Morgunblaðið - 01.02.1981, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.02.1981, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1981 23 að hagræða fréttum og fyrir skömmu var því haldið fram í áströlskum sjónvarpsþætti, og fyrirsagnir voru birtar sem þóttu staðfesta það, að birtar hefðu verið fréttir í einu blaða Murdochs í því skyni að koma höggi á flugfélagið Trans Australia Air- lines. Það flugfélag er helsti kcppinautur Ansett Airlines og eigandi þess flugfélags er Rupert Murdoch. Annað dæmi um vinnubrögð Rupert Murdochs kemur fram í eftirfarandi sögu, sem birtist í ævisögu ástralsks námueiganda, Lang Hancock. Murdoch var að leita hófanna um kaup á námum í Pilbara-héraði í Ástralíu, en ein- hverjir örðugleikar voru að fá samþykki stjórnvalda. Eftirfar- andi samtal átti að hafa farið þeim í milli. Hancock: Þetta gengur ekki. Stjórnvöld heimila okkur aldrei og semja ekki við okkur. Murdoch: Fái ég stjórnmála- mann til að ganga til samninga við okkur, fellst þú þá á að selja mér hluta eignanna? Hancock: Já, að sjálfsögðu. Ástralíu. Ungur fór Rupert til náms í Bretlandi en honum hugn- aðist það lítt þó prófum lyki hann. Hann stundaði nám í Oxford og einkunnir hans voru ekkert til að hrópa húrra fyrir. Frá Oxford lá leið hans í blaðamennsku. Hann starfaði við Daily Express og einnig News Chronicle. Hann dvaldi þó ekki lengi í Englandi og snéri heim til Ástralíu. Faðir hans lést 1952 og hann átti 57% hluta- fjár í Adelaide News — blað, sem átti minnkandi vinsældum að fagna. Þann hluta erfði Rupert. Rupert Murdoch reyndist harð- duglegur stjórnandi og ákaflega útsjónarsamur. Áhrif hans jukust og á skömmum tíma byggði hann upp stórveldi í áströlskum fjöl- miðlaheimi. Hann er eigandi fyrirtækisins News Corporation, sem gefur út dagblöð. Hann er eigandi sjónvarpsstöðvar og auk þess á hann ítök í iðnaði og verzlun. Svo fór að Ástralía var þessum harðduglega stjórnanda of lítil. Upp úr 1968 gerðist Rupert Murdoch umsvifamikill í brezkri blaðaútgáfu. Sir William Carr bað hann koma til Lundúna og aðstoða Leiðin lá til Bandaríkjanna Svo fór, að enn leitaði Murdoch á nýjar slóðir — 1973 keypti hann blöð í San Antonio í Texas. Hann gerbreytti efnisvali blaðanna — breytti þeim í æsifregnablöð og nakið kvenfólk varð snar þáttur í þeim. Hins vegar tókst ekki að auka upplagið sem skyldi og Mur- doch greip til þess ráðs að lækka æsifregnatóninn og dregið var úr myndbirtingum af beru kvenfólki. Þremur árum síðar lá leiðin til New York og eins og áður festi Murdoch kaup á blöðum, sem áttu í vök að verjast og hann fékk því „ódýrt". The New York Post átti þá í örðugleikum og Murdoch festi kaup á því. Einnig keypti hann New York Magazine, New West Magazine og The Village Voice. Hann hefur unnið hörðum hönd- um við að auka upplag New York Post og heldur því fram, að upplag blaðsins hafi hækkað úr 500 þús- und eintaka á dag í 725 þúsund. Þrátt fyrir upplagsaukningu, — sem raunar ýmsir draga í efa að sé fyrir hendi, þá hefur ekki tekist að laða að auglýsendur. Sagan segir að Murdoch tapi 10 milljónum Rupert Murdoch með William Rees Mogg, ritstjóra The Times þegar tilkynnt var um samkomulag um kaup á The Times. V Það er Hancock sem skýrir svo frá samtalinu og hann hélt áfram. Rupert fór og ég fór heim. Um tíuleytið um kvöldið var bankað upp á hjá mér og Rupert var mættur. „Þú ert þá heima," sagði Rupert. „Já,“ svaraði ég. „Þetta tókst," sagði Rupert og ég spurði forviða: „Hvernig tókst þér það?“ Hann svaraði: „Ég sagði honum (stjórnmálamanninum) að hann ætti um tvo kosti að velja. Vera forsíðuefni blaðanna eða honum yrði troðið í skítinn. Hvort vel- urðu?“ Hvort sem sannleikskorn er í þessum sögusögnum, þá má úr þeim lesa, að maðurinn Rupert Murdoch er ákaflega umdeildur og hann á sér marga óvildarmenn. En svo fer einatt um menn, sem hafa skotist með örskotshraði upp á stjörnuhimin — byggt upp viðskiptaleg stórveldi svo jafnvel nú er honum lýst sem áhrifamesta manni Bretlandseyja. 1952 erfdi Murdoch hlut í blaði í Ástralíu Afi Murdochs, skoskur prestur, flutti til Ástralíu fyrir um öld síðan. Faðir hans, sir Keith Mur- doch, var virtur stríðsfréttaritari í fyrri heimsstyrjöldinni við blaðið Melbourne Herald, stærsta blað sig við að verjast því, að Robert nokkur Maxwell, yfirtæki blað hans, — News of the World. Murdoch fór til Lundúna og keypti þriðjung hlutafjár og bætti síðan við með því að kaupa á verðbréfa- mörkuðum. Á skömmum tíma náði hann meirihlutaítökum og tók við stöðu Carrs, sem stjórnar- formaður blaðsins. Árið 1969 keypti hann The Sun. Útgáfa blaðsins átti þá í vök að verjast og upplag blaðsins var komið niður í 900 þúsund eintök, og sífellt fækkaði kaupendum. Murdoch gjörbreytti útliti blaðs- ins, — æsifregnir urðu snar þáttur í efni blaðsins og nú er svo komið, að upplag the Sun er 3,8 milljónir eintaka. Hins vegar hefur upplag News of the World sífellt farið minnkandi, hrapað úr 6,2 milljón- um eintaka árið 1970 í 4,5 milljón- ir. Aðeins ári síðar eignaðist Mur- doch 7% hlutafjár í London Week- end Television. Þá átti sjón- varpsstöðin í nokkrum erfiðleik- um. Ekki leið á löngu þar til Murdoch var orðinn stjórnarfor- maður og gerði víðtækar breyt- ingar — rak m.a. framkvæmda- stjórann. Meðstjórnendur voru ánægðir og hagur fyrirtækisins batnaði en andstæðingar hans neyddu hann til að láta af for- mennsku vegna ítaka í blaðaheim- inum. dollara á ári á útgáfu blaðsins en ætli engu að síður að halda ótrauður áfram útgáfunni. I New York er hann litinn hornauga af öðrum útgefendum og þá vegna atviks, sem átti sér stað í kjaradeilu 1978. Hann var þá formaður samninganefndar útgef- enda og þrátt fyrir það, þá gekk hann að tilboði prentara í and- stöðu við aðra útgefendur. Hann gat því gefið út eigið blað á meðan New York Times og Daily News komu ekki út. Nú er, ef að líkum lætur, Murdoch að fara út í útgáfu sem er mjög frábrugðin þeim, sem hann hefur vanist. Hann verður eigandi virtasta dagblaðs í heimi og ábyrgð hans er mikil. Útgáfa The Times er gjörólík þeirri á, til að mynda, The Sun. Æsifregnir hafa verið hans „stíll". Hann hefur heitið því, að virða sjálfstæði ritstjórna The Times og fylgiblaða þess. Fjölmargir á Bretlandseyjum líta svo á, að hann muni ekki gera það — óttast að The Times verði ekki hið sama undir stjórn Murdochs. Þess vegna hafa viðbrögðin við kaupum Mur- dochs á þessu virta blaði verið jafn harkaleg og raun ber vitni. Hvað verður mum framtíðin ein skera úr um, en ljóst er, að til að tryRRja útkomu dagbiaða Times Newspapers, þá þarf að leita nýrra leiða. RFNAUI.T Örfáum bílum óráöstafaö Nú er einstakt tækifæri til að gera góð kaup. Höfum örfáa Renault 14, Renault 18 og Renault 20 árg.1980 til afhendingar strax. Nú á tímum síhækkandi bensínsverðs er kostur að eiga Renault bifreið, sem er þekkt fyrir sparneytni. Leitið nánari upplýsinga. Renault 14tl verð kr: 80.000 Renault 18n. verð kr: 81.500 Renault 20tl verð kr: 98.000 KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI B6*33 Staldraðu við! Þessa glæsilegu stereosamstæöu frá tfo&híha geturðu veitt þér, því veröiö er einstakt — kr. 3.955.- Vegna hagstæöra samninga viö Toshiba, Japan og engra milliliða getum' við boöiö þetta afbragös sett á veröi sem vekur athygli. Fyrir aðeins kr. 391.800., nýkr. 3.918 færöu þetta allt: * 11wx11w útgangtkraftur. * 3 bylgjur, FM-atarao. * Mögulaikar á tónblöndun (Mic Mixing). (Skemmtilegt fyrir þá sam »fa aöng). * Kassettan sett í tsakið aö framan. * Vökvadempað kassettulok. * Finstilling á hraöa piötuspilarans. * Reimdrifinn diskur. * Slekkur á sér tjálfur. * Sór tónstillir fyrir batsa og hátóna. * 2 stórir hátalarar. * Ljós í tkala. * Fallegur litur á taski og hátölurum. sterosam- geröir og * Sjáltvirk upptaka. * Geymsla fyrir kassettur. Líttu viö og við sýnum þér úrval stæöna á veröi við allra hæfi. Nær 10 ein þeirra hentar þér örugglega. einar farestveit 4, co hf. Greiðsluskilmálar. BERGSTADASTRÆTI I0A - SlMI l*»*S Ábyrg þjónusta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.