Morgunblaðið - 22.03.1981, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.03.1981, Blaðsíða 12
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981 Elisahet Erlintfsdóttir borKerður Inxólfsdóttir og Gérard Souzay. Elísabet F. Eiríksdóttir Elín Sigur- Jónas Injfiinundarson ojí Ruth L. Maj?nússon. vinsdóttir. 99Sérðu ekki hvernig mánasilfrið sindrar á Souzay leiðbeinir Ágústu Ájjústsdóttur. vatnsfletinum ?64 Grein: Áslaug Ragnars Myndir: Ragnar Axelsson „Nei, nei, þetta gengur ekki. Hugsaðu um ljóðið á meðan. Þú ert ekki að syngja óperu. Þetta er viðkvæmt, rómantískt ljóð. Sérðu ekki hvernig mánasilfrið sindrar á vatnsfletinum? Þú mátt ekki vera að skima út um allan sal. Mána- skinið er ekki þar. Það ert þú sem átt að koma með mánaskinið þangað. Líttu inn í þitt eigið hugskot og skimaðu í kringum þig þar. Þá sérðu það og þá geturðu lýst því fyrir fólkinu í salnum. Aftur!“ Staðurinn er hátíðarsalur Menntaskólans við Hamrahlíð og stundin síðdegi í byrjun vikunnar. Sá, sem talar er söngvarinn heimsfrægi, Gérard Souzay. Hon- um liggur ekki hátt rómur þegar hann talar og það vottar hvorki fyrir þykkju né óþolinmæði þegar hann gagnrýnir. Hann leggur áherzlu á orð sín með handahreyf- ingum og er í senn uppörvandi, ákveðinn og nærfærinn. Söngvarinn byrjar aftur, en fljótlega kemur önnur bending um að ekki skuli lengra haldið. Undir- leikarinn hættir og þegar sönjjvar- inn lítur á læriföðurinn bregður fyrir augnablikSörvæntingu í svipnum. „Stígandinn má ekki vera svona mikill og svo væri betra að hafa þetta aðeins veikara," segir Souzay. Og nú gengur allt eins og í sögu. Það fer ekki fram hjá áheyrendum að á skammri stundu hefur framförin orðið meðv ólík- indum, og þegar söngnum er um það bil að ljúka er þess helzt að vænta að Souzay leggi blessun sína yfir flutninginn. En um leið og hann lætur viðurkenningarorð falla kemur hann með fleiri at- hugasemdir, bæði til söngvara og undirleikara. í salnum er margt um manninn. Andrúmsloftið er þrungið eftir- væntingu eða því sem kannski má kalla jákvæða spennu. Hingað kemur fólk til að læra, bæði þeir, sem hafa atvinnu af að iðka tónlist og áhugafólkið. Þorgerður Ingólfsdóttir hefur umsjón með námskeiðinu fyrir hcnd Tónlist- arskólans og vakir yfir því sem fram fer, en áður en söngnám- skeiðið hófst var Dalton Baldwin píanóleikari með samskonar til- sögn fyrir undirleikara. „Um árabil hef ég gert mikið af því að halda svona námskeið hér og þar um heiminn," segir Gérard Souzay þegar hann gefur sér tóm til að ræða við blaðamann. „Ég vildi gjarnan hafa meiri tíma, sá tími sem hér er til umráða veitir ekki tækifæri til að fara eins nákvæmlega í námsefnið og æski- legt er. En það er hægt að gefa ábendingar, sem koma að gagni varðandi framhaldið. Hér er mikið um mjög góðar raddir. Það er að sjálfsögðu vandasamt að nefna einstaka söngvara, en Ingveldur Hjaltested hefur mjög sérstaka og mikia rödd, — eina af þessum norrænu röddum, sem njóta sín sérstaklega vel í Wagner. Svona miklar sópranraddir eru ekki á hverju strái og það er mikilvægt að fara vel með svo sérstætt efni. Þjálfunin getur skipt sköpum um það hvað verður úr svona rödd. Annar söngvari, sem ég hef mik- inn áhuga á, er Anna Júlíana Sveinsdóttir. Hún hefur mjög góða rödd, frábært „instrúment", en samt er það ekki röddin sjálf sem gerir þessa stúlku svo sér- staka. Það er hún sjálf, persónu- leikinn, eðlið. Hún er listamaður fram í fingurgóma, tónlistin flæð- ir í gegnum hana og hún gæðir verkin lífi og setur í þau svo mikla sál að sjaldgæft er.“ Við gáfum okkur á tal við nokkra söngvara og spurðum þá álits á námskeiðshaldinu. Elísabet Erlingsdóttir taldi til- sögn Souzays mjög mikils virði en benti á að tíminn væri alltof naumur. í sama streng tóku Ing- veldur Hjaltested og Ágústa Ágústsdóttir, en varðandi formið voru skoðanir skiptar. Elín Sigurvinsdóttir var að því spurð hvernig það væri að taka tilsögn fyrir framan fullan sal af gagnrýnum áheyrendum. „Það er alveg voðalegt. Ég var hreinlega að deyja úr hræðslu, og það var ekki fyrr en alveg í lokin — þegar minn tími var á enda — að mér var að byrja að líða sæmilega. Ég er ekki mjög hrifin af þessu formi, held að í mörgum tilvikum næðist betri árangur ef tilsögnin færi ekki fram að við- stöddum fjölda fólks. Þetta er einhvers konar sambland af kennslustund og konsert." „En nú er ekki ríkjandi konsert- andrúmsloft hér?" „Nei, sjálfsagt finnst áheyr- endum það ekki, en söngvarinn upplifir það allt öðru vísi,“ sagði Elín. Undir það tóku fleiri og öllum bar saman um að tíminn væri sorglega naumur. „En við því er lítið að segja," sagði Ingveldur Hjaltested. „Það er ótrúlega mikils virði að fá yfirleitt að opna munninn fyrir svona mann.“ í námskeiðinu tóku þátt 11 söngvarar, þau Anna Júlíana Sveinsdóttir, Ágústa Ágústsdótt- ir, Elín Sigurvinsdóttir, Elísabet F. Eiríksdóttir, Elísabet Erlings- dóttir, Garðar Cortes, Ingveldur Hjaltested, John Speight, Ruth L. Magnússon, Sigrún V. Gestsdóttir og Sigrún Björnsdóttir. Þátttakendur í undirleikara- námskeiði Dalton Baldwins voru Agnes Löve, Guðrún A. Kristins- dóttir, Jónas Ingimundarson, Jón- ína Gísladóttir, Jórunn Viðar, Krystyna Cortes, Lára Rafnsdótt- ir og Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.