Morgunblaðið - 29.01.1981, Side 25

Morgunblaðið - 29.01.1981, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981 25 Upplýsingar frá Hagstofu íslands Margir hafa lokið fleiri en einu réttindaprófi eða starfsað- gangsprófi, t.d. sveinsprófi fyrst og tækniprófi síðar, og þá á að tilgreina hvort tveggja í 6. lið, en aðeins síðari skólann í 5. lið. Þá geta menn einnig lokið starfsrétt- indaprófi síðar en þeir ljúka prófi til aðgangs að sömu störfum, t.d. uppeldisfræðiprófi nokkrum árum eftir að þeir luku B.A.-prófi til kennslu. Þá á að fara eins að. I 7. lið skal svara því, hvort maður hefur lokið stúdentsprófi. Með stúdentsprófum skal telja aðfararpróf Kennaraháskóla á fyrstu árum þess skóla. Stúd- entspróf tekið erlendis skal hér einnig telja, og er þá átt við próf úr framhaldsskóla, sem veita að- gang að háskólanámi. I 8. lið er spurt um nám á árinu 1980. Þarna á bæði að telja skólanám og verklegt nám sam- kvæmt námssamningi við at- vinnurekanda. Þeir, sem eru á námssamningi tilgreina í næstaft- asta hluta 8. liðs þann fjölda mánaða, sem þeir voru á skóla- bekk í námi öðru en verklegu námi utan skóla. Heimilisstörf 9. liður er nýtt atriði í manntali hérlendis. Eins og tekið var fram í upphafi, eru heimilisstörf eitt tímamælinga eða þess háttar. Tímamörkin, er við skal miðað, eru svo víð, að ekki ætti að vefjast fyrir neinum að velja sér viðeig- andi reit í þessum lið. Atvinna í vikunni fyrir manntaliö Þessari spurningu er ætlað að leiða í ljós, hve stór hluti lands- manna það er, sem telst „virkur við atvinnustörf" manntalsvikuna. Það, að spurt er, hvort maður hafi haft tekjur í vikunni (ekki hverjar þær voru) stafar af því, að atvinna er skýrgreind sem sú vinna, sem maður hefur tekjur fyrir. Maður telst „virkur við atvinnustörf", þótt hann sé í orlofi eða fjarver- andi frá vinnu vegna veikinda. Vinnustaður, vinnutími og ferðir til vinnu í manntalsvikunni. Efni 11., 12. og 13. liðs má heita nýtt í manntali hér. Þó eiga 11. og 12. liður sér óbeina samsvörun í atvinnuspurningum manntalanna 1960 og fyrr. í 11. lið skal upplýsa, hvar atvinnustörfin fara fram ná- kvæmlega, t.d. í hvaða sveitarfé- lagi og hvar í því. Með samanburði við dvalarstað kemur fram, milli hvaða staða viðkomandi þarf að þeirra þriggja starfssviða, sem eru undirstaða framfærslu fólks í landinu. Við fyrri manntöl hefur, með réttu eða röngu, ekki þótt vera ástæða til að spyrja um þann hátt þjóðarbúskaparins, sem heimil- isstörf eru. Astæða þessa er vafa- laust sú, að verkaskipting var miklu meiri hér áður hvað snerti atvinnu annars vegar og heimil- isstörf hins vegar. Nú sinnir fólk þessum verksviðum jafnari hönd- um, og er því nauðsynlegra en áður að spyrja sérstaklega um heimilisstörfin. Eins og orðalag spurninganna í 9. lið ber með sér, er það lagt í mat hvers og eins að ákveða, hvaða störf sín, sem hann innir af hendi fyrir heimilið, hann telur heimil- isstörf. Til almenns samræmis er æskilegt að telja eftirtalin atriði til heimilisstarfa: 1. Innkaup á vörum og öðru til heimilishalds. 2. Eldhússtörf og þvottastörf. 3. Þrif húsnæðis, lóðar og heimil- isbíls. 4. Fatagerð o.þ.h. fyrir heimilis- menn. 5. Umönnun barna og annarra, sem hennar þarfnast. Rétt er að vekja athygli á því, að ekki er ætlast til neins konar fara til vinnu. Liðir 11 og 13 hafa aðallega upplýsingagildi fyrir skipulagsviðfangsefni á vegum sveitarfélaga. Ef fyrirtæki eða stofnun hefur bækistöð á einum stað, en viðkom- andi vann fyrir það á öðrum stað, á í 11. lið að tilgreina þann stað, þar sem maður taldist fyrst vera kominn til vinnu, hvort sem það var í bækistöð eða á öðrum vinnustað. 12. lið er ætlað að upplýsa vinnutíma fólks í atvinnu sinni. í síðari hluta 12. liðs er að sjálf- sögðu aðeins beðið um, að sagt sé af eða á, hvort þessi vinnuvika megi kallast venjuleg. Ekki er ætlast til nákvæms samanburðar við meðaltalsvinnuviku eða neitt þess háttar. 13. liður snýr að ferðum til vinnu. Athugið, að ferðatímann á að miða við venjulega leið, þannig að það telst með í ferðatímanum, ef barni er komið í gæslu eða aðrir reglubundnir snúningar gerðir í leiðinni til vinnu. Uppruni framfæris 1980 Efni 14. og 15. liðs lýtur að því, hvaðan menn höfðu framfæri sitt á liðnu ári. Þessar spurningar eru þjóðhagslegs eðlis, og þrískipting framfæris í 14. lið er í samræmi við flokkun í þjóðhagsreikningum. Efni 14. liðs hefur tilheyrt íslensk- um manntölum frá upphafi, en 15. liður er nýtt atriði. Upplýsinga- gildi hans er mikið fyrir þá umræðu, sem nú fer fram í þjóðfélaginu um skipan lífeyris- mála. Athugið að í 14. lið er ekki gerður munur á tekjum, lífeyri o.þ.h. eftir því hvort það er manns sjálfs eða annarra. Ennfremur þarf að gæta að því, að einungis skal setja kross við einn þátt, þann, sem mestar tekjur gaf 1980. Langflestir hafa framfæri sitt af þessum þáttum sameiginlega, i mismunandi hlutföllum, en þarna þarf sem sagt að tilgreina mikil- vægasta þáttinn. I upphafi 15. liðs merkja við „Já“, allir, sem eru í lífeyrissjóði, og allir, sem fá lífeyri úr slikum sjóði, þó þeir séu ekki í honum sjálfir, t.d. ekkjur manna, sem voru í lífeyrissjóði og þær fá lífeyri eftir. Ekki þurfa menn að tilgreina orðrétt heiti lífeyrissjóðs, t.d. má tilgreina stéttarfélag, ef viðkom- andi man ekki heiti lífeyrissjóðs- ins. Aðalatriði er, að þarna komi fram grundvöllur að flokkun eftir tegund lífeyrissjóða, t.d. flokkun í verðtryggða og óverðtryggða líf- eyrissjóði. Atvinna 1980 í 16. lið er fengið fram, hverjir teljast skulu „virkir við atvinnu- störf“ síðastliðið ár. Efni spurn- inganna er óbreytt frá fyrri manntölum, nema hvað síðasti hlutinn, um veikindafjarvistir, er nýr. Um þær er spurt að undirlagi landlæknis, en tilgangur með því er sá, að samanburðargrundvöllur fáist við rannsóknaniðurstöður Hjartaverndar. Sama spurning hefur verið lögð fyrir alla, sem rannsakaðir hafa verið hjá Hjartavernd. Varðandi 2. spurningu í 16. lið skal athuga, að samanlögð tala mánaða í 8. lið og þessum lið getur farið yfir 12. Ennfremur þarf að gæta að því, að kennarar, sem fá 2—4 mánaða sumarleyfi, svara 2. spurningunni með „Já“, hafi þeir verið í kennarastöðu allt árið. Farmenn, fiskimenn og aðrir, sem vinna í skorpum en taka sér frí á milli, svara „Já“, hafi þeir einung- is sleppt túr og túr eða þ.h. Þeir, sem voru í atvinnu allt árið, merkja við „Já“ í öllum mánuðunum í mánaðaspurning- unni, eins þótt þeir hafi verið í sumarfríi allan júlímánuð. Þar sem talað er um daga í síðustu spurningunni, er átt við heildartíma, sem maður hefur verið veikur, þannig að hann hefur forfallast frá vinnu, en ekki virka daga einungis. Þarna verður að sjálfsögðu að styðjast við mat hlutaðeiganda sjálfs á því, hvaða svar muni réttast, og er ekki ætlast til nákvæmrar upprifjunar á veikindaforföllum 1980. Nánari upplýs- ingar um atvinnuna Allir, sem teljast hafa verið „virkir við atvinnustörf“ 1980, þ.e. svarað upphafi 16. liðs játandi, þurfa að tilgreina í 17. lið, og-18. og 19. lið ef við á, hvaða atvinnu þeir stunduðu. Beðið er um svp ítarlegar upp- lýsingar, sem skýrslan ber með sér, til þess að hægt sé að flokka atvinnugrein manna og starfsteg- und nákvæmlega eftir alþjóðleg- um flokkunarreglum, sem hag- stofa Sameinuðu þjóðanna semur, og Hagstofan lagar að íslenskum aðstæðum. Heiti fyrirtækis, starfsheiti o.fl., sem er beðið um, hefur sem sagt ekki sjálfstætt upplýsingagildi, en er grundvöllur þessarar ítarlegu flokkunar. Á eyðublaðinu sjálfu er útskýrt, hvernig svara skal atriðunum „Hjá hverjum vannst þú?“ og „Við hvað vannst þú?“ Til frekari skýringa skal ítrekað, að við síðarnefndu spurningunni þarf að gefa óyggjandi svar, og frekar skal skrifa fleiri orð en færri ef vafasamt getur verið að eðli starfsins sé fullljóst úrvinnslu- fólki. Vinnustað þarf að tilgreina, og ef hann er ekki fastur, t.d. við húsbyggingar eða viðgerðavinnu, er rétt að tilgreina bækistöð ef hún er fyrir hendi, annars verður að láta nægja heiti sveitarfélags, eða stærra svæðis ef svo ber undir. Þetta þarf að athuga varðandi flokkun í atvinnurekendur, ein- yrkja og launþega: Atvinnurek- endur eru hér þeir einir, sem standa fyrir fyrirtæki í eigin nafni og hafa haft aðkeypta vinnu sem svarar minnst 3 mánuðum á árinu. — Bændur (bændahjón) eru einyrkjar nema þeir hafi haft aðkeypta vinnu utanheimilisfólks 16 ára og eldra sem svarar 3 mánuðum eða lengur á árinu, þá eru þeir atvinnurekendur. — Heimilisfólk annað, sem vinnur í landbúnaði, er launþegar. — Þeir fram fullnægjandi mynd af at- vinnu landsmanna yfir árið, þarf að spyrja svona ítarlega. Eins og skýrslan ber með sér, er aðeins spurt um þau tvö störf, sem menn gegndu lengst á árinu sem aðalatvinnu, komi fleira til greina. Það er mánaðafjöldi í starfi, sem ræður, hvort starfið á að tilgreina í 17. lið eða í 18. lið. í 17. lið kemur það starfið, sem hlutaðeigandi stundaði lengur á árinu 1980. Sé um aukaatvinnu að ræða, sem nemur 120 klst. eða meira 1980, skal tilgreina hana í 19. lið, en aðeins skal tilgreina eitt auka- starf, þótt um fleiri geti verið að ræða. Eftirfarandi er til leiðbeiningar um það, hve mikil breyting þarf að verða á störfum manns svo að hann teljist skipta um atvinnu. Maður skiptir um atvinnu þegar hann: 1) Byrjar störf fyrir annan atvinnurekanda en hann vann fyrir áður. 2) Skiptir um starf fyrir sama atvinnurekanda. 3) Flyst milli staðbundinna vinnu- staða (t.d. verslana, banka, verk- stæða), sem eru ekki báðir í sama sveitarfélaginu, þótt atvinnurek- andi sé sá sami og starf óbreytt. Maður skiptir ekki um atvinnu þegar hann: 1) Flyst milli stað- bundinna vinnustaða en gegnir áfram sama starfi fyrir sama atvinnurekanda, ef vinnustaðirnir sem taka að sér sjálfstæð verkefni sem þeir vinna einir að, t.d. smiðir, bókhaldarar o.þ.h., eru einyrkjar, og skiptir ekki máli hvaða form er á greiðslum til þeirra gagnvart skatti (t.d. þótt greiðslur til þeirra séu taldar fram sem laun). — Allir starfs- menn opinberra fyrirtækja, sam- vinnufyrirtækja og hvers konar félaga eru launþegar. Forstjórar hlutafélaga eru þannig launþegar, og skiptir ekki máli þótt hlutafé- lagið sé í raun einkafyrirtæki þeirra. Greint skal á milli þeirra tveggja flokka launþega sem eyðu- blaðið sýnir á eftirfarandi hátt: í neðri flokkinn koma allir, sem fá greidd föst mánaðarlaun, föst vikulaun eða fast tímakaup. Auk þessara launa getur að sjálfsögðu verið um að ræða kaup fyrir yfirvinnu. Fastar yfirborganir teljast til fasts kaups. — í hinn flokkinn koma allir, sem fá greidd laun, sem eru háð afköstum eða mældum árangri, hvort heldur í framleiðslu-, viðgerðar-, sölu-, þjónustu- eða stjórnunarstörfum. Skipt um atvinnu — Aukaatvinna Um atvinnuna er spurt þrisvar, í liðum 17, 18 og 19. Það er vegna þess, að atvinnuspurningarnar taka til alls ársins 1980, og það er algengt, að menn flytjist milli starfa hér á landi. Þá er einnig algengt, að menn sinni fleiri en einu starfi samtímis. Til þess að fá eru báðir í sama sveitarfélagi. 2) Flyst milli óstaðbundinna vinnu- staða (t.d. skipa, útivinnuflokka o.þ.h.) og gegnir sama starfi fyrir sama atvinnurekanda. 3) Fær nýtt starfsheiti í vinnu sinni, sem felur fremur í sér breytingu á launa- flokki en eðlismun á störfum. Mörkin milli þess að skipta um atvinnu og að vera í aukaatvinnu í orlofi frá aðalatvinnu eru þessi: Þeir sem stunda aðra atvinnu í venjulegu sumarleyfi sínu til- greina hana alltaf í 19. lið, eins þótt sumarleyfið sé lengra en almennt gerist. Þetta á þannig einnig við um t.d. kennara og þingmenn. Þeir, sem taka sér frí frá venjulegu starfi sínu til þess að stunda annað starf styttri tíma en aðalstarfið, og þeir, sem stunda aðra atvinnu í hléi sem verður á aðalatvinnu, tilgreina það einnig í 19. lið. Þetta á t.d. við bændur sem vinna í sláturhúsi um haustið, þá sem bregða sér úr vinnu til.þess að fara eina veiðiferð á togara, þá sem taka að sér tímabundin verk- efni o.s.frv. Þeir sem skipta reglulega um atvinnu eftir árstíðum, stunda t.d. sjó á vetrar- og vorvertíð en eru í byggingarvinnu yfir sumarið og fram á haustið, þeir segjast hins vegaf" skipta um atvinnu, í þessu tilviki tvisvar (byrjuð sjó- mennska, byrjuð byggingarvinna), og tilgreina í 18. lið það starfið, sem þeir stunduðu skemur á árinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.