Morgunblaðið - 22.03.1981, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 22.03.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981 51 Alþjóðadagur fatlaðra í dag: Dagsins minnst með opnun sundlaugar Sjálfsbjargar ALbJÓÐADAGUR fatlaðra er í dag, 22. mars. og er það i 22. sinn. sem Alþjóðasamband fatl- aðra beinir huga almennings að hagsmunabaráttu fatlaðra með þessum hætti. Sambandið var stofnað á Ítalíu árið 1954. Nú eiga lönd í öllum heimsálfum aðild að Alþjóðasam- bandi fatlaðra, sem hefur aðsetur sitt í Sviss. Sambandið er aðili að Félagsmálastofnun Sameinuðu þjóðanna. Sjálfsbjörg, landssamband fatl- aðra, gekk í sambandið árið 1965. Sjálfsbjörg minnist alþjóða- dagsins nú með opnun sundlaugar Sjálfsbjargar við Hátún 12 í Reykjavík. Framkvæmdir við sundlaugina hafa gengið vel síðan þær hófust í júlímánuði 1979. Grunnurinn var steyptur árið 1967 og þar við sat í tólf ár vegna fjárskorts. Þegar hafist var handa að nýju var hið gamla skipulag endurskoðað og laugin stækkuð í 7x16% metra. Allt fyrirkomulag er miðað við þarfir fatlaðra, og hjálpartæki, svo sem lyftur og baðstólar, eru fyrir hendi. Lyfturnar, sem verða tvær, gefur Kiwanisklúbburinn Katla. Þar sem sundlaugin stendur nú fullbúin er hún hið glæsilegasta mannvirki og má með sanni segja að hún sé almenningseign, svo margir hafa lagt fé í sundlaug- arsjóðinn. Gjafir í sjóðinn nema nú rúmlega 92 milljónum gamalla króna. Utlagður kostnaður við sund- laugarálmuna er gkr. 343 milljón- ir og hafa aðalfjárveitingar, auk þess sem áður er nefnt, komið úr erfðafjársjóði ásamt árlegum byggingarstyrk frá Alþingi. Eftirtaldir aðilar önnuðust framkvæmdir: Teiknistofan hf., Verkfræði- stofa Guðmundar og Kristjáns, Verkfræðistofa Braga Þorsteins- sonar og Eyvindar Valdemarsson- ar, Raftæknistofa Ólafs Gíslason- ar, Blikksmiðjan Vogur, Bygg- ingameistari voru Jón Sigurðsson og Sveinn Guðmundsson, múrara- meistari Jóhann Lárusson, raf- verktaki Sigurður Leifsson, pípu- lagningameistari Sigurgeir Bjarnason, málarameistarar Hjálmar og Gísli sf., dúklagnir Veggfóðrarinn hf. Guðmundur Jóhannsson, bygg- ingameistari, hefur verið meistari Sjálfsbjargarhússins frá upphafi. Sjálfsbjörg, landssamband fatl- aðra, flytur alúðarþakkir öllum þeim mikla fjölda, sem á einn eða annan hátt hafa stutt byggingar- framkvæmdir. Sundlaugin verður til sýnis sunnudaginn 22. mars milli kl. 16.00 og 18.00. Inngangur um austurdyr. (FréttatilkynninK) Dr. Selma Jónsdóttir. forstóðumaður Listasafns tslands við nokkrar myndanna. Ljósm. Mbl. Emilía Listasafn íslands f ær grafikmyndir að gjöf LISTASAFNI íslands hafa nýlega borist merkar listaverkagjafir. Að- dragandi þeirra er sá að safnið hélt sumarið 1977 sýningu á verkum danska myndlistarmannsins Rob- ert Jacobsens. Við það tækifæri gaf hann safninu stóra vatnslitamynd og hefur nú enn á ný sýnt safninu þá velvild að gefa því 6 samstæðar grafíkmyndir sem hann kallar Rúnir og eru nýgerðar. Jafnframt kom hann því til leiðar að annar Dani, listmálarinn Paul Gadegaard, gaf safninu 2 grafíkmyndir. Þegar forstöðumaður safnsins var í Kaupmannahöfn nú á dögun- um vegna íslensku myndlistarsýn- ingarinnar sem Dansk-Islandsk Samfund gekkst fyrir í tilefni af opinberri heimsókn forseta íslands voru framangreind verk afhent forstöðumanninum. Ennfremur var þá afhent grafík- mynd eftir Preben Hornung, sem hann hafði áður gefið safninu. Þessar veglegu gjafir eru nú til sýnis í forsal safnsins á venju- legum sýningartíma, þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnu- daga kl. 13.30 til 16.00. (FréttatilkynninK) Þessi aug/ýsing er um hagkvæm kaup á S/EMENS /itasjónvarpstækjum Loksins eru hin heimsþekktu SIEMENS Jitasjónvarpstæki fáanleg á Islandi. Við spörum hástemmd lýsingarorð enda mælir SIEMENS vörumerkið með sér sjálft. Því fullyrðum við að þau standast allan gæða og verðsamanburð við litasjónvarpstæki sem aðrir bjóða. Þér getið byrjað á að athuga þetta ótrúlega hagkvæma verð: FÁLKIN N 'yfyðmtoQo* 'e&C SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670 20” Litasjónvarp kr. 8.140 Greiðsluskilmálar: útborgun kr. 3.300 afgangurásex mánuðum. Staðgreiðsluverð: kr. 7.570 22” Litasjónvarp: kr. 10.470 Greiðsluskilmálar: útborgun kr. 4.200 afgangurásex mánuðum. Staðgreiðsluverð: kr. 9.740 ' 26”Litasjónvarp:kr. 11.580 Greiðsluskilmálar: útborgun kr. 4.600 afgangurásex mánuðum. Staðgreiðsluverð: kr. 10.770

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.