Morgunblaðið - 07.06.1981, Síða 27

Morgunblaðið - 07.06.1981, Síða 27
ekki þeim sem farnir eru og á hverju vori gerði hann sér ferð austur í kirkjugarðinn á Stokks- eyri til þess að fegra og snyrta grafreit foreldra sinna. Þessu verki hafði hann lokið á þessu vori, áður en hann féll frá. Ég mun ætíð minnast frænda míns, Magnúsar, sem hins stór- brotna fullhuga, sem gekk að hverju máli með það eitt takmark að leysa það og hafa sigur. Fáa menn veit ég mér nákomna, sem náð hafa takmarki sínu betur en hann. Magnús var gæfumaður í einka- lífi sínu. Hlaut góða konu, Guð- rúnu Margréti Þorsteinsdóttur, föðursystur mína, frá Eyjólfs- stöðum í Vatnsdal. Jafnræði var á með þeim hjónum, gagnkvæmur skilningur, ást og tillitssemi sem gerir mannlífið fagurt. Þeim varð þriggja barna auðið. Elstur er Hannes Nordal, rafmagnstækni- fræðingur, þá Magnús Þór, raf- magnsverkfræðingur með dokt- orsgráðu, og yngst er Margrét Oddný, húsfreyja, öll augasteinar og yndi foreldra sinna og móður- inni mikill styrkur nú á saknað- arstundu. Magnús vissi alltaf hvert hann var að fara. Hann vissi hver gaf honum lífsandann og kraftinn. Hann efaðist aldrei um hvert ferðinni væri heitið og nú er hann kominn heim. Að leiðarlokum þakka ég sam- fylgdina með mér og mínum. Minningin er eftir hrein og tær um góðan dreng. Hana tekur enginn frá okkur. Guðrúnu frænku minni, bömum þeirra og barnabörnum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Hannes Þ. Sigurðsson Það vorar fyrr í Baltimore en á okkar norðlæga landi og sumarið gekk í garð fyrir nokkru. Sumar- komunni í ár fylgdi sérstök til- hlökkun og eftirvænting fyrir fjöl- skyldu mína, því að Magnús afi ætlaði að koma í heimsókn vestur um haf í fyrsta skipti. En aðstæð- ur breytast skjótt. Árla morguns 30. maí barst sú fregn, að Magnús hefði lagt upp í aðra og lengri ferð, sína hinztu. Hann hafði orðið bráðkvaddur í dagsins önn þann morgun. Með Magnúsi er genginn góður maður og gegn, og hlýtur æviferill hans að verða okkur, er eftir lifum, sífelld hvatning til nýrra átaka. Hann ólst upp á barnmörgu og kærleiksríku heimili, en hélt snemma að heiman og með atorku og framsýni ruddi hann sér braut í athafnalífi þjóðarinnar. Lagði hann þar með stóran skerf til uppbyggingar atvinnulífsins í MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1981 27 landinu. Rak hann fyrirtæki sitt, Rafvélaverkstæðið Volta, af sömu röggsemi og einkenndi öll hans störf og var vinnudagurinn oft langur, enda gekk hann þar oft í hvert verk allt til dauðadags og gekk vinnan og heill fyrirtækisins alltaf fyrir hvíld og tómstunda- gamni. Sama atorkan lýsti sér í verkum hans, er hann byggði sumarbústað nærri bernskustöðvunum, sem voru honum einkar kærar. Þar eyddi hann mörgum stundum til að rækta og fegra og búa þar með afkomendum sínum athvarf í ís- lenzkri náttúru, sem hann unni svo mjög. Magnús var ákveðinn og einarð- ur í skoðunum og gat verið óvæginn í rökræðum og hreinskil- inn. Þetta byggðist hins vegar á mjög staðfastri lífsskoðun og glöggskyggni, og hann var alltaf falslaus og samkvæmur sjálfum sér. Hann var fljótur til að ljá þeim málstað lið, er hann taldi réttan, þó að það kynni að valda honum óþægindum. Hann var örlátur og hjálpsamur svo af bar, og veit ég, að margir leituðu til hans þar um. Var hjálpin alltaf auðfengin, en gjarnan fylgdi henni hvatning til góðra verka. Hann bjó yfir einlægri trú á Guð sinn og fyrirleit alla skinhelgi í þeim efnum. Hann var vel að sér í þjóðlegum bókmenntum og fróð- leik og gaf sér alltaf tíma til lestrar, þrátt fyrir langan vinnu- dag. Árið 1934 kvæntist Magnús eft- irlifandi eiginkonu sinni, Guðrúnu Margréti Þorsteinsdóttur frá Eyj- ólfsstöðum í Vatnsdal. Voru þau hjón samhent mjög um að búa sér og börnum sínum traust og kær- leiksríkt heimili. Einkenndist samband þeirra hjóna af einstöku trygglyndi og samheldni. Var öll- um, er til þekktu, ljóst, að Magnús kunni vel að meta fornfúst starf Guðrúnar á heimili þeirra. Magn- ús var afburða barngóður og hændust því barnabörnin mikið að honum og nutu handleiðslu hans í ríkum mæli. Við kveðjum frábæran föður, tengdaföður og afa, og um leið og við finnum hve mikils er misst, vitum við, að það voru gæfusöm forréttindi að hafa átt slíkan mann að sem Magnús afa. í sorginni er það viss gleði, að minningin um hann er svo lifandi í vitund eldri barna okkar, sem fengu að kynnast honum, að við vitum, að litla dóttir okkar, sem aldrei fékk að sjá eða njóta samvista við afa, mun seinna eiga hiutdeild í þeim endurminningum. Blessuð sé minning hans. Stefán J. Ilreiðarsson Hafliöi Guðmundsson Siglufiröi - Minning Fa'ddur 24. febrúar 1921. Dáinn 16. maí 1981. Virtur og elskaður Siglfirðingur hefur yfirgefið mannheima. Hafliði vinur okkar og frændi var einstæður maður því hann gat ekki eitt heldur gat hann allt. Hann kenndi við Gagnfræða- skólann á Siglufirði í 30 ár, aðallega reikning og eðlisfræði. Hafliði var góður hljómlistar- maður, ágætur söngmaður og orkti snilldarlega þegar hann vildi við hafa, en þá gáfu hefur hann eflaust sótt til afa síns Páls Árdals skálds með meiru. Hafliði var stórteiknari og ágætur málari og eru margar gullfallegar myndir til eftir hann víða á landinu. Þær eru ekki ófáar ökuferðirn- ar, sem Hafliði og Þura, eftirlif- andi elskuleg eiginkona hans, fóru inn að Hrauni og fram í Fljót til að njóta sameiginlega hins himn- eska sólarlags, sem gerði svo oft vart við sig í myndum Hafliða og ljósmyndum. Það þarf ekki að segja Siglfirð- ingum frá Hafliða og Þuru. Það vita allir hversu einlægt og elsku- fullt samband var á milli þeirra hjóna. Hafliði og Þura áttu einn son, Guðmund Hafliðason tannlækni í Reykjavík, en hann hefur svo sannarlega erft hina góðu kosti foreldra sinna. Guðmundur er giftur Auði Yngvadóttur sellóleik- ara hjá Sinfóníuhljómsveit ís- lands. Síðustu árin var Hafliði mikill áhugamaður um golf og brást ekki, ef veður og heilsa leyfði, að hann færi fram að Hóli til að spila með félögum sínum. Kynni mín af Hafliða eru mjög minnisstæð. Þegar ég gifti mig fyrir 17 árum var ákveðið, að við færum norður á Siglufjörð til að hitta ættingja og vini konunnar. Það var auðvitað Hafliði og fleira gott fólk, sem stóð í fararbroddi við komuna inni í Fljótum, því ekki kom til greina að við keyrðum umkomulaus yfir og í gegn um Siglufjarðarkaupstað á svo merk- um tímamótum. Ekki kom þessi hrókur alls fagnaðar síður á óvart um kvöldið heima hjá tengdaforeldrunum, Hirti Ármannsyni og Sigríði Guð- mundsdóttur, að Norðurgötu 1 í gamla Hafliðahúsinu, þegar hann söng hvert kúrekalagið af öðru með fullum texta og auðvitað á ensku. Þetta gaf gamla Hafliðahúsinu heimsborgaralegan blæ og kom manni sannarlega á óvart að hitta mann norður á Siglufirði, sem gat sungið og spilað svo frábærlega kúrekalög frá Ameríku. Kveðjuathöfnin á Siglufirði var sterk og einlæg. Skólabörnin fjöl- menntu við kirkjuna til að votta kennara hinstu samúð og virðingu eftir hin mörgu ár við gagnfræða- skólann á Siglufirði. Litla flug- vélin beið á flugvellinum eftir að flytja Hafliða og hans heitt elsk- uðu fjölskyldu suður til Reykja- víkur. Mannfjöldinn stóð dapur eftir með minningarnar einar um góðan dreng. Það var sorgarstund en hátíðleg hér fyrir sunnan við útför Hafliða sem sr. Emil Björnsson mágur hans flutti af svo miklum hlýhug. Hafliði var jarðsettur í Foss- vogskirkjugarði 22. maí á fögrum stað við voginn, sem óneitanlega minnti á Siglufjörð nema hvað fjöllin vatnaði. Við vottum Þuru, Guðmundi og öðrum ástvinum dýpstu samúðar. Glsli Rafknunir hverfisteinar 1 Sérstaklega hentugir fyrir smiöi, bændur, hótel, frystihús og föndurvinnu. Póstendum. Verslunin Símar 24320 — 24321 — 24322. Hljómflutningstækin þín veróa akflrei betri en hátalaramir sem þú tengjr við þau! Það er næstum því sawna hvað tækin þín heita - Akai, Marantz, Pioneer, Fischer, Philips, Sony, Sanyo eða Plupp - tóngæðin byggjast mest megnis upp á hátölurunum. Auðvitað skiptir talsverðu máli hversu góð tækin eru, en þó er mikfu mikilvægara hvaða hátalara þú notar. Þess vegna ber öllum „stærri spámönnum” saman um að verð hátalara megi nema allt að 70% af heildarverði samstæðunnar. Þar af leiðandi hljóta flestir að kynna sér Bose, því Bose hátalarar eru viðurkenndir jafnt af áhugamönnum sem atvinnumönnum. Komdu og kíktu ó okkur - og Bose Bose 301 hátalarasett Kr. 3.662.- Sérstök hljómskyggnusýning í verslun okkar að Sætúni 8 segir þér allan sannleikann um Bose (Gengl 2t.S.’81) OSA Yfirburðir Bose felast í fullkomnu samspili beinna og endurkastaðra tóna. eimilistæki Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.