Morgunblaðið - 03.05.1981, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1981
17
eða með öðrum orðum allir þeir
mörgu einstaklingar þjóðfélags-
ins, sem reyna að hafa ofan af
fyrri sér og sínum með eigin
rekstri. Nú á að refsa þeim með
því að svipta þá möguleikum til
samskonar frádráttar og þeir
hafa, sem eingöngu lifa af iauna-
tekjum. Skattstofan þeirra til
tekjuskatta, verður 11,1% hærri.
Alþýðubanda-
lagið ræður
Þessi breytta regla er
rökstudd með því að nú sé felld
niður heimild til að áætla
mönnum með sjálfstæðan at-
að smáatymnurekendum
Ríkisstjórnin hefur enn lagt
fram nýtt frumvarp til breyt-
inga á skattalögum, sem bíður
afgreiðslu Alþingis. Reiknað
hafði verið með að frumvarp
þetta yrði afgreitt í vikunni sem
leið, en það var látið víkja fyrir
frv. um efnahagsaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar, sem tók megin
hlutann af tíma Alþingis í síð-
ustu viku.
Hægt og sígandi
hert að einkarekstri
Eitt af aðaleinkennum þessa
frumvarps er það, að enn er hert
að atvinnurekstri í landinu. I
enn einu málinu kemur það
glöggt fram að í þessari ríkis-
stjórn ræður stefna Alþýðu-
bandalagins og aðrir ráðherrar
láta sér það lynda, þótt hægt og
sigandi sé verið að herða að
einkarekstrinum og koma hon-
um á kné.
Hingað til hefur aðalumræða
hér í blaðinu um þetta skatta-
frumvarp snúist um breyttar
fyrningarreglur, þ.e. afturvirka
skerðingu á fyrningarfrádrætti
úr 18% í rúmlega 10%. Hinsveg-
ar er annað mikilvægt atriði í
þessu frumvarpi, sem minna
hefur verið rætt um, en vert er
að vekja athygli á.
Samkvæmt núgildandi skatta-
lögum geta framteljendur valið
á milii þess, hvort þeir dragi
10% frá tekjum sínum áður en
skattur er lagður á eða hvort
þeir njóti ákveðinna frádráttar-
liða, t.d. vaxta vegna íbúðaröfl-
unar, lífeyrissjóðsgjalda o.fl.
Meginþorri skattgreiðenda not-
færir sér vafalaust 10% regiuna.
10% frádráttar-
reglan afnumin
í einkarekstri
Samkvæmt skattaiagafrum-
varpi ríkisstjórnarinnar er nú
ráð fyrir því gert að 10%
frádráttarheimildin verði af-
numin hjá einstaklingum, sem
stunda atvinnurekstur fyrir eig-
in reikning. Ef þetta verður að
lögum verða stórir hópar sviptir
þessum möguleika til frádráttar.
Afleiðing af þessari breytingu
hlýtur af verða sú að skattstofn
til tekjuskatts hjá mönnum með
eigin atvinnurekstur eða sjálf-
stæða starfsemi, sem hafa bein-
ar tekjur af rekstrinum, verða
11,1% hærri en ella, ef þeir njóta
áfram 10% frádráttarreglunnar.
Hvaða hópar manna eru þetta,
sem hér um ræðir. Nefna má
nokkur dæmi: Leigubifreiða-
stjórar, vörubílstjórar, iðnað-
armenn, smákaupmenn, vinnu-
vélageigendur, hreingerninga-
menn, smáiðnrekendur, læknar,
lögfræðingar, verkfræðingar —
vinnurekstur tekjur, sem mikið
var notuð á síðasta ári. Það eru
engin rök í þessu máli og mjög
óeðlilegt að meðhöndla „launa-
tekjur" og „atvinnutekjur" ein-
staklinga mismunandi á þennan
hátt. Það hvetur menn með
sjálfstæða starfsemi til að
stofna gervifélög í formi hlutafé-
laga og sameignarfélaga, en
stofnun félaga í þeim eina til-
gangi er ekki fýsileg.
Meginatriði þessa máls er þó
það pólitíska viðhorf, sem birtist
í þessu frumvarpi — að reyna
alls staðar þar sem mögulegt er
að höggva í þá, sem reyna að
standa á eigin fótum með ein-
hverskonar rekstur, þótt í smáu
sé. Þessu ákvæði frumvarpsins
verður að reyna að fá hnekkt á
Alþingi, en því miður er reynsla
stjórnarandstöðunnar slík, að
lítið tillit er til hennar tekið.
Alþýðubandalagið skal fá að
ráða.
VtmKflsmK—
•*fR0tflC.W«,6cWA' W'
Ljosm. Kristján Einarsson.
Svavars og Steingríms, að Svavar
sagðist „að sinni" fyrir sitt leyti
ekki hafa neinu við svar dr.
Gunnars að bæta. Stjórnarand-
stæðingar voru að sjálfsögðu ekki
ánægðir með þessi losaralegu
svör, en ráðherrunum var ekki
þokað. Steingrímur Hermannsson
sá þó ástæðu til að segja: „Ég vil
láta það koma skýrt fram, að
Framsóknarflokkurinn stendur
heils hugar að baki Ólafi Jóhann-
essyni í þeim ákvörðunum sem
hann hefur tekið í utanríkismál-
um.“
Önnur upp-
ljóstrun
rádherra
Nú hefðu þessar umræður um
leynisamkomulagið líklega logn-
ast út af við svo búið eða haldið
áfram án þess að nokkur botn
fengist í þær, ef sjálfur formaður
Alþýðubandalagsins Svavar
Gestsson, félagsmálaráðherra,
hefði ekki tekið af skarið og lýst
því yfir á prenti, að samkomulagið
væri til. í Fréttabréfi fram-
kvæmdastjórnar Alþýðubanda-
lagsins sagði Svavar Gestsson:
„En aðalatriðið í þessu máli öllu
er auðvitað það að þegar núver-
andi ríkisstjórn var mynduð náði
Alþýðubandalagið ekki fram sín-
um stefnumiðum að því er varðar
herstöðina. Þess vegna var og á að
vera ríkjandi á milli stjórnar-
flokkanna drengskaparsamkomu-
lag um „status quo“ eða óbreytt
ástand í herstöðinni. Það þýðir
vitaskuld ekki það að unnt sé að
koma í veg fyrir að bandaríska
hernámsliðið lagfæri þau mann-
virki sem það er með þarna
suðurfrá eða eindurnýi tæki að
einhverjum hætti, en þetta
drengskaparsamkomulag er í raun
og veru meginforsenda stjórnar-
innar. Þegar ríkisstjórnin var
mynduð var undirritað samkomu-
lag milli flokkanna þar sem kemur
fram að ef „ágreiningsmál komi
upp í ríkisstjórninni hafi hver
stjórnaraðili neitunarvald ef hann
vill beita því“. Hér er um að ræða
algerlega afdráttarlaust ákvæði
þannig að staða okkar í þessum
efnum á að vera nægilega sterk til
þess að koma í veg fyrir það að
bandaríska hernum líðist að auka
hernaðarumsvif á Keflavíkur-
flugvelli".
Svavar Gestsson lýsir þarna því,
sem hann telur „meginforsendu
stjórnarinnar", að kommúnistar
hafi neitunarvald um hvaðeina en
þó sérstaklega varnir þjóðarinnar.
Það er einkennandi fyrir allt
stjórnarsamstarfið, hvernig að
uppljóstrun um þetta meginatriði
er staðið. Samstarfsmenn komm-
únista þegja þunnu hljóði en sýna
í verki, að þeir eru reiðubúnir til
að sætta sig við ofurvaid minni-
hlutans. í leynisamkomulaginu
hefur vafalaust falist, að með það
skyldi farið sem hernaðarleynd-
armál, enda eru tröllin sjaldan fús
til að vísa leiðina á fjöregg sitt,
fyrr en í óefni er komið. Upp-
ljóstrun Svavars sýnir jafnframt,
að óánægja meðal liðsmanna hans
er orðin svo megn, að hann verður
að grípa til örþrifaráða til að friða
flokkinn.
1 nýju ljósi
Með hliðsjón af uppljóstrun
Svavars Gestssonar er nauðsyn-
Jegt að skoða þær yfirlýsingar,
sem dr. Gunnar Thoroddsen og
Steingrímur Hermannsson gáfu á
Alþingi 24. febrúar í nýju ljósi.
Forsætisráðherra sagði, að ríkis-
stjórnin leitaðist við að ná sam-
komulagi um þau mál þar sem
skoðanir eru skiptar og menn
kynni að greina á. I þessum orðum
ráðherrans felst í raun og veru,
þegar hann flytur þau yfir komm-
únistum, að hann fallist á kröfu
þeirra um neitunarvald. Ráðherr-
ann hrósaði sér af því, að vel hefði
tekist á því röska ári, sem liðið var
frá stjórnarmyndun að ná sam-
stöðu að skapi kommúnista og
bætti við „það eru engin teikn á
lofti um að þar verði breyting á
veðurfari".
Þegar Ólafur Jóhannesson
ljóstraði því upp í Tímanum 12.
febrúar, að til væri leynisam-
komulag, sem hann teldi ekki
binda sig, var hann að brjótast út
úr herkví, sem kommúnistar vildu
loka hann inni í einmitt með vísan
til slíks samkomulags. Stuðnings-
yfirlýsing Steingríms Hermanns-
sonar við Ólaf Jóhannesson á
Alþingi 24. febrúar var „taktísk-
ur“ leikur af hans hálfu, því að
Steingrími var Ijóst, að hann yrði
að halda friðinn innan flokks síns
fram yfir aðalfund miðstjórnar
hans, sem haldinn var fyrstu
helgina í apríl. Á þeim fundi fékk
Ólafur Jóhannesson samþykkta
yfirlýsingu um nýja flugstöð á
Keflavíkurflugvelli til að storka
kommúnistum. Þar segir: „Aðal-
fundur miðstjórnar 1981 lýsir því
eindregnum stuðningi við bygg-
ingu nýrrar flugstöðvar á Kefla-
víkurflugvelli."
í sömu viku og þessi yfirlýsing
var birt gengu framsóknarþing-
menn bæði á móti henni og Ólafi
Jóhannessyni á Alþingi, þegar
þeir höfnuðu því, að í lánsfjárlög-
um 1981 væri heimiluð lántaka til
að hefja byggingu nýrrar flug-
stöðvar. Með þeirri afgreiðslu
sannaðist tvennt: Stuðningsyfir-
lýsing Steingríms Hermannssonar
við Ólaf Jóhannesson 24. febrúar
er marklaus. Breyting hefur orðið
á veðurfari innan ríkisstjórnar-
innar, svo að notað sé líkingamál
dr. Gunnars Thoroddsens, því að
ekki tókst að ná samkomulagi um
mál, þar sem menn hafa ólík
sjónarmið.
Hættuleg þróun
Sé litið yfir aðalatriðin í um-
ræðunum um leynisamkomulagið,
kemur í ljós, að þróunin í ríkis-
stjórnarsamstarfinu er hættuleg.
Óhreinlyndið gagnvart þingheimi,
sem leitast er við að leiða í villu
með takmörkuðum upplýsingum,
lýsir ekki góðri samvisku hjá
stjórnarherrunum. Valdabaráttan
innan Framsóknarflokksins milli
Steingríms Hermannssonar og
Ólafs Jóhannessonar, hins
„ókrýnda foringja", gerir þing-
menn flokksins að leiksoppum
kommúnista. Skorturinn á sam-
stöðu milli forsætisráðherra og
utanríkisráðherra veikir þjóðina
út á við og veldur því, að fulltrúar
erlendra ríkja velkjast í vafa um
það, hver tali fyrir hönd ríkis-
stjórnarinnar í alþjóðamálum. í
samtali við sjónvarpsmann sagði
dr. Gunnar Thoroddsen, að utan-
ríkisráðherra talaði ekki fyrir
hönd ríkisstjórnarinnar í flug-
stöðvarmálinu. Kommúnistar
ganga á lagið og eftir því sem
niðurlæging samstarfsmanna
þeirra verður meiri, þeim mun
frekari verða þeir.
Eins og flugstöðvarmálið hefur
þróast blasir svo við þverstæða,
sem sýnir best vingulshátt fram-
sóknarmanna á Alþingi. Komið er
í veg fyrir, að ráðist verði í þá einu
byggingu á Keflavíkurflugvelli,
sem íslendingar hafa bein not af
og stuðlar að því að greina á milli
almennrar starfsemi á vellinum
og hernaðarlegrar. Af 65 milljón
dollara kostnaði við bygginguna
hafa Bandaríkjamenn skuldbund-
ið sig til að greiða 45. Með því að
gera utanríkisráðherra ómerkan í
málinu er tekin sú áhætta, að
Bandaríkjamenn falli frá greiðslu-
loforðum sínum. Þá fyrst gleddust
kommúnistar en myndu líklega í
lýðskrumi sínu hrópa hæst um
„svik“ Bandaríkjamanna. Hins
vegar verður í sumar hafist handa
um smíði þriggja flugskýla á
Keflavíkurflugvelli yfir orrustu-
þotur varnarliðsins og ráðist verð-
ur í hönnun nýrra olíumannvirkja
fyrir varnarliðið í Helguvík.
Hvenær neyða kommúnistar Ólaf
Jóhannesson til að segja af sér
með því að beita neitunarvaldi
sínu gegn þessum framkvæmdum?
Vitað er, að forsætisráðherra
stendur með þeim í afstöðunni til
framkvæmda í Helguvík og
Steingrími Hermannssyni og
Tómasi Árnasyni munar ekki um
að bregðast Ólafi Jóhannessyni
öðru sinni — um Ingvar Gislason
þarf ekki að ræða, hann er bara
með hugann við Búlgaríu.