Morgunblaðið - 07.06.1981, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1981
t
Faöir okkar ^
EINAR E. GUDMUNDSSON,
bifreiöarstjóri,
Rauöalœk 38
lést 5. júní.
Synir hins létna.
t
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
HJALTI SIGGEIRSSON
fró Raufarhöfn,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 10. maí kl.
13.30.
Þórhildur Kriatinadóftir og börn.
Faöir minn,
ÞORSTEINN SÖLVASON,
andaöist 4. júní.
Útförin fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfiröi þann 9. Júní kl. 2.
Blóm vinsamlegast afþökkuö.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Dvalarheimili
aldraöra sjómanna.
Gunnar Þorsteinsaon.
Eiginmaöur minn og faöir ,
SIGUROUR GUDMUNOSSON
smiöur,
Hjaröarholti 8, Akranesi,
lést í Sjúkrahúsi Akraness þriöjudaginn 2. júní.
Jaröarförin ákveöin þriöjudaginn 9. Júní frá Akraneskirkju kl. 2.
Þeim. sem vildu mlnnast hans. er bent á líknarstofnanlr.
Quöiaug Ólafsdóttir og börn.
t
Maöurinn minn,
JÓN SIGURDSSON,
sem andaöist aö Sólvangi, Hafnarfiröl, mánudaginn 1. júní, veröur
jarösunginn frá Prestbakkakirkju á Sföu miövikudaginn 10. júnf kl.
2.00.
Margrét Magnúsdóttir.
t
Eiginkona mín, móöir okkar og tengdamóöir,
KRISTÍN MARÍA SÆMUNDSDÓTTIR,
Austurbrún 4,
veröur jarösett frá Fossvogskirkju flmmtudaginn 11. Júní kl. 11.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknarstofnanir.
Jóhannes Gislason,
Reynir Jóhannesson, Hjördís Sturlaugsdóttir,
Elsa Mosdal, Sumarliöi Mosdal,
Sólrún Jóhannesdóttir, Stefén Siggeirsson.
t
Hjartans þakkir sendum viö öllum þeim, sem auösýndu okkur
hlýhug og tryggö vlö andiát og jaröarför móöur okkar,
ÁGÚSTU I. SIGURDARDÓTTUR,
Ólafsvik.
Marta Kristjénsdóttir,
Kristbjörg Kristjénsdóttir,
Sigrióur Hallbjörg Kristjénsdóttir,
Hinrik Pélsson
og aörir vandamonn.
t
Útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
MAGNÚSARHANNESSONAR
rafvírkjameistara,
Hagamel 25, Reykjavík,
veröur gerö frá Neskirkju þriöjudaginn 9. júní kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuö, en þeim, sem vildu minnast hins
látna, er bent á Frændasjóö í vörslu Páls Lýössonar, Litlu-
Sandvík, eöa Líknarsjóö Barnaspítala Hringsins.
Guörún Margrét Þorsteinsdóttir,
Hannes Nordal Magnússon, Ásta Valdimarsdóttir,
Magnús Þór Magnússon, Hrefna María Gunnarsdóttir,
Margrét Oddný Magnúsdóttir, Stefén Jóhann Hreiöarsson
og barnabörn.
Minning:
Magnús Hannesson
rafvirkjameistari
Fæddur 2. desember 1905.
Dáinn 30. maí 1981.
Hvað sem tækni og vísindum
fleygir fram hefur mannanna
börnum aldrei tekist að lyfta frá
þeirri hulu em gerir framtíðina
óráðna. Frá því við förum að
vitkast er okkur ljós ein staðreynd
framtíðarinnar, það er dauðinn.
En hvenær og hvar hann hittir
hvert og eitt okkar er leyndardóm-
urinn mikli. Veggurinn sem sífeilt
gerir vart við sig er við lítum
fram, verður ekki lengur til í
vitund okkar fyrir framan þann
sem lýkur ævi sinni. Staðreyndin
er búin, lokið ævi einstaklings
langri eða skammri — þokukennd-
ar hugsanir okkar geta fylgt sál
hans eftir, fylgt henni í dýrðarríki
óendanlegrar sælu — ef hugsun-
um okkar er þannig farið. En þótt
okkur sé meinað að sjá skyggnum
augum fram á veg, er því öðru vísi
farið er við lítum til baka. Þá
getum við rakið ævi þess sem
genginn er og fundið í sannleika
og einlægni hvern við erum að
kveðja.
Magnús Hannesson rafvirkja-
meistari varð bráðkvaddur 30. maí
sl. sjötíu og fimm ára að aldri.
Langri og óvenju atorkuríkri ævi
hans er lokið. Við sem lifað höfum
langa ævi, hljótum öll að vera
mjög kunnug þeirri tilfinningu að
stundum verkar dauðsfall þannig
á vitund okkar að okkur finnst allt
hrynja kring um okkur og við
stöndum sem ráðvillt og lömuð á
berangri, finnum enga lausn, enga
leið.
Þessi er algengust tilfinning er
mætir ástvinir falla frá, en hún
getur líka ráðið hugsunum okkar
er samferðafólk, sem við þekkjum
vel, hefur með lífsbreytni sinni
varpað þeim styrk og því ljósi á
veginn að svo syrtir að í vitund
okkar er það kveður. Slikur maður
var Magnús afi, eins og hann var
kallaður í fjölskyldu okkar.
Óvenju atorkusamur, hlýr og skýr
maður, sem allt frá barnæsku
gekk grandvaran lýsandi veg til
hinsta dags.
Magnús Hannesson var fæddur
að Stóru-Sandvík í Flóa 2. des.
1905. Þar ólst hann upp í stórum
systkinahóp við það lífsstrit, sem
fylgdi hverri barnmargri fjöl-
skyldu á þeim tímum. En þrátt
fyrir fátækt varð Stóru-Sandvíkur
heimilið rómað fyrir þá kosti er
prýða best bændaheimili og þá er
þar búa.
Magnús fór snemma að heiman
til þess að vinna. 16 ára gamall fór
hann til sjós — og loftskeytamað-
ur var hann á skipum. Hann lauk
sveinsprófi í rafvélavirkjun og
stofnaði rafvélaverkstæðið Segul,
sem hann rak um hríö, en 1945
stofnaði hann ásamt bróður sín-
um, Oddi, rafvélaverkstæðið
Volta. Eftir að Oddur féll frá rak
Magnús það einn til dauðadags.
Árið 1934 giftist Magnús eftirlif-
andi konu sinni Guðrúnu Margréti
Þorsteinsdóttur frá Eyjólfsstöðum
í Vatnsdal. Þau eignuðust þrjú
börn. Elstur er Hannes Nordal,
rafmagnstæknifræðingur, kvænt-
ur Ástu Valdimarsdóttur kennara.
Magnús Þór, rafmagnsverkfræð-
ingur, kvæntur Hrefnu Maríu
Gunnarsdóttur hjúkrunarfræð-
ingi og yngst er Margrét Oddný,
meinatæknir, gift Stefáni Jóhanni
Hreiðarssyni lækni.
Við kynntumst þeim Guðrúnu
og Magnúsi fyrst er fjölskyldur
okkar tengdust þeim fyrir meir en
hálfum öðrum áratug síðan. í
gegnum tíðina hafa þau kynni öll
verið á sama veg. Þótt við finnd-
um strax að þarna fór sérlega gott
og mannbætandi fólk er Magnús
og fjölskylda hans voru — er það
kannski mest um vert að samleið
okkar allra hefur verið á þann veg
að óvenju bjart er að líta til baka.
Ekki er að efa að hinn persónu-
sterki og hreinskipti maður Magn-
ús afi átti sinn ríka þátt í
velfarnaði fjölskyldu sinnar.
Hann var afburða heimilisfaðir
sem átti mikinn hjartans auð til
að miðla konu sinni og börnum
sínum. En enginn stendur einn að
slíkum myndarskap. Þau hjón
voru samhentari, en ég held að
almennt gerist — og allt heimilis-
líf þeirra mótaðist af þeirri ham-
ingju>
Þótt Guðrún amma viti best hve
mikils virði það er slíkum manni,
sem Magnúsi afa, var að falla frá í
önnum dagsins — og hún beri sorg
sína af aðdáunarverðri reisn sam-
kvæmt því, veit hún einig best
hvers hún og ástvinir hennar hafa
misst.
Við hin sem finnum sorgina
umlykja okkur við fráfall hins
mæta manns, finnum einnig hinn
mikla vanmátt er hertekur
mannssálina undir slíkum kring-
umstæðum. Það eina sem við
getum er að biðja Alvaldið mikla
að styðja og styrkja Guðrúnu
ömmu og ástvini þeirra alla fram
um veg, þakka fyrir samfylgd hins
stórbrotna manns og biðja bless-
unar honum og minningu hans.
j Jenna Jensdóttir
Næstkomandi þriðjudag verður
til moldar borinn Magnús Hann-
esson, rafvirkjameistari, móður-
bróðir minn og áratuga vinur, svo
langt sem ég man til baka.
Hann var fæddur að Stóru-
Sandvik í Flóa, sonur Hannesar
Magnússonar bónda þar og konu
hans, Sigríðar Kristínar Jóhanns-
dóttur. Börnin á bænum, sem
lifðu, urðu 14, og var Magnús það
fimmta í röðinni. Ungur missti
hann föður sinn, svo hann lærði
snemma að taka til hendinni í
stórum systkinahópi. Móðirin bjó
áfram með börnum sínum öllum
og í þá tíð kom sér vel hús-
mennska Magnúsar bróður Hann-
esar og Katrínar konu hans, sem
voru börnunum eins og faðir og
móðir. Sannaðist þar máltækið
gamla, að þegar neyðin er stærst,
þá er hjálpin næst. Með samstilltu
átaki Sigríðar, Magnúsar og Katr-
ínar var búið áfram og öllum
barnaskaranum komið til manns.
í öllu því róti, sem nútíminn og
velsældin hefir komið á mannlífið,
er manni eins og mér hollt að
staldra við og minnast æskudaga
sinna og kynna af stórri fjölskyldu
sinni. Um mína daga hefi ég ekki
kynnst annarri eins samheldni og
frændrækni og ríkir innan hinnar
stóru Sandvíkurfjölskyldu. Ég
hefi oft verið að velta því fyrir
mér af hverju þetta væri svona og
svarið, sem ég hefi gefið sjálfum
mér, er það, að hin hörðu kjör í
æsku hafi þjappað þeim saman,
skapað og mótað hvert systkin-
anna með þeim hætti, að sam-
heldnin, virðingin og ást þeirra
hvert á öðru hefir haldist til
æviloka.
Fyrst man ég eftir Magnúsi
frænda mínum er hann gisti hjá
foreldrum mínum á leið í skiprúm
á togara. Hnokkinn ég varð heill-
aður af þessum stóra manni, sem
átti að fara á skipið. Vitið var nú
ekki meira þá en svo, að sigling
þýddi eitthvað í burtu. En hann
kom aftur og þá var fögnuður, því
hann gleymdi ekki litlum vini
sínum, þegar komið var heim úr
siglingu og fallegir bílar úr út-
löndum voru ekki algeng leikföng
lítilla snáða skömmu eftir 1930.
Magnús nam rafvirkjaiðn hjá
Eiríki Ormssyni rafvirkjameist-
ara. Stofnaði síðan ásamt öðrum
Rafvélaverkstæðið Segul. Gekk úr
því og stofnaði árið 1945 Rafvéla-
verkstæðið Volta, ásamt Oddi
bróður sínum. Ráku þeir verk-
stæðið í félagi þar til Oddur lést,
en síðan hefir Magnús rekið það
einsamall, síðustu tvö árin ásamt
yngra syni sínum, Magnúsi Þór.
Fyrirtækið hefir frá stofnun þess
notið óskoraðs trausts viðskipta-
vina sinna, sem báðir bræðurnir
áttu þátt í að skapa og Magnús
haldið áfram að auka við eftir að
hann varð einkaeigandi. Oft voru
Magnúsi falin vandasöm verkefni,
á stundum sem aðrir höfðu gefist
upp við. Hann hætti aldrei fyrr en
verkefnið var leyst og allt komið í
lag. Ráðgjafi reyndist hann og
góður í mörgum málum er snertu
starfsgrein hans. Ég naut slíkrar
ráðgjafar oftar en einu sinni og
álit hans eða úrskurður brást ekki.
Ég geri ráð fyrir, að margir hafi
sömu sögu að segja.
Nú, þegar Magnús er allur,
sakna ég vinar í stað. Hann skilur
eftir sig tómarúm, sem enginn
fyllir. Persónuleiki hans var sér-
stæður. Einurð, áræðni, góðvild og
kraftur fylgdu honum hvar sem
hann fór. Hann var fyrst og
fremst stórbrotinn einstaklingur,
bundinn við starf sitt af áráttu
athafnamannsins, sem vildi koma
öllu af, sem hann tók að sér og það
án ástæðulausrar tafar. Sjálfur
hlífði hann sér aldrei og var
hamhleypa til vinnu að hverju
sem hann gekk. Slíkir menn geta
gert kröfur til annarra en erfitt
og ómögulegt getur oft reynst að
fylgja slíkum mönnum eftir, hvað
þá að ná því að vera jafnokar
þeirra.
Ég gat áðan samheldni fjöl-
skyldunnar stóru, sem er einstök.
Magnús lagði sjálfur mikið upp úr
henni og fylgdist með öllum,
ungum og gömlum, þó ekki færi
hátt. Þegar hann varð sjötugur
kallaði hann saman alla þá fjöl-
skyldumeðlimi sem hægt var að
ná til og bauð til veizlu, sem lengi
verður í minnum höfð og hvetur
þá yngri til samstöðu og skilnings
á því hvers virði það er að rækta
og viðhalda ættarböndum og
frændsemi. Hann gleymdi aldrei
uppruna sínum, unni sveitinni
sinni og fæðingarstað og var þar
tíður gestur. Hann gleymdi heldur
Lokað
verður þriöjudaginn 9. júní frá hádegi, vegna
jarðarfarar
MAGNÚSAR HANNESSONAR
rafvirkjameistara.
Volti H/F.
Lokað
vegna jarðarfarar þriðjudaginn 9. júnífrá 1—3 e.h.
SMITH & NORLAND H/F,
Nóatúni 4,105 Reykjavík.