Morgunblaðið - 01.02.1981, Page 32

Morgunblaðið - 01.02.1981, Page 32
DAR Derusto GALV-A- fltagiiiiIMbifrife rn i~7 Hr*inljati«t*»ki \ *—1 ' / BWnduiurtaki Stélvaskar ARABIA “•"•'"ISji I^AÐSTOFaINÍ Nýborflarhúklnu, Ármúla 23, >ími 31810. SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1981 Lézt af völd- um voðaskots ÞRKTTÁN ára piltur á HvammstanKa lézt af völdum voöaskots að kvöldi sl. fimmtu- daKs. Var hann að handleika skotvopn ok staddur í bílskúr við heimili sitt er skot hljóp i hann. Mun hann hafa látist samstundis. Pilturinn hét Guð- jón Páll Arnarson. Sex skip með loðnu SEX ioðnuskip höfðu tilkynnt afla sinn til loðnunefndar á tímanum frá miðnætti þar til laust eftir hádegi í gær. Loðnan fékkst á sömu slóðum og fyrr, norðaustur af Langanesi. Skipin, sem tilkynntu afla eru: Dagfari með 480 tonn, Helga II 200, Bjarni Ólafsson 750, Sæberg 220, Seley 370 og Gullberg 550, en alls eru þetta 2.570 tonn. Skipin sigla á Aust- fjarðahafnir með afla sinn, Seyðisfjarðar, Neskaupstaðar og Eskifjarðar. Horace P. Byrd við vél sína. Ljónin.: Kristján. Þríðja óhapp flugmanns hér við land: Nauðlenti á vegin- um við Stokkseyri LÍTIL bandarísk flugvél nauð- lenti á þjóðveginum skammt frá Stokkseyri laust fyrir há- degi i gær. Bandarískur flug- maður, Horace P. Byrd. sem var einn f vélinni, slapp ómeiddur og vélin er óskemmd, að því er Morgunblaðið fékk upplýst hjá flugstjórninni á Reykjavikur- flugvelli í gær. Vélarbilun varð í vélinni, sem er einshreyfils, þar sem hún var komin nokkuð á haf út við Stokkseyri á leið til Bretlands- eyja. Flugmaðurinn hafði þá samband við flugturninn á Reykjavíkurflugvelli, sem leið- beindi honum inn yfir landið með radar. Tókst honum að láta vélina svífa inn og náði að lenda á veginum á giftusamlegan hátt sem fyrr segir, en illa hefði getað farið hefði hann verið kominn lengra út. Flugvélin, sem var bandarísk og er af gerðinni Rockwell Thrush Commander,' áburðar- dreifivél, hafði verið hér á landi í hálfan mánuð, en var á leið til Bretlands í gær: Það hefur gengið á ýmsu hjá flugmanninum Horace P. Byrd, við að ferja flugvélina, en héðan fer hún til Malawi í Afríku. Þegar hann var staddur 60 sjómílur vestur af landinu á leiðinni frá Gander til Reykja- víkur, drap hreyfill flugvélarinn- ar skyndilega á sér og hrapaði flugvélin niður á við. Eftir nokkrar mínútur tókst flug- manninum þó að ræsa hreyfil- inn. En þegar hann ætlaði svo að halda flugi sínu áfram héðan, brustu stjórnvírar í stéli er Byrd hafði flogið í hálfa klukkustund. Sneri hann við til Reykjavíkur og beið varahluta. Byrd er flug- maður á sextugsaldri, flaug m.a. bandarískri sprengjuflugvél í heimsstyrjöldinni síðari. Verknaðurinn framinn í örvilnan vegna áfeng- isneyzlu eiginmannsins VIÐ YFIRHEYRSLUR hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins hefur Björg Benjamínsdóttir, 26 ára gömul, játað að vera völd að láti eiginmanns síns, Sigfúsar Steingrímssonar, sem lézt í eldsvoða á heim- ili þeirra hjóna að Kötlu- felli 11 í Reykjavík á sjöunda tímanum sl. sunnudag. Björg var hand- tekin sl. þriðjudag og hef- ur setið í gæzluvarðhaldi síðan. — segir konan, sem játað hefur að vera völd að dauða hans Við rannsókn á bruna þessum beindust fljótlega grunsemdir að því, að Björg hefði með einhverjum hætti átt hlut að eldsupptökum. Björg hefur nú játað við yfirheyrslur hjá rannsóknarlögreglu ríkisins, að hún hefði fyrrgreindan dag hellt benzíni yfir mann sinn, þar sem hann svaf ölvunarsvefni í rúmi þeirra og lagt síðan eld í með fyrrgreindum afleiðingum. Segir hún ástæður þessa verknaðar hafa verið langvinnir sambúðarerfiðleikar þeirra hjóna vegna óhóflegrar áfeng- isneyzlu Sigfúsar og annað mis- sætti þeirra, sem loks hafi dregið hana í örvilnan til þessa óhæfuverks er áfengisdrykkja Sigfúsar hafi keyrt úr hófi síðustu dagana. Unnið er áfram að rækilegri rannsókn þessa hörmulega at- burðar og hefir Björgu verið gert að sæta gæzluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins." Formaður Verkalýðsfélags Stokkseyrar: „Ástandið miklu verra en öll undanfarin ár“ Morgunblaðinu barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá Rannsóknarlögreglu ríkisins: „Síðla dags hinn 25. þ.m. kom upp eldur í íbúð á 3. hæð t.v. í fjölbýlishúsinu nr. 11 að Kötlu- felli í Reykjavík. Lézt þar í eldinum Sigfús Steingrímsson, 37 ára vélsmiður, sem þar bjó ásamt eiginkonu sinni, Björgu Benjamínsdóttur, 26 ára, og 2 ungum börnum þeirra hjóna. Kærður fyrir kynferðisafbrot Rannsóknarlögregla ríkisins handtók í fyrrinótt 31 árs gamlan mann, sem kærður hafði verið fyrir kynferðisafbrot gagnvart 17 ára pilti. Málið er í rannsókn hjá RLR. „ÞAÐ ER vægast sagt slæmt atvinnuástandið hjá okkur. Í dag eru 50 manns á atvinnuleys- isskrá, en sú tala fór yfir 70 i desember og janúar. Ég man ekki eftir að ástandið hafi áður orðið eins slæmt á þessum árstíma. Þetta er miklu verra en öll undanfarin ár og tíðarfar og gæftir hjálpa ekki til,“ sagði Dagbjört Sigurðardóttir formaður Verkalýðs- og sjómannafélagsins Bjarma á Stokkseyri, í viðtali við Mbl. í gær. „Okkur finnst það hart,“ sagði Dagbjört einnig „að togarinn Bjarni Herjólfsson, sem keyptur var með það markmið fyrir augum að brúa þetta erfiða tímabil ársins atvinnulega séð fyrir Stokkseyri, Eyrarbakka og Selfoss, skuli sigla utan með aflann, þegar við lífsnauðsynlega þurfum á honum að halda.“ Dagbjört sagði að nokkuð væri um að menn frá Stokkseyri hefðu leitað atvinnu utan byggðarlags- ins, m.a. væru um tíu sjómenn komnir á báta í Þorlákshöfn. Hún sagði í lokin, að hún sæi ekki lausn þessara mála nema togarinn færi að landa afla sínum á Stokkseyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.