Morgunblaðið - 01.02.1981, Síða 1
64 SIÐUR
26. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 1. FEBRUAR 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Gonzalez vill
mynda stjórn
Madrid. 31. janúar. — AP.
SPÆNSKIR sósíalistar kváðust í dag reiðubúnir til að taka að sér
stjórnarmyndun en talið er liklegt, að Juan Carlos konungur reyni
fyrst til þrautar nýja stjórnarmyndun Miðflokkasambandsins. í
skoðanakönnun, sem Madridblaðið Diario gekkst fyrir. reyndist
Felipe Gonzalez, leiðtogi sósialista, hafa mest fylgi sem nýr
forsætisráðherra eða 30,2%.
Miðflokkasambandið tilnefndi í
gær, föstudag, forsætisráðherra-
efni sitt, Leopoldo Calvo Sotelo, en
konungur mun ekki leggja blessun
sína yfir hann fyrr en hann hefur
ráðfært sig við forystumenn ann-
arra flokka.
Flestum ber saman um, að
kristilegir demókratar, sem ásamt
öðrum standa að Miðflokkasam-
bandinu, séu mjög óánægðir með
skipun Sotelos og að þeir muni
ekki ljá honum fylgi sitt á þingi.
Sósíalistaflokkurinn undir for-
ystu Gonzalez hefur 120 sæti á
spænska þinginu og þyrfti á að
halda stuðningi 23 kommúnista og
33 þingmanna annarra til að geta
stýrt Spánverjum fram að þing-
kosningum 1983.
Franskar orr-
ustuþotur til íraka
liarnaca, 31. janúar. — AP.
STRANGUR öryggisvörð-
ur var viðhafður á flug-
Reyna að
bæla klámið
London, 31. janúar. AP.
FRUMVARP að lögum er mið-
ar að því að hefta klám af
ýmsu tagi var i gær afgreitt til
nefndar eftir tvær umræður i
neðri deild brezka þingsins. og
búizt er við að frumvarpið
komi til þriðju umræðu og
hljóti afgreiðslu lávarðadeild-
arinnar áður en til sumarleyfa
þingmanna kemur. Frumvarp-
ið er hið sjötta i röðinni á átta
árum.
„Menn þverfóta ekki fyrir
saurlífisblöðum og siölausum
veggspjöldum í brezkum bæj-
um,“ sagði einn flutnings-
manna frumvarpsins. Innan-
ríkisráðherra sagði við umræð-
ur í þinginu að aukinnar
gremju gætti meðal almenn-
ings vegna vaxandi flóðs af
siðlausum bókum, blöðum,
tímaritum og hvers kyns
klámsýningum á almannafæri.
„Það er ömurlegt og lýsir
ástandinu vel,“ sagði Clement
Freud, þingmaður Frjálslynda
flokksins, „að taki maður son-
arson sinn út í blaðsöluturn
finnur hann varla sælgætið
fyrir sorpritum."
vellinum í Larnaca á Kýp-
ur í dag er Mirage-orr-
ustuþotur höfðu þar við-
komu á leið sinni frá
Frakklandi til íraks.
Skipt var um flugmenn á
flugvellinum og eldsneyti
tekið til áframhaldandi
ferðar. Franskir flugmenn
flugu þotunum til Kýpur,
en þar tóku við þeim írask-
ir flugmenn.
Irakar pöntuðu þoturnar hjá
Frökkum í júlí 1977 og desember
1979, og var þá miðað við að þær
yrðu afhentar í febrúar 1981.
Búizt er við að þoturnar, sem geta
flogið með tvöföldum hraða
hljóðsins, verði sendar beint í
orrustur í stríði Iraka og írana.
Fjórar þotur komu til Kýpur í
morgun, og búizt var við sex til
viðbótar síðdegis.
Öryggisgæzlan á Larnaca-flug-
velli var svo ströng, að vandlega
var leitað á öllum er komu til
flugvallarins. Vopnaður vörður
var við hvert fótmál, bæði á velli
niðri og upp um allar byggingar.
Filmur og ljósmyndatæki frétta-
manna voru gerð upptæk, og fengu
þeir ekki þá þjónustu á flugvellin-
um sem fréttamönnum er venju-
lega veitt. Af hálfu yfirvalda á
Kýpur var forðast af öllu afli að
láta nokkuð uppi um ferjuflugið,
og þóttust talsmenn stjórnarinnar
ekkert vita um málið.
Sólargannurinn lengist nú um eitt hænuíet á hverjum
degl en allir dagar eiga þó kvpld um síöir. Þessi mynd.
sem tekin er af Seltjarnarnesi, sýnir síóustu geisla
hnígandi sólar yfir Rosmhvalanesi.
Ljósm.- Ól. K. Mhií.
Carter afstýrði
innrás í Póllaiid
Gení, Varsjá, PraK, 31. janúar. — AP.
JIMMY CARTER fyrrum Bandaríkjaforseti afstýrði
innrás Sovétríkjanna í Pólland í byrjun desember
siðastliðins, að því er blaðið La Suisse i Genf skýrði frá
í dag. Segir blaðið, að Zbigniew Brzezinski ráðgjafi
Carters í öryggismálum, hafi skýrt efnahags- og
fjármálasérfræðingum frá þessu á fundi í Davos í Sviss
í vikunni.
Brzezinski
mönnum, að
tjáði fundar-
Bandaríkjastjórn
Owen fer ekki aftur
fram fyrir flokkinn
London,
31. janúar. AP.
DAVID Owen, fyrrum utanríkis-
ráðherra og einn helsti talsmað-
ur klofningsmanna innan breska
Verkamannaflokksins, lýsti yfir
þvi i gær, að hann byði sig ekki
fram fyrir fiokkinn i næstu
þingkosningum. Hann sagðist þó
ekki ætla að segja sig úr flokkn-
um „að svo komnu máli“ og
kvaðst mundu sitja á þingi fyrir
kjördæmi sitt fram að kosning-
um, sem verða 1984.
I yfirlýsingu sinni sagðist Owen
ekki „sjá fram á, að flokks-
mönnum tækist að koma sér
saman um stefnu fram að næstu
kosningum, sem til heilla væri
fyrir land og þjóð“. Litið er á
þessa ákvörðun Owens sem enn
eitt skrefið í átt til algjörs klofn-
ings í flokknum þrátt fyrir að
leiðtogi hans, Michael Foot, leggi
nótt við dag í örvæntingarfullum
tilraunum til að halda honum
saman.
David Owen er einn af stofnend-
um jafnaðarmannaráðsins, sem
komið var á fót í kjölfar auka-
þings Verkamannaflokksins um
síðustu helgi, en þar varð niður-
staðan sú, að verkalýðsfélögin
skyldu framvegis skipa mönnum
til sætis innan flokksins.
hefði komist á snoðir um að
Sovétmenn ætluðu að senda fjöl-
mennt herlið og hergögn loftleiðis
til Póllands aðfaranótt áttunda
desember. Hefðu njósnamyndir
m.a. leitt þetta í ljós.
Hann sagði að Carter hefði haft
sjálfur samband við Leonid Brezh-
nev leiðtoga Sovétríkjanna og
skýrt honum frá vitneskjunni um
fyrirhugaða innrás. Sagði Carter
Brezhnev að innrás í Pólland muni
hafa enn verri afleiðingar í för
með sér en innrásin í Afganistan,
og skýrði honum frá hugsanlegum
viðbrögðum af hálfu Bandaríkja-
manna.
Brezinski sagði, að Carter hefði
skýrt bandamönnum Bandaríkj-
anna og Arabaríkjum frá hinni
fyrirhuguðu innrás. Lét Brzez-
inski þau orð falla á fundinum, að
vestrænar þjóðir væru staðráðnar
í að koma í veg fyrir sovézka
innrás í Pólland, en enn stafaði
hætta af aðgerðum af því tagi.
í Varsjá var í dag haft eftir
talsmanni Samstöðu, að sam-
komulagið sem gert var í gær-
kvöldi um styttingu vinnuvikunn-
ar, væri fjarri því að vera full-
nægjandi. Ummæli hans þykja
benda til þess, að ágreiningur
Samstöðu og stjórnvalda sé ekki
að fullu leystur. Talsmaður gaf
ennfremur í skyn í viðtali við
útvarpið, að ekki yrði aflýst
klukkustundar allsherjarverkfalli
sem Samstaða hefur boðað á
þriðjudag.