Morgunblaðið - 22.03.1981, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.03.1981, Blaðsíða 10
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981 Pottarím Umsjón: SIGRUN DAVÍÐSDÓTTIR Þejfar kjötbollur eru nefndar dettur víst flestum í huK bollur úr kjötfarsi, sem er búið til úr kjöthakki, eKKjum. mjöli eða brauömylsnu. En sinn er siður i hverju landi, ok víða tíðkast að búa til hollur úr óblönduðu kjöthakki, Kjarnan vel krydd- uðu eða fylltu með einhverju KÓðKæti. ÞannÍK búa t.d. íbú- arnir krinKum Miðjaröarhafiö Kjarnan til sínar bollur. Hér tek pk mið af slíkum bolium ... í þessar bollur getið þið notað hvaða hakk sem þið viljið, allt eftir smekk o.s.frv. En helzt þarf hakkið að vera magurt, því það er mun lystugra og bragðbetra, svo ekki sé minnzt á hollustuna. Annars er kjöthakk vandmeð- farin vara, því hakk skemmist mjög fljótt, svo aðeins ætti að kaupa það nýhakkað. Þess vegna skiptir miklu máli að verzla í búðum þar sem hægt er að vera fyrir, setti puttann á einn bitann og puttann síðan upp í sig, sleikti hann ánægjulega, kannski til að sannfæra við- skiptavininn um gæðin, og svar- aði síðan spurningu hans. Svona atvik verða ekki beinlínis til að efla trú og traust á viðkomandi verzlun ... Kálfahakk er tilvalið í kjöt- bollur, en fæst því miður ekki víða, en t.d. Kjötbúð Suðurvers býður oft upp á ljómandi kálfa- hakk. Þar má einnig fá góða kálfakjötsbita, sem eru tilvaldir til að steikja á pönnu. Sams konar bita má fá þar af lamba- kjöti, hreint lostæti... Það er einnig góða sögu að segja af nautakjötinu þeirra. Og ekki má gleyma lifrarkæfunni þar, sem þeir búa til sjálfir. Afgreiðslu- fólkið er hjálplegt og búðin skín af hreinlæti. En sem sagt, þið notið eitthvert gott hakk ... Góða skemmtun! Þessar kjötbollur eiga vel við hvunndags, þegar þið viljið hafa kjöt sem tilbreytingu frá fisk- inum. En þær eiga ekki síður við spari, t.d. á laugardögum eða sunnudögum, eða þegar gesti ber að garði. Með þeim er gott að bera gott brauð, ekki sízt ef það er heimatilbúið. Bollurnar eru bragðmiklar, svo annað meðlæti er óþarfi. Ef þið viljið samt sem áður meira með, er gott að hafa grænmetissalat. Skerið t.d. hvítkál smátt, ásamt t.d. gúrku og/eða papriku. Bætið kotasælu, sítrónusafa, nýmöluðum pipar og e.t.v. hvítlauk. Þar hafið þið mettandi salat. Hæfilega soðið pasta, spaghetti, er einnig góð viðbót. Og svo eru bollurnar ljómandi góðar kaldar ofan á brauð. 600 gr gott kjöthakk 5—10 ólífur, gjarnan grænar og fylitar, KJÖTBOLLUR öruggur um að hakkið hafi ekki legið yfir nótt, jafnvel þó í kæli sé. Það er aldrei of oft rifjað upp hvað góð meðferð og hreinlæti er nauðsynlegt í kringum mat og matseld. I vetur stóð ég við kjötborðið í matvörubúð. Af- greiðslustúlkan var að svara spurningu viðskiptavinar um ólystuga kjötbita, sem svömluðu í þykkum kryddlegi, svokölluðu marínaði. Hún gerði sér lítið Kjötbollur með ólífum og öðru góðgæti (Ilanda fjórum) Það eru ekki allir jafn hrifnir af ólífum, en í mat gefa þær bragð, sem jafnvel þeir, sem ekki kunna að meta ólífur, geta fellt sig vel við. Kapers er fyrirtak í ýmsan mat, t.d. kjötbollur, en auk þess gjarnan með fiski. Hvítiauk hef ég vist nefnt áð- ur ... grænar kryddjurtir eru góð viðbót í svona bollur. Þessa stundina held ég mikið upp á basil (basilikum). Svo er það bara sama gamla góða sagan um hugarflugið og dirfskuna. Hún á við í kjötbollugerðinni eins og annars staðar. 1—2 tsk. kapers, 1—3 hvítlauksrif, 1 tsk. basil, nýmalaður pipar, salt? 1. Setjið ofninn á 200°. 2. Skerið ólífurnar í smáa bita og setjið þær ásamt öllu hinu í hakkið. Hnoðið það svo allt samlagist vel. 3. Ég mæli eindregið með því að þið bakið eða glóðarsteikið bollurnar í ofni, fremur en að þið steikið þær í feiti á pönnu. Flestir borða þegar alltof mikið af steiktum mat, svo það er bezt að komast sem mest hjá honum. Mótið hakkið í litlar bollur, raðið þeim á smurt fat og setjið inn í heitan ofninn. 10—15 mín. eru nóg, ef bollurnar eru litlar og ofninn heitur. Einfalt, ekki satt... Ostfylltar bollur (Ilanda fjorum) Góður ostur er Ijómandi í mat, og það er auk þess skemmtilegt að matreiða úr osti. Utbúið hakk eins og hér er lýst að ofan. I stað kapers, getið þið t.d. notað 50 gr bita af reyktri skinku, brytjið hann smátt og sett í hakkið, eða kannski viljið þið hafa hvort tveggja, kapers og skinku? Fletjið hakkið út með höndunum, þunnt þarf það ekki að vera. Skiptið því í 12 jafna bita. Skerið bita af osti, setjið á hvern hakkbita, og mótið hakkið utan um ostinn, svo hann lokist inni. Síðan eru bollurnar, sem verða býsna myndarlegar, bak- aðar í vel heitum ofni, við 200—250°, þar til ykkur sýnist nóg að gert. Þá eru þær bornar fram eins og lýst er að ofan. Það er auðvitað ekki sama hvernig osturinn er. Þeir sem hafa vanizt því að kaupa ost í vænum bitum í ostabúð, annað- hvort á Snorrabrautinni eða á Bitruhálsi, eru víst sammála um að það er ekkert vit í öðrum kaupum, ef ostakaupin eiga að takast vel. Þá er hægt að biðja um geymdan ost, sem hefur fengið bæði ostleika (sbr. per- sónuleika) og bragð við geymsl- una. Auðvitað bragðið þið ostinn í búðinni. Ostur er lifandi vara. Ýmsir ostamenn halda því t.d. fram að osturinn hreinlega gefi upp öndina, missi bragð og einkenni, ef hann er settur í lofttæmdar umbúðir. Það þarf ekki flóknar tilraunir til að sanna slíkt fyrir sér og sínum í eldhúsinu heima ... BREYTT SIMANUMER frá og meö mánud. 23. mars nk. veröur símanúmer okkar i 82755 GRENSASUTIBU IÐNAÐARBANKA ÍSLANDS HF. Um leiö og ég hætti rekstri hárgreiöslustofu Siggu Dóru, Grímsbæ, Efstalandi 26, vil ég þakka viöskiptavinum góö sam- skipti á liðnum árum. Jafnframt óska ég nýja eigandan- um velfarnaöar í starfi. Sigríöur Dóra Jóhannsdóttir hárgreidslumeistari. Þaö tilkynnist hér með, aö undirrituö hefur tekiö viö rekstri hárgreiðslustofu Siggu Dóru, Grímsbæ, Efsta- landi 26. Hrönn Helgadóttir hárgreiöslumeistari. HEC Nippon Electric Co., Ltd. Japan er í hópi stærstu framleiðenda rafeindatækninnar BOOGARTUM 18 REYKJAVlK SlMI 27099 SJÓNVARPSBÚDIN Stereo Tuner -MW FM - Ljósadlóðumælar Magnarl • 2x35 RMS wött - Ljósadlóðumælar Magnari - 2x45 RMS wött - Ljósadlóðumælar Magnarl - 2x65 RMS wött - Ljósadlóðumælar Plötuspilarl - Dlrect Drlve - 65 dB - Seml automatlc Kassettutæki - Metal - Ljósadlóðumællr - Dolby Hátalarar - 3 way - 60 RMS wött - 40-35.000 Hz Hátalarar - 3 way • 60 RMS wött - 40-20.000 Hz Tónjafnarl - Graph. Equallzer - Tvöfaldur - Ljósadlóðum. Skápur • Stór - Glerhurölr Skápur - Minni 2250.- 2200.- 2600, 3550.- 2120.- 2460.- 2715, 3500.- 2240.- 1635, 915,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.