Morgunblaðið - 29.01.1981, Síða 32

Morgunblaðið - 29.01.1981, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANUAR 1981 HÖGNI HREKKVÍSI ÉK sé við nánari athugun. að það var rétt sem mér sýndist, hér er eitthvað óvenjuleKt á ferðinni. Skýr svör óskast frá hagstofustióra „Skattjfreiðandi“ skrifar: nKæri Velvakandi. Það umræðuefni sem hæst ber nú um stundir er könnun Hag- stofu íslands í sambandi við a) manntal og b) einkahagi einstakl- ings. Manntalsspurningunum finnst öllum sjálfsagt að svara, en mönnum svellur reiði í brjósti af því, að þessu tvennu er steypt saman í eina og sömu skýrsluna undir nafni einstaklings (og nafnnúmeri) og kallað manntal. Hafa margir haft við orð að svara engu eða svara út úr að viðlögðum stráksskap sínum. Verða bara að treysta Hagstofunni Samkvæmt viðtali við fulltrúa Hagstofustjóra í Morgunpósti út- varpsins er svörum við spurning- um um einkahagi ætlað að gefa mynd af þjóðlífi á íslandi vikuna 25.—31. janúar 1981, væntanlega til samanburðar við önnur tíma- bil. Mun ætlunin að veita „viður- kenndum rannsóknaraðilum" að- gang að skýrslunum eftir að(!) nafn og nafnnúmer einstaklings hefur verið numið brott. Uggandi mönnum er sagt að þeir „verði bara að treysta Hagstofunni". Eftirsótt að koma spurningum að Búist er við að 4 ár taki að vinna úr upplýsingunum sem reyndar er furðulangur tími á tölvuöld og við aðeins um 250 þúsund manns. Samkvæmt upplýsingum fyrr- nefnds fulltrúa hagstofustjóra stendur Hagstofa Islands ekki ein að spurningagerð, heldur leikur hinum og þessum „rannsóknarað- ilum“ (viðurkenndum?) líka for- vitni á einu og öðru varðandi einkahagi manna. Eftirsótt er að koma spurningum að á eyðublað- inu, en sumum þeirra var þó hafnað (Hver hafnaði þeim?) á þeirri forsendu að þær „ættu ekkert erindi“ inn á manntal eða að „ekki var pláss fyrir þær á blaðinu". (Fróðlegt hefði verið að sjá dæmi um slíkar spurningar.) Búast má við að könn- unin missi marks LÖg nr. 76/1980, er varða þetta manntal, voru samþykkt á Alþingi 19. desember sl. Kveða þau á um skyldu manna til að „láta í té upplýsingar er skýrslueyðublöð segja til um“. Líklega hefur þetta skylduákvæði í lögunum stuðlað að svona miklum áhuga rannsókn- araðila að koma spurningum sín- um að. Vegna andúðar og reiði fólks yfir spurningum könnunarinnar má búast við að hún missi marks og almannafé verði þar með á glæ kastað. Sem skattborgari bið ég þig, Velvakandi góður, að leita eftir skýrum svörum frá Hag- stofustjóra við eftirfarandi spurn- ingum mínum og birta þau hér í dálkum þínum fyrir nk. sunnudag: 1) Er hagstofustjóra annt um að könnun þessi beri sem mestan árangur? 2) Hvers vegna var almenningur ekki undirbúinn fyrr og betur með Svona eiga sýslu- menn ekki að vera Sv. Þ. Skrifar: „Velvakandi. Vorið 1932 gekk ungur togarasjó- maður í raðir félaga sinna. Hann var þá togaraháseti á einum Reykjavíkur-togaranna. Honum var afhent félagsskírteini, sem hann hefur haldið upp á æ síðan. Það er æði langur tími, hartnær 50 ár. Sjómannsferill þessa sjó-. manns verður ekki rakinn hér að neinu ráði, enda ekki tilgangurinn sá. En víst er að þar sem hann var í skiprúmi þótti vel skipað. Árum saman var hann t.d. á sama togar- anum, Belgaum, með Aðalsteini Pálssyni skipstjóra. í blíðu og stríðu í þess orðs fyllstu merkingu var hann togarasjómaður. Hann sigldi öll stríðsárin. Eftir rúmlega 20 ára samfellda sjómennsku á togurum og lengst af á Belgaum ákvað Alfreð að hætta á sjónum árið 1953. — Hann tók sjópokann og fór alfarinn í land. Þrátt fyrir þá breytingu, sem þá varð á högum hans vildi hann ekki fara úr Sjómannafélagi Reykjavík- ur. Hann hefur alla tíð, unz nú, talað um það og talið það „sitt félag". — Hann greiddi því áfram sín félagsgjöld. Þessi maður heitir Alfreð Jústs- son og er til heimilis að Seftjörn á Seltjarnarnesi. Okkar leiðir lágu saman fyrir mörgum árum. í alla staði særandi heimsókn Sumarið 1977 ákvað Alfreð að fara til fundar við þá í Sjómannafé- lagi Reykjavíkur til þess að fá þar endurnýjað félagsskírteini sitt og fleira. Heimsókn hans í skrifstofu Sjómannafélags Reykjavíkur varð engin skemmtiheimsókn heldur var þessi för í alla staði særandi fyrir hann, að ekki sé dýpra tekið í árinni. — Nei, þú ert ekki í Sjómannafélagi Reykjavíkur, var svarið sem hann fékk, auk óljósra skýringa í véfréttar-stíl. — Hann svaraði því til að hann hefði ekki sagt sig úr félaginu og sér vitandi hefði sér ekki verið vikið úr því. — Og kvaddi við svo búið. Ákváöum að taka málið upp aftur Þannig var þá komið félagsaðild Alfreðs í „eigin félagi". Þó hafði sjálfur Sigurjón Ólafsson, hinn gamli frumherji sjómanna, með eigin hendi staðfest aðild Alfreðs að félaginu í „Skilabók no 2270“. Það gerðist ekki fleira í bráð, ekki fyrr en nú í haust er leið. Þá ákváðum við að taka málið upp aftur við þá í Sjómannafélaginu. — Það var í sjálfu sér ekki flókið mál og hafði ekki heldur verið það þrem árum áður. Alfreð hefur ætíð verið mjög passasamur maður með það sem hann hefur handa á milli. — Prívat og persónulega Með ljósrit af félagsgjaldakvitt- unum hans tók ég að mér að ganga á fund þeirra sjómannafélags- manna og freista þess enn á ný að Alfreð fengi leiðréttingu sinna mála. — Ástæðulaust er að hafa um þann fund mörg orð. Niðurstaðan af honum varð í stuttu máli þessi: Sjómannafélags- formaðurinn kvað hér hafa átt sér stað leið mistök, sem skrifstofunni einni væri um að kenna. Mistök sem hann sagði að ekkert mál væri að leiðrétta. — Kvaðst formaðurinn sjálfur mundu ganga fram fyrir skjöldu í því að kippa þessu í liðinn. Myndi hann prívat og persónulega skrifa Alfreð Jústssyni afsökunar- bréf. Svona eiga sýslumenn að vera Ég fór vestur á Nes til þess að segja Alfreð allt af létta. Báðir vorum við harla ánægðir með þau málalok, sem við töldum vera á næsta leiti. — Já, svona eiga sýslumenn að vera, sagði Alfreð, er hann lét í ljós skoðun sína á hinum jákvæðu viðbrögðum formannsins. — Þú mátt augljóslega búast við því að pósturinn ykkar hér á Nesinu komi með bréfið til þín frá Sjó- mannafélaginu alveg næstu daga, sagði ég, er ég kvaddi á Seftjörn þetta kvöld. Enn er ekkert bréí Haustið leið. — Aðventan gekk í garð. Desembermánuður leið og árið 1980 kvaddi. Fyrir nær mánuði heilsaði nýtt ár og janúar er brátt á enda. Enn hefur pósturinn á Nesinu ekki komið með neitt bréf til Alfreðs frá Sjómannafélagi Reykja- víkur. Ekki er með þessum línum verið að rukka um tilskrif frá Sjómanna- félaginu. — Ur því sem komið er myndi slíkt bréf aðeins vekja hlátur á heimili Alfreðs og þeirra sem til máls þessa þekkja. Svona lítilsvirð- ing, sem hinum gamla togarasjó- manni hefur verið sýnd í „stéttarfé- lagi hans“ skulum við vona að sé einsdæmi. — En þó þarf ekki svo að vera. Atvikið getur brugðið Ijósi yfir stöðu einstaklingsins í hinum fjölmennari stéttarfélögum á Ís- landi í dag og afstöðu smákónganna þar til hins óbreytta liðsmanns. Alfreð, sem hafði sagt við mig kvöldið góða: Svona eiga sýslumenn að vera, hefur því miður ekki haft rétt fyrir sér. í Ijós hefur komið svo ekki verður um villst að einmitt svona eiga sýslumenn ekki að vera.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.