Morgunblaðið - 04.02.1981, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.02.1981, Qupperneq 12
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1981 Framleitt í Gúlaginu Verulegur hluti innflutnings vestrænna ríkja frá Sovétríkjunum er verk vinnuþræla. Mikill hluti hans er framleiddur að nokkru eða öllu leyti í fangabúðum sovézka Gúlagsins. Rússneskir útlagar, útlægir andófsmenn og samtök eins og Amnesty International halda því jafnvel fram, að í heita megi hverjum hlut, sem fluttur sé út frá Sovétríkjunum, hvort heldur þungum flutningabíl eða ljósakrónu, sé einhver hlutinn upphaflega framleiddur í nauðungar- vinnubúðum eða fangelsum. Samkvæmt ítarlegri könnun brezka tímaritsins Now!, á grundvelli staðhæfinga 20 fyrrverandi fanga, hefur mikið magn varnings, sem er framleiddur í nauðungarvinnubúðum, borizt á markað í Bretlandi — allt frá kavíar, sem kvenfangar framleiða, til ferðaútvarpstækja, gauksklukkna og jafnvel rafmótora í sumar skrifstofuvélar. „Góð kaup“ Þúsundir ódýrra rússneskra sjónvarpstækja, útvarpstaekja, kassettutækja og ísskápa hafa flætt á markað í Bretlandi á síðari árum og hafa fallið vel í geð kaupendum, sem vilja gera „góð kaup“. Flest bera tækin vöru- merkið Vega og útvarpstækin með því nafni eru framleidd í fjórum verksmiðjum í Sovétríkjunum. Ein þeirra er í Riga og fær hluti í tækin frá nokkrum fangabúðum umhverfis borgina, önnur er í Moskvu og fær birgðir frá Vlad- imir-fangelsi. Kassarnir utan um útvarps- og sjónvarpstækin eru gerðir í fangabúðum á Krím og í Mordovíu og frá Búðum 36 í Perm berast varahlutir og fleira. Dr. Cronid Lubarsky, sem dvaldist fimm ár í búðunum, lýsir þannig starfinu fyrir Vega í Vlad- imir-fangelsi: „Öll vinnan verður að fara fram í klefunum, þótt þeir séu aðeins 10 fermetrar og í þeim dveljist 10 menn og þar séu rúm þeirra, hreinlætisaðstaða og allur vélabúnaður og tæki. Lampar loga í klefunum frá 5 f.h. til 10 e.h. Lýsing og ioftræsting voru fyrir neðan allar hellur og sjónin og heilsan biluðu fljótt. Fyrstu ein- kennin voru bullandi höfuðverkur eftir þrjá mánuði og eftir sex mánuði hnigu menn saman, því matarskammturinn fór eftir af- köstunum. Skammturinn fór held- ur ekki eftir þyngd heldur kalorí- um, svo að menn strituðu einfald- lega til að afstýra hungri." Lubarsky og aðrir andófsmenn eins og Yuri Belov og Nikolai Scharegin sögðu, að þeir sem stöðugt svikust undan og hvöttu til andófs voru dæmdir í einangr- un í óákveðinn tíma. Klefarnir voru svo þröngir, að „það var aldrei hægt að liggja endilangur, setja hendurnar á mjaðmirnar, heyra hljóð eða sjá hendurnar á manni vegna myrkursins. Engin koja var í klefunum og engan eiginlegan mat að fá nema annan hvern dag, aðeins súrt rúgbrauð og vatn hina dagana. Einu sinni var fyrrverandi rússneskur lyft- ingamaður í svona klefa. Hann var þar í 42 daga og léttist úr 70 kílóum í 50 kíló.“ Brúður Rússneskar brúður eru mjög vinsælar í Bretlandi, en Rússum tekst að leyna því að fangar í nauðungarvinnubúðum taka þátt í gerð þeirra, því að margar þeirra eru sendar til iðnaðarmanna, sem leggja síðustu hönd á þær. Þrír, sem tóku þátt í gerð þeirra, Joseph Lederman, Mikael Vais og Abra- ham Sin, sögðu að brúðurnar væru gerðar í búðum umhverfis Surgut í Tuymenskaya-héraði og á Alma Atinskaya-svæðinu. KGB sér um, að vörumerkið sé kennt við „frjálsa" verksmiðju, þorp, kaupstað eða borg. Gauks- klukkurnar eru gerðar í Búðum 19 ÞRÆLAR GULAGSINS Enginn veit hvað Gúlagið er stórt. Varlega áætlað eru fangabúðirnar, fangelsin og geðsjúkrahús KGB 1500 talsins og fangarnir um tvær milljónir. Pólitískir fangar eru um 20.000. í þeirra hópi eru ekki aðeins andófsmenn sem berjast fyrir lýðræði, heldur einnig þjóðern- issinnar, venjulegir borgarar, sem sækja um vegabréfsáritun, eða fólk sem aðeins trúir á eitthvað annað en prédikað er í Sovétríkjun- um — gyðingar, baptistar og búddatrúar- menn. Glæpir þeirra flokkast undir „landráða- sök“, réttarhöldin standa yfirleitt í nokkrar klukkustundir og ekki er vitað tii þess að nokkur andófsmaður hafi verið sýknaður til þessa. Fangabúðirnar eru ferns konar: venju- legar, erfiðar, strangar og „sérlegar". 111- ræmdustu fangelsin eru Vladimir-fangelsi í Moskvu og Chistopol-fangeisi skammt frá Kazan. Þar eru geymdir pólitískir fangar og venjulegir fangar, sem hafa fengið þunga dóma. Pólitískir fangar eru oft sendir í þessi fangelsi til að refsa þeim fyrir áróður eða vegna þess að þeim hefur ekki tekizt að skila tilætluðum afköstum. Stærð fangabúðanna er mismunandi og þær taka frá nokkur hundruðum fanga upp í 6.000 til 7.000 fanga. Pólitísku fangarnir eru aðallega á Perm- svæðinu, í djúpum dal þar sem kuldar eru miklir á vetrum. Læknisþjónusta er svo slæm í Perm, að sögn Amnesty Internation- al, að margir hafa látizt vegna lélegs aðbúnaðar. Aðrar fangabúðir teygja sig yfir gervalla Síberíu og til heimskautasvæðisins Kolyma, þar sem margar helztu gullnámur Rússa eru, um alla Úkraínu, þar sem heilsu fanga er hætta búin í hættulegum eirnám- um, og Norður-Úral, þar sem þrælar Gúlags- ins stunda mikilvægt skógarhögg, einn af hornsteinum efnahags Rússa. Annars er búðir að finna í nær öllum borgum og bæjum einkum þar sem stór iðjuver eru starfrækt. Moskva er miðstöð þéttriðins nets vinnu- þræla, sem efnahagur Rússa er háður í ríkum mæli. Þar eru 14 fangelsi, þar á meðal sýnifangelsið Kryukovo, sem erlendir gestir eru leiddir um í skoðunarferðum, og hið illræmda Vladimir-fangelsi, sem fangar eru sendir til þegar brjóta á þá niður. Maturinn er venjulega þessi: vatnsblandað kornmeti í morgunverð, hálfur lítri af þunnri súpu úr beinum, rotnu káli og frosnum kartöflum í hádegismat og sama vatnsblandaða gutlið í kvöldmat. Vinnutíminn er frá átta stundum í sextán stundir og fer eftir dugnaði fanganna, áhuga fangavarðanna og vinnukvótunum. Frí frá vinnu er aðeins á sunnudögum, þegar fangarnir verða að sækja pólitíska fyrirlestra, eða þegar kuldinn úti fer niður fyrir 45 gráður á celsíus.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.