-0 - Rc6,
9. e3 - Bgl, 10. Bf3.
(Nýr leikur sem ég hafði
sérstaklega haft í huga er ég
undirbjó mig fyrir þessa skák.
Fyrr á mótinu hafði G. Garcia
frá Kúbu leikið 10. f3 gegn
Alburt, Bandaríkjunum og fékk
lakara tafl eftir 10. ... Be6, 11.
exd4 — exd4, 12. Hel — Be7, 13.
Bg5 - 0-0, 14. Rld2 - d3!)
Bxf3, 11. Dxí3 - Be7, 12.
exd4 — exd4, 13. Bg5 — 0—0,
14. Rld2 - Rd7!?.
(Fyrirfram hafði ég aðeins
búist við 14. ... Hc8 hér, en þá
stendur hvítur betur eftir 15.
Hfel).
15. Bxc7 — Dxe7,16. Hfel —
Rde5, 17. De4 - Dd7, 18. Rc5
- Dc7,19. b4! - Db6, 20. a3 -
Had8. 21. Df5?!
(Hvítur stóð mjög vel eftir 21.
Rd3!, en nú fer hann senn að
missa þráðinn)
Hfe8
(Hér bauð Sax jafntefli)
22. Rce4 - d3!, 23. c5 - Dc7,
24. Rd6 - He6, 25. De4 - b6!,
26. f4?
(Nauðsynlegt var 26. Hacl og
staðan er tvisýn)
bxc5, 27. fxe5
(Eða 27, bxc5 — Rd7, 28. Dd5
- Rxc5!)
IIxe5, 28. Dxd3 - Hxd6, 29.
Dc3 — Hd8, 30. Hxe5 — Rxe5,
31. Hel - f6, 32. He3 - c4. 33.
h3 - Dd7, 34. Rf3! - Ddl+, 35.
Kg2
(Tímahrakið réði hér lögum og
lofum hjá báðum.)
Kf8, 36. g4 - Rxf3. 37. Hxf3
- De2+, 38. Kg3.
Skák
eftir Margeir
Pétursson
Hd3?
(Eftir 38. ... Hd2, 39. De3 er
Dh2+ að vísu ekki gott, en
svartur ætti að vinna endatafiið
eftir 38. ... Hd2, 29. De3 —
Dxe3, 40. Hxe3 - Hb2!)
39. Hxd3 — cxd3, 40. Dc8+ —
Ke6, 41. Dc7+ - Ke6. 42. Dc6+
- Ke5, 43. Dc5+ - Ke6, 44.
Dc6+ — Ke5. Jafntefli.
Viðureign Rússa og Dana lauk
á sama hátt, með sigri hinna
fyrrnefndu 3 xk — xk. Því varð að
grípa til stigaútreiknings til að
úrskurða sigursveitina. Þessi
margumræddu stig eru ekkert
annað en samanlagðir vinningar
andstæðinganna og því reið nú á
að þær þjóðir sem sveitirnar
höfðu teflt við snemma á mótinu
fengju sem bezta útkomu. Sér-
Frá viðureign fslendinga og Ungverja 1 síðustu umferð. Frá vinstri: Helgi ólafsson, teflir við Portisch,
Jón L. Árnason, Margeir Pétursson, teflir við Sax, og Jóhann Hjartarson, við Pinter.
staka athygli vakti þannig viður-
eign Skota og Grikkja, en Ung-
verjar höfðu teflt við Skota, én
Rússar við Grikki. Kasparov var
nú settur í að aðstoða Grikkina
við biðstöðurannsóknir, enda fór
svo að þeir sigruðu Skotana og
Rússar unnu mótið!
Lokastaðan: 1. Sovétríkin 39 v.
(449Vfe stig), 2. Ungverjaland 39
v. (448 stig), 3. Júgóslavía 35 v.,
4. Bandaríkin 34 v., 5. Tékkóslóv-
akía 33 v. 6.—7. ENgland og
Pólland 32‘k. 8.—9. Kanada og
ísrael 32 v. 10.-13. Kúba, Hol-
land, Rúmenía og Svíþjóð 31 xk v.
14.—18. Argentína, Danmörk,
Frakkland, Wales og Filippseyj-
ar 31 v. 19,—22. Austurríki,
Búlgaria, Finnland og Ítalía 30'k
v. 23.—30. ísland, V-Þýzkaland,
Noregur, Brazilía, Venezúela,
Spánn, Grikkland og Sýrland 30
v.
Duttlungar kerfisins gerðu
það að verkum að sæti okkar í
lokin var það lægsta sem við
höfðum nokkru sinni á mótinu.
Það var auðvitað súrt í brotið að
sjá hverja þjóðina á fætur ann-
arri, sem aldrei höfðu komið
nálægt toppbaráttunni, fara upp
fyrir okkur á meðan við áttum í
höggi við Ungverja.
Hins vegar var óneitanlega
miklu skemmtilegra að tefla við
toppþjóðirnar heldur en kljást
við miðlungssveitir umferð eftir
umferð og hin spennuþrungna
lokaumferð er auðvitað ógleym-
anleg.
Efstir á borðunum voru:
1. borð: Hook, Brezku Jóm-
frúreyjum 11% v. af 14, eða
82,14%. 2. borð: Rantanen,
Finnlandi 9% v. af 13 eða
73,07%. 3. borð: Villareal, Mex-
íkó 9 v. af 11 eða 81,81%. 4. borð:
Csom, Ungverjalandi 7 v. af 9
eða 77,77%.
1. varamaður: Balashov, Sov-
étrikjunum 7% v. af 10 eða 75%.
2. varamaður: Nikolic, Júgó-
slavíu 6% v. af 8 eða 81,25%.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
tilboö — útboö
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í loftstreng fyrir Rafmagnsveit-
ur Reykjavíkur. Útboðsgögn eru afhent á
skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboöin verða opnuð á sama staö, mánu-
daginn 2. marz nk. kl. 14 e.h.
INNKAUFASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 8 — Simi 25800
Tilboð óskast
í eftirfarandi bifreiöar í tjónsástandi.
Toyota Mark II árgerö 1973.
Mazda 323 árgerö 1977.
Ford Escord árgerö 1973.
Volkswagen 1300 árgerð 1972.
Lada 1500 árgerð 1977.
Mazda 818 árgerö 1976.
Austin Alegro árgerö 1978.
Lancer 1400 árgerö 1975.
A M C Hornet árgerð 1971.
Daihatsu Charmant árgerö 1978.
Bifreiöarnar veröa til sýnis að Melabraut 26,
Hafnarfiröi, laugardaginn 31. janúar frá kl.
1—5. Tilboöum sé skilað til aöalskrifstofu
Laugavegi 103 fyrir kl. 5 mánudaginn 2.
febrúar. _ .
Brunabotafelag Islands.
húsnæöi i boöi
Verzlunar- og skrifstofu-
húsnæði til leigu
Til leigu er neösta hæöin (verzlunin) aö
Lágmúla 7, Reykjavík, sömuleiðis skrifstofu-
húsnæöi á 2. hæö.
Nánari upplýsingar gefur Hjalti Geir Krist-
jánsson, Laugavegi 13, sími: 25870.
Verzlunarhúsnæði
til leigu til lengri eöa skemmri tíma, hentugt
fyrir ýmiskonar, fataverzlun, útsölumarkaö
o.þ.h. Hugsanlegt aö leigja t.d. 2 vikur í senn,
ef um útsölur væri aö ræöa. Húsnæöiö er
140m2 rétt við Laugaveg, gæti leigst í tvennu
lagi, ef vill.
Upplýsingar í síma 13044 eftir kl. 18.
fundir — mannfagnaöir
........
Árshátíð og 50 ára af-
mælisfagnaður Sjálfstæö-
is félags Akureyrar
veröur haldin í Sjálfstæöishúsinu, laugardag-
inn 31. janúar nk. og hefst stundvíslega kl.
19.00 meö hanastéli.
Forsala aögöngumiða og borðapantanir í
Sjálfstæðishúsinu, fimmtudaginn 29. og
föstudaginn 30. janúar milli kl. 17—19 og
laugardaginn 31. janúar milli kl. 13—15.
Sjálfstæðisfélag Akureyrar.
Málfundafélagiö Óðinn
heldur félagsfund, fimmtudaginn 29.
janúar 1981. kl. 20.30 íValhöll, Háaleitis-
braut 1.
Fundarefni:
Pétur Sigurösson, alþingismaöur. ræöir
um efnahagsráöstafanir ríkisstjórnarinn-
ar og verkalýösmál.
Félagar fjölmenniö.
Stjórnin.
Félag sjálfstæðismanna
í Laugarneshverfi
boðar til fundar
með umdæmafulltrúum
fimmtudaginn 29. janúar kl. 20.30 í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Á
fundlnn mæta Guömundur H. Garöarsson. Gunnlaugur B. Daníelsson
og Davíö Oddsson. Umdæmafulltrúar eru hvattir til aö mæta
stundvislega.
Stjórnin