Morgunblaðið - 07.06.1981, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR
126. tbl. 68. árg.
SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Israelsk
flugskeyti
í Líbanon
New York. fi. júní. AP.
ÍSRAELSMENN hafa flutt banda
rí.sksmiðuð Hawk-fluKskcyti yfir
israclsku landamærin 1200 mctra
vcKalcnttd inn á líbanskt yfirráða-
svæði að sögn ABC-sjónvarpsins.
fsraclskir cmbættismcnn vilja ckki
staðfcsta frcttina. scjfir ABC.
ABC hefir eftir bandarískum
leyniþjónustuheimildum að sex sýr-
lenzkar loftvarnaeldflaugasveitir
hafi tekið sér stöðu í Líbanon.
ísraelsmenn segja að sýrlenzku
eldflaugarnar í Líbanon ógni öryggi
ísraels og staðsetning þeirra þar sé
brot á nokkurra ára gömlum leyni-
samningi við Sýrlendinga.
Verðlækkun
á olíu hafin
London. (i. júni. AP.
ALDA olíuvcrðla’kkana hefir færzt
i aukana mcð þeirri ákvörðun
ríkisstjórnar Ecuador að lækka
olíuverð sitt um 3.80 dollara tunn-
una og viljayfirlýsingu Brcta um að
lækka oliuverð sitt um tvo dollara
tunnuna.
Báðar þessar fyrirhuguðu olíu-
verðlækkanir eru hafðar eftir áreið-
anlegum heimildum.
En lækkun sú, sem Bretar ihuga,
er talin of lág og álitið er að
viðræður um lækkunina geti tekið
nokkrar vikur. Ian Walker, fram-
kvæmdastjóri British Petroleum,
sagði í útvarpsviðtali að lækka
þyrfti verð á Norðursjávarolíu um
fimm dollara tunnuna þegar í stað.
Jafnframt hermir blaðið „Financ-
ial Tirnes" í London að Nígeríumenn
hafi boðið allt að tveggja dollara
afslátt á hverja olíutunnu, en verð
þeirra er 40 dollarar tunnan.
Verðlækkunar-þrýstingur hefir
aukizt í þessari viku, þar sem í ljós
hefir komið að niðurskurður á fram-
leiðslu nokkurra aðildarríkja Sam-
taka olíusöluríkja, OPEC, mun ekki
nægja til þess að binda endi á
offramboð á olíu.
Að vori vaknar náttúran til lifsins á ný með blóm i haga og betri tið.
: - ‘ * ,
*
Ljósm. Sijf.S.
Gagnrýni á pólska
leiðtoga vekur ugg
Moskvu. 6. júná. AP.
ÁRÁSIR sovézkra blaða á stjórn
kommúnista i Póilandi benda til
þess að þess sé skammt að biða að
leiðtogarnir i Kreml taki um það
ákvörðun hvort þeir skuli gripa
til ihlutunar i Póllandi eða ekki
Bardagar
á eldf jalli
San Salvador. 6. júni. AP.
STJÓRNARHERSVEITIR halda áfram tveggja daga sókn gegn
öflugu vigi skæruliða á cldfjalli nálægt höfuðborg Mið-Ameriku-
lýðveldisins E1 Salvador og að minnsta kosti 100 hafa fallið.
Rúmlega 1.500 stjórnarher-
menn hafa umkringt, með
stuðningi stórskotaliðs, her-
flugvéla og þyrlna, eldfjallið
Chichontepec, 9, 6 km suðaustur
af höfuðborginni San Salvador,
og sókn er hafin upp í hllðar
fjallsins að sögn sjónarvotta.
Að minnsta kosti 1.000
skæruliðar hafa búizt til varnar
á fjallinu og í nágrenni þess.
Margir skæruliðar eru taldir
hafa hreiðrað um sig á fjalls-
tindinum.
Kirkjuleiðtogi í E1 Salvador
sakaði Rússa í dag um að verja
milljónum dollara í hverjum
mánuði til herferðar, er miði að
því að dreifa röngum og villandi
upplýsingum um borgarastríðið
í E1 Salvador.
Hann útskýrði þetta ekki
nánar, en sagði að í nýlegri
fyrirlestraferð í bandarískum
háskólum hefði hann mætt
„móðgunum óvina sannleikans
og vina Marx og Leníns."
Fimmtán lík fórnarlamba af-
tökusveita hægrimanna fundust
í höfuðborginni í gær. Um
22.000 manns hafa beðið bana í
átökum í E1 Salvador síðan
herforingjastjórnin komst til
valda í október 1979.
að sögn
dag.
vestrænna diplómata i
Diplómatarnir telja að leiðtog-
arnir í Kreml hafi aldrei fylgzt
eins nákvæmlega með atburðum í
Póllandi og nú vegna fyrirhugaðs
þings pólska kommúnistaflokksins
14. til 18. júlí í Varsjá. Leiðtogum
Rússa líkar ekki hvernig staðið
hefir verið að vali fulltrúa á
flokksþingið og ef þessi þróun
heldur áfram kunna þeir að kom-
ast að þeirri niðurstöðu að beinar
aðgerðir séu eina leiðin til að
viðhalda áhrifum sínum í pólsku
valdaforystunni, segja diplómat-
arnir.
„Sannleiksstund sovézkra leið-
toga kann að renna upp seint í
júní eða snemma í júlí, þegar þeir
verða að ákveða hvort þeir skuli
leyfa að þingið fari fram eins og
ráðgert hefir verið, eða hvort þeir
skuli reyna að fá þinginu frestað,"
sagði vestrænn stjórnarerindreki.
Það er talið uggvænlegt, nýtt
merki um reiði Rússa að dómi
vestrænna sérfræðinga, hversu ít-
arlega sovézk blöð hafa sagt frá
svokallaðri „Katowice-yfirlýs-
ingu“ pólskra harðlínumanna, sem
hvetja til þess að „andsósíalísk
öfl“ verði brotin á bak aftur í
Póllandi. í frásögnum Rússa er
gefið í skyn að pólskir leiðtogar
láti undir höfuð leggjast að styðja
dygga kommúnista gegn „öfga-
sinnum" úr verkalýðshreyfingunni
Samstöðu. Þessi dulbúna gagnrýni
er talin síðasta merkið um að
Rússar séu e.t.v. að missa trúna á
getu leiðtoga pólskra kommúnista
til að varðveita „forystuhlutverk
flokksins".
Tass gagnrýndi í gær úrskurð
hæstaréttar Póllands um frelsun
fjögurra andófsmanna og annað
merki um reiði Rússa var gagn-
rýni á pólsku verðlaunakvikmynd-
ina á Cannes-hátíðinni, „Járn-
manninn", á þeirri forsendu að
hún væri „andsósíalísk".
Pólverjar hafa sætt stöðugum
árásum Tékka og Austur-Þjóð-
verja og Búlgarir bættust í hópinn
í þessari viku. Ef Rússar grípa til
íhlutunar telja vestrænir dipló-
matar að íhlutunin yrði geysivíð-
tæk og herlið annarra Varsjár-
bandalagslanda myndi taka þátt í
henni, en hugsanleg andspyrna
pólska heraflans hræðir, segja
diplómatarnir. Sennilega yrði
haldinn leiðtogafundur Varsjár-
bandalagsins með stuttum fyrir-
vara, ef Rússar tækju þann kost
að grípa til íhlutunar, en slíkan
fund þarf ekki að halda, ef þátt-
taka annarra landa í íhlutun hefur
þegar verið tryggð, segja þeir.
Ef slíkur fundur verður haldinn
er talið að úrslitum geti ráðið
hvort Nicolae Ceausescu Rúmen-
íuforseti sækir hann eða ekki.
Ihlutun verður talin líklegri, ef
nýjar heræfingar verða haldnar
bráðlega — þær gætu orðið síð-
asta viðvörunin, segja vestrænir
diplómatar.
Tvíburar í
tilraunaglasi
Melbournc. 6. júni. AP.
FYRSTU „tilraunaglasa-tvíbur-
ar“ heimsins, drengur og
stúlka. fæddust i Qucen Vict-
oria-sjúkrahúsinu i Melbourne
snemma i morgun. samkvæmt
tilkynningu frá sjúkrahúsinu.
Tvíburarnir fæddust tveimur
vikum fyrir tímann. Móðirin er
31 árs gömul og hefir reynt að
eignast barn í átta ár.
Þar með hafa sex börn verið
getin í tilraunaglasi í Melbourne.
Fyrsta tilraunaglasa-barnið
fæddist í Oldham, Englandi, 25.
júlí 1978, eftir uppgötvun brezku
læknanna Patrick Steptoes og
Robert Edwards.