Morgunblaðið - 22.03.1981, Síða 20

Morgunblaðið - 22.03.1981, Síða 20
68 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981 ínsœldarlistar ISLAND Stórar plötur 1 1 LAND OF GOLD...Goombay Dance Band 2 2 DOUBLEFANTASY ................. John Lennon / Yoko Ono 3 4 GREATEST HITS ...........Dr. Hook 4 5 SUN OF JAMAICA .. Goombay Dance Band 5 9 MAKING WAVES .............Nolans 6 8 REMAIN IN LIGHT .....Talking Heads 7 7 SANDINISTA ...............Clash 8 10 LADY ................Kenny Rogers 9 - LIFE IN THE BUSH OF GHOSTS ..... Brian Eno / David Byrne 10 - KINGS OFTHE WILD FRONTIER ...... Adam & The Ants BRETLAND Stórar plötur 1 1 FACE VALUE ...............Phil Collins 2 2 DOUBLE FANTASY ..................... John Lennon / Yoko Ono 3 4 DIFFICULT TO CURE ..........Rainbow 4 5 VIENNA......................Ultravox 5 3 MOVING PICTURES ...............Rush 6 - THE JAZZ SINGER.........Neil Diamond 7 6 KINGS OFTHE WILD FRONTIER........... Adam & The Ants 8 7 DANCE CRAZE ...................Ýmsir 9 - STRAY CATS ................Stray Cats 10 10 MAKING MOVIES.............Dire Straits Litlar plötur 1 1 SHADDUP YOU FACE .........Joe Dolce 2 2 VIENNA......................Ultravox 3 4 I SURRENDER ................Rainbow 4 3 WOMAN ...................John Lennon 5 - ST VALENTINE DAY MASSACRE .......... Motorhead / Girlschool 6 - JEALOUS GUY ..............Roxy Music 7 7 THE RETURN OF THE LOS PALMOS 7 ..... Madness 8 - DO THE HUCKLEBUCK .....Coast To Coast 9 - SOUTHERN FREEZE...............Freeze 10 6 OLDEST SWINGER IN TOWN . Fred Wedlock BANDARÍKIN Stórar plötur 1 1 Hl INFIDELITY ......REO Speedwagon 2 2 DOUBLE FANTASY ................... John Lennon / Yoko Ono 3 3 THE JAZZ SINGER .......Neil Diamond 4 4 PARADISE THEATER .............Styx 5 5 ZENYATTA MONDATTA ..........Police 6 6 CRIMES OF PASSION .......Pat Benatar 7 7 AUTOAMERICAN ............. Blondie 8 8 GREATEST HITS..........Kenny Rogers 9 9 BACK TO BLACK ...............AC/DC 10 - CELEBRATE ............Kool & The Gang Litlar plötur 1 1 I LOVE A RAINY NIGHT ..Eddie Rabbitt 2 2 9 TO 5 ................. Dolly Parton 3 3 WOMAN .................John Lennon 4 5 KEEP ON LOVING YOU .. REO Speedwagon 5 6 THE BEST OF TIMES ............Styx 6 4 CELEBRATION..........Kool & The Gang 7 - CRYING .................Don McLean 8 8 GIVING IT UP FOR YOUR LOVE ........ Delbert McClinton 9 10 THE WINNER TAKES IT ALL.......Abba 10 - HELLO AGAIN ...........Neil Diamond Boomtown Rats er varla leng- ur ein af „nýju hljómsveitun- um“ frekar en Clash. Jam. Police eða Elvis Costeilo & The Attractions, en þessar hljóm- sveitir hafa líklena notið hvað mestrar velKenxni af breskum (ok írskum) hljómsveitum sem fóru að láta á sér bera ca. 1977. Boomtown Rats hafa fengið orð á sig fyrir það að vera trúðar „nýbylgjunnar", nokkurs konar Monkees! Það má til sanns vegar færa að ekki tekst þeim alltaf jafnvel í tónlistartilraunum sínum, og stundum nær húmorinn þeim punkti að alvaran í „alvðrutext- um“ Bob Geldofs verði dregin í efa. Eins má segja um stefnu Boomtown Rats. Stefnan er í allar áttir og enga þó! Þetta er ekki meint neikvætt því að þótt margar tilraunir þeirra séu hálf mislukkaðar, þá hafa þeir hitt naglann vel og rétt á höfuðið margoft og í ólíkum stílbrigðum. í gegnum feril þeirra hefur þeim verið líkt við fjölda listamanna, eins og Bruce Springsteen, David Bowie, Ray Davies og aðra sem merkir þykja. Á „Mondo Bongo" hafa þeir fengið til liðs við sig upptöku- stjórann Tony Visconti, hug- myndaríkan og góðan, en Vis- conti er þekktastur fyrir sam- vinnu sína við David Bowie á plötum hans. Hér kemur Vis- conti ýmsum einkennum sínum, fagurfræði- og hugmyndafræði- legum á framfæri. Og eins og við mátti búast vinna þeir mikið af efninu á svipaöan hátt og Bowie, þ.e. gera ekki bara það sem viðurkennt er og öruggt, heldur leitandi. Því er ekki að neita að til að byrja með olli þessi plata mér vonbrigðum. Það var fátt á henni sem ég vonaðist til að þeir hreinræktuðu á næstu plötu á eftir „Fine Art of Surfacing". í staðinn voru ýmsar nýjar til- raunir og samanburður við ýmsa aðra en áður. Yfir plötunni, í fyrsta sinn sem ég tek eftir, svífa andar upptökustaðarins. Það er ekki annað að heyra en þeir hafi notið þess að taka plötuna upp í blíðviðri á Ibiza, Spáni. Boom- town Rats hafa þegar fengið sinn skerf af gagnrýni frá bresku pressunni sem virðist enn skella skollaeyrum við tónlist þeirra. Platan hefst á „salsa-lagi“, „Mood Mambo" sem varð til upp úr bassatakti, sem Geldof spann svo orð utan um í „Beatniskum" stíl og lagið er „fjör“ en textinn auðvitað bull. „Straight Up“ er eitt af nokkr- um lögum í stíl Elvis Costello, sem Geldof segist reyndar vilja líkja eftir í lagasmíð, og telur hann bestan í dag. Lagið er gott, nokkuð „pínt“ og ætti að geta gert það gott á lítilli plötu. „Another Piece of Red“ er uppáhaldslagið mitt á plötunni ásamt „Elephants Graveyard". Þjóðlagasöngvaraviðhorfið í textasmíð hefur alltaf heillað mig, að semja um það sem er að gerast í kringum mann. Geldof samdi þennan texta um „nýlend- ur“ Bretlands er hann var stadd- ur í New Zealand og heyrði fréttir af Ian Smith þegar hann varð að segja af sér í Rhódesíu, öðru nýlendulandi. Og titill kem- ur til af því að Breska heims- veldið var alltaf rautt á kortinu í bernskukennslu Geldofs; „Anot- her piece of red left my Atlas today". Og á milli má heyra brot úr „Rule Britannia", „Britannia rule the waves!" „Elephants Graveyard" er þrælgott lag, og má segja það í sama stíl og „I Don’t Like Mondays", og þess má geta að umfjöllunarefni er jafn grimmt. Geldofs samdi þetta lag eftir að hafa séð heimildarmynd af óeirðunum á Miami þar sem tveir lögreglumenn voru sýknað- ir af ákæru um morð þrátt fyrir fjölda sjónarvotta! í textanum eru margar línur sem verða sterkar þegar þær eru komnar í texta eins og: „You’re guilty till proven guilty, isn’t that the law?“ (Þú ert sekur þar til fundinn sekur!. Er það ekki lögmálið?) „Justice isn’t blind/ it just looks the other way.“ (Réttlætið er ekki blint, það bara horfir í hina áttina). Magnað og gott. „Banana Republic" er aftur á móti ekki jafn vel heppnað þó því hafi vegnað vel á vinsælda- listunum. Hér er Bowie líklega fyrirmyndin í söngnum, en þrátt fyrir reggae-taktinn missir það einhvern veginn marks. Tvö öðruvísi lög eru á plöt- unni. „Fall Down“ sem Simon Crowe, trommuleikarinn syngur með mjúkri rödd í andstæðu við hrjúfa rödd Geldofs. Lítið og einfalt undirspil skreytir þetta einfalda og blíða lag sem þó virkar dálítið geðveikislegt inn- an um annað á plötunni. „Whitehall 1212“ er lag í Shadows-stíl þar sem gítarleik- ararnir fá að láta í sér heyra. Og borið saman við útgáfur þeirra á litlum plötum má alveg eins búast við því að þeir komi öllum að óvörum(!) með því að gefa þetta lag út. „Under Their Thumb" er Rats útgáfan á „Under My Thumb“, lagi Rolling Stones. Einungis takturinn er framför, eða öllu heldur jákvæð breyting, en til- gangurinn með þessu lagi er fremur óskiljanlegur. í heildina er platan ein af þessum sem vert er að hlusta á af einbeitni, en um það hvort hún sé fyrir hvern sem er efast ég. Þeir vinna alltaf vel það sem þeir gera, jafnvel þótt það sé fengið að láni úr lögum frá öðrum, eins og hugmyndir hér, taktar þar og útsetningar ann- ars staðar. Og sjarmi þeirra þarf ekki að minnka þó Geldof virðist líkja full mikið eftir Elvis Cost- ello (í Straight Up/ Elephants Graveyard/ Hurt Hurts), David Bowie (Go Man Go/ Please Don’t Go), Ray Davies (Another Piece of Red). hia MONDO BONGO nýjasta plata Boomtown Rats tekin fyrir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.