Morgunblaðið - 11.02.1981, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1981
13
Hluti af kór Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar.
Kór Langholts-
kirkju æfir Messías
KÓR Langholtskirkju undir
stjórn Jóns Stefánssonar æfir nú
Oratoriuna Messias eftir Iiánd
el, eitt glæsilegasta kórverk sem
samió hefur verið. Mun kór
Langholtskirkju flytja verkið í
kring um páska og verða fyrstu
tónleikarnir 11. april.
Messias er stærsta verkefni
Langholtskirkjukórsins til þessa,
en í kórnum eru 60 manns. Er
kórinn kunnur að flutningi ým-
issa merkra tónverka. Einsöngv-
arar með kórnum í flutningi á
Messías eru Ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir, Rut L. Magnússon,
Garðar Cortes og Halldór Vil-
heimsson.
Messías verður flutt í Foss-
vogskirkju en að sögn Jóns söng-
stjóra er hljómburður þar mjög
góður og unnt að nota orgel
kirkjunnar með 25 manna
hljómsveit, en einnig verður
sembal notað í hljómlistinni.
Kór Langholtskirkju fer í æf-
ingabúðir í Ölfusborgum um
miðjan marz til æfinga, en æf-
ingar hófust um áramótin.
Atvinnumálanefnd Akureyrar:
Staðsetning stór-
iðju heppileg-
ust við Hjalteyri
„Atvinnumálanefnd Akureyr-
ar og bæjarstjórn hafa komizt að
þeirri niðurstöðu. að heppi-
legasta staðsetning stóriðju i
Eyjafirði sé á svæðinu sunnan
Iljalteyrar og norðan Ilörgár.
l»ar eru taiin heppilcg hafnar-
skilyrði, tenging við raforkunet-
ið sé auðveld svo og allir aðdrætt-
ir, þar sem aðeins séu um 15 km
til Akureyrar. Þá álítur atvinnu-
málanefnd, að iandslagsskilyrði
séu þarna með besta móti,“ sagði
Gunnar Ragnars. varafulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
stjórn og fulltrúi hans i atvinnu-
málanefnd. er Mbl. innti hann
eftir þessu máii.
„Þarna var aðeins verið að svara
spurningu staðarvalsnefndar í
sambandi við heppilegasta stað-
setningu stóriðju, en ekkert var
FÍB 65 ára
FÉLAG íslenzkra botnvörpu-
skipaeigenda, elzta starfandi félag
atvinnurekenda í landinu, varð 65
ára sl. mánudag. Félagið var
stofnað 9. febrúar 1916 og hefur
starfað alla tíð síðan. Núverandi
formaður er Vilhelm Þorsteinsson
á Akureyri.
fjallað um afstöðu til stóriðjunnar
sjálfrar. Bæjarstjórn "Akureyrar
samþykkti í nóvember síðastliðn-
um jákvæða afstöðu til uppbygg-
ingar stóriðju við Eyjafjörð og ég
tel það vera afgerandi atriði fyrir
alhliða framþróun í atvinnumál-
um hér í Eyjafirði að komið verði
upp stóriðju áður en langt um
líður," sagði Gunnar að lokum.
Þorri blótað-
ur á Þingeyri
Þinifeyri, 9. febrúar.
LAUGARDAGINN fyrsta í Þorra
héldum við Þingeyringar hefð-
hundið þorrabiót sem Slysavarnar-
deildin Vörn gengst fyrir árlega.
Neittu menn islensks þorramatar
úr trogum. heimamcnn skemmtu
okkur með ýmsum „uppákomum“
meðan setið var undir horðum.
Hirðskáldið Elías Þórarinsson
flutti okkur frumsamda drápu er
vakti verðskuldaða athygli. Tómas
Jónsson sparisjóðsstjóri skemmti
af alkunnri smekkvísi og kímni
ásamt fleirum. Sungið var af lífsins
lyst undir borðum.
Að loknu borðhaldi var slegið upp
dansleik og skemmtum við okkur
fram eftir nóttu. — Ilulda
Rafíðnaðarsamband íslands:
Fordæmir íhlutun
ríkisins í mikil-
væg samningsákvæði
„ÞINGIÐ skorar á miðstjórn ASl
að vera sjálfri sér samkvæm og
veita stjórnvöldum fullt aðhald i
þvi skyni að þau standi við gefin
fyrirheit um að ekki skuli rýrður
kaupmáttur launafólks,“ segir
m.a. í ályktun um kjaramál, sem
samþykkt var á þingi Rafiðnaðar-
sambands íslands nýlega.
í ályktuninni er mótmælt „íhlut-
un ríkisvaldsins í mikilvæg samn-
ingsákvæði gildandi kjarasamn-
inga“ og síðan segir: „Óljós og
þokukennd fyrirheit stjórnvalda
um aðgerðir síðar á árinu í því
skyni að varðveita kaupmátt, sem
orðið hefði við óhefta verðbólgu,
breyta engu um eðli þessarar árás-
ar á frjálsan samningsrétt, ekki sízt
þegar hafðar eru í huga margítrek-
aðar yfirlýsingar ýmissa ráðherra
um að bráðabirgðalögin séu aðeins
upphaf þess sem koma skal, frekari
aðgerða sé þörf og von síðar á
árinu.“
Kvikmyndin Lilja sýnd
í finnska sjónvarpinu
ISLENZKA kvikmyndin Lilja. sem
byggð er á samnefndri smásögu
Halldórs Laxness, verður sýnd 4
sinnum i finnska sjónvarpinu á
næstunni. Ástæðan fyrir þessum
sýningafjölda er m.a. sú að komin
er út bók i Finnlandi sem ætluð er
til kennslu og ber nafnið Pohjo-
ismasisa Kertojia, en i bókinni eru
eingöngu smásögur sem hafa verið
kvikmyndaðar.
Smásagan Lilja er birt í heild í
bókinni og síðan er gerður ítarlegur
samanburður á kvikmyndinni og
sögunni. I bókinni er kvikmyndin
Lilja talin gott dæmi um hvernig
hægt sé að kvikmynda smásögu,
þannig að myndin lifi sjálfstæðu
lífi sem kvikmynd án þess að hallað
sé á söguna.
Höfundur bókarinnar. Pohjoism-
asisa Kertojia, er Reijo Rae. Leik-
stjóri Lilju er Hrafn Gunnlaugsson,
kvikmyndatöku stjórnaði Snorri
Þórisson og hljóðupptöku annaðist
Jón Þór Hannesson.
(Úr fréttatilkynningu.)
ITT
I i ts ión var pstæk i
litgæði
framtíðarinnar
Bræðraborgarstíg 1 - Sími 20080- (Gengiö inn frá Vesturgötu)