Morgunblaðið - 01.02.1981, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 01.02.1981, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1981 29 Hólmfríður Jóns- dóttir — Kveðjuorð Þann 4. okt. sl. andaðist á sólvangi í Hafnarfirði frú Hólm- fríður Jónsdóttir frá Sperðli í Vestur-Landeyjum. Hún var fædd að Króktúni í Hvolhrepp, 26. janúar 1889. Foreldrar hennar voru hjónin Helga Runólfsdóttir frá Bergvaði og Jón Jónsson frá Króktúni. Hún giftist Einari Ein- arssyni bónda frá Vestri-Tungu í Vestur Landeyjum, en hann lést áirð 1968. Fyrstu búskaparár þeirra voru í Vestri-Tungu, síðan hófu þau búskap að Sperðli í sömu sveit. Þeim var fjögurra barna auðið, Kjartan trésmíðameistari á Hvolsvelli giftist Katrínu Aðal- björnsdóttur, en hann lést árið 1961. Helgi múrarameistari giftur Guðrúnu Aðalbjörnsdóttur, búsett á Hvolsvelli. Jón sem gerðist bóndi á búi foreldra sinna Sperðli, var giftur Helgu Magnúsdóttur. Yngst barna þeirra er Anna Elín sem er gift Sigurði Haukdal flug- stjóra, búsett í Garðabæ. Þegar ég nú sest niður og ætla að minnast föðurömmu minnar og nöfnu, sem orðið hefði 92. ára þann 26. janúar, er margs að minnast, því við áttum margar samverustundir saman, ég leit ætíð upp til hennar, mér fannst hún alltaf vera kát og falleg kona, sem hún og var. Lét hún sér ekki allt fyrir brjósti brenna, gekk til verka bæði úti og inni eins og tíðkaðist til sveita áður fyrr. Hún átti því láni að fagna að halda góðri heilsu til elliáranna. Ég gleymi ekki þeim stundum er ég dvaldi í sveitinni hjá ömmu, þegar hún bjó á Sperðli og sat ýmist með rokkinn sinn eða prjónana og útbjó á okkur barnabörn sín sokka og vettlinga, en barnabörnin eru níu samtals. Söng hún þá fyrir mig margar vísur og þulur, en það var hennar yndi, því hún var mjög söngelsk kona og hafði háa og skæra rödd og ætíð var glatt á hjalla þar sem hún var í hópi. Og ekki hafði hún síður gaman af að dansa. Það hafa eldri menn sagt mér að alltaf hafi hún verið fyrst út á góifið í dansinn í gamla daga. Hún var fróð kona og hafði gott minni, en hennar skólaganga var í skóla lífsins. Sérstaklega var hún ættfróð og hafði ég gaman af að láta hana rekja mér ætt okkar, einnig var það viðkvæðið hjá mér ef mig langaði að vita um eitt- hvað, þá var að spyrja ömmu um það. Mikill fjársjóður af fróðleik hvarf með þessari góðu konu. Það var oft gestkvæmt á Sperðli hjá ömmu og afa, og mörg voru börnin sem dvöldu hjá þeim í sveitinni á sumrin, sem ég veit að minnast þeirra með hlýju, því amma annaðist þau eins og þau væru öll hennar barnabörn. Meðan hún lifði eignaðist hún 13 langömmubörn, og voru þau miklir sólargeislar í lífi hennar, hún fylgdist ætíð vel með fram- gangi þeirra. Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að fá ömmu öðru hvoru í heimsókn á mitt heimili, eftir að ég hóf búskap, sérstaklega þótti sonum mínum ánægjulegt að fá ömmu til sín, því hún söng fyrir þá og sagði þeim sögur um leið og hún prjónaði hlýja sokka og vettlinga á þá alla. Sama var með öll hin langömmu- börnin þau áttu sínar stundir rrweð henni og sakna hennar eins og allir hinir sem henni kynntust. Hennar síðasta ferð austur yfir fjall var í júlí sl. er hún var viðstödd skírn tveggja langömmu- barna sinna. Síðustu árin sem hún lifði bjó hún hjá börnum sínum til skiptis, þeim Önnu og Helga. Eftir að heilsan fór að gefa sig dvaldi hún á sólvangi í Hafnarfirði, þar fékk hún góða umönnun og þótti gott að vera. Hún var ætíð lífsglöð og hamingjusöm, enda hélt hún sínu andlega hreysti til síðasta dags. Minningin ein lifir um þessa öldruðu formóður okkar, við fær- um henni þakklæti fyrir alla þá hlýju og þann fróðleik sem hún hefur veitt okkur. Blessuð sé minning hennar. Ilólmfríður Kjartansdóttir Minning: Ingibjörg Daníels- dóttir frá Bjarghóli Fædd 16. mai 1914. Dáin 10. janúar 1981. Hún fæddist að Kollafossi í Miðfirði V-Hún. 4 ára gömul er hún tekin í fóstur til föðursystur sinnar og hennar fjölskyldu á ísafirði. Er heilsa frænku hennar var þrotin kemur hún heim aftur þá 12 ára til foreldra sinna. Er Ingibjörg síðar nefndi frændfólk sitt á ísafirði sagði hún alltaf: „Fólkið mitt fyrir vestan". Hún bæklaðist í baki á unga aldri af beinkröm, það var hennar lífs- ógæfa. Eftir að foreldrar hennar dóu, átti hún jafnan athvarf að Núpsdalstungu í Miðfirði hjá þeim góðu hjónum er þar bjuggu og alltaf reyndust henni vel í 20 ár. Þá var heilsa hennar það þrotin að hún fluttist í Kópavogshæli og dvaldist þar síðustu ár ævinnar. Naut þar mikillar umhyggju allra. „Hún v»r kannxkr perla Kem var týnd i timans haf. Var topuð og glðtuA svo enginn viasl af. EAa gimateinn sem forAum var greyptur lins I haug en glerbrot er hún orAin á mannfélagains haug.“ Svo kvað Gestur Pálsson. Hefi oft hugleitt hve erfitt það var fyrir unga stúlku að skynja það á erfiðum aldri að geta ekki notið lífsins eins og annað fólk sakir bæklunar. Sé til annað líf þá vona ég að Ingibjörg komi þar fram há og beinvaxin glæsileg kona með sitt fallega dökkbrúna hár, sína góðu söngrödd, góðu greind og skemmtilegu kímnigáfu. Þannig kynntist ég henni í barnaskóla. Útför hennar fór fram 20.1. sl. Svanlaug Danielsdóttir ”lítfir scetir molar óskainnf lytjanda” Við óskum eftir innflitjanda á fínum frönskum brjóstsykri í skreyttum málmöskjum, sem eru netto 43 grömm, 10 mismunandi brögð. Við óskum eftir duglegum aðila /- fyrirtæki sem kinflitjanda er geti tekið að sér markaðskönnun á íslandi fyrir eginn reikning. Brjóstsykurinn hefur selst vel í Evrópu og Bandaríkjunum, og hefur náð miklum vinsældum í Danmörku, Svíþjóð og Noregi síðasta áriö. Hringið eða skrifið til: M/w!ílNG v/Mogens Christensen Box 95, Sköyen Oslo 2. Sími: (90472) 55 20 40 Framreiöum nú á hlaðborði fjölbreyttan þorramat í trogum. Lundabaggar, sviðasulta, svínasulta, bringukollar, hrútspungar, lifrarpylsa, blóðmör, hákarl, hangikjöt og harðfiskur. Auk þess síldarréttir, flatkökur, smjör og rófustappa. Haldið í þjóðlegar hefðir, blótið þorra með fjölskyldunni. Esjutríóið leikur fyrir matargesti í kvöld kl. 6-9 og á morgun, sunnudag frá kl. 12—2 og 6—9. Athugið að börn 10 ára og yngri fá frítt hjá okkur, af þorramat eða sórrétti barna. Munið barnahornið vinsæla. VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK Þl AKil.ÝSlR t'M ALLT I. \M) ÞL«. \R Þl AKi I.VSIK I MOK(.l NBLADIM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.