Morgunblaðið - 22.03.1981, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981
79
Djass á mánudagskvöldið
í Stúdentakjallaranum
Á MÁNUDAGSKVÖLD leikur
Jazzkvartett Reynis Sigurðssonar
djass í stúdentakjallaranum.
Hefst „djammið" um kl. 21 og
stendur til 23.30. Allar almennar
veitingar eru þarna á boðstólum.
Auk stjórnandans, Reynis Sig-
urðssonar, sem leikur á víbrafón,
skipa kvartettinn þeir Ásgeir
Óskarsson trommur, Þórður
Árnason gítar og Tómas Tómas-
son bassi.
Leiklistarklúbbur Flensborgarskóla:
Frumsýnir „Jakob eða aga-
spursmálið“ - eftir Ionesco
Á sunnudag frumsýnir Leiklist-
arklúbbur Flensborgarskóla leik-
ritið „Jakob eða agaspursmálið",
„eðlistrúan kátleik" eftir Eugéne
Ionesco í þýðingu Karls Guð-
mundssonar. Sýnt er í Flensborg-
arskóla.
Leikritið „Jakob eða aga-
spursmálið" fjallar um fjölskyldu
eina. Sonurinn, Jakob, er upp-
reisnarmaður og neitar að aðlaga
sig að erfðavenjum og gervilífi
fjölskyldunnar. Hún (fjölskyldan)
vill steypa hann í ákveðið mót,
sveigja hann að sínum vilja og
kreista úr honum sálina og per-
sónuna.
Eugéne Ionesco er þekktur höf-
undur og er hann hvað þekktastur
fyrir svokölluð „absúrd-leikrit" og
hafa mörg leikrita hans verið sýnd
hér á landi, þar á meðal leikritin
„Nashyrningarnir", „Kennslu-
stundin og stólarnir" og „Sköllótta
söngkonan“. „Jakob og agaspurs-
málið" samdi hann 1958.
Alls fara 9 manns með hlutverk
í leiknum en i allt taka 20 manns
þátt í uppfærslunni. Leikstjórn er
í höndum Jóns Júlíussonar.
Úr leikriti Ionescos. „Jakob eða agaspursmálið“, sem Leiklistarklúbb-
ur Flensborgarskóla frumsýnir í dag.
Willie, Jeanette og Phil (Michael Ontkean, Margot Kidder og Ray
Sharkey) í myndinni „Willy og Phil“, sem Nýja bió frumsýndi í gær.
Nýja bíó frumsýn-
ir „Willie og Phil“
Á laugardag frumsýndi Nýja
bíó kvikmyndina „Willie og Phil“.
Leikstjóri og höfundur handrits
Paul Mazursky. Aðalhlutverk
leika Michael Ontkean, Margot
Kidder og Ray Sharkey.
Myndin fjallar um sérstætt og
órjúfanlegt vináttusamband
þriggja ungmenna, tilhugalíf
þeirra og ævintýri allt til fullorð-
insára.
Gamla bíó
frumsýnir
„Raddir“
Á laugardag frumsýndi
Gamla bíó nýja bandaríska
kvikmynd, „Raddir" (Voices).
Leikstjóri er Robert Markow-
itz. Aðalhlutverk leika Amy
Irving og Michael Ontkean.
Myndin fjallar um baráttu
og hamingjuleit heyrnarlausr-
ar stúlku.
Úr myndinni „Raddir“, sem
Gamla bíó frumsýndi í gær:
Poppsöngvarinn Drew Rothman
(Michael Ontkean) „talar“ við
mállausu stúlkuna Rosemarie
Lemon (Amy Irving).
Soroptimistaklúbbur Reykjavíkur:
Barna- og f jölskyldu
skemmtun í Tjarnarbíói
A SUNNUDAG heldur Sor-
optimistaklúbbur Reykja-
víkur barna- og fjölskyldu-
skemmtun í Tjarnarbíói til
ágóða fyrir starfsemi sína
og hefst hún kl. 14.
Fjölbreytt efni verður á
dagskrá: Sýnd verður kvik-
mynd, 2 barnapör úr Þjóð-
dansafélagi Reykjavíkur
sýna dans, Barnakór Sel-
tjarnarness syngur, börn
leika á hljóðfæri, Jóhann
Helgason syngur, Gerður
Hjörleifsdóttir les sögu og
fóstrunemar skemmta. Jör-
undur kynnir. Aðgangseyri
er í hóf stillt.
Margir Reykvíkingar
munu kannast við Soropt-
imistaklúbb Reykjavíkur,
sem er deild í alþjóðlegum
kvennasamtökum og hefur
starfað hér í borg um
rúmlega 20 ára skeið.
Söfnunarfé klúbbsins
hefur verið varið til aðstoð-
ar við fatlaða, til tækja-
kaupa á sjúkrahús, hjúkr-
unarheimilis aldraðra og
fleiri verkefna, sem Soropt-
imistar velja að styðja
hverju sinni.
Vantar þig eldavél?
Ef svo er, viljum viö benda þér á að:
★ Viö framleiðum eldavélar sem hafa
þjónaö íslenskum húsmæörum í 44 ár.
★ í dag er þaö þessari framleiðslu aö
þakka aö innfluttar heimiliseldavélar eru
án tolla og vörugjalds (öll önnur heimilis-
tæki eru meö 80% toll og 24% vöru-
gjald).
★ Viö bjóöum 5 liti á eldavélunum okkar.
★ Viö bjóöum litun á öörum heimilistækj-
um.
Hafnarfirði, símar 50022, 50023, 50322
Austurveri, Háaleitisbraut 68. Sími 84445.
Mars-tilboð
5% staðgreiösluafsláttur
Greiöslukjör: 25% í útborgun, eftir-
stöövar á 4—6 mánuöum. Um-
boösmenn um land allt.
Líttu inn — þaö borgar sig.
Poppy-rauð
meö eöa án klukku
Mál: HxBxD = 90x60x62 cm