Morgunblaðið - 04.02.1981, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1981
55
DIRE STRAITS
Dire Straits hafa sannað
það að enn er líf í gömlu
formúlunni. Þeir hafa ekki
komiö meö nýja músík
eins og „punk“, „new
wave“ eða hvað það nú
verður á þessu ári, heldur
leitaö til eldri flytjenda
eins og J.J. Cale, Bob
Dylan, Van Morrison og
fleiri og komið með sinn
eigin stíl út.
Þriöja og nýjasta plata þeirra
„Making Movies" hefur fest þá í
sessi svo um munar, eftir tvær
plötur sem þóttu full keimlíkar þó á
milli þeirra væri í raun jafn mikil
þróun og á milli „Making Movies“
er frá „Communique“, annarri
plötu þeirra.
Dire Straits var stofnuö fyrir
rúmum þrem árum af bræörunum
Mark og Dave Knopfler. Þeir höföu
þar áður veriö meö aöra hljóm-
sveit, Cafe Racers, ásamt þrlöja
manni, Dave Park, í Essex.
Um áramótin 1977/78 völdu
blaöamenn Melody Maker hljóm-
sveitina, meöal annarra, sem eina
líklegustu til frama á komandi ári.
Upp úr áramótunum léku þeir
sem upphitunarhljómsveit fyrir
Talking Heads á hljómleikum
þeirra í Bretlandi og „stálu sen-
unni“ eins og þaö er kallaö.
Mark Knopfler er háskóla-
menntaöur meö ensku sem aöal-
grein. Eftir aö hafa lokiö námi viö
Leeds University geröist hann
blaðamaöur um hríö í London áöur
en hann flutti til Essex til aö gerast
enskukennari þar við Loughton
Tech.
Á meðan hann vann þar viö
kennslu byrjaöi hann aö semja á
fullu, en hann og bróöir hans höföu
báöir spilaö á gítara frá unga aldri.
Þeir fóru aö spila saman í ýmsum
hljómsveitum og sú síöasta var
Cafe Racers elns og fyrr segir.
Þegar þeir bræöur stofnuöu
Straits hætti Mark aö kenna. Þelr
fengu John lllsey, sem var góðvin-
ur Daves og leigöi meö honum
íbúö í Essex, á bassann, og Pick
Whithers á trommur, en hann haföi
m.a. leikið meö Dave Edmunds,
Ralph McTell, Michael Chapman
og Bert Jansch og var eftirsóttur
aöstoöarmaöur.
Um leiö og þeir byrjuöu aö spila
geröu þeir „prufuupptökur" á lög-
unum „Wild West End“, „Sultáns
of Swing“, „Down To The Water-
line“ og „Water of Love“. Án þess
aö vita hvaö þeir ættu næst aö
gera sendu þeir „aftöku" af spól-
unni til útvarpsmannsins Charlie
Gillett, sem haföi þá mjög vinsæl-
an þátt og virtan á sunnudags-
morgnum í Radio London. Þrátt
fyrir þaö aö Gillett hafi þegar tekiö
þátt upp til aö flytja næsta sunnu-
dag breytti hann honum eftir aö
hann fékk spóluna í hendur, og
felldi Dire Straits inn í myndina.
Viöbrögö hlustenda voru góö og
útgáfan Phonogram geröi strax
samning viö þá á grundvelli þessa
útvarpsþáttar. Og eftir áramótin
kom svo hljomleikaferöin um
Bretland ásamt Talking Heads, en
eftir þaö fóru þeir aö taka upp
„Dire Straits“ sem kom út seint
sama ár.
Þessi fyrsta breiöskífa sem inni-
heldur lögin „Sultans of Swing“,
„Wild West End“ og „Eastbound
Train“. „Sultans of Swing“, ásamt
samlíkingunnl viö Dylan í söng og
Eric Clapton í gítarleik, vöktu
forvitni margra sem síöan heilluö-
ust og geröu bæöi „Dire Straits“
og „Sultans of Seing" (litlu plöt-
una) aö vinsælum plötum.
Seint 1979 kom önnur plata
þeirra, „Communique", og geröu
þá fáir ráö fyrir því aö þeim entust
vinsældirnar. En þrátt fyrir þaö sló
hún líka í gegn og salan varö meira
aö segja meiri á „Communique"
heldur en „Dire Straits".
Lagiö „Lady Writer" var sett á
litla plötu en geröi ekki lukku
þannig, þó þaö sé eitt vinsælasta
lag þeirra á sviöi. Á „Commun-
ique" eru önnur klassísk lög þeirra
eins og „Once Upon A Time In The
West", „News" og „Angel of
Mercy".
Næsta sögulega verkefni þeirra
var heimildarmynd sem BBC2
geröi fyrri part 1980 og sýndi 22.
desember sama ár. Þáttur þessi
markar síöustu daga Dave Knopfl-
ers í bandinu. Meöal efnis í þessari
mynd er ýmislegt „babbl" um
erfiöleika, hljómleikaferö, hljóöfæri
o.þ.h.; heföbundiö efni, en tvö lög
gera þennan þátt sérstakan. Þaö
er lag sem hét „Making Movies" og
varö síöan aö „Skateaway" einu
besta laginu á „Making Movies"
plötunni. Lögin tvö eru víst svo ólík
aö í raun er um tvö lög aö ræöa.
Hitt lagiö er svo „Twisting By The
Pool“ sem var lengi vel á efnisskrá
þeirra en hefur aldrei komiö út. En
þaö ásamt lögunum „Real Girl“
(eitt af elstu lögunum) og „What's
The Matter With You Baby" vantar
enn á plötur og sagöi Mark aö
líklega kæmu þau aöeins út á
„bootleg".
Eftir aö Dave Knopfler hætti,
þaö var víst ekki pláss fyrir
hugmyndir beggja bræöranna í
hljómsveitinni, var byrjaö aö taka
upp á ný í júlí 1980 meö aöstoö
Roy Bittan píanóleikara Bruce
Springsteen, auk Jimmy lovine og
Shelley Yakus viö upptökutækin.
Út úr því kom sjö laga plata
„Making Movies" í október 1980.
öll lögin á plötunni hafa hlotiö
góöar undirtektir og mörg þeirra
slegiö fyrri gæöi.
Mark Knopfler lætur ekkert eftir
í gítarleik né laga og textasmíö.
Sögurnar eru álíka mikiö hans og
sögur Springsteens eru Spring-
steens. Píanóiö hjá Bittan gefur
tónlistinni nýja og skírari vídd, sem
fáir geröu ráö fyrir aö kæmist fyrir
í tónlist þeirra. Þó aö Dave hafi í
raun hætt í júní var tilkynningin
ekki gefin út fyrr en í september
um leið og sagt var frá nýju
plötunni. Þá var einnig tilkynnt aö í
staöinn kæmu tveir aöstoöar-
hljómborösleikarar og einn gítar-
leikari.
Það varö þó úr aö Newcastle-
maöurinn Alan Clark, geröist eini
hljómborösleikarinn og Banda-
ríkjamaöurinn Hal Lindes geröist
gítarleikari hljómsveitarinnar.
Clark hefur víöa komiö viö, nú
síöast á plötu David Bowie „Scary
Monsters".
öllum gagnrýnendum ber sam-
an um aö nýja hljómsveitin sé
miklu betri og Mark hafi nú aö baki
sér eina bestu hljómsveit sem völ
er á.
Einn af góövinum „Slagbrands"
Ásmundur Guöjónsson, fór til
London skömmu fyrir jól og sá
Dire Straits í Rainbow Theatre á
aöfangadag.
Á meðan leikiö var lagiö „The
Good The Bad And The Ugly“
týndust . þeir fram á sviöið og
renndu sér loksins inn í „Once
Upon A Time In The West" af
„Communique". „Expresso Love“
og „Down The Waterline“ runnu
saman í eitt lag í syrpu, en síöan
léku þeir eitt sterkasta lagiö af
„Making Movies", „Skateaway".
Síöan komu öll vinsælustu lögin
þeirra, „Romeo & Juliet", „News",
sem var tileinkaö John Lennon,
„Sultans of Swing“ „Les Boys“
sem hefur fengiö enn sterkari blæ,
og ein skærasta perlan þeirra,
„Angel of Mercy“ og „Tunnel of
Love“. Eftir uppklapp léku þeir
„Wild West End“ og „Where Do
You Think You Are Going?" og aö
lokum „Solid Rock“.
Aö sögn fyllti hljómsveitin fylli-
lega salinn og Mark þurfti ekki aö
hafa neinar áhyggjur þó hann
sleppti sólói, því Hal Lindes missti
aldrei úr, og Alan Clark hefur
skreytt gömlu lögin jafnt og þau
nýju.
Þar sem vinsæidir Straits hafa
aldrei veriö meiri hérlendis meö
tilkomu „Making Movies”, er rétt
aö benda þeim sem áhuga hafa aö
hlusta á hinar tvær, þar sem mörg
laganna þar eru mjög sterk, en
þess má geta að Mark leikur
ásamt Pick Withers á „Slow Train
Coming" meö Bob Dylan, og Mark
einn á nýjustu plötu Steely Dan
„Gaucho".
Orðastríð
stórþjóða
Frá önnu Bjarnadóttur Washington.
NÝ stjórn Ronalds Reagan i
Bandaríkjunum hefur ekki
látiö neitt tækifæri ónotað,
siðan hún tók við völdum fyrir
tveimur vikum, til að láta
ráðamenn i Kreml vita. að
þeir eru enjíin lömb að leika
sér við. James Baker vildi
ekki iáta Rússa halda, að
samband landanna muni bara
Kantra sinn vanagang á næst-
unni og þeir fái að ráða
ferðinni eftir eigin geðþótta.
Reagan sagði á sínum fyrsta
blaðamannafundi, síðan hann
tók við embætti, í síðustu viku,
að Rússar notuðu svik og pretti
til að stuðla að alheimsbylt-
ingu og Alexander Haig utan-
ríkisráðherra sagði á blaða-
mannafundi, að Rússar styddu
hryðjuverkastarfsemi í heim-
inum. Til að sýna ákveðni nýju
stjórnarinnar snupraði utan-
ríkisráðuneytið Anatoliy
Dobrynin sendiherra Sovét-
ríkjanna, sem hefur verið hér í
yfir 20 ár og notið ýmissa
fríðinda og góðs samstarfs við
marga utanríkisráðherra og
forseta, í síðustu viku. Þegar
Dobrynin keyrði, eins og hann
var vanur, inn í bílskúr ráðu-
neytisins og ætlaði að taka
lyftu þaðan beint upp á loft,
var honum meinuð innganga
og vísað á aðaldyr ráðuneytis-
ins. Honum var sagt, að hann
þyrfti í framtíðinni að nota
þær eins og allir aðrir gestir
ráðuneytisins.
Ráðamenn í Sovétríkjunum
hafa brugðist við glósum
Bandaríkjamanna með yfirlýs-
ingum í svipuðum dúr. Þeir
segja, að bandariska stjórnin
stuðli ekki aðeins að hryðju-
verkastarfsemi heldur stundi
hana sjálf og nefna atferli
bandarísku leyniþjónustunnar,
CIA, í því sambandi. Allt
bendir til, að detente-tíminn sé
að lokum runninn, en sumir
segja, að Reagan og menn hans
séu að undirbúa farveginn
fyrir samræður við Sovétmenn,
þar sem Bandaríkjamenn virð-
ast hafa yfirhöndina og Sovét-
menn sættast á, af því að þeir
sjá, að þeir eiga ekki annarra
kosta völ.
ab.
Fræðslufundur
Fuglaverndar-
félags íslands
Fræðslufundur Fuglaverndarfé-
lags íslands verður haldinn í
kvöld, miðvikudagskvöld, í Nor-
ræna húsinu og hefst klukkan
20.30.
Sann - brann
í GREIN í blaðinu í gær um
bókasafnið umdeilda í turni Skál-
holtskirkju, slæddist inn prent-
villa. Þar átti að standa í niðurlagi
greinarinnar, „þagað gat ég þá
með sann, þegar hún Skálholts-
kirkja brann“, en ekki sanni eins
og varð í greininni.