Morgunblaðið - 01.02.1981, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.02.1981, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1981 Can Mnrdoeh li?e down fais Page i imaee? guardian Cotni de*' wm ifil Murdoch bid rests msj on Times “íf&'/ un,ons Blaðakóngurinn Rupert Murduch hefur iðulega sjálfur verið forsíðuefni blaðanna. Væntanlegur eigandi THE TIMES: Rupert Murdoch Á blöð í þremur heimsálfum Eins og fram hefur komið í fréttum undanfarið, þá hefur ástralski blaðakóngurinn Rupert Murdoch gert tilboð í Times-blaðaútgáfuna — The Times og The Sunday Times ásamt fylgiritum. Tilboð Murdochs er skilyrt. Hann gerir þá kröfu, að innan þriggja vikna náist samkomulag við stéttarfélög starfsmanna blaðsins um tryggingar fyrir því, að útgáfan verði ekki stöðvuð af þeim. Gert verði samkomulag um offsetvinnslu blaðsins og að hagræðingu verði beitt í ríkari mæli við vinnslu en nú er gert. Þá gerir Murdoch kröfu um að samkomulag náist um hagræðingu í öllum deildum. Thompson lávarður hefur á síð- ustu misserum tapað stórfúlgum á útgáfu Times-blaðanna og um ellefu mánaða skeið komu biöðin alls ekkert út. Um tíma virtist sem þetta virtasta blað heims, The Times, legði upp laupana, en á síðustu stundu náðist samkomu- lag. En Thompson lávarður treyst- ir sér ekki lengur til að gefa út blaðið og því hefur það verið til sölu undanfarið. Rupert Murdoch — umdeOdur maður Rupert Murdoch er nú 49 ára gamall og hann er ákaflega um- deildur maður, og á sér marga óvildarmenn. Margir halda því fram, að hann verði valdamesti maður Bretlandseyja komist hann yfr Times Newspapers. Kaup hans á the Times, The Sunday Times og fylgiblöðum tryggi honum ein- staka valdaaðstöðu. Þá ekki síst vegna þess, að hann á fyrir tvö útbreidd blöð á Bretlandseyjum — æsifregnablöðin The Sun og News of the World. Nokkrir brezkir þingmenn, og raunar fjölmargir aðrir, kröfðust þess, að sala blaðanna kæmi til athugunar hjá nefnd, sem hefur það verkefni með höndum að standa vörð gegn einokun. En' brezka ríkisstjórnin gaf fyrir sitt leyti leyfi fyrir sölunni og takist Murdoch að semja við starfsmenn þá er ljóst að hann verður næsti eigandi The Times. Brezki blaðamaðurinn Laurence Marks skrifaði fyrir stuttu í The Observer, að þó skoðanir væru skiptar um yfirtöku Murdochs á The Times, þá væri ljóst, að breytinga væri þörf í Fleet Street — ekki aðeins hjá The Times, heldur öllum blöðunum í þessari frægu blaðagötu. Um langt skeið hefur mikill órói verið meðal starfsmanna blaðanna í Fleet Street og áríðandi að friður kom- ist á. Ljóst sé, að mikillar hagræð- ingar sé þörf, prenttækni sú sem blöðin velflest í Fleet Street séu unnin eftir, sé úrelt. Thompson lávarður varð fyrir stórfelldu tjóni vegna verkfalla prentara við The Times. Útgáfa þessa virta blaðs stöðvaðist í heila ellefu mánuði vegna deilna um þær breytingar, sem útgáfustjórn- in taldi þörf á að gera: það er, að taka í notkun offsettæknina. Á þessum vanda verður Rupert Mur- doch að finna lausn og Laurence Marks telur, að hann sé einmitt maðurinn til að gera það. Hann hefur haft gott samstarf við verkalýðsfélögin, og margir sjá í Rupert Murdoch manninn til að leysa aðsteðjandi vanda. Lofar að virda sjálf- stædi ritstjórnar — en gerir hann það? Menn greinir í sjálfu sér ekki á um atorku og hæfni Murdochs til að stjórna. Það sem margir óttast er íhlutun í málefni ritstjórnar: að ritstjórnir á The Times og The Sunday Times verði of háðar útgáfustjórninni. Á það hefur verið bent, að ef takast eigi að bjarga Fleet Street út úr aðsteðj- andi vanda, þá .verði það að fylgja, að ritstjórnir blaðanna haldi The Times er hluti af brezku þjóðfélagi og margir segja, að Rupert Murdoch verði áhrifamesti maður Bretiandseyja ef og þegar blaðið verður eign hans. sjálfstæði sínu. Að öðrum kosti sé allt unnið fyrir gíg, því sjálfstæði ritstjórna er ein af höfuðforsend- um fyrir virku lýðræði: trygging fyrir hlutlægri og ábyrgri frétta- mennsku. Þarna stendur hnífurinn í kúnni. Þess vegna hafa nokkrir þingmenn og ýmsir málsmetandi menn á Bretlandseyjum krafist rannsóknar á því, hvort ýfirtaka Murdochs á The Times brjóti í bága við einokun. Hann hefur oftsinnis sýnt tilburði til að hafa áhrif á ritstjórn: virða ekki sjálf- stæði hennar. Hann er sjálfur ágætur blaðamaður og oftsinnis hefur hann sést á göngum rit- stjórnar The New York Post, sem er eitt blaðanna, sem hann á í Bandaríkjunum, og endurskrifað fréttir og fyrirsagnir. Á það hefur verið bent að hann hefur notað blöð sín til hagsbóta fyrir málstað sem hann styður og þá á ósvífinn hátt. Sagt er, að hann hafi oftsinnis gert sér það að leik, að fella stjórnmálamenn og eins líka: að koma þeim upp á stjörnuhimin stjórnmálanna. Margar sögur hafa gengið en hér verða tvær aðeins nefndar. Murdoch hefur verið ásakaður um

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.