Morgunblaðið - 03.05.1981, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 03.05.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ1981 29 ekki sparað auglýsingar og kynn- ingarstarfsemi, og kunnað þar vel til verka. Áróðurs- og sölumenn þeirra líta á heimsbyggðina sem heimaakur, enda rökrétt skoðun á tímum, þar sem samgöngutækni nútímans hefir eytt fjarlægðun- um. Þessir dönsku og þýsku kavíar- framleiðendur fylgjast vel með þróun markaðsmála. Hagnýta sér til hins ýtrasta alla kosti verslun- ar og tollabandalaga og hafa ótrúlega víða opin augun varðandi leiðir til þess að komast yfir tollamúra. Besta dæmið um það, varðandi kavíar, er kannski frá Spáni. Þar er nokkuð hár inn- flutningstollur á kavíar, sem lúx- usvöru, og talið að verði enn um sinn, enda þótt Spánn gerist á næstu árum aðili að verslunar- og tollabandalögum Evrópu. Fyrir liðlega ári síðan stofnaði ein stærsta kavíarverksmiðja Þýska- lands, sem framleiðir þessa vöru aðallega úr íslenskum grásleppu- hrognum, niðurlagningarverk- smiðju á Spáni. Flytur íslensku tunnurnar með hrognunum þang- að, þegar þær koma til Þýska- lands, og blandar litarefnunum og kryddi í hrognin og setur þau í fallegar spánskar glerkrukkur, sem þar að auki eru ódýrari á Spáni en heima í Þýskalandi, og skreytir glösin með litríkum um- búðum og áletrun á spánskri tungu. Fimm mánuðum síðar hóf danskur kavíarframleiðandi samskonar starfsemi á Spáni og flytur þangað íslensku grásleppu- hrognatunnurnar til þess að fram- leiða úr þeim „danish caviar", „framleiddum á Spáni". Þessi þýski og danski kavíar, framleidd- ur á Spáni, er síðan seldur í 50—100 gr glösum og kostar glasið með 50 grömmum í kringum 15 krónur íslenskar í flestum búðum. Samskonar glas með íslenskum tækifæri, einkum úr frosnum fisk- afurðum og varla öðru. Við íslend- ingar eigum heimsins mestu afla- klær, sem ráða yfir einhverri fullkomnustu veiðitækni heims. Varðandi grásieppuveiðarnar er um einfaldari og umfangsminni útgerð að ræða. Samt sem áður er grásleppuhrognaframleiðslan sá útvegur á íslandi, þar sem íslend- ingar eiga stærstan hluta heims- framleiðslunnar, og ættu því að hafa möguleika á að gera sig gildandi, sem leiðandi afl um verðlag og fullvinnslu kavíars á heimsmarkaði. Heimsframleiðsl- an er nú í höndum tiltölulega fárra erlendra aðila og því auð- veldara um vik að ná tökum á forystunni, meðal annars í gegn- um hráefnisverðið, sem telja verð- ur alltof lágt miðað við markaðs- verð kavíars. Þegar litið er til þeirrar stað- reyndar, sem áður er frá greint, að Islendingar ráða yfir stærstum hluta heimsframleiðslunnar af grásleppuhrognum, ættu að vera til þess færar leiðir, að íslenskir framleiðendur ráði einnig yfir stærstum hluta heimsframleiðsl- unnar á grásleppuhrognakavíar. Heildarframleiðsla á grásleppu- hrognum í heiminum er ekki svo mikil að kavíarinn geti nokkurn tíma orðið magnmikil framleiðsl- ugrein í matvælaneyslu, heldur aðeins veislumatur og lostæti við hátíðleg tækifæri. Grásleppan veiðist ekki nema á mjög tak- mörkuðum heimshluta í Norður- Atlantshafinu við ísland, Græn- land, Kanada og lítilsháttar við Noreg og Danmörku. Talið er að litlir möguleikar séu á verulegri aflaaukningu í þessum löndum. Ætla mætti því, að grásleppu- hrognakavíar verði um alla fram- tíð eftirsótt lúxusfæða með tak- mörkuðu framboði. Tiltölulega hátt verðlagður matur, vegna auk- mmm. Mynd úr útflutningslista danskrar verksmiðju, sem selur íslenskan kavíar undir sinu merki. < kavíar frá Artic á Akranesi kostar í búðum á Islandi um 2 krónur. Þetta er að vísu ekki allt verðmun- ur, því verslunarálagning er tals- vert hærri á Spáni en á íslandi, einkum þegar um lúxusvörur er að ræða. Spánskir kaupsýslumenn er fást við matvælaverslun segja, að Dan- ir og Þjóðverjar hefðu að vísu getað komið ár sinni betur fyrir borð á Spáni varðandi kavíar- framleiðsluna, þó að þeir greiði aðeins um 22% aðflutningsgjöld af hráefninu, í staðinn fyrir 70— 80%, í flestum tilfellum, af full- unnum kavíar. Þeir hefðu getað valið starfsemi sinni heppilegri staði á Spáni og notið þar betri kjara vegna byggðasjonarmiða, enda þótt vinna sé lítið hlutfall af verði kavíars. Þeir hafi einfald- lega ekki kynnt sér málin og staðhætti nógu vel. Og þessvegna sé vel hægt að keppa við þá á spönskum markaði með svipuðum en betur grunduðum aðgerðum. Þessi frásögn um viðskipti með kavíar og íslensk grásleppuhrogn á Spáni er hér sögð aðeins sem dæmi um verslunarleiðir íslenskra lúxusmatvæla á erlendri grund. Veröldin er full af slíkum tæki- færum fyrir íslensk matvæli. Sums staðar er byrjað að nýta slík innar eftirsóknar og takmarkaðs framboðs. Engar líkur eru á því, að hinn eftirsótti og rándýri Beluga- styrjukavíar, verði algengari eða ódýrari í náinni framtíð, þar sem þær fregnir berast af veiðisvæðum styrjunnar í Kaspíahafi, að til viðbótar við ofveiði á viðkvæmum og seinþroska stofni, þá geri mengun frá verksmiðjum og nú- timaiðnaði við Kaspíahaf mikinn usla til viðbótar í stofninum. Grásleppan er ekki fegursti fiskur úr sjó, eins og vikið er að í upphafi þessarar greinar. Engu að síður er afurð hans gulls ígildi. Enn sem komið er aðallega fyrir útlendinga, sem kannske eru alls góðs maklegir. En er ekki annars kominn tími til að íslendingar reyni í vaxandi mæli að fullnýta þessa sérstæðu auðlind sína úr hafinu. Gera grásleppuhrognin að glitrandi „íslenskum" kavíarperl- um á veisluborðum veraldar, eftir- sóttri og rándýrri vöru, sem gæti aukið á hróður og annars tak- markaða auðlegð þessarar fá- mennu þjóðar. Með því einu að láta íslensku grásleppuhrognin breyta um hlutverk og verða að „íslenskum kavíar" í staðinn fyrir „danish" eða „deutscher" kavíar. - kÞ- Knattspyrnufélagið VALUR ara Afmælisfagnaður Föstudagur 8. maí Afmælisfagnaður að Ilótel Borg kl. 19.30 Borðhald: „Drottningarborð" — Veislustjóri Kristinn Hallsson, óperusöngvari. Heiðursveitingar, Skemmtiatriði m.a. Laddi. Dans. Enginn aðgangur eftir borðhald. Miðasala og borðapantanir þriðjudaginn 5. maí að Hótel Borg kl. 17.00—19.00. Afmælisfagnaður yngri Valsmanna Sunnudagur 10. maí Afmælisfagnaður yngri Valsmanna í Sigtúni. kl. 15.00. Veislustjórar: Jón H. Karlsson, ritari aðalstjórnar Vals og Hermann Gunnarsson, íþróttafréttamaður. Veitingar. Skemmtiatriði: Reiptog milli deilda, gamanvísur o.fl. Allir Valsmenn 16 ára og yngri velkomnir. Mánudagur 11. maí Útisamkoma við minnisvarða sr. Friðriks Friðrikssonar Lækjargötu kl. 12.15-12.30. Ávarp Pétur Sveinbjarnarson, formaður Vals. Sr. Friðriks minnst. Biskupinn yfir Islandi hr. Sigurbjörn Einarsson. Valssöngurinn sunginn. Jón Sigurðsson f.v. borgarlæknir, heiðursfélagi Vals leggur blómsveig að minnisvarða sr. Friðriks. Móttaka að Hlíðarenda Kl. 17.00-19.00 Sveinn Zoéga og Úlfar Þórðarson, útnefndir heiðursfélagar Vals. Heiðursveitingar til forystumanna utan Vals, fyrir frábær störf í þágu íþróttasamtakanna. Móttökunni stýrir Olafur Gústafsson, varaformaður Vals. Allir Valsmenn og velunnarar félagsins velkomnir SPORT SKÓR MJÖG GOTT VERÐ. SJUEM LAUGAVEGI 74 SÍMI: 17345 AÐEINS KR. 159.- LITUR: LJÓS STÆRÐIR: 35-46 PÓSTSENDUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.