Morgunblaðið - 22.03.1981, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.03.1981, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981 69 „Arc of a Diver“ Steve Winwood Ég verð að viðurkenna að ég hef alltaf verið veikur fyrir sðng Steve Winwoud. allt frá þvi er hann var í Spencer Davis Group og um Traffic, Biind Faith. Traffic aftur og nú sóló. Steve W'inwood vann „Arc of a I)iver“ fullkomlega einn (þ.e. fyrir utan texta). Hann var upptókustjóri. upp- tökumaður. söng allar raddir. lék á öll hljóðfærin og samdi öll lögin! Þetta er sjaldan þess vald- andi að plata verði góð! En með „Arc of a Diver“ heldur hann þessu öllu mjög einföldu þannig að það virðist takast. svo langt sem það nær. Söngur Steves er vitanlega langsterkasta hliðin hér. Hann er enn jafn sjarmerandi með sína útgáfu af Ray Charles- rödd, enn unga og sterka. Gítar og hljómborðsleikur er líka góður og bassinn sleppur vel, en trommuleikur hans er full slakur og hefði Jim Capaldi gert þessu rétt skil eins og hann gerði alltaf í töfrahljóm- sveitinni Traffic. Platan byrjar á góðu lagi „While You See a Chance“ sem þegar er komið út á lítilli plötu, létt og Ijúft og nokkuð ólíkt fyrri lögum hans. „Arc of a Diver“ er klassískt Traffic og gott, en diskóhreim- urinn af „Second Hand Wo- man“ er hvimleiður á Steve Winwood-plötu. „Slowdown Sundown“ byrjar með kassa- gítar ljúft og fallegt með seið- andi og þroskaðri rödd Steve. Lagið styrkist svo með hljóm- borðum, bassa, trommum og fleiri röddum (allt Steve). A hlið tvö eru síðan þrjú lög sem standast ekki samanburð við Traffic né Blind Faith plöturn- ar þó seinni tínia Traffic stíll- inn «é fyrir hendi. Eflaust hefði mátt gera mun betri plötu úr þessu efni ef fleiri hefðu að hcnni unnið og getað skotið að hugmyndum. Textarnir á „Arc of a Diver“ - eru heldur ekki í sama gæða- flokki og textar Jim Capaidi hér áður. En þrátt fyrir það,- að Winwood hafi að vissu leyti brugðist björtustu vonum mín- um er platan ljúf og þægileg áheyrnar og lögin „While You See a Chance", „Arc of a Diver“ og „Slowdown Sundown" með hans betra efni. En Steve með Eric Clapton á gítar, eins og á hinni frábæru Blind Faith-plötu verður seint endurtekið. Hvað þá allar frábæru Traffic-plöturnar. Kannski tekst betur næst, því þetta er ekki nóg til að duga! hia jasta ttaf justu PLÖTUNUM Þegar greinin um væntanlegar plötur birtist i sfðasta þætti, var hún nokkuð farin að eldast þar sem hún hafði ekki komist inn i þættinum þar á undan og svo hirtist síðasti þáttur nokkuð seint. Hvað um það, við bætum það upp með nokkrum viðbótar- fréttum um væntanlegar plötur og byrjum auðvitað á Beatles- plötum og plötum frá John, Paul, George og Ringo. • Hvað varðar John Lennon, var ákveðið fyrir lát hans að gefa út John Lennon Complete, þ.e.a.s. allar stóru plöturnar hans sem gefnar voru út hjá EMI í einum kassa. Um þessar mundir er DJM að gefa út þriggja laga plötu með lögum sem tekin voru upp á hljómleikum Elton John 28. nóv- ember 1974 ásamt John Lennon. Þessi lög eru „I Saw Her Standing There“, „Lucy in the Sky with Diamonds" og Whatever Gets You through the Night“, en fyrsta lagið, sem er reyndar eftir Paul og sungið af John, er eina lagið sem áður hefur komið út, á bakhliðinni á „Philadelphia Freedom" sem Elton John gaf út í febrúar 1975. • Tvær viðbætur eru við listann yfir væntanlegar plötur frá Paul McCartney! í október, nóvember 1980, var Paul önnum kafinn við að ganga frá plötu sem lengi hefur staðið til að gefa út „Cold Cuts“, en þar eru lög sem hafa komið á bakhliðum lítilla platna svo og afgangslög af stórum plötum. í lok desember 1979 voru haldnir styrktarhljómleikar til styrktar Kampútseu, þar sem Wings komu fram m.a. eins og Who, Rockpile, Clash, Elvis Colstello, Ian Dury & The Blockheads og Queen. Vænt- anlegt er þriggja platna albúm frá hljómleikunum þar sem Wings og Rockestra (Wings + Pete Towns- hend, Kenny Jones, Bruce Thomas, Robert Plant, John bonham, John Paul Jones og James Honeyman Scott). Lögin sem Wings spila á þessari plötu eru: „Got to Get You into My Life“, „Every Night“ og Coming Up“ en Rockestra-lögin eru: „Lucille", „Let It Be“ og „The Rockestra Theme". Wings-platan sem er verið að taka upp í stúdíó George Martins í Montserrat í Vestur-Indíum er komin langt á leið undir leiðsögn Paul og George Martins. Að þessu sinni hefur Paul boðið ýmsum að leggja hönd á plóginn og leika m.a. á plötunni Ringo Starr, Elton John, og væntanlega Stevie Wond- er og George Harrison. • Ringo Starr-platan sem ég minntist á síðast hefur fengið titil (Líklegan, allavega), „Private Property" eftir samnefndu lagi Paul McCartneys. Upptöku stjórn- uðu Paul, George Harrison og Stephen Stills og á Paul nokkur lög á plötunni, sem ætti að koma fljótlega út • Plata George Harrisons var ranglega kölluð „Summer in Eng- land“ hún á að heita „Somwhere in England". Platan var upphaflega á áætlun í nóvember, síðan desem- ber, og síðan janúar en er nú á lista yfir marsplötur frá WEA: George virðist hafa endurblandað allt efnið að því er virðist. Harrison er ekki frekar iðjulaus en hinir, því í júlí á önnur plata frá honum að koma út. Sú mun heita „Time Bandits" og er tónlist við samnefnda kvikmynd. • Fimm gömul Beatles lög fundust í Abbey Road-stúdíóinu þegar upp- boðið fræga á munum stúdíósins var i október. Eru þetta lög með upptökum af lögum sem Beatles gáfu aldrei sjálfir út heldur lánuðu öðrum eins og Cillu Black, Four- most, Peter & Gordon o.fl. til að gera vinsæl. EMI hefur óopinber- lega gert því skóna að þessi lög, sem eru fullunnin komi út á þessu ári. Og tengt Beatles. Danny Laine (Wings) er að gefa út sólóplötu „Japanese Tears" og fjallar titil- lagið auðvitað um atburðinn í Japan í byrjun síðasta árs. En það sem meira máli skiptir, á plötunni eru þrjú óútgefin Wings-lög, „I Would Only Smile", (frá 1973), „Weep for Love“ (frá ’79) og „Send Me the Heart" (frá ’74). • Who-platan sem minnst var á síðast hefur fengið heitið „Face Dances“ og kemur út 23. mars. „You Better You Bet“ hefur verið gefið út á lítilli plötu. Þetta er fyrsta plata Who frá því er Keith Moon lést. • Ian Hunter/Mick Ronson/Mick Jones-platan var tekin upp á 17 dögum og kemur út í apríl. Heitir hún „Theatre of the Absurd" og leikur Mick Jones auk Topper Headon (líka Clash) í nokkrum laganna, en meðan heita eru „Old Records Die Hard“, „Noises" og „Lisa Likes Rock’n’Roll". • Stúdíóplatan sem Mick Jagger lofaði í febrúar kemur ekki. I þess stað er væntanleg í sumar ný stúdíóplata með nýuppteknum lög- um þannig að enn bætist í safn útgefinna laga hjá þeim. Að sögn Bill Wyman gæti þessi nýja plata hæglega verið þeirra besta, alla vega að hans mati. Lögin sem búið er að vinna eru 12. Bill Wyman er von bráðar að gefa út þriðju sólóplötu sína „Green Ice“ sem er tónlist við samnefnda kvikmynd sem Ryan O’Neal leikur aðalhlutverk í. Bee Gees eru byrjaðir að taka upp plötu sem á að koma út í lok sumarsins. hia.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.