Morgunblaðið - 29.01.1981, Side 26

Morgunblaðið - 29.01.1981, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981 + ÞORGEIR BJARNASON, bóndi, HæringsstöAum, Stokkseyrarhreppi, lést í sjúkrahúsinu á Selfossi þriöjudaginn 27. janúar. Aöstandendur. t SIGÞÓR KARL ÞÓRARINSSON, hreppstjóri Einarsnesi, sem lést hinn 23. þessa mánaöar veröur jarösettur aö Borg á Mýrum laugardaginn 31. janúar. Athöfnin fer fram frá Borgarneskirkju kl. 14. Sigríóur Guómundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma, HALLFRÍDUR JÓNA JÓNSDÓTTIR, Meöalholti 8, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 30. janúar kl. 3 e.h. Bryndís Gísladóttir, Reynir Schmidt, Björgvin Gíslason, Guöbjörg Ragnarsdóttir Halla Gísladóttir, og barnabörn. + Móöir okkar og fósturmóöir, KARÓLÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR, Vatnsnesvegi 25, Keflavík, lést 27. janúar. Gunnar Guönason, Jóhanna Guönadóttir, Karl Steinar Guönason, Selma Guðnadóttir, Ólafía Bergþóra Guönadóttir, Guöni Þór Andrews. Móöir okkar, + JONÍNA KRISTJANSDÓTTIR frá Þórshöfn, Hvassaleiti 153, andaölst aö Hátúni 10 B, þriöjudaginn 27. janúar. Rósa Jóhannsdóttir, Jóhanna Jóhannsdóttir. + Konan mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR, sem andaöist í sjúkrahúsinu á Húsavík 26. janúar veröur jarösungin frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 31. janúar kl. 14. Ingimar Stefánsson, Brynhildur Ingimarsdóttir Eydal, Brynjar Eydal, Gunnar Ingimarsson, Helga Karlsdóttir Mikael Sigurösson, og barnabörn. + Móöir okkar, tengdamóöir og amma, RAGNHEIDUR Ó. STEPHENSEN, Grenigrund 14, Kópavogi, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni, föstudaglnn 30. janúar kl. 13.30. Steinunn Siguröardóttir, Halldór Jónsson, Ragnheiöur Þorsteinsdóttir, Hafþór Sigurösson, Guömundur Þorsteinsson, Anna Hjaltadóttir, Ólafur Þorsteinsson, Hlíf Siguröardóttir. + Faöir okkar og tengdafaöir, BJÖRN JÓNSSON, fyrrverandi verkstjóri í Landssmiöjunni, er lést föstudaginn 23. janúar veröur jarösunginn frá Fossvogs- kirkju, föstudaginn 30. janúar kl. 13.30. Guörún Björnsdóttir, Páll AAalsteinsson, Eva Björnsdóttir, Gísli Jóhannsson, Aöalheiöur Björnsdóttir, Hrafnhildur Björnsdóttir, Bjarni Þór Kjartansson, Björn H. Björnsson, Jenný Jónsdóttir. Minning: Magnús Magnússon rafmagnsverkfr. Fæddur 2. október 1904. Dáinn 21. janúar 1981. í dag verður borinn til grafar ágætur nágranni og eldri fyrir- rennari í starfi. Kynni mín af Magnúsi Magnússyni verkfræð- ingi voru ánægjuleg og það var forvitnilegt að spjalla við hann um hvernig staðið var að ýmsum tæknilegum framkvæmdum fyrr á árum þegar efnahagur var minni og möguleikar færri en nú, verk- færi og tækni öll ófullkomnari og færri sérhæfðir menn til aðstoðar og samstarfs. Jafnframt var gam- an að geta upplýst hann um nýjungar í símatækni því hann vildi fylgjast með framþróun í þeim efnum. Magnús Magnússon var fæddur 2. október 1904 í Reykjavík. Hann tók próf í rafeindafræði í Dresden í Þýzkalandi árið 1934 og starfaði frá þeim tíma og ti! ársins 1946 hjá Landsíma íslands. Hann vann við áætlanagerðir og stjórnun á uppbyggingu símakerfisins, meðal annars fyrir lagningu innanbæjar og langlínujarðstrengja og upp- setningu fjölrásakerfa fyrir lang- línusambönd, sem farið var að taka í notkun á þessum árum. Hann hafði einnig umsjón með byggingu stuttbylgjustöðvanna á Vatnsenda og Gufunesi og var stöðvarstjóri á Vatnsenda 1935— 1937. Eftir að hafa starfað við Raftækjasöluna hf. í Reykjavík á árunum 1946—1952 kom Magnús aftur til Landsímans og starfaði þar til 1959 við framkvæmdaáætl- anir á línukerfum bæjarsímans í Reykjavík, ásamt kennslu við Símvirkjaskólánn. Magnús starf- aði fyrir Hitaveitu Reykjavíkur 1960—1%2, en eftir þann tíma rak hann eigin verkfræðistofu, við gerð ýmissa áætlana og rafteikn- inga, þar til hann sökum van- heilsu og aldurs varð að láta af störfum fyrir nokkrum árum. Magnús ritaði margar faggreinar bæði í Símablaðið og Tímarit Verkfræðingafélagsins, ennfrem- ur samdi hann kennslubók í raf- magnsfræði er gefin var út á árunum 1950—1951. Árið 1929 kvæntist Magnús Jón- björgu Björnsdóttir og eignuðust þau tvo syni, Björn og Þór. Þótt fljótt fenni í spor okkar mannanna og yfir verk okkar og athafnir, veit ég að margir fyrr- verandi samstarfsmenn og læri- sveinar Magnúsar munu minnast hans með hlýhug, virðingu og þakklæti. Magnús Magnússon var einkar þægilegur nágranni, alltaf virðu- legur en hlýr í viðmóti, fróður eldri verkfræðifélagi, sem ég kveð með þökk fyrir góða samfylgd. ólafur Tómasson Ég get ekki minnst svo ná- granna okkar og vinar Magnúsar Magnússonar verkfræðings að minnast ekki konu hans, Jón- bjargar, líka. í mínum huga eru þau alltaf saman og minningar mínar alltaf tengdar þeim báðum, því raunverulega hurfu þau okkur bæði á sama tíma. Við fundum sárt til með Magnúsi þegar Jón- björg dó, því þá var honum trúlega farið eins og Jónasi forðum er hann einn sat eftir við „ferðalok" og næturskýin skýldu ástar- stjörnu yfir Hraundranga — og — nhryggur þráir sveinn í djúpum dali“. En hann sagði líka: — „En anda sem unnast, fær aldrei eilífð að skilið" — og því vil ég trúa um þau góðu hjón. Við komum hér á þessar slóðir ung og hress til að ráðast í húsbyggingu. Það verk unnum við, eins og flestir þá, í áföngum, og glöddumst yfir hverju því þrepi sem okkur og öðrum, sem hér voru í sömu erindum, tókst að yfirstíga. Börn fæddust og byrjað var að gróðursetja blóm og tré. Allt voru þetta gleðigjafar bæði börn og blóm og þeirra líf og velferð sameiginlegt áhugamál allra. Magnús og Jónbjörg byggðu hús sitt við Þinghólsbraut nokkru áð- ur en við komum hér, og með þeim synirnir tveir, Björn og Þór. Báðir voru giftir og búnir að eignast börn, og þarna og víðar við þessa götu eignuðumst við góða ná- granna. Þegar sonabörnunum fjölgaði og þröngt varð í húsinu, réðust synirnir í að byggja sér hús sem þeir svo fluttu í og síðustu árin voru þau ein í ibúð sinni. Það eru ekki stórir salir í þessu húsi, en allt var þar hjá þeim með slíkum heimsbrag að stofurnar sýndust mun stærri en þær raun- verulega voru. Fallega minjagripi áttu þau frá námsárum Magnúsar í Þýzkalandi og við þá gripi tengdar margar minningar. Þau sögðu mér ýmislegt frá þeim árum þegar við sátum á sólbökuðum tröppunum og fengum okkur kaffisopa. Þau voru samhent við allt sem gera þurfti innanhúss sem utan og það var svo notalegt að sjá þessi fullorðnu hjón vinna saman í garðinum. Jónbjörg var einu sinni að sýnr. mér rósir sem hún hafði eignast og gróðursett, þá heyrðum við að sagt var hlýrri og karlmannlegri röddu úr dyrun- um fyrir ofan okkur: „Það þarf ekki rósir í garð, þar sem konan mín gengur um í bleika sloppnum 'sínum." Hún leit upp og brosti og mér fannst það forréttindi að fá að vera viðstödd þessi tján- ingarskifti. Þannig man ég þau Jónbjörgu og Magnús og ég er forsjóninni þakklát fyrir að eiga svo fallega mynd af þessu samferðafólki mínu. Við þökkum þeim samfylgd- ina þennan stutta spöl. Þeirra ágætu sonum Birni og Þór, tengdadætrunum Ingibjörgu og Stefaníu, svo og börnum þeirra, sendum við samúðarkveðjur og biðjum almáttugan Guð að blessa allar góðar minningar sem þau eiga um foreldra, tengdaforeldra, ömmu og afa. „Þar blAa okkar bak við hAf hin björtu HÓlarlönd. Við skulum hætta ad hugHa um gröí en horfa á lífsinH strrtnd.“ Þannig mæltist Ólöfu frá Hlöð- um í erfiljóði, og ég sit hér og sé þau Jónbjörgu og Magnús fyrir mér þar sem þau leiðast hönd í hönd, eins og þau fyrrum gerðu hér á Þinghólsbrautinni, en núna „á lífsins strönd". Friður sé með þeim. Stefanía M. Pétursdóttir ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem bi’rtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. + Kveöjuathöfn eiglnmanns míns og sonar, JÓNS GUÐBRANDSSONAR, Höföa Vatnalaysuatrönd, veröur gerö frá Fossvogsklrkju þann 31. janúar næstkomandi kl. 10.30. Jaröarförin fer fram frá Kálfatjarnarkirkju sama dag kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans láti Krabbameinsfélagiö eöa orgelsjóö Kálfatjarnarkirkju njóta þess. Ásta Þórarinsdóttir, Guöbrandur Jónasson, börn og tengdabörn. + Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför móöur minnar, tengdamóöur og ömmu, ALDISAR ÓLAFSDÓTTUR, Sólvallagötu 27, Keflavík. Oddný Valdimarsdóttir, Jón Arinbjarnarson, Aldís Jónsdóttir, Hafsteinn Ingólfsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Gísli Guömundsson. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför systur okkar og mágkonu HÓLMFRÍÐAR KRISTINSDÓTTUR, Reynimel 63. Guöný Kristinsdóttir, Ólöf Kristinsdóttir, Unnur Kristinsdóttir, Viggó Nathanaelsson, Haukur Kristinsson, Vilborg Guðmundsdóttir, Haraldur Kristinsson, Helga Benónýsdóttir, Valdimar Kristinsson, Áslaug Jónsdóttir, Kristjana V. Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.