Morgunblaðið - 22.03.1981, Side 6

Morgunblaðið - 22.03.1981, Side 6
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981 Davíð Krlirufsson. lektor, Jonna Louis-Jensen prófessor og ÁslauK Matthíasdóttir Svane, sem sér um skrifstofuhaldió í Árnasafni, lögðu frá sér vinnu til að heilsa upp á íslendinKa á ferð. Hér má sjá múra JerikoborKar falla. Úr islenska handritinu Stjórn frá 14. öld. Þessi mynd er af einu póstkortinu sem Árnasafn í Kaupmannahöfn Kefur út. ísienzkt miðaldahandrit, sem inniheldur NjálssöKu. Eitt af póstkortunum, sem Árnasafn hefur gefið út. tófmnfe rtfflfittt^fl ttbffgtrru töfffltfút eeefl > I tifjrtfot'&nettm ttofifeöttí pw ee art4 (otnc vHtn petrn nt^ )5r \m fttítjpffóTÍimt^ttrðtttír íttt-t| má niHSttbot^ lertcfo crfrqö A^ofttmtt öbtttttír gm atrtttflf |tt puöfeftatk ftottttttöftttfff Handrit Ijósmyndað í Árnasafni í Kaupmannahöfn. Þarna hittum við starfsfólk, vís- indamenn, lektora við háskólann, Ijósmyndara og sérhæft fólk í með- ferð handrita. Á móti okkur tók Peter Springbors, forstöðumaður Árnasafns, svo og eftirmaður Jóns Helgasonar í prófessorsstöðu, Jonna Louis-Jensen, sem talar hreina ís- lenzku. í hópi lektoranna sex eru tveir íslendingar, þeir Davíð Erl- ingsson og Eyvindur Eiríksson. Og fleiri Islendingar eru þarna að rannsóknastörfum. Við orðabókina, sem síðar verður getið, vinna t.d. sem stendur Jón Þór Jóhannsson og Aldís Sigurðardóttir. Að ógleymd- um prófessor Jóni Helgasyni, sem var þarna á vappi með bókahillum, sjálfum sér líkur. Kvaðst bara vera að draugast, þegar ég hafði orð á því að hann væri enn að vinna, kominn yfir áttrætt. Og svaraði út úr, þegar á hann var borið að hann væri að vinna að útgáfu á síðasta bindi af íslenzkum fornkvæðum. Sagðist vera kominn með vatnsgraut í heilastað og ekkert finna í þessum bókahillum. Ekki væri hann fyrr búinn að læra á þær geymslur, en einhver væri búinn að umbylta öllu. Við gengum um stofnunina í fylgd þessara ágætu leiðsögumanna. Fór- um um safn og í geymslur, þar sem nýjustu tækni er beitt við varð- veizlu. Komum þar sem unnið er að því að Ijósmynda öll handritin áður Tólf binda orða- bók yfir ekki íslenzk í þetta skipti. En þarna hefur af elju og hæfni verið gert við handrit, sem voru á leið til Islands og jafnvel handrit fyrir íslenzkar stofnanir. Var okkur sagt að stofn- unin hefði úr að spila til undirbún- ings heimsendingar handritanna ‘/i milljón danskra króna, sem er nokkurn veginn sama upphæð í íslenzkum nýkrónum og fer mestur hlutinn í viðgerðir og ljósmyndun. Svo sem samningar segja fyrir um, eru teknar vandaðar ljósmyndir af öllum íslenzkum handritum áður en þau fara til íslands. Og því hægt að vinna áfram með þau á báðum stöðum. Hefur afhendingin sinn stöðuga, örugga framgang. Nefnd manna frá báðum löndum hittist reglulega og gengur frá lista yfir þau handrit, sem fara skuli í hvert sinn. Af hálfu íslendinga eru í nefndinni Jónas Kristjánsson og Magnús Már Lárusson eða Ólafur Halldórsson, en af hálfu Dana Christen Westergaard Nielsen og Ole Widding. Þessi nefnd kemur sér saman um lista yfir næstu handrit til afhendingar, leggur hann fram, forsætisráðherra Dana undirritar hann og Árnasafn fær fyrirmæli frá menntamálaráðuneytinu um það hvaða handrit skuli búa til brottfar- ar. Þannig fara handritin í smá- skömmtum, eftir því sem þau eru tilbúin. Ávallt með skipi og aldrei nema fá í einu. Frá því fyrstu handritin fóru frá „Det arnam- agnæanske institut" og Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn til Stofnunar Árna Magnssonar á ís- landi mun vera búið að senda um 830 handrit. Ekki kváðust menn vita hve mörg þau handrit yrðu alls, sem endanlega færu til íslands. Starfi skiptanefndar er ekki lokið og í afhendingarlögunum frá 1964, sem danska þingið samþykkti, var ákveðið. að afhenda þau handrit, sem væru að efni til „islandsk kultureje" eða íslenzk menningar- eign. Svo nefndinni er ærinn vandi á höndum um túlkun. En ekkert liggur á, gott samstarf er við íslendinga um málið, og tóm til að ljósrita, gera við og ganga vel frá því sem fer. norrænt mál • 40 ára undirbún- ingsstarf Kannski vakti mesta athygli okkar orðabókin mikla, sem þarna er verið að vinna að. Raunar grunar mig, að íslendingar hafi ekki gert sér jafn títt um hana og efni standa til, og margir vita ekki einu sinni um tjlvist þessa merka verks. Á tímabili, eftir að handritadeilunum var lokið, voru uppi raddir í Dan- mörku í þá veru að réttast væri að íslendingar tækju við orðabókar- vinnunni líka og fengju orðabók- arspjöldin send með handritunum. en sá kaleikur var frá okkur tekinn, enda dýrt og mikið viðfangsefni. Þetta er vísindaleg orðabók um til siðaskipta en þau fara til Islands, svo og önnur handrit. Er þarna í Árnasafni líklega komið eitt stærsta safn ljósmynda af íslenzkum handritum, sem nokkurs staðar er til. Auk íslenzku handritanna úr Árnasafni og handrita úr öðrum norrænum söfnum, sænsk, rtorsk og dönsk, hefur ljósmyndadeildin í Árnasafni tekið að sér vinnu fyrir erlenda háskóla, svo sem ljósritun á grísk- um og latneskum miðaldatextum, á indverskum textum á pálmalaufs- handritum, á fornum landabréfum o.fl. Er þar alltaf verið að gera tilraunir með nýja tækni til að ná sem mestu fram á handritunum. Við sáum t.d. merka kvartzlampa og tæki til myndunar og lestrar með útfjólubláu ljósi, sem ég kann engin skil á. Þetta gerir nú fært að vinna með dýrmæt gömul handrit, án þess að mikið mæði á þeim. Og mun jafnvel stundum vera betur hægt að lesa úr þeim þannig. Þá var litið inn í viðgerðardeild- ina, þar sem Birgitte Dall ræður ríkjum, og var aðstoðarfólk hennar að gera við skemmd miðaldahandrit einhvers staðar utan úr heimi — Danskir blaðamenn spurðu forseta vorn á hinum fræga blaðamannafundi í Danmörku, hvernig handritunum liði, þeim sem komin væru til Islands og hvernig meðferðin á þeim væri. Við fimm íslenzkir blaðamenn litum inn í „Det Arnamagnæ- anske institut“ til að sjá hvernig fólk og handrit hefðu það þar, þegar við vorum stödd í Kaupmanna- höfn skömmu áður. Og sáum, að bæði eru handrit þar vel geymd og mikið með þau unnið. En Arnasafn flutti fyrir 3 árum úr Konunglega bibliotekinu í miðborginni og í hinn nýja Kaup- mannahafnarháskóla úti á Amager. Er það til húsa við Njálsgötu og hefur góðar nútíma geymslur og vinnuaðstöðu. Enda er þetta víðtæk rannsóknar- stofnun og kennslustofnun með margháttaða starf- semi, fyrir utan það hlutverk sem við einblínum gjarnan á, að undirbúa og afhenda íslenzku handritin. Þar er jafnan að störfum hópur fræði- manna víðs vegar að úr heiminum — t.d. er þar nú fólk frá Japan, Frakklandi og víðar — og vinnur að rannsóknum og útgáfum á forníslenzku efni. Litið inn á Árnasafn:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.