Morgunblaðið - 29.01.1981, Side 36

Morgunblaðið - 29.01.1981, Side 36
Síminn á afgreiöslunni er 83033 JtUrgunbbibife Síminn á afgreióslunni er 83033 JtUrgunblnbift FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981 Bruninn í Kötlufelli 11: Krafa gerð um gæzluvarðhald yfir eiginkonu hins látna RANNSÓKN á hrunanum að Kotlufclli 11 í Hreiðholti sl. sunnudaK hefur leitt til handtöku á eÍKÍnkonu mannsins sem þar lézt, að því er Þórir Oddsson vararannsóknarlöKreKlustjóri staðfesti við MorKunblaðið i gær- kvöldi. Rannsóknarlöurenla ríkisins gerði I gær kröfu um að konan yrði úrskurðuð i gæzlu- varðhald til 11. febrúar nk. á meðan frekari rannsókn fer fram á málinu. Að sötjn I>óris beinist lírunur að þvi að eÍKÍnkonan, sem er 26 ára Komul. kunni með einum eða öðrum hætti að eiga hlutdeild að eldsupptökunum. Eins og komið hefur fram í fréttum, kom upp eldur í íbúð á 3. hæð hússins Kötlufell 11 á sjöunda tímanum á sunnudaginn. Þegar reykkafarar brutust inn í íbúðina fundu þeir heimilisföður- inn látinn. Hann hét Sigfús Steingrímsson og var 37 ára gam- all. Kötlufell 11. Eldurinn kom upp i ibúðinni á 3. hæð. Verðlagsráð: Sjö hækkun- arbeiðnir samþykktar VERÐLAGSRÁÐ samþykkti sjö hækkunarbeiðnir á fundi sínum i gær auk hrauðahækk- unarinnar, sem skýrt er frá á öðrum stað i blaðinu. Beiðnirn- ar „frusu inni“ hjá ráðinu á gamlársdag. Ileimiluð hækkun er á bilinu 5—20% og i lang- flestum tilfellum hefur minni hækkun verið heimiluð en beð- ið var um. Eftirtaldar hækkanir sam- þykkti Verðlagsráð í gær sam- kvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins: Gosdrykkir 8—13%, fargjöld Landsleiða á Hafnar- fjarðarleið 11%, fargjöld hóp- ferðabíla 11%, farmiðar í inn- anlandsflugi 5%, aðgöngumiðar kvikmyndahúsa 9%, smjörlíki 6—12,8% og loks saltfiskur í smásölu (aðallega BÚR) 20%. Búist er við því að ríkis- stjórnin taki samþykktir Verð- lagsráðs til afgreiðslu á næsta fundi sínum. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins, vaknaði grunur um að ekki væri allt með felldu er rannsókn hófst á brunanum og hugsanlegum orsökum hans. Stað- festi Þórir Oddsson þetta í samtali við blaðið í gærkvöldi. Þórir sagði að eiginkona hins látna hefði verið handtekinn laust eftir miðnætti í fyrrinótt og færð til skýrslutöku og í framhaldi að því var gerð krafa um gæzluvarðhald í saka- dómi Reykjavíkur. Dómarinn tók sér frest til dagsins í dag til að kynna sér málavexti en síðdegis í dag er þess vænst að hann kveði upp úrskurð í málinu. Skipaður réttargæzlumaður konunnar var viðstaddur réttarhaldið í saka- dómi í gær. Réttarkrufning hefur farið fram en niðurstöður hennar liggja ekki fyrir. Frakkar sigruðu íslendinga með einu marki i landsleik i handknattl- eik i Laugardalshöllinni i gærkvöldi 22—21. Hér brýst Páll Björgvinsson i gegn og skorar. Sjá bls. 35. Reykjavík og nágrenni: 60 nú til 70 múrarar atvinnulausir Verðlagsráð og visitölubrauðin: Heimilaði 18,5- 25,2% hækkun VERÐLAGSRÁÐ samþykkti í gær að heimila 18,5—25,2% hækkun á vísitölubrauðun- um svonefndu frá því verði, sem Verðlagsráð samþykkti síðast. Þetta er 4,6—8,7% hærra verð en hakarameist- arar höfðu sjálfir ákveðið og þeir voru ka-rðir fyrir. Sam- þykkt Verðlagsráðs verður væntanlega tekin fyrir á næsta ríkisstjórnarfundi. Hannes Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands bakarameistara, tjáði Mbl. í gær- kvöldi að það ætti eftir að skoða betur þessa samþykkt Verðlags- ráðs en í fljótu bragði virtist honum að þetta verð væri næst því, sem bakarameistarar teldu nauðsynlegt. Málið yrði lagt fyrir félagsfund og ef bakarameisturum sýndist verðið viðunandi, sem hann teldi líklegt við fyrstu sýn, myndu þeir hefja framleiðslu vísi- tölubrauða á ný, þ.e. þeir sem hættir eru. Vísitölubrauðin eru franskbrauð, normalbrauð, rúg- brauð og heilhveitibrauð. Þess má að lokum geta að bakarameistarar höfðu óskað eftir 23,8—30,5% hækkun frá því verði, sem Verðlagsráð samþykkti síðast og hefur verið í gildi opinberlega. MIKIÐ atvinnuleysi er nú hjá iðnaðarmönnum. Sérstaklega er ástandið erfitt hjá múrurum i Reykjavik, en að sögn Gunnars Björnssonar, formanns Meistara- sambands byggingamanna, eru nú 60—70 múrarar atvinnulausir á Reykjavfkursvæðinu og er það mun meira en á þessum tfma árs sfðastliðin ár. Þá eru um 20 málarar atvinnulausir og sú tala er einnig óvenju há. Hins vegar eru aðeins 6 trésmiðir skráðir atvinnu- iausir og mun ástandið f tréiðnað- argreinunum vera heldur skárra nú en á sama tima i fyrra að þvi er Bcnedikt Davfðsson, formaður Landssambands byggingarmanna sagði f gær. Gunnar Björnsson sagði að múr- arar hefðu byrjað að skrá sig atvinnulausa fyrir áramót, en í þessum mánuði hefði þeim fjölgað verulega. Hann sagðist óttast að atvinnuástand múrara ætti enn eftir að versna í vetur og í sama streng tók Helgi Steinar Karlsson, formaður Múrarafélags Reykjavík- ur. Helgi Steinar sagði, að í Múrara- félagi Reykjavíkur væru rösklega 300 manns, en um 260 þeirra væru á vinnumarkaðnum. í Reykjavík væru 34 múrarar skráðir atvinnulausir og nokkrir væru skráðir atvinnulausir í Kópavogi, Mosfellssveit og Sel- tjarnarnesi þannig að fjöldi skráðra atvinnulausra væri rúmlega 40. Við þetta bættust þeir, sem ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum vegna tekna útivinnandi maka og nemar, sem ekki eiga rétt á bótum. Þannig væri tala atvinnulausra í þessari iðngrein á bilinu 60—70. Að sögn Gunnars Björnssonar er slæmt atvinnuástand hjá iðnaðar- mönnum á Akureyri og reyndar víðar á Norðurlandi, en annars staðar úti á landi er atvinnuástand iðnaðarmanna svipað og á þessum árstíma síðastliðin ár. Gunnar sagði að á Akureyri væri útlitið framund- an heldur dapurt og lítið væri á döfinni af meiri háttar framkvæmd- um. Hjá rafvirkjum mun ekki vera um atvinnuleysi að ræða, en þar hefur hins verið dregið úr vinnu. Benedikt Davíðsson var sérstak- lega spurður um atvinnuástand hjá iðnaðarmönnum í húsgagnaiðnaði og sagði hann að þar væri ástandið svipað og í öðrum tréiðnaðargrein- um. Hins vegar væru menn hrædd- ari við framtíðina þar vegna mikils innflutnings frá útlöndum. Hann hefði þegar haft það í för með sér að bæði bólstrarar og húsgagnasmiðir hefðu hætt í iðn sinni og snúið sér að t.d. húsasmíði. Vaxtatillögur Seðlabankans: Stórfelld hækkun miðað við núverandi vaxtakjör ÁKVEÐNAR tillögur Seðlabanka íslands f vaxtamálum hafa legið fyrir rfkisstjórn og hafa þær ekki hlotið endanlega afgreiðslu þar. Fyrirhugað var, að breytingar á vaxtakjörum tækju gildi um mán- aðamótin, en hæpið er nú talið, þar sem rfkisstjórnin hefur enn ekki samþykkt tillögurnar, að af þvf geti orðið þá. Hins vegar mun það ekki forgangssök, þótt breytingin verði ekki um mánaðamót. Sam- kvæmt heimildum Morgunhlaðsins fela þær tillögur, sem fyrir liggja, f sér stórfellda hækkun vaxta frá þvi sem nú er og mun raunvaxtastig nást mun fyrr með þeim, en áður hafði verið áætlað. Samkvæmt tillögunum mun heim- ilt að flytja verðtryggða reikninga, sem bundnir eru til 2ja ára yfir í nýju 6 mánaða reikningana. Sé sú heimild hins vegar ekki notuð, breyt- ast verðtryggðir reikningar til 2ja ára í eins árs verðtryggða reikninga. Þá breytist eins árs vaxtaaukareikn- ingur í eins árs verðtryggðan reikn- ing. Þá mun samkvæmt tillögunum heimilt að flytja fjárhæðir af 10 ára, eins árs og 6 mánaða bókum yfir í eins árs verðtryggða reikninga. Vextir verða af eins árs verð- tryggðum reikningum 1% og 3ja mánaða vaxtaaukareikningar halda áfram að vera í gildi. Engir vextir verða á 6 mánaða verðtryggðum reikningum. Fjögurra ára vísitölulán með 2‘/i% vöxtum verður breytt í 3ja ára lán, en verðtryggð lán, sem eru á bilinu frá eins til þriggja ára bera l'Æ% vexti. Vaxtaaukalán til 3ja mánaða eða 9 mánaða verða með 45% vöxtum, en víxlar falla í raun niður, nema vörukaupavíxlar og víxlar, sem greiðast innan mánaðar. Samkvæmt þessum tillögum er um stórfellda vaxtahækkun að ræða bæði á inn- og útlánsvöxtum, stór- felld vaxtakjarabót fyrir innstæðu- eigendur og innlánsstofnanir munu ekki geta staðið undir slíkum vöxt- um, nema beina útlánum í dýrari flokka lána, sem í raun þýðir hækk- aða útlánsvexti. Þegar til lengri tíma er litið, nálgast þessar tillögur raunvaxta- stefnu með meiri hraða, en hingað til hefur verið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.