Morgunblaðið - 07.06.1981, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 07.06.1981, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1981 11 — hvernig henni hefði líkað í skólanum, og hvernig hún liti á þetta nýja skólakerfi. — Ég var á viðskiptasviði. Skól- inn er ágætur, hann er frjálslegur en einna stærsti galli hans er hve lengi maður er að kynnast fólki almennilega. Telurðu gildi stúdentsprófsins vera hið sama og áður? — Nei, gildi stúdentsprófsins fer óðum minnkandi. Nú orðið verður að hafa þetta próf í næstum hvað sem er. Og með þessu minnkandi gildi stúdentsprófsins á allt til- standið minni rétt á sér að því er ég held. Hvað ætlar þú að gera nú að loknu prófi? — í sumar vinn ég í dómsmála- ráðuneytinu, en ætla að fá mér aðra vinnu í haust. E.t.v. fer maður svo í skóla svona seinna meir. - O - Kristjana Friðhjórnsdoftir út- skrifaðist frá Ármúlaskólanum í maí. Foreldrar hennar eru Frið- björn Kristjánsson og Kristín Ósk Óskarsdóttir. o Maria Guðnadóttir Finnur Árnason — Kristjana er áfangakerfið hentugra en hið venjulega bekkja- kerfi? — Fyrir suma er áfangakerfið hagstæðara, þ.e.a.s. sumir geta tekið námið á styttri tíma en venjulegt er og aðrir geta tekið sér lengri tíma. — Finnst þér þú vera betur undirbúin undir lífið eftir þessi fjögur ár. — Já, það tel ég hiklaust og þó ég fari ekki í framhaldsnám tel ég þetta góðan grunn undir lífið. — Hvað hyggstu nú gera þegar fram líða stundir? — Ég er ekki viss, því það er svo margt sem ég hef í huga. I augna- blikinu er ég að leita mér að vinnu. - O - Lárus Thorlacius er aðeins 17 ára að aldri og varð þar að auki dúx Menntaskólans í Hamrahlíð nú í vor. Lárus var á eðlis- og náttúru- fræðisviði, en hann er sonur Örnólfs Thorlacíusar og Guðnýjar Ellu Sig- urðardóttur. — Hvenær hófstu nám í M.H.? — Ég byrjaði 14 ára gamall, en var tveimur árum á undan í skóla. — Kanntu vel við punktakerfið? Sigrún Hólmfriður Óskarsdóttir — Ég kann alveg ágætlega vjð það. Maður ræður sér miklu meira sjálfur. Það er hægt að velja meira og einnig hægt að fara skemur yfir námið og lengur ef vill. — Telurðu þig hafa góðan undir- búning undir framhaldsnám og hvað ætlarðu að gera í framtíðinni? — Ég er nú alls ekki ákveðinn, en ætla allavega í efnafræði við Há- skóla íslands næsta ár. Ég kæmist náttúrulega ekki inn nema hafa stúdentspróf og hvort ég hef hlotið góðan undirbúning sýnir sig þá og verður bara að koma í ljós. - O - Stúdínan María Guðnadóttir var nýlega útskrifuð frá Ármúlaskóla. — Finnst þér stúdentsprófið hafa misst gildi sitt síðustu árin? — Já, nú hefur það svipað gildi og r m LÍÐAR€h IDl) Við höfum opið yfir há tíðisdagana Borðapantanir í síma 11690 frá kl. 2. A Gunnar Axelsson leikur d píanó í kvöld. gagnfræðaprófið hafði áður. Það er annar hver maður sem hefur stúd- entspróf nú orðið. — Finnst þér að herða mætti kröfurnar til stúdentsprófs? — Tja, það mætti allavega herða kröfurnar frekar en að minnka þær. — Hvað hyggstu varðandi fram- tíðina Marta? — Mig langar að hvíla mig um ársskeiö, en þá er ég jafnvel að hugsa um að læra kerfisfræði. — En er þá félagsfræðibraut ekki slæmur undirbúningur undir kerfis- fræðinám. , — Jú reyndar, en það var bara hægt að velja milli félagsfræði og viðskiptafræði og ég valdi að fara í félagsfræðina. — Var félagslífið öflugt hjá ykk- ur? — Já kór var starfandi hjá okkur svo og ýmsir klúbbar. Maria er dóttir Guðna Jónssonar og Eddu Magnúsdóttur. . - O - Finnur Ámason var einn af þeim fáu karlkynsstúdentum sem blaða- maður Mbl. náði til. Finnur er stúdent frá Verzlun- arskóla Islands og er sonur Árna Finnssonar og Sigríðar Oliversdótt- ur. — Hvernig gengu prófin fyrir sig? — Þau gengu bara vonum framar og voru hvorki erfiðari né léttari en ég bjóst við. — Finnst þér of mikið gert úr stúdentsprófinu? — Nei, þetta er bara áfangi fyrir framhaldsnámið og allt þetta til- stand í kringum prófið á fullan rétt á sér að mínu áliti. — Ætlarðu í framhaldsnám? — Ég mun að öllum líkindum byrja í viðskiptafræði næsta ár. Seinna meir, að lokinni viðskipta- fræði dreymir mig um að fara erlendis og leggja stund á hagfræði. Og þá stefnir hugurinn einkanlega til Bandaríkjanna. Næstu árin notar maður því að öllum líkindum til að mennta sig og móta hug sinn. - O - Sigrún Hólmfríður Óskarsdóttir er nýstúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík. Foreldrar hennar eru Guðrún Hjaltadóttir og Óskar Ingvason. Blm. tók Sigrúnu tali og spurði hvernig henni hefði þótt kennslufyr- irkomulagið í M.R. og hvort hún myndi vera hlynnt áfangakerfinu. — Ég var mjög ánægð með kennsluna í M.R. Þar eru góðir kennarar starfandi og mjög hæfir í sínu fagi flestir hverjir. Mér finnst gamla bekkjarkerfið hafa marga kosti þ.e.a.s. maður kynnist miklu betur innbyrðis heldur en í áfanga- kerfi. Og svona í heildina var ég fullkomlega ánægð með kennslu- formið í M.R. — Hvað með framtíðina Sigrún? — Nú í sumar fer ég sem skipti- nemi til Bandaríkjanna, en eftir þá dvöl er ég jafnvel að hugsa um að fara í hjúkrunarfræði við Háskóla Islands. — Er ekki einhver lífsspeki sem þú hefur eignað þér? — Jú, það er að láta hverjum degi nægja sína þjáningu og hverri stund <síní» <3apln

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.