Morgunblaðið - 22.03.1981, Side 1

Morgunblaðið - 22.03.1981, Side 1
Sunnudagur 22. marz 1981 Bls. 49—80 Eflir módurástina Ég minntist á þetta við Mar- laugu og lét þá spurningu flakka, hvort sú raun að eignast svona barn gæti ef til vill þroskað móðurástina. „Eflaust eflir þetta margt í manni. Þegar dætur mínar voru ungar sá ég oft blindan dreng í nágrenninu. Það var eins og eitt- hvað kallaði mig til hjálpar, þegar ég mætti honum. Vangeta fatlaðra barna er svo yfirþyrmandi. Að einhverju leyti finnst mér sem þessi drengur hafi átt þátt í því að byggja mig upp. Ég átti tvær yndislegar dætur fyrir og góðan, hjálpsaman mann, þess vegna gæti aðstaða mín verið mikiu verri. Imyndaðu þér bara ef ég á tvítugsaldri væri að eiga þetta fyrsta barn og ætti kannski hin tvö á eftir. Maður gæti ekki hugsað það til enda. Dætur mínar hafa verið á þeim aldri að geta hjálpað. Ég hef líka verið það æeíte Marlaug og Vignir Lilja K. Möller: „EINU SINNIÓSKAÐIÉG ÞESS AÐ HANN DÆI...“ Hvað skyldu margir, sem eiga hraust og heilbrigð börn, leiða hugann að því, að allir eiga ekki því láni að fagna? — Ari fatlaðra er meðal annars ætlað að minna okkur á þetta. — Hvað gerum við eða getum gert fyrir þessa þegna þjóðfélagsins? — t>ví verður ekki svarað hér, en í meðfylgjandi grein er aðeins skyggnst á bak við „tjaldið“. — Fyrirsögn greinarinnar, „óheppnasta barn á íslandi“, er ekki nema hálfur sannleikur, því hvað skyldu mörg börn á Islandi njóta jafnmikillar hlýju, umhyggju og ástar sem það, sem hér er greint frá? „Hvort viltu strák eða stelpu?" „Mér er sama hvort það verður, bara að barnið sé heilbrigt." Meginþorri allra ófrískra kvenna svarar þessari almennu spurningu á svipaðan hátt. Og allar sem ég hef þekkt hafa samtímis gengið með vott af ótta. Hvað ef það verður ekki heilbrigt? Ekki fýsir mig að mála dökkar myndir inní tilveru þína, en stað- reyndin er samt sú, að þetta getur alltaf gerst. Það getur alltaf komið fyrir þig eða kannski barnið þitt. Og hvað þá? Hann er 14 ára en lítur út sem 8 ára Það upplifir enginn þessa raun á sama hátt. Kringumstæður, um- hverfi, þitt eigið uppeldi og hugar- ástand er undirstaðan í þeirri þraut að ala fatlað barn. Til þess að varpa ljósi á þessa spurningu, fór ég inní eitt svona umhverfi og heimsótti barn, sem er ef til vilí það óheppnasta hér á landi. Marlaug Einarsdóttir tók á móti mér á heimili sínu og bauð mér beint inní leikherbergi sonarins, Vignis Þórssonar. I fallegu, sól- ríku herbergi lá lítill drengur á dýnu og velti sér erginn fram og aftur. „Hann er með tannpínu og nýkominn úr aðgerð, þar sem skorið var í liðaböndin á fótunum. Það strekktist of mikið á lið- böndunum og nú þarf hann að ganga í spelkum í tvö ár,“ útskýrði Marlaug. „Þú hittir nokkuð illa á hann núna. Venjulega er hann mikið hressari, hoppandi út um allt húsið." Litli kroppurinn leit út fyrir að vera 8 ára, en var í raun 14 ára og örlítill skegghýjungur kominn í ljós. Marlaug reisti hann upp til hálfs og sýndi mér augun. í þeim voru augasteinar svipaðir pínulitlum perlum. Fæddist blindur „Hann fæddist með svo mikinn bjúg að augun voru alveg lokuð. Þremur vikum seinna var þeim þrýst upp og kom þá í ljós að hann var blindur," sagði hún um leið og Vignir rétti út hendurnar og klappaði mér á lærin, kíminn á svip. * „Ég gerði mér ekki ljóst í byrjun að hann væri andlega vanheill eða hreyfihamlaður. Hann var svo failegt barn. Ég átti hann á Fæðingarheimilinu, en strax dag- inn eftir var hann fluttur frá mér á Landspítalann. Það var hræðileg tilfinning, en annars er allur þessi tími mjög óljós. Að hann væri svona mikið fatlaður kom í ljós smátt og smátt. Það var ekkert að hjá mér á meðan ég gekk með hann, nema hvað hann fór illa í móðurkviði og legvatnið var mikið. Þegar að fæðingunni kom, héldu allir að hann væri að deyja. Allt var komið á síðasta snúning og hann var að því kominn að drukkna í vatninu. Eins árs og aðeins 5 kíló í fyrstu varð að gefa honum að borða með teskeið, því hann var með klofinn góm. Þá var hann einnig, og er reyndar ennþá, með magakrampa og tolldi ekkert í honum. Hann var alveg að tærast upp þegar við komum heim af spítalanum. Ég fikraði mig þá áfram og tókst loks að kenna honum að kyngja með því að æfa hann í að sjúga snuð. Ég gaf honum þá hunang að borða og stend á því fastar en fótunum að það hafi haldið í honum lifi. Fyrsta árið fór ég með hann þrisvar í viku í skoðun og hann léttist sjfellt. Á þessum tíma var hann einnig tekinn í gómaðgerð og var næstum dáinn úr lungnabólgu. En hann lifði það af, eins og svo margt annað sem eftir átti að koma, litli snáðinn minn,“ sagði Marlaug og kleip gamansöm í kinnarnar á Vigni, sem tók atlot- inu með brosi og reyndi að klípa til baka. Það flaug í huga minn að það hafi ekki verið hunangið, heldur sú gífurlega samstaða þeirra mæðgina, sem gerði hann þetta hamingjusaman í þessum undarlega heimi hans. heppin að hafa sama lækninn i gegnum tíðina. Ég hefði sennilega aldrei komist í gegnum þetta, ef Sævar Halldórsson hefði ekki ver- ið svona hjálpsamur og skilnings- ríkur. Hvers á barnið að gjalda? En hjá mér hafa öll börn verið velkomin og ef nokkur á tilveru- rétt fyrir mér, þá er það barn sem er mállaust, blint og gersamlega ósjálfbjarga." En nú var komin harka í málróminn: „Ég hef alla tíð haft andstyggð á fólki sem telur börn óvelkomin. Hvers á barnið að gjalda? Á mínurn uppvaxtarárum var sérlega mikið um þetta. Þegar konur komu saman yfir kaffiboll- unum, var ekki um annað talað en barnseignir, ekki um annað rætt en: Ertu ófrísk, ertu hrædd? Stöðug þungun og veik börn voru þeirra áhyggjumál daginn út og inn. Að horfa upp á þetta hefur orðið til þess að móta minar skoðanir í dag. Hjá mér skulu öll börn eiga tilverurétt." Óskaði þess að hann fengi að deyja „En hefurðu aldrei hugsað til þess að Vignir fengi að hverfa frá SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.