Morgunblaðið - 07.06.1981, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 07.06.1981, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1981 13 borðið með hugarorkunni. Hann reyndi í þrjá tíma en ekkert gekk. Var þá ákveðið að fara í kaffi og fór Uri með þeim vísindamönnunum, sem einnig slökktu á myndatökuvélunum. Þegar þeir koma úr kaffi er það fyrsta sem þeir reka augun í úrið, en það liggur þá á borðinu og er það víst dæmigert fyrir þessa hæfileika Uris að hann gerir allt óvænt og þegar síst skyldi gruna. Það kom í ljos að ein myndatökuvélin hafði verið í gangi meðan þeir voru í kaffi og var rokið í að líta á filmuna. I fyrstu sást ekkert merkilegt en svo allt í einu birtist ljósglampi hátt yfir borðinu og stuttu seinna sást úrið svífa eins og dautt lauf niður og lenda mjúk- lega á borðinu. Filma þessi var ekki sýnd þarna í London. Svona gekk þetta á ráðstefn- unni og menn fluttu ræður um hin furðulegustu mál. Daginn eftir var minna um þær, heldur var skipt niður í umræðuhópa og þar reyndi ég eins og kostur var á að kynna íslenska UFO- menningu, sem vitanlega er á mjög lágu plani og nánast engin. Hápunktur ráðstefnunnar þótti mér þegar Portúgalinn Joaquim Fernandes talaði um niðurstöður rannsókna sinna á atburðum sm kaþólska kirkjan telur vera kraftaverk enn þann dag í dag. Þessir atburðir eru kallaðir Fatima-undrin og greina frá því þegar María mey birtist þremur börnum í Portú- gal. Það var 13. maí 1917 að fólk tók eftir glampandi ljóshnetti á himni og þrjú börn þóttust sjá það sem aðrir sáu ekki, nefni- lega litla konu í síðum hvítum kyrtli til hliðar við eða rétt ofan við ljóshnöttinn. Endurtók þetta sig aftur og aftur og fjöldi fólks sá þennan ljósglampa en aðeins börnin þrjú sáu litlu konuna í hvíta síða kyrtlinum. Þessi fyrirbrigði byrjuðu yfir- leitt á skæru ljósleiftri og um leið dró úr -sólarbirtunni. Svo kom lýsandi hnöttur svífandi og staðnæmdist rétt yfir ákveðnum runna. Alltaf sama runna. Stundum heyrðist lágt suðandi hljóð frá ljóshnettinum og í tveimur tilvikum féll frá honum efni sem í FFH-fræðum er kallað englahár. Það er hvítt klístrugt efni í þráðum eins og hár. Þótt þúsundir manna sæju þessa ljóskúlu þá voru það einungis þessir þrír krakkar sem sáu konuna, en krakkarnir voru viðstaddir alla þessa at- burði. Hún sagði krökkunum ýmislegt sem átti eftir að gerast í framtíðinni, meðal annars að 13. október þetta sama ár myndi gerast eitthvað enn undarlegra á þessum sama stað. Þann 13. október 1917 voru samankomin 70.000 manns til að fylgjast með því sem átti eftir að koma. Það var ausandi rign- ing en allt í einu stytti upp og ljóshnötturinn kom svífandi niður en hvarf strax aftur. Þá kom gat á skýjahuluna og menn sáu í gegnum þetta rof skínandi disk sem snerist um sjálfan sig og gaf frá sér skæra ljósgeisla í allar áttir. Diskurinn hætti að snúast og féll til jarðar með samskonar hreyfingum og úrið í dæminu um Geller. Fólkið varð skelfingu lostið og hélt að sólin væri að detta af himninum. Diskurinn virtist fá afl á ný og fór aftur upp. Fólkið tók eftir því að öll bleyta eftir úrhellið rétt áður var horfin. Tveir menn voru þarna með sjónauka og kváðust hafa séð tvær verur um borð og stiga sem lá út um dyr á diskinum. Kaþólska kirkjan telur þetta kraftaverk og heldur því fram að litla hvítklædda konan, sem börnin sáu, hafi verið María mey. Tvö barnanna dóu innan þriggja ára aldurs, en það er frægt að fólk deyi innan skamms tíma eftir að hafa orðið fyir svona reynslu og haft ein- hver meiriháttar kynni af fljúg- andi furðuhlutum. Þriðja barn- ið, Louisa, fór í klaustur og hvarf gersamlega sjónum manna þangað til Portúgalanum Fernandes tókst að finna hana og ræða um þessa atburði við hana. Spádómar Maríu mey voru skrifaðir á þrjú bréf og send páfa. Það fyrsta var opnað skömmu eftir heimsstyrjöldina fyrri og það næsta rétt eftir seinni heimsstyrjöldina. Síðasta bréfið var opnað 1960. Bréf þessi hafa aldrei verið birt opinber- lega og ekkert hefur frést um innihald þeirra. Nú í vor rændi kaþólskur munkur írskri far- þegaflugvél og ein af kröfum hans var sú að þetta síðasta bréf yrði birt opinberlega. Það var aldrei gert. Ætli næsta ráðstefna FFH- fræðinga verði ekki haldin í Edinborg vorið ’82, og það gæti vel hugsast að maður fari á hana. Eg hef geysilegan áhuga á þessu og er búinn að lesa ótölulegan fjölda af bókum, blöðum og tímaritum um þessi mál. Annars er ég nú að hugsa um að skrifa bók um fljúgandi furðuhluti. Það er alls ekkert öruggt að úr því verði, en ég er svona að hugsa um það. Verst er að maður hefur aldrei orðið var við svona hluti sjálfur." „Hvað þykir þér svona jafn- merkilegast að öllum þessum þúsunda FFH-fyrirbæra sem til eru“? „Já, ein kenningin er sú að þessi geimskip eða furðuhlutir geti framkallað einhversskonar ský, eða gufumekki, sem þau feli sig í. 28. ágúst 1915, svona um það leyti sem Gallipoli-orrustan stóð yfir í Tyrklandi, tóku menn eftir skýjabólstrum, sex til átta að tölu, á himninum, sem allir voru eins, líkt og brauðhleifar í laginu. Annars var himininn alveg heiður, og stóðu þessir bólstrar kyrrir þrátt fyrir sterka golu. Þarna var bresk herdeild sem hét „The first- fourth Norfolk" er voru að þramma upp veg einn á hæð 60 eins og hún hét á hernaðarkort- um. Nema hvað eitt af þessum skýjiím, á að giska 200 til 300 metra langt, lagðist yfir veginn rétt fyrir framan herdeildina. Hermennirnir, nokkur hundruð að tölu, hurfu inn í það labbandi í röð og var fjöldi sjónarvotta sem staðfesti það að þeir komu aldrei út úr því aftur. Skýið hóf sig á loft eftir eina klukkustund og hélt á braut ásamt hinum skýjabólstrunum. Herdeildin sást aldrei aftur og var skráð af Bretum týnd eða gereydd. Þegar Tyrkir gáfust upp heimtuðu Bretar að þeir skiluðu aftur herdeildinni en þeir héldu að Tyrkir hefðu tekið mennina til fanga. Tyrkir könn- uðust ekkert við þessa herdeild í sínum fangabúðum. Eða þessi: 1942 sáu menn um borð í lögreglubáti í San Franc- iskóhöfn, loftskip frá banda- ríska flotanum svífa yfir höfn- ina. Það var merkt V-8 og voru tveir menn um borð. Skyndilega var sem farið væri sogið upp í ský þar fyrir ofan og sást það ekki aftur fyrr en það brotlendi á götu í borginni og var það þá alveg mannlaust. Eða þessi um ... Vilja þá lifandi eða dauða Calcutta. 5. júní. AP. TVÖ hundruð þúsund takas, eða 87.000 ísl. krónur, hafa nú verið settar til höfuðs morð- ingjum Ziaur Rahman, for- seta Bangladesh, sem var myrtur 30. maí sl. Útvarpsstöðin í Dacca skýrir frá því í dag, að verðlaunin verði veitt, hvort sem morð- ingjunum tveim verður náð lifandi eða dauðum. Herdóm- stóll í Bangladesh hefur hafið rannsókn á morðinu, sem liðs- foringjar úr flughernum frömdu. Síðast sást til þeirra nærri hafharborginni Chitta- gong í Bangladesh. OlAflJS OÍSIASON & CO !li UMBOPSSM a MEILO^Al A Eigum fyrirliggjandi alter krókvogir 25 kg 50 kg 100 kg 200 kg á mjög hagstæðu verði. ÓlAfUK OfSlASON & <:o. »lf. SUNOABORG 22 104 REYKJAVlK • SÍMI 84800 TEIEX 2026

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.