Morgunblaðið - 29.01.1981, Side 16

Morgunblaðið - 29.01.1981, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981 m w*m Fjórir fórust í óveðri í Noregi Osló, 28. janúar. Frá frétta- ritara Mbl., Jan Erik Lauré. FJÓRIR menn íórust er mik- ið óveður gekk yíir norður- hluta Noregs í gærkvöldi og nótt. Þrír þeirra fórust er bifreið þeirra varð fyrir snjóskriðu rétt fyrir sunnan Mo í Rana. FRELSINU FAGNAÐ. — Þessi mynd var tekin af bandarísku gíslunum þegar þeir komu til Alsír á dögunum á leið sinni til Wiesbaden í Þýskalandi. AP-nimamynd. Eins mikill samhugur hefur sjaldan ríkt i Bandaríkjunum Frá Önnu Bjarnadóttur. fréttaritara MorRunhlaÓNÍns í WashinRton. NÚ ÞEGAR bandarísku gíslarnir fyrrverandi, sem voru í haldi í íran i 444 daga. eru loks komnir heim við ótrúlegan fögnuð þjiiðarinnar allrar. eru menn farnir að velta fyrir sér, hvers vegna þjóðin hefur hrugðizt svo innilega við lang- þráðri heimkomu þessara 52 sálna. Varla nokkru sinni hefur þjóðin brugðizt eins sjálfkrafa við og borið tilfinningar sínar eins opin- skátt á torg. Striðshetjum hefur verið fagnað og allt ætlaði um koll að keyra. þegar John Glenn kom heim úr fyrstu geimferðinni i kringum jörðina. En síðan Kenn- edybra-ðurnir og Martin Luther King voru myrtir. Víetnamstríðið var háð og Watergate eitraði and- rúmsloftið hefur þjóðin verið sundruð og vonleysi náð tökum á mörgum. lranir ætluðu að ná sér niður á Bandaríkjamönnum fyrir gamlar syndir með því að taka sendiráð þeirra í Teheran yfir, en þeir færðu þjóðina saman í staðinn og fengu almenning til að lýsa yfir ættjarðarást og þjóðrækniskennd feimnislaust á götum úti. Þjóðin öll var gísl námsmannanna í Teheran, forsetinn sagðist ekki vinna að öðru en lausn gíslanna framan af, og fjölmiðlar voru fullir af fréttum af fjölskyldum gíslanna, sem aldrei vissu hvenær eða hvort þeir kæmu heim. Myndir sýndu mótmælagöngur gegn Bandaríkjun- um í Iran, rusl borið út í bandaríska fánanum og æðsta prest vingsa leifum látinna hermanna úr björg- unartilrauninni misheppnuðu. Þjóð- in var kölluð Satan og henni misboð- ið á allan hugsanlegan hátt. Margir Bandaríkjamenn fylltust heift og eldmóði, en hið eina, sem dugði, var þolinmæði og þjóðinni 'tókst að sýna hana. Bruce Laingen fv. sendiráðs- ritari í íran sagði á þriðjudag, að spænski sendiherrann hefði snemma sagt við sig í Teheran eftir að sendiráðið var tekið: „Þolinmæði er bitur drykkur, sem aðeins hinir sterku geta drukkið." En við komu gísianna til Washington varaði Ron- ald Reagan við þeirri skoðun, að Bandaríkin myndu sýna sömu þolin- mæði í framtíðinni. Á næstu dögum og vikum munu gíslarnir fá tækifæri til að segja frá meðferðinni í íran. Þjóðin mun hlusta, eins og týndi sonurinn sé að segja sögu sína. Bækur verða vænt- anlega skrifaðar og bíómyndir gerð- ar. í Washington eru götusalar önnum kafnir við að selja minjagripi um heimkomuna og gulir borðar eru enn hnýttir alls staðar, á kústsköft sópara, um hálsa varðhunda við Hvíta húsið og í hár kvenna. Sagt hefur verið, að gulu borðana megi rekja aftur til borgarastyrjaldarinn- ar á síðustu öld, en sagnfræðingar hrista höfuðið yfir því. Svarsins er víst aðeins að leita í laginu „Tie a Yellow Ribbon ’Round the Old Oak Tree“, sem kemur nú tárum fram í augun á fólki. Allt er gott, sem endar vel. Reagan sagði gíslunum á þriðjudag að horfa fram á við. Sjálfur mun hann nú hefjast handa við efnahagsvanda þjóðarinnar, en þingið mun grafast fyrir um gíslatökuna og -haldið í íran. Gíslarnir sjálfir munu væntan- lega þurfa nokkurn tíma til að jafna sig eftir lífsreynsluna. Flestir eru við góða heilsu, þó var Robert Ode, sem var elztur gíslanna, lagður inn á sjúkrahús með lungnabólgu og til hvíldar á þriðjudagskvöld og nokkrir eiga eðlilega við sálræn vandamál að stríða. Gíslarnir vilja komast aftur til vinnu sem fyrst, en varla munu þeir eða aðrir, sem upplifðu heim- komu þeirra og ótrúlega gleði og ánægju þjóðarinnar, nokkru sinni gleyma þessum kafla í sögu Banda- ríkjanna. Pundmynt slegin London, 28. janúar. AP. BRÁÐLEGA hverfa brezkir pundseðlar úr umferð og í þeirra stað verður gefin út mynt að sama verðgildi, sam- kvæmt tilkynningu stjórn- valda þar að lútandi í dag. Hin nýja mynt er nú í hönnun og verður byrjað að slá hana innan fárra mánaða. Ekki hefur verið ákveðið hvenær seðlarnir verða teknir úr not- kun. Það er tekið sem viðmiðun fyrir verðbólguna sem sett hef- ur strik í reikninginn í brezku efnahagslífi upp á siðkastið, að fyrir 15 árum fengust 12 kollur af bjór fyrir sterlingspundið á brezkri krá, en í dag aðeins tvær. Og hinn fjórði fórst er skriða féll á þrjú hús skammt norður af Mo í Rana. Þrjú hús gjör- eyðilögðust í skriðunni, og þykir það mildi, að fimm manns skyldu geta bjargað sér út úr húsunum. Flestir vegir í norðurhéruð- um Noregs lokuðust vegna skriðufalla og vatnsflóða í nótt. Vindhraðinn í nótt fór upp í 12 vindstig og á stuttri stundu breyttist lofthitinn úr mínus tíu gráðum í núll gráð- ur, og af þeim sökum varð flóðahætta mikil. Stór hellir Miri. 28. janúar. AP. BREZKUR leiðangur hefur fundið stærsta helli jarðar, en hann er í svokölluðum Mulu-hellum í Malaysíu. Hvelfing hellisins er eins kílómeters löng, 250 metra breið og hæð undir loft er 70 metrar. Til að gefa hugmynd um stærð hellishvelfingarinnar, má nefna, að þar kæmust 16 knattspyrnu- vellir fyrir. Efnahagsvandinn í Svíþjóð: Þjóðarflokkurinn leggur fram sparnaðartillögur ERLENT Stokkhólmi, 28. janúar. Frá fréttaritara Mbl. GuÓfinnu RaKnarsdóttur. RÍKISSTJÓRNIN verður að hafa komið sér saman um sparnaðartil- lögur í síðasta lagi á miðvikudag- inn í næstu viku, sagði Ulla Ulsten. formaður Þjóðarflokksins, þegar hann i gær. þriðjudag, lagði fram sparnaðartillögur Þjóðarflokksins á fundi með formönnum hinna tveggja stjórnmálaflokkanna, þeim Gösta Bohman. formanni Ilægri flokksins og Thorbjörn Fálldin, forsætisráðherra, formanni Mið- flokksins. Á miðvikudag eru almennar um- ræður í þinginu og slíkar umræður er ekki hægt að hafa nema efna- hagsmálin séu á hreinu, sagði Ulla Ulsten, en helst, sagði hann, þyrfti ríkisstjórnin að hafa sparnaðartil- lögurnar tilbúnar innan tveggja daga. Það sem hefur valdið mestum vandræðum innan sænsku ríkis- stjórnarinnar að undanförnu eru erfiðleikar Miðflokksins við að taka ákvarðanir í efnahagsmálum og á fundi innan Þjóðarflokksins í gær var Thorbjörn Fálldin forsætisráð- herra gagnrýndur harðlega fyrir aðgerðarleysi sitt í efnahagsmálun- um. Hægri flokkurinn hefur markað sína sparnaðarstefnu og Þjóðar- flokkurinn lagði nú fram sínar tillögur í 20 liðum og krafðist þess, að stjórnin gerði þær að sínum tillögum. Næstu dagar munu því Ástandið í breska Verkamannaflokknum: „Þremenningaklíkunni“ vex ásmegin í skoðanakönnunum Frá Einari K. GuófinnHsyni, fréttaritara Mbl. í Bretlandi. DAG HVERN dregur nú til tíðinda á sjúkrahúsi Verkamanna- flokksins. Síðustu daga hefur hver sprengjan á fætur annarri sprungið og varla geta nokkur tíðindi sem þaðan berast komið lengur á óvart. Laugardaginn 24. janúar kárnaði gamanið i Verkamanna- flokknum. Þann dag var aukaþing flokksins haldið. Verkefni þess var að ákveða nýja löggjöf um kosningu leiðtoga Verkamanna- flokksins. Fyrir lá að ný kosningalöggjöf yrði umdeild og ýmsir áhrifamiklir armar litu á hana sem prinsipmál. Hinir róttæku unnu frækinn sigur á aukaþinginu. Leiðtogi Verkamannaflokksins er nú kos- inn þannig, að verkalýðsfélögin ráða 40% atkvæða, kjördæmisráð 30% og þingflokkur 30%. Þar með má segja, að vald verkalýðsfélag- anna yfir flokknum hafi verið endanlega innsiglað. Fyrir réðu þau 10% atkvæða og 80% fjár- magnsins. Þessi úrslit voru mikið áfall fyrir Foot, hinn nýkjörna leiðtoga, sem hafði barist fyrir öðru kosningafyrirkomulagi. Sunnudaginn 25. janúar létu jafnaðarmenn til skarar skríða. Þremenningaklíka ásamt Rodgers fyrrverandi ráðherra tilkynnti, að þeir hygðust stofna „jafnaðar- mannaráð", sem hefði það megin- verkefni að stilla saman kraftana og undirbúa klofning úr flokknum. Mánudagurinn 26. janúar var heldur ekki tíðindalaus. Dennis Healey, sem keppti við Michael Foot um leiðtogasætið fyrr í vetur, sagði í sjónvarpsviðtali, að niður- staða aukaþingsins væri gegn vilja meirihluta flokksmanna og að kosningareglurnar yrði að taka upp að nýju. Tony Benn, leiðtogi hinna róttæku, gaf í skyn að hann mundi bjóða sig fram í embætti varaformanns og vegna hinna nýju laga gæti hann sigrað. Fjármálaráðherra skuggaráðu- neytisins tók mjög í sama streng og Healey varðandi reglurnar um leiðtogakosningarnar og það mega teljast nokkur tíðindi því hann hefur verið talinn hallur undir vinstri menn. Um kvöldið sagði svo Shirley Williams í sjónvarpsviðtali, að aðgerðir þeirra, sem stóðu að breytingunum á kosningareglun- um græfu undan lýðræðinu. Þriðjudagur 27. janúar. Þann dag kom saman nokkurs konar miðstjórn Verkamannaflokksins og fyrir henni liggur nú tillaga frá Tony Benn. Verði hún samþykkt er ljóst að margir hægfara jafnað- armenn munu segja sig úr mið- stjórninni. Varla var þessum lát- um lokið þegar William Rodgers, fyrrv. varnarmálaráðherra, sagði sig úr skuggaráðuneytinu. I kosn- ingunum til skuggaráðuneytisins fyrr í vetur var Benn kjörinn fyrsti varaformaður og kemur því sjálfkrafa í stað Rodgers. Eins og málum er háttað nú vekur það sennilega lítinn fögnuð hjá leið- toga Verkamannaflokksins. Miðvikudagur 28. janúar. í dag var birt skoðanakönnun og í henni kemur fram að kosningabandalag frjálslyndra og jafnaðarmanna undir forystu Shirley Williams nýtur vaxandi fylgis. 43% kjós- enda styðja slíkt bandalag en í skoðanakönnun fyrir rúmri viku studdu það 31%. Af þessu virðist mega ráða, að jafnaðarmönnum aukist fylgi dag frá degi. skera úr um hvort sænsku stjórninni tekst að sameinast um efnahagsað- gerðir og þar með halda velli. Helstu úrbótatillögur Þjóðar- flokksins eru: 1. Styrkir til bæjar- og sveitarfélaga lækka um einn og hálfan milljarð sænskra kr. 2. Niðurgreiðsla á mat lækkar um einn milljarð sænskra kr., niðurgreiðslur á mjólk lækka þó ekki. 3. Skattar lækki niður í 50% á efsta hluta launa frá 1982. 4. Frádráttarreglur breytist og harðni. 5. Almennur skyldusparnaður þar sem hver og einn á sinn hluta, sem leggst í sjóði til styrktar iðnaðinum, sem taka má úr eftir vissan árafjölda. 6. Skattar á skóg til að fá fram meiri við. 7. Betri lán til þeirra sem eiga viðskipti við vanþróuð lönd. 8. Endurskoðun á möguleikum á að fá frí í vinnu. 9. Endurskoðun á atvinnuöryggislög- um, þ.e. lögum sem segja að ekki megi segja upp fólki nema í sérstök- um tilfellum. 10. Breytt og skert réttindi í sambandi við kaup við sjúkdóm. 11. Fjölskyldubætur hækki um 100 kr. á barn á hverju ári. Almennt er búist við því að Ulla Ulsten stefni að því að sem breiðust samstaða náist um aðgerðartillög- urnar og þar með að einnig jafnað- armenn geti veitt þeim fylgi en marga liði í tillögum Þjóðarflokks- ins er einnig að finna í tillögum jafnaðarmanna, sem þeir lögðu fram á sænska þinginu í gær, þriðjudag. Og þótt það hafi hvergi verið staðfest opinberlega þá er álit margra, að Ulla Ulsten hafi krafist þess að Thorbjörn Fálldin forsætis- ráðherra hæfi nú þegar viðræður við formann stjórnarandstöðunnar, Olav Palme. En Olav Palme er mjög harðorður í garð ríkisstjórnarinnar í gær þegar tillögur Jafnaðarmannaflokksins voru kynntar. Hann tók það fram að tillögurnar væru ekki móttillögur við tillögur ríkisstjórnarinnar „því það er ekki hægt,“ sagði hann, „að leggja fram móttillögur við það sem ekki er til.“ Hann sagði ennfremur að það ríkti eins konar stjórnleysi hjá stjórnvöldum landsins og að það væri tími til kominn fyrir stjórnina að segja af sér. Ekki vildi hann þó segja hvort jafnaðarmenn hefðu rætt um aðra vantrauststillögu á stjórnina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.