Morgunblaðið - 04.02.1981, Page 21

Morgunblaðið - 04.02.1981, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1981 49 fclk í fréttum Af kvenna- málum Ollies + Hér er dulítið fyrir þá sem hafa áhuga á kvennamálum leikarans Oliver Reed. Núverandi vinkona hans er 26 árum yngri en hann. Hún er 16 ára gömul. Hún heitir Josephine Burge og þegar þetta er skrifað er hún í fríi með Oliver á Barbados en hún hafði tilkynnt yfirvöldum skóla síns að hún væri með flensu! Móðir Jósefínu kveðst hafa áhyggjur af námi dóttur sinnar, en ekki af Oliver Reed. Hún segir að Reed hafi oftlega komið heim til þeirra í mat og hann sé mjög traustvekjandi maður. „Það má treysta honum,“ sagði hún. Skólastjóri skóla Jósefínu er ekki jafn ánægður með gang mála. Hann sagði: „Móðir Jósefínu sagði mér að hún væri með flensu. Ég hef hins vegar heyrt þann orðróm að hún sé með Reed og ef þetta væri dóttir mín, væri mér sko ekki sama. Sonur Olivers, Mark, tók mjög í sama streng en bætti þó við: „Faðir minn getur verið ruddalegur og kaldur á stundum en hann getur einnig verið rómantískur. Hann er alls ekkert rustamenni." Myndin af Ollie og skólastúlkunni og vini þeirra var tekin á Barbados og virðast þau una sér hið besta. „Fjórmenningur“ í járnum + Réttarhöldin yfir „fjórmenningaklíkunni" svokölluðu hafa að vonum vakið athygli manna á Vesturlöndum. Réttarhöldin hófust 20. nóvember síðastliðinn og stóðu til 25. janúar. Meðal þeirra sem dæmdir voru var Zhang Chungiao fyrrum borgarstjóri Shanghai. Hér sést hvar gamli maðurinn er færður handjárnaður út úr réttarsalnum á lokadegi réttarhaldanna. Hann fékk skilorðsbundinn dauðadóm. Yfir öllum sakborningunum vofði dauðadómur en kínversk lög mæla svo fyrir að „þeir sem aðeins eru verkfæri í höndum annarra" og iðrast skuli hljóta vægari dóm. Það átti ekki við ekkju Maós formanns sem margsinnis andmælti dómurunum og virtist einskis iðrast. Hún var dæmd til dauða en líkiegt er talið að dómnum verði breytt í ævilangt fangelsi. Bætur vegna heila- skemmda + Hæstiréttur Breta dæmdi þessari stúlku 225.000 punda miskabætur vegna heila- skemmda sem hún hlaut í bíl- slysi. Persónuleiki Söndru Birk- ett, en það er nafn stúlkunnar, gerbreyttist og sú breyting eyði- lagði líf hennar og hjónaband. Hún gat ekki hætt að tala og umræðuefnið var alltaf það sama: hún sjálf. í dómsupp- kvaðningu sinni sagði dómarinn að vegna heilaskemmdana „dræpi hún fólk bókstaflega úr leiðindum". Hún missti einnig allt bragð- og lyktarskyn. Hún var hamingjusamlega gift. Þó að eiginmaðurinn heimsæki hana reglulega á geðsjúkrahúsið þar sem hún dvelst, þá hefur hann tekið upp samband við aðra konu. Slysið gerðist árið 1975 en þá sat hún við hlið eiginmanns síns þegar þau lentu í árekstri við bíl sem ýtti þeim í veg fyrir annan bíl sem kom úr gagn- stæðri átt. Sandra Birkett mun ekki hafa verið með öryggisbelti. Eiginmaður hennar, Peter Birk- ett sagði m.a. er dómurinn hafði verið kveðinn upp: Hún er af- spyrnu hugrökk kona.“ Slegist í brúð- kaupinu + Það varð aldeilis uppi fótur og fit i giftingu einni í Rio de Janeiro á dögunum. Þar var verið að gefa saman Maríu Domingues og Julio Cesar La- cerda. Skyndilega steig fram ófrísk kona, Maria De Silva að nafni, og lýsti því yfir að Julfo væri faðir hins ófædda barns hennar og að þau hefðu búið saman í 10 ár.- Presturinn neitaði að halda athöfninni áfram og slagsmál brutust út milli fjölskyldna hinna verðandi brúðhjóna. Þeg- ar slagsmálin náðu hámarki þurfti að flytja Maríu De Silva á sjúkrahús, þar fæddi hún dreng. Seinna útskýrði María ástæður sínar fyrir uppljóstruninni: „Ég gerði þetta vegna þess að ég gat ekki annast uppeldi barna minna einsömul. En ég skil ekki ennþá hvernig hann gat hugsað sér að ganga að eiga svona hrikalega ófríða konu,“ eins og hún nafna mín reyndar er! Þakkir Innilegt þakklæti til allra, sem glöddu mig með gjöfum, blómum, skeytum og heimsóknum á níutíuúra afmælisdaginn minn 18. janúar sl. Katrín Eyjólfsdóttir, Elliheimilinu Minni-Grund Væntanleg Upphækkanleg hus fyrir japanska og USA pick-up bíla. Fullinnréttaö. Fyrir japanska og USA Pick-up bfla, óinnréttað. Innrettingar VW sendibila. Gisli Jónsson & Go. hf Sundaborg 41. s. 86644. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.