Morgunblaðið - 07.06.1981, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JUNÍ1981
Ingvar Gislason:
Tel mig
hafa í
öllu farið
að lögum
„ÉG TEL að ég hafi í öllu farið
að lögum. þannig að ók lit á
þctta sem aimenna yfirlýsinKU,
sem geti ekki verið beint til
mín,“ sanði Ingvar Gislason
menntamálaráðherra, er Mhl.
spurði hann álits á greinargerð
Jafnréttisráðs vejjna veitinKar
hans á prófessorscmbætti í
ónæmisfræði við Háskóla ís-
lands. en Jafnréttisráð átelur
ráðherrann fyrir að lcita ekki
áiits ráðsins ok leKKur einnÍK
sérstaka áherzlu á, að stjórnvöid
KanKÍ á undan með K<»ðu for-
da'mi. fari að löKum ok Kæti
jafnréttissjónarmiða, eins ok
seKÍr orðrétt í KreinarKerðinni.
Ingvar Gísiason veitti Helga
Valdimarssyni dósent umrædda
prófessorsstöðu, en dr. Helga M.
Ögmundsdóttir sótti einnig um og
fékk fleiri atkvæði við atkvæða-
greiðslu um umsækjendur í
læknadeild.
Jafnréttisráð leitaði umsagnar
dr. Helgu um málið en hún sagði í
áliti sínu til ráðsins, að hún teldi
að hér væri ekki um jafnréttismál
að ræða og óskaði ekki frekari
aðgerða af hálfu Jafnréttisráðs.
Menntamálaráðherra sagði
einnig, að hann myndi fara fram
á birtingu greinargerðar sinnar
um málið til Jafnréttisráðs í
fjölmiðlum. Greinargerðin væri
mjög ítarleg og kæmu sjónarmið
hans þar vel fram.
Kristján Thorlacius formaður BSRB:
Þessar verðhækk-
anir fordæmanlegar
„ÞESSAR miklu verðhækkanir cru
nú fordæmanlegar skömmu eftir
að vísitalan hefur verið reiknuð
út,“ sagði Kristján Thorlacius
formaður Bandalags starfsmanna
ríkis og ba-ja, er hann var spurður
álits á nýorðnum verðhækkunum.
„Ýmsar af þessum hækkunum eiga
vafalaust rétt á sér en þessi aðfcrð
að hella yfir almenning verðhækk-
anaflóði rétt eftir vísitöluútreikn-
inginn er mjög gagnrýnisverð.“
Kristján sagði einnig: „Vísitalan
ætti að hækka nú vrgna hækkana á
landhúnaðarvorum. áfengi, tóhaki
<>K benzíni um 3.8%. Þctta verða
allt óba-ttar verðhækkanir fram til
1. sept. n.k.
í samningum var áður gert ráð
fyrir sérstökum verðbótaviðauka á
þriggja mánaða fresti. Þetta hindr-
aði að menn misnotuðu vísitölukerf-
ið á þann hátt sem nú er gert.
Stjórrnarherrarnir ættu að at-
huga vel að þeim tekst ekki að
blekkja neinn með þessum skolla-
leik með vísitöluna sem þeir hafa
lært af þeim sem áður hafa farið
með völd, en þetta grefur undan
trausti á þeim.“
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ:
Tiltölulega minna sem
kemur nú í kjölfarið á
vísitöluútreikiiingnum
Hvarf TF-ROM:
Vísbendingar athugað-
ar og ennþá er unn-
ið úr loftmyndunum
Coopers og Lybrand:
Vilja engu
svara um súr-
álsskýrsluna
TALSMENN breska endurskoðun-
arfyrirtækisins Coopers og
Lybrand, sem falið var að kanna
súrálsverð til ÍSAL, vildu í gær ekki
svara spurningu Mbl. um hvort
lokaskýrslu hefði verið skilað og
sögðu þessi málefni vera trúnað-
armál við íslenzku ríkisstjórnina. I
Mbl. í gær sagði Hjörleifur Gutt-
ormsson iðnaðarráðherra skýrsluna
ekki vera komna, en Ingi R. Helga-
son, sem farið hefur með þessi mál
fyrir hönd ráðuneytisins tjáði blað-
inu að uppkast að hluta skýrslunn-
ar hefði borizt.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
fluKmálastjórn:
Að kvöldi dags þriðjudaginn 2.
júní s.l. lauk skipulagðri leit að
flugvélinni TF-ROM, Rockwell
Commander, er fór frá Reykjavík að
kvöldi miðvikudagsins 27. maí s.l. og
ekki kom fram á Akureyri á tilskild-
um tíma.
Þessi leit er nú orðin sú um-
fangsmesta sem fram hefur farið
hér á landi. Samtals hafa 40 til 50
loftför leitað í um 700 klst., þar af
loftför frá einkaaðilum í um 640
klst. Á jörðu niðri hafa leitarflokkar
leitað i samtals um 1300 manndaga.
Hámarki náðu aðgerðir í lofti
þriðjudaginn 2. júní, er 40 loftför
flugu 80 leitarflug, og á jörðu
laugardaginn 30. maí, er um 600
manns leituðu allan daginn.
Öll þessi viðleitni hefur þó því
miður orðið árangurslaus, en þótt
skipulagðri leit sé nú hætt að sinni,
þar sem öll svæði þar sem nokkrar
líkur eru til að TF-ROM sé að finna,
hafa verið margleituð, munu flug-
menn beðnir að svipast um eftir
flugvélinni á leiðum sínum um
landið. Eins munu vísbendingar er
fram kunna að koma verða rannsak-
aðar, og má í því sambandi benda á
að enn er unnið úr loftmyndum af
svæðinu hjá Landmælingum Is-
lands.
Of langt mál yrði að telja upp
nöfn allra er hönd lögðu á plóginn
við leitina. Slysavarnarfélag ís-
lands, Landssamband hjálparsveita
skáta, Landssamband flugbjörgun-
arsveita og starfsmenn flugmála-
stjórnar óska að koma á framfæri
þakklæti til allra er hlut áttu að
máli við leitina, sem fór vel og
skipulega fram við mjög erfiðar
aðstæður, og var öllum þátttakend-
um til mikils sóma.
„ÞAÐ VORU samþykktar ýmsar
hækkanir í byrjun maí, sem komu
því inn í vísitölu, þannig að það er
kannski tiltölulcga minna sem
kemur nú í kjölfarið á vísitöluút-
reikningnum heldur en verið hef-
ur oft áður, þó það sé alltof
margt." sagði Asmundur Stefáns-
son forseti Alþýðusambands ís-
lands, er Mbl. spurði hann álits á
verðhækkununum, sem ríkis-
stjórnin heimilaði nú nýverið.
„Tímasetning á verðhækkunum
landbúnaðarvara er búin að vera sú
sama í áraraðir, þannig að það út af
fyrir sig, að það komi verðhækkun á
landbúnaðarvörum á þessum tíma
er ekkert sem kemur neinum á
óvart, en hækkunin sjálf er hins
vegar meiri en maður hefði búist
við og hlýtur að hafa slæm áhrif á
aöhald í verðlagsmálum almennt.
Varðandi benzínhækkunina er
það mín skoðun að sú hækkun hefði
átt að koma inn strax í byrjun
maímánaðar í stað þess að draga
hana í mánuð. Ég held að það hafi í
sjálfu sér ekki heldur verið neinu
verðlagsyfirvaldi til gagns að láta
staðfestingu á þeirri samþykkt, sem
gerð var í Verðlagsráði í byrjun maí
dragast í mánuð.
— En er ekki með þessu verið að
gefa Iaunþegum með annarri hendi
en taka aftur með hinni?
„Það er í sjálfu sér alltaf verið að
gefa með annarri og taka með
hinni, það er alveg laukrétt. Og það
hefur verið ákaflega sterk tilhneig-
ing hjá stjórnvöldum að leika slíka
leiki þann tíma sem ég hef þekkt til
og að þessu sinni var af okkar hálfu
reynt að tryggja það, eins og kostur
var, að svo yrði ekki gert núna. Við
náðum því í gegn að gengið var frá
öllum þeim hækkunum nema bens-
ínverði sem fyrir lágu hjá Verðlags-
ráði fyrir útreikning vísitölunnar,
þannig að það sem kemur í kjölfarið
er kannski tiltölulega minna nú en
áður.
Flotamálaráðherra á
Keflavíkurflugvelli
því, að í bandaríska flotanum
verði 15 sóknarsveitir, sem eru
flotadeildir umhverfis flugmóð-
urskip. Bandaríkjamenn eiga
nú 12 flugmóðurskip, eitt er í
smíðum og fé hefur verið veitt
til að smíða hið fjórtánda.
Matthías og Egill á
fundum á Austurlandi
Flotamálaráðhcrra Banda-
ríkjanna John F. Lchman
dvaldist á Keflavikurflug-
velli á miðvikudag á lcið
sinni tii Parísar frá Wash-
ington. Ráðhcrrann kynnti
sér starfsemi varnarliðsins.
Var þctta fyrsta heimsókn
hans til handarískrar flota-
stöðvar utan Bandaríkjanna
síðan hann tók við embætti
sínu í ríkisstjórn Ronald
Reagans í janúar sl.
John F. Lehman er 38 ára og
yngsti flotamálaráðherra í sögu
Bandaríkjanna. í nýlegu viðtali
við bandaríska blaðið The New
York Times sagðist hann stefna
að því, að tryggja yfirburði
bandaríska flotans yfir þeim
sovéska í átökum. Stefna ríkis-
stjórnar Reagans er að fjölga
skipum bandaríska flotans úr
450 í yfir 600 á næstu 10 árum.
Lehman hefur sagst stefna að
Varðarferð
í Húsafell
HIN árlega Varðarferð verður
farin laugardaginn 4. júli nk.
Farið verður um Uxahryggi í
BorKarfjörð. Hádegisverðar verð-
ur neytt í Húsafelli. Þá ligKur
leiðin I Borgarnes ok yfir Borgar-
fjarðarbrúna. Á heimleið verður
ekið um Skorradal ok yfir Geld-
ingadraKa. Aðalfararstjóri verður
Einar Guðjohnsen.
Sú meginbreyting verður nú á, að
farið verður á laugardegi í stað
sunnudags, sem verið hefur föst
venja frá upphafi Varðarferða.
Þeim, sem hyggja á Varðarferð í ár
er bent á að fylgjast með auglýs-
ingum, en miðasala mun fara fram
í Valhöll, Háaleitisbraut 1 í vik-
unni fyrir ferðina.
Ferðanefnd.
Oddur Jónasson
forstjórí er látinn
ALÞINGISMENNIRNIR Matthí-
as Á. Mathiesen og Egill Jónsson
efna til almennra stjórnmála-
funda á Reyðarfirði, Eskifirði og
Norðfirði i næstu viku. Verða
fundir þessir öllum opnir, og
munu þingmennirnir flytja ræð-
ur á fundunum.
Fundurinn á Reyðarfirði verður
n.k. þriðjudga, 9. júní kl. 20.30. Á
Eskifirði verður fundurin mið-
vikudaginn 10. júní kl. 20.30 og á
Norðfirði fimmtudaginn 11. júní
kl. 20.30.
INNLENT
ODDUR Helgason forstjóri lézt í
Reykjavik aðfararnótt laugar-
dags. Oddur var fæddur í Reykja-
vik 22. nóvcmber 1903 og stund-
aði hann sjómennsku á árunum
1917 til 1928 og síðan verziun-
arstörf til 1936.
Frá 1936 starfaði hann við
Efnalaugina Glæsi, en hann var
forstjóri hennar og aðaleigandi.
Þá var hann framkvæmdastjóri
Byggingafélagsins Goða frá stofn-
un þess til 1948, einn af stofnend-
um Loftleiða hf., Almennra trygg-
inga hf. og húsgagnaverksmiðj-
unnar G. Skúlason og Hlíðberg hf.
Kona hans, Elísabet Jónsdóttir,
lézt hinn 2. júní sl. og voru þau
barnlaus.