Morgunblaðið - 29.01.1981, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 29.01.1981, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANUAR 1981 21 Hreppsnefnd Egilsstaðahrepps: Vilja láta Lands- virkjun greiða diselkostnaðinn Egiltiwtöduin, 28. jan. Á FUNDI hreppsnefndar Eg- ilsstaðahrepps fyrir skömmu voru eftirtaldar tillögur sam- þykktar samhljóða: „Hreppsnefnd Egilsstaða- hrepps skorar á stjórn Raf- magnsveitna ríkisins að krefj- ast þess að Landsvirkjun greiði allan kostnað við raf- orkuframleiðslu eldsneytis- véla raforkukerfisins. Ljóst er að heilir landshlutar, sem nota þjónustu RARIK hafa verið tengdir orkuveitusvæði Landsvirkjunar til þess að auka markaðssvæði hennar, en hins vegar ekki byggðar þær virkjanir sem krafist hefur verið að byggðar yrðu, t.d. á Austurlandi. Það getur ekki verið hlutskipti raforku- notenda Rafveitna ríkisins einna að greiða í orkuverði sínu aukaskatta vegna rangra ákvarðana í raforkuöflun. Slíkt er ekki réttlætanlegt. Vegna þess bága ástands sem þjóðin býr við í raforku- málum og þá ekki síst Aust- firðingar, skorar hreppsnefnd Egilsstaðahrepps á orkuráð- herra og ríkisstjórn að draga ekki lengur að taka ákvörðun um virkjun í Fljótsdal, svo að framkvæmdir geti hafist í sumar." Lögfræðifélag tslands: Ræða bótafjárhæð vegna varanlegs líkamstjóns LÖGFRÆÐINGAFÉLAG íslands heldur fund i kvöld kl. 20.30 í Lögbergi. Verður þar fjallað um nýjar norrænar reglur um ákvörðun bótafjárhæðar fyrir varanleg lík- amstjón. Arnljótur Björnsson prófessor mun flytja framsögu um efnið. Betri er glóð i einum ofni en tveir ofnar kald- ir og lokuð verksmiðja „MarKur áiúrnist meira en þarf, maAurinn fór aA veiAa skarf.” Mörgum eru í fersku minni lándsföðurleg ráð Jóns Sigurðs- sonar fyrrum ráðuneytisstjóra, er hann setti fram í Morgunblaðinu í tilefni samninga opinberra starfs- manna árið 1977 í frægri grein um skarfaveiði. Ráðuneytisstjóranum til verðugs hróss skal honum tjáð, að þótt hann skammtaði smátt í tillögum sínum og sætti aðkasti og ámæli var þó viðbitsklína á disk- brún og kannski hveitilúka er nægði í vaskafatsklessu að bæta sér bragð í munni á Brandajólum. Það er meira en sagt verður um þá er æptu hvað mest gegn tillögum hans þá, og sitja nú i forsæti kjaramála og lúta að lágu. í samningaþófi opinberra starfsmanna færðu þeir rök fyrir nauðsyn launabóta miðað við dýrtíðaraukningu og kröfðust líf- vænlegra launa. Ráðuneytisstjór- inn vildi ekki fallast á þær röksemdir, en taldi sig luma á pottþéttum rökum og áætlunum um greiðslugetu, markaðs- og af- komuhorfur atvinnuvega og ríkis- sjóðs. Seinna hvarf hann að stór- framkvæmdum á Grundartanga. Þá var nú ekki verið að horfa í kostnað. Spáð var í skýjafar, klósiga og austantórur á við- skiptahimni alþjóðaauðhringa og vopnasmiða. En svo bregðast krosstré sem önnur tré. Þótt ráðuneytisstjórinn teldi sig getspakan um skarfaveiði opinberra starfsmanna bregst nú Grundartangaforstjóranum boga- list og spádómsgáfa. Óvarlegar áætlanir og fíkn í fleiri skarfa kemur nú fyrirtæki hans á kné. „Út um græna grundu, gakktu hjörðin mín“ er viðkvæði dagsins á þeim bæ þessa dagana. Þó ekki til þess að njóta „vorsins yndi“. Það er rétt einsog Davíð Stef- ánsson hafi haft í huga Járn- blendiverksmiðjuna þá er hann sagði í ljóði sínu: Konan sem kyndir ofninn mínn. „Læðist út úr stofunni og lokar á eftir sér.“ Pétur Pétursson þulur. Bukley jr., sendiherra í Bretlandi? London. 27. janúar. AP. WILLIAM F. Bukley Jr.. ritstjóri National Review Magazine. kann að verða skipaður næsti sendi- herra Bandarikjanna í Bretlandi. að þvi er breska blaðið Dailv Express hélt fram í dag. Sam- kvæmt frásögn blaðsins mun Reagan mjög umhugað að „úr- valsmaður“ fari með þetta emb- ætti, enda hyggist hann koma á „sérstökum tengslum“ við Lond- on. Blaðið hefur það eftir vinum Bukleys, að hann sé nú að íhuga tilboðið en honum þyki slæmt að þurfa að yfirgefa Bandaríkin. Blaðið telur litlar líkur á því, að Bukley fái hlýlegar móttökur í Bretlandi, eftir að blað hans birti „æsispennandi skáldsögu", um til- búna Bretadrottningu, Karólínu, og ástarsamband hennar við bandarískan leyniþjónustumann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.