Morgunblaðið - 22.03.1981, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981
55
Úr islenzku laKahandriti, Heynesbók, sem er i Árnasafni í Höfn. Á myndatextanum seKÍr: Hér ligK
ég drukkinn/Hér sit ég sofandi og dauðadrukkinn/Nú get ég ekki drukkiö meira.
íslenzkt mái hið forna, allt frá
upphafi ritaðs máls um 1150 og
fram að prentöld um 1540 og úr
norsku máli til 1370, þegar norskan
fór verulega að víkja frá fornmálinu
norræna. Þetta verk hófst fyrir 40
árum eða 1939, og hefur nú verið
gerð áætlun til menntamálaráðu-
neytis Dana um útgáfu á orðabók-
inni í 12 bindum á tímabilinu frá
1982 til 1998. Aftur er kominn
skriður á málið undir forustu dr.
Björn Hagströms, sem síðan haustið
1978 hefur verið vísindalegur aðal-
ritstjóri „Den Arnamagnæanske
Kommissions Ordbog", eins og orða-
bókin er kölluð. Tók við því starfi af
dr. Ole Widding. Síðan 1976 hefur
orðabókin verið til húsa í Árna-
stofnun á Amager, og er þar farið að
undirbúa útgáfu.
I 40 ár hefur verið unnið að
orðtöku og til orðið mikið magn af
orðaseðlum. Þarna munu nú vera
komnir um 900 þúsund orðaseðlar,
stafrófsraðaðir í 60—70 þúsund
uppsláttarorð. Mátti sjá þetta safn í
75 skúffum í stálskápum þarna í
Árnasafni. Verð ég að segja, að við
urðum agndofa og hálf skömmustu-
leg yfir því hve lítt þekkt þetta
merka verk er á íslandi.
Dr. Björn Hagström var þarna
staddur og veitti okkur svör. Hann
sagði m.a. að þeim orðabókar-
mönnum væri nokkur vandi á hönd-
um að velja það tungumál, sem
orðabókin verður á. Þegar í upphafi
voru ræddar áætlanir og aðferðir
við útgáfu verksins, var ákveðið að
þýðingar og skýringar skyldu vera á
ensku. Þá hafði Stefán Einarsson í
Baltimore verið skipaður aðalrit-
stjóri, en heimsstyrjöldin hindraði
hann í að koma til Danmerkur, svo
að fjórir aðrir ritstjórar unnu að
orðabókinni í hlutastarfi til 1946. í
reynd hafa allar athugasemdir og
raunar allt verkið verið unnið á
dönsku. Vegna þessa var gerð könn-
un meðal fræðimanna víðsvegar um
heim og í framhaldi af því er hallast
að því að hafa orðabókina mestalia
á Norðurlandamáli og þá helst
dönsku, en hafa svo með orðalykla á
ensku.
Fjórir áratugir virðast kannski
langur tími til að safna efni í
orðabók. En ef 40 ár eru 9000
vinnudagar, segir dr. Hagström, og
orðabókin hefur að meðaltali aukist
um 100 orðaseðla á dag síðan 1939,
þá gefur það góða hugmynd um
framvindu verksins. Og nú stendur
fyrir dyrum að breyta þessum 900
þúsund orðaseðlum í 12 500-síðna
bindi. Reiknast honum svo til að það
taki 18—19 ár. Með fjórum ritstjór-
um í fullu starfi og öðru starfsfólki
ætti að vera hægt að vinna úr
þessum 900 þúsund orðaseðlum á 16
árum og síðan þarf 3 ár í prófarka-
lestur og útgáfustörf. Þetta er
ekkert smáverkefni. En dr. Björn
Hagström segir það ekkert óvenju-
legt að vísindalegar orðabækur taki
tíma. Orðabókin yfir danskt mál tók
40 ár, stóru þýzku orðabókinni, sem
byrjað var á 1850, var lokið 1960,
eftir meira en 100 ár og Sænska
akademían tók ákvörðun um útgáfu
orðabókar yfir sænskt mál 1786,
fyrsta heftið kom út 1893 og það
síðasta kemur varla á þrykk fyrr en
eftir árið 2000. í þessu ljósi verðum
við að líta á vinnuna við „Den
arnamagnæanske Kommissions
Ordbog", segir hann.
Þarna hafa verið orðteknar ákaf-
lega umfangsmiklar bókmenntir.
Ekki er aðeins um að ræða hinar
frægu íslendingasögur, svo sem
Njálssögu, Egils sögu Skallagríms-
sonar, Gunnlaugs sögu Ormstungu,
Gísla sögu Súrssonar, Laxdælasögu
o.s.frv., heldur er þar t.d. líka
ríkulegt magn af kristilegum (kaþ-
ólskum) og vísindalegum bókmennt-
um frá þessum öldum, eða fram til
1540. Þarna eigum við semsagt von í
orðabók yfir allt, sem talað var hér
og ritað á þessum tíma, sem geyma
mun íslenzka fornmáliö, þótt við
Texti og ljós-
myndir E.Pá.
kunnum að fjarlægjast það og
gleyma orðum í tímans rás. Þessi
orðabók nær aftur að siðaskiptum,
en síðan tekur við orðabók Háskóla
íslands, sem unnið er að í Árnrgarði
í Reykjavík. Og ætti þá vel að vera
séð fyrir þessum þætti íslenzks
máls.
Þessi heimsókn í Árnasafn í
Kaupmannahöfn varð okkur ís-
lenzku blaðamönnunum ákaflega
fróðleg og gaman að hitta þar
starfsfólk, sem lagði frá sér vinnu
og gaf sér tima til að heilsa upp á
okkur og sýna okkur. Það var gaman
að sjá — og þakkarvert — að í
Danmörku er hópur fólks, sem hefur
búið sig undir að gera það aö
ævistarfi sínu að gefa út íslenzk
handrit og mikla orðabók um ís-
lenzkt fornaldarmál, sem er þá
viðbót við það sem unnið verður hér.
Viðstaðan í Árnasafni í Kaup-
mannahöfn var stutt og því skortir
þekkingu og upplýsingar til að segja
nánar frá þessari merku stofnun.
- E.Pá.
Fréttamenn útvarps, Þóra Kristin Jónsdóttir og Hallgrimur
Thorsteinsson. ræóa við dr. Bjorn Hagstrom, ritstjóra norrænu
orðabókarinnar og Jón Helgason prófessor og konu hans Agnete
Loth.
Fenrisúlfur og Yggdrasill. Úr ungu Snorra-Eddu handriti í
Árnasafni. Það er frá 1680.
Furu & grenipanell.
Gólfparkett — Gólfborö —
Furulistar — Loftaplötur —
Furuhúsgögn — Loftabitar
— Haröviöarklæöningar —
Inni- og
eldhúshuröir
Plast og
spónalagöar
spónaplötur
HARÐVIÐARVAL HF
Skemmuvegi 40 Kópavogi 74111.^
Verð aðeins kr.
6.100.-
með flugi, gistingu, hálfu fæði,
rútuferðum og fararstjórn.
Samvinnuferóir - Landsýn
AUSTURSTRÆT112 - SÍMAR 27077 & 28899
6 dagar í Dublin og 8 daga ferð um marga
þekktustu golfvelli Irlands.
Fyrsta flokks hótelgisting og örugg farar-
stjórn Kjartans L. Pálssonar.
Drauma.— x
GOLF á Irlandi
17. apríl - 1. maí
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU