Morgunblaðið - 04.02.1981, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1981
43
,ÞaA var þröng á þingi 28. september 1956, þegar Verzlunarsparisjóð-
urinn opnaði að Hafnarstrœti 1. Ól. K.M. tók allar myndirnar.
Lárus Lárusson og Björgúlfur Bachmann við afgreiðsluna fyrsta
daginn.
Stofnun Verzlunarbankans samþykkt, 14. júni 1961 i Sjálfstæðishús-
inu.
Frá stofnfundi Verzlunarbankans í Tjarnarbiói 4. febrúar 1961.
Ánægjulegt afmæli —
árangur góðra verka!
Rætt við Pétur 0. Nikulásson, núverandi formann bankaráðs
Pétur 0. Nikulásson, stór-
kaupmaður, er núverandi for-
maður bankaráðs Verzlunar-
banka íslands. Hann varð var-
amaður i bankaráðinu 1970,
aðalmaður f jórum árum siðar og
hinn 18da mars 1978 varð hann
formaður ráðsins.
— Þegar afmælisárið rennur
upp er staða Verzlunarbankans
mjög góð, segir Pétur: Innláns-
aukningin sl. ár var 68,34% og
þar með fyrir ofan meðallag, en
útlánsaukningin varð afturámóti
undir meðaltali eða 48,6%.
Við leggjum á það megin
áherslu á þessum tímamótum í
starfi bankans, að auka þá ráð-
gjafarþjónustu fyrir viðskipta-
menn bankans, sem við hófum á
sl. hausti. Við köllum þessa
ráðgjöf Hagdeild heimilisins.
Hún er upplýsingaþjónusta, þar
sem þar til þjálfað starfsfólk er
almenningi til aðstoðar, bendir á
möguleika sem fyrir hendi eru
fyrir sparifjáreigendur, og leið-
beinir þeim um gerð greiðslu-
áætlunar. Þetta er nýjung hér á
landi og Verzlunarbanki Islands
eini banki landsins sem veitir
þvílíka ráðgjöf fyrir almenning.
Bindum við miklar vonir við
árangur þessarar þjónustu.
Safnlánin kynntum við líka á
sl. ári. Safnlán byggjast á því að
viðskiptavinurinn sparar fyrir-
fram ákveðna upphæð í ákveðinn
tíma, og ber sparnaðurinn al-
menna sparisjóðsvexti, en þegar
sparnaðartíminn er liðinn, þá fær
viðskiptavinurinn lánaða jafnháa
upphæð og nemur sparnaðinum.
Þannig hefur hann tvöfaldan
sparnaðinn til ráðstöfunar, og að
auki vextina af sparnaðinum.
Síðan greiðir hann lánið með
jöfnum afborgunum á jafn löng-
um tíma og það tók hann að
spara. Safnlánin hafa fallið í
góðan jarðveg meðal viðskipta-
manna bankans.
Hagdeild heimilisins og Safn-
lánin sýna svo ekki verður um
villst, að Verzlunarbanki íslands
er almennur viðskiptabanki, en
ekki aðeins banki kaupmanna og
heildsala, eins og maður heyrði
stundum á fyrstu starfsárum
bankans. Bankinn er óneitanlega
ein helsta stoð verslunar í land-
inu, en annar aðal þátturinn í
starfi hans er þjónusta við ein-
staklinga, og 26,9% af heildarút-
lánum bankans fellur í hlut
einstaklinga.
í framtíðinni munum við
stefna að því að opna fleiri útibú
en hingað til höfum við verið
sveltir í þeim efnum, sem er mjög
bagalegt því rekstur útibúa er
ekkert annað en aukin þjónusta
við viðskiptamenn bankans og
allan almenning. Við höíurn ein-
ungis fengið heimild fyrir einu
útibúi utan Reykjavíkur, í Kefla-
vík. Við munum einnig sækja það
fast að fá heimild til að versla
með erlendan gjaldeyri: Verzlun-
arbanka er það nauðsynlegt að
geta veitt viðskiptavinum sínum
þá þjónustu. Þessi eru þau tvö
verkefni sem bankanum ríður á
að fá lausn á, svo rekstur hans
géti dafnað með eðlilegum hætti.
Að bankanum hefur um tíðina
valist úrvalsfólk, og á afmælis-
daginn geta þeir sem unnu að
stofnun Verzlunarbankans, og
þeir sem síðan hafa haft mest
áhrif á stjórn hans og það
starfsfólk sem þar hefur lengst
unnið, litið stolt til baka. Árang-
ur góðra verka blasir við þeim á
afmælisdaginn. Verzlunarbank-
inn á góðan afmælisdag.
Eining er afl!
Rætt við Þorvald Guðmundsson, fyrrv. formann bankaráðs
Þorvaldur Guðmundsson i
Sild og fisk hefur setið i banka-
ráði Verzlunarbanka íslands frá
stofnun hans og áður i stjórn
Verzlunarsparisjóðsins. Tiu ár
var hann formaður bankaráðs-
ins, siðast 1978, að Pétur O.
Nikulásson tók við af honum.
Þorvaldi sagðist svo af tildrög-
um þess að stofnsettur var banki
í nafni verslunar á íslandi:
— Þetta var eitt helsta áhuga-
mál verslunarstéttarinnar í mörg
ár að stofna eigin sparisjóð,
hugmyndin var rædd á ótal
mörgum fundum Sambands smá-
sölukaupmanna, sem Kaup-
mannasamtökin hétu þá. í bréfi
frá Sambandi smásölukaup-
manna til Verzlunarráðs dag-
settu hinn 10. maí 1955, kom loks
fram ósk um skipun sameigin-
legrar nefndar til að vinna að
stofnun lánastofnunar fyrir
verslunarstéttina í heild.
Nefndin var skipuð 11 mönnum
frá Sambandi smásölukaup-
manna og Verzlunarráði, og
formaður hennar var Eggert
Kristjánsson, þáverandi formað-
ur Verzlunarráðs. Nefndin hóf
strax að undirbúa stofnun Verzl-
unarsparisjóðs og vann sleitu-
laust. Þá voru menn allir sem
einn áhugasamir um að koma
þessu máli í höfn.
Verslunarstéttin í heild sinni
gerði sér ljóst hvílíkt nauðsynja-
mál þarna var á ferðum, og voru
stofnendur Verzlunarsparisjóðs-
ins á fjórða hundrað talsins, þar
af helmingur meðlimir í Sam-
bandi smásölukaupmanna. Þegar
Verzlunarsparisjóðurinn tók svo
til starfa í Hafnarstrætinu
haustið 1956, reyndu verzlunar-
menn, hver eftir sinni getu, að
beina þangað viðskiptum sínum
og starfsmanna sinna.
Sparisjóðurinn, og seinna
Verzlunarbankinn, hefur átt góðu
gengi að fagna; sígandi lukka er
ávallt best og það held ég hafi t.d.
sannast með starfsemi Verzlun-
arbanka tslands. Við höfum verið
heppnir með starfsfólk alveg frá
upphafi og haldist vel á duglegu
l-fólki. Stjórnendur bankans eru
ungir menn með frjóar hugmynd-
ir, þó starfsaldur þeirra sé orðinn
langur í bankanum.
Það er óhætt að segja, að með
tilkomu þessarar stofnunar hafi
orðið mikil breyting á viðskipta-
lífinu. Það var eins og allt yrði
frjálsara í bankakerfinu við til-
komu Verzlunarsparisjóðsins og
yfirbragðið allt léttara. Og það
hefur fylgt starfsemi bankans,
nýjungar ýmsar sem hafa yfir-
leitt fallið viðskiptamönnum
bankans vel í geð.
Það hefur verið mér ljúft að fá
að vinna með í því að koma þessu
óskabarni íslenskrar verslunar-
stéttar á legg: Verzlunarbanki
íslands er vissulega óskabarn
íslenskrar verslunarstéttar. Með
tilkomu Verzlunarlánasjóðs varð
bankinn stoð og stytta hins
frjálsa framtaks í verslun og
viðskiptum um iand allt. En við
skulum ekki gleyma því, að Verzl-
unarbankinn er líka banki hins
almenna borgara, svo sem hlutur
einstaklinga í heildarútlánum
bankans sýnir ljóslega.
Verzlunarmenn voru einhuga
um stofnun Verzlunarbanka Is-
lands, og það hefur heldur aldrei
fallið skuggi á þann einhug. Ég
vel mér því að lokaorðum þessa
spjalls, það sem stendur letrað á
fundarhamar Kaupmannasam-
taka íslands: Eining er afl!
Þorvaldur Guðmundsson og Pétur 0. Nikulásson takast i hendur
eftir formannsskiptin i bankaráðinu 18da mars 1978.
Höskuldur ólafsson og stjórn Verzlunarsparisjóðsins og fyrsta
bankaráð Verzlunarbankans: Pétur Sæmundssen, Þorvaldur Guð-
mundsson, Höskuldur, og Egill Guttormsson form.
Samantekt: J.F.Á. Ljósmyndir: Ólafur K. Magnússon