Morgunblaðið - 16.06.1981, Page 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
132. tbl. 68. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
4 andófsmenn
koma fyrir rétt
og a.m.k. 26 félagar úr verkalýðs-
hreyfingunni Samstöðu voru í mót-
mælasvelti til að knýja á um að þeir
yrðu látnir lausir. Fjórir þeirra voru
enn í. mótmælasvelti í dag, 15.
daginn í röð, í Katowice, þar á meðal
kona Moczulskis, Maria. Tilgangur-
inn er að fá menn leysta úr haldi er
voru fangelsaðir fyrir 11 árum fyrir
að sprengja upp byggingu. Líðan
þeirra er sögð góð.
Jafnframt beina bandalagsríki
Póllands athyglinni að loforðum
pólskra leiðtoga um skjótar aðgerðir
gegn „gagnbyltingu", „andsósíal-
isma“ og „andsovétisma". En í dag
var enn unnið skemmdarverk á
sovézku stríðsminnismerki, að þessu
sinni í Gizycko, Norðaustur-Pól-
landi. Einhver skvetti málningu á
sovézkt stríðsminnismerki í Lublin á
laugardaginn.
Biaðið „Rude Pravo“ í Prag sagði
atburðinn i Lublin sýna að áhyggjur
Kremlverja af Póllandi væru rétt-
lætanlegar. Samstaða gagnrýndi
einnig atburðinn og leiðtogi hennar,
Lech Walesa, kallaði hann ögrun
gegn verkalýðshreyfingunni.
Yfirvöld telja KPN aðhyllast
hægristefnu og öfgafulla þjóðern-
isstefnu. Fjórmenningarnir, sem
mættu fyrir rétti í dag, eru ekki
aðeins ákærðir fyrir að kollvarpa
ríkisstjórninni, heldur einnig fyrir
að veikja hernaðarmátt landsins.
Viðurlögin eru frá fimm ára fangelsi
til lífstíðarfangelsis.
Fjórmenningarnir hafa verið í
haldi síðan í fyrrahaust er Moczulski
gagnrýndi leiðtoga Póllands í viðtali
við „Der Spiegel" og gaf í skyn að sá
tími kæmi er Pólland segði sig úr
Varsjárbandalaginu. Um 140 manns
fylgdust með réttarhöldunum í dag
og þegar sumir hrópuðu og klöppuðu
er ákæran var lesin upp, hótaði
dómarinn að ryðja salinn. Fólkið var
með pólskan fána og borða, sem á
stóð: „Pólitísk réttarhöld eru smán-
arblettur á pólsku þjóðinni.“
Sakborningarnir hafa stöðugt
haldið fram sakleysi sínu, en sam-
tökin virðast njóta lítils fylgis.
Samstaða hefur barizt fyrir frelsun
þeirra eins og annarra pólitískra
fanga, en tekið fram að hreyfingin
styðji ekki stefnu þeirra.
Fjórir pólskir andófsmenn, sem eru ákærðir fyrir starfsemi fjandsamlega rikinu, fyrir rétti í Varsjá í gær.
Leiðtogi þeirra, Leszek Moczulski, er standandi. Hinir sakborningarnir eru Romuald Szeremietiew,
Tadeusz Stanski og Tadeusz Jandziszak.
Varsjá. 15. júnl. AP.
FJÓRIR andstæðingar kommúnista
úr fámennum samtökum hægri-
manna. „Bandalagi sjálfstæðs Pól-
lands“ (KPN), voru leiddir fyrir
rétt í dag og hlýddu á ákæru um að
þeir hefðu stofnað til samsæris um
að kollvarpa pólsku ríkisstjórninni.
en leiðtogi þeirra, Laszek Mocz-
ulski. lýsti þvi yfir að hann mundi
berjast gegn ákærunni með „laga-
legum ráðum“.
Þetta eru fyrstu réttarhöld af
þessu tagi i Póllandi síðan ólga
verkamanna hófst í fyrrasumar og
búizt er við að þau verði löng.
Moczulski og félagar hans voru
fluttir úr Rakowiecka-fangelsi
Varsjá fyrir 10 dögum, á sama tíma
Beirút. 15. júnl. AP.
HÁLF MILLJÓN stuðningsmanna
íranska byltingarleiðtogans aya-
tollah Khomeini þustu út á götur
Teheran i dag eftir gagnrýni
trúarleiðtogans á andstæðinga
sina og áskorun hans til Abolhass-
an Bani-Sadr forseta að biðjast
opinberlega afsökunar á mistök-
um sínum.
Hópar vinstrisinna og þjóðernis-
sinna sem styðja forsetann höfðu
hvatt til víðtækra mótmælaaðgerða
í höfuðborginni, en þær virðast
hafa runnið út í sandinn vegna
harðrar ræðu Khomeinis, er var
útvarpað.
Khomeini lýsti fund stjórnarand-
stæðinga „ólöglegan" og „óislamsk-
an“ og átaldi Bani-Sadr fyrir að
leyfa andstæðingum ríkisstjórnar-
innar að kynda undir ólgu í hans
nafni. Hann skoraði á forsetann að
„iðrast" í útvarpi og sjónvarpi.
í fylkishöfuðborginni Ahvaz í
suðurhluta írans var sagt að stuðn-
ingsmenn Bani-Sadr hefðu farið út
á göturnar í Behbehan og hrópað:
Khomeini trúarleiðtogi á fundi með starfsmönnum „aðalstöðva menningarhyltingarinnar" i Teheran.
„Aðeins einn maður er yfirmaður
hersins og hann er Bani-Sadr.“
Khomeini hefur vikið Bani-Sadr úr
því starfi.
Annars staðar virðist ekkert hafa
orðið úr mótmælaaðgerðum stuðn-
ingsmanna Bani-Sadr. Hundruð
þúsunda khomeinisinna gengu
fylktu liði um helztu götur Teheran,
en ekkert bar á hópum stjórnarand-
stæðinga. Skothljóð heyrðust
nokkrum sinnum og myrkur varð í
borginni þegar rafmagnslaust varð.
Khomeini talaði aðeins um Bani-
Sadr í ræðu sinni sem „þennan
herramann". Reiði hans beindist
aðallega gegn Þjóðfylkingunni,
flokki stjórnarandstæðinga undir
forystu Karim Sanjabi fv. utanrík-
isráðherra. Reiði hans virtist stafa
af þeirri fullyrðingu að Þjóðfylk-
ingin hafi gengið til samstarfs við
Khalq-flokk marxista.
„Þessi Þjóðfylking er vítaverð. Ég
hvet ykkur til að segja skilið við
hana. Ég var góður við hana og tók
á móti ieiðtogum hennar, en ég vissi
ekki þá hvað þeir höfðu í hyggju. Ég
vissi ekki að þeir mundu rísa gegn
Kóraninum."
500.000 stuðningsmenn
Khomeinis út á götumar
Olíulækkun
í Bretlandi
Londun, 15. júni. AP.
VERÐ á brezkri Norðursjávar-
oliu hefur veriö lækkað um 4,25
dollara í 35 dollara tunnuna að
sögn BP og Shell i dag.
Ríkisfyrirtækið BNOC, sem er
meirihlutaaðili í vinnslu olíu úr
Norðursjó, ákvað hækkunina. BP
kveðst telja hækkunina viðun-
andi, þótt félagið færi fram á 5
dollara lækkun. BNOC bauð 2
dollara lækkun 6. júní, en við-
skiptavinir töldu það ekki nóg.
Lækkunin mun skerða tekjur
brezka ríkisins um 850 milljónir
punda á ári. Lækkunin var nauð-
synleg vegna lækkunar annars
staðar. Hátt verð Norðursjávar-
olíu hefur einkum spillt sam-
keppnisaðstöðu BP gagnvart
keppinautum fyrirtækisins sem
hafa fengið olíu frá Saudi-Arabíu
á 32 dollara tunnuna. BP hefur
tapað allt að 10 milljónum punda
á viku að undanförnu.
Erfiðar
viðræður
PekinK. 15. júni. AP.
ALEXANDER Ilaig. utanrikisráð-
herra Bandarikjanna. ræddi við kin-
verska leiðtoga i Peking i dag, annan
daginn i röð, og ýmislegt benti til þess
að viðra'ðurnar gengju ekki vel.
Bandarískir embættismenn voru
mjög ánægðir með viðræðurnar í gær
og sögöu þá að báðir aðilar hefðu mjög
likar skoðanir í heimsmálunum.
Sömu embættismenn neituðu að skýra
frá því hvaða mál hefðu verið rædd í
dag og vildu jafnvel ekki segja hvort
Taiwan, aðalásteytingarsteinninn í
samskiptum Bandaríkjanna og Kína,
hefði verið á dagskrá.
Róleg viðbrögð við
stórsigri sósíalista
París, 15. júní. AP.
VIÐBRÖGÐ í kauphollinni í Paris í dag við öruggum sigri vinstrisinna i
fyrri umferð frönsku þingkosninganna í gær voru misjöfn, gagnstætt þvi
sem uppi varð á teningnum eftir sigur Francois Mitterrands í forsetakosn-
Ingunum.
Viðskipti gengu rólega fyrir sig
þrátt fyrir æpandi fyrirsagnir dag-
blaða með fréttum um mikla fylgis-
aukningu sósíalista. Samkvæmt
lokatölum fengu vinstriflokkarnir
55,7% atkvæða en hægriflokkarnir
43,1%.
Meira máli skiptir ótrúleg fylgis-
aukning sósíalistaflokksins, sem
tölvuspár segja nær öruggan um
hreinan meirihluta á þinginu, sem er
skipað 491 fulltrúa, þannig að hann
geti stjórnað án stuðnings kommún-
ista.
Kunnugir menn í kauphöllum
segja að margir kaupsýslumenn séu
ánægðir með úrslitin þar sem þau
dragi úr hættu á mikilvægu hlutverki
kommúnista í ríkisstjórn Mitter-
rands eftir kosningarnar. Frönsk
hlutabréf hafa lækkað um einn
fjórða í verði síðan forsetakosn-
ingarnar fóru fram.
Fjárfestingaraðilar óttast fyrir-
ætlanir um þjóðnýtingu
En frankinn stendur vel að vigi
gagnvart dollar, hefur hagnazt á falli
hans og hækkaði i dag.
Samkvæmt lokatölum unnu sósial-
istar og róttækir vinstrimenn 49
þingsæti í fyrri umferð og sam-
kvæmt tölvuspám fá þeir milli 244 og
300 þingsæti, en þurfa 246 sæti til að
fá hreinan þingmeirihluta. Kommún-
istar fengu sjö þingsæti i fyrri
umferð og munu fá um 45 alls. Á
siðasta þingi höfðu sósíalistar 117
þingsæti, en kommúnistar 86.
Flokkur gaullista og miðflokkur-
inn UDF unnu 50 sæti hvor í gær.
Gaullistar höfðu 155 sæti á síðasta
þingi og flokkur þeirra var stærstur,
en nú er því spáð að þeir fái á milli 90
og 115 þingsæti. UDF er spáð 65 til
87J)ingsætum.
I fyrirsögnum franskra blaða er
talað um „sögulegan sigur“ sósíal-
istaflokksins, sem fékk 37,6% at-
kvæða eða meira fylgi en nokkru
sinni fyrr, þó ekki eins mikið og
gaullistar 1968 er þeir hlutu 46,3%
atkvæða.
Jafnframt hefur fylgi kommúnista
minnkað í 16,1% úr 20%, sem þeir
hafa vanalega fengið. Sjá bls. 19.