Morgunblaðið - 16.06.1981, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.06.1981, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1981 Að orkuþingi loknu Eftir Þorvald Garðar Kristjánsson, alþm. Orkuþingi ’81 lauk síðastliðinn fimmtudag. Hér var um að ræða merkisviðburð. Ekki hefir hér á landi áður verið haldið slíkt þing, sem fjallar- um hina ýmsu þætti orkumáianna. Áður hafa að sjálf- sögðu verið þing ^éða ráðstefnur, sem fjallað hafa um einstakar greinar hinna umfangsmiklu orkumála. Það merkasta í því efni hafa verið þing Sambands íslenzkra rafveitna, sem hafa verið vettvangur alla tíð fyrir málefnalegar umræður um þann svo mikilvæga þátt orkumálanna, sem varðar raforkuna. Árangur Orkuþings ’81 liggur fyrst og fremst í þeim miklu upplýsingum og fróðleik, sem þar kom fram um orkulindir og hagnýtingu þeirra. Það hefir þýð- ingu að safna saman í aðgengi- legt form því, sem áður var vitað og þá auðvitað ekki síður því, sem nýtt er af nálinni. Þá hljóta margs konar hugmyndir, sem fram voru settar, að geta haft raunhæfa þýðingu í ýmsum greinum. Hin fjölmörgu erindi, sem flutt voru á þinginu, voru yfirleitt gagnmerk og sum þeirra afburða góð. Stjórn þingsins fór framkvæmdastjóra þess, Ágústi Valfells, mjög vel úr hendi. Það er ekki hlutverk ráðstefnu eins og Orkuþings ’81 að marka eða ákveða stefnu í orkumálunum eða gera tillögur um slíkt, enda voru hvorki ályktanir bornar fram né samþykktar á þessu þingi. Hins vegar geta slíkar ráðstefnur haft gildi fyrir stefnu- mótun stjórnvalda. Er það ekki sízt fólgið í því, að þær eru vettvangur málefnalegra um- ræðna, sem er forsenda þess, að menn fái sannfært aðra með rökum eða láti sannfærast af rökum. Slíkar umræður eru því til þess fallnar að sameina menn um það, sem þeir eru í raun sammála um, en ekki að sundra. Ekki veitir af slíku í orkumálun- um svo mikið sem þar er í húfi. Ef við ætlum að ná þeim mark- miðum, sem nú eru sett fram í orkumálunum, þarf vissulega að freista þess að ná sem víðtæk- astri samstöðu um það Grettis- tak, sem þjóðin þarf að lyfta á vegferð sinni að markinu. Á Orkuþingi ’81 voru menn að sjálfsögðu sammála um fjölmörg atriði í orkumálum hvar i flokki sem þeir annars standa. Hins vegar væri það gróf mistúlkun að halda því fram, að þar hefði náðst einhver samstaða eða sameigin- leg stefnumótun um þau atriði, sem mestum ágreiningi hafa valdið fram til þessa. Hér er um að ræða annars vegar skipulag raforkuvinnslunnar og hins vegar uppbyggingu stóriðju til öflunar markaðar fyrir raforku. Ekki þarf að ræða um skipulag raf- orkuvinnslunnar í þessu sam- bandi. Skipulag orkumálanna var ekki á dagskrá orkuþings svo furðulegt sem það má annars vera. En að loknu orkuþingi hefir málgagn iðnaðarráðherra, Þjóð- viljinn, talið því helzt til gildis, að þar hafi orðið almennt samkomu- lag um íslenzkt forræði í orku- nýtingarmálum, eins og þeim alþýðubandalagsmönnum þókn- ast nú að kalla stefnuleysi sitt í stóriðjumálum. Er þá látið að því liggja, að sjálfstæðismenn og aðrir forgöngumenn stóriðju á íslandi hafi nú látið af stefnu sinni og fylgi stefnu alþýðu- bandalagsmanna og annarra nátttrölla í orkunýtingar- málunum. Menn gerast nú harla djarf- tækir til blekkinga. Þykir og mikið liggja við. Þeir sem barizt hafa á móti stóriðju í landinu eru nú í vanda staddir. Sjálfstæðis- flokkurinn, og raunar stjórnar- andstaðan öll, hefir borið fram á Alþingi frumvörp um stórátak í virkjunarframkvæmdum á for- sendu þess, að stóriðju verði komið á fót til að skapa markað fyrir orkuna. Ríkisstjórnin vill ekki vera minni og iðnaðarráð- herra hefir uppi fálmandi til- burði um stórar vatnsvirkjanir en án þess að ganga til verks um að skapa markað fyrir orkuna í formi stóriðju. Á málþingi um orkumál er erfitt að fóta sig á nakinni andstöðu við stóriðju. Þar eru því allir sammála um, að stóriðja þurfi að koma til, svo að grund- völlur sé fyrir stórvirkjunum. Afturhaldsseggirnir verða að vera með, svo að öll umræðan „Þó að iðnaðarráðherra kunni að vera hart keyrður vegna tvískinnungsháttar Alþýðuhandalagsins í stór- iðjumálunum ætti hann ekki að iáta misnota Orku- þing ’81 til að búa sér ímyndað skjól í þeirri nepju, sem um hann naiðir vegna ráðieysis í orkumál- um. Nójí er nú samt.“ verði ekki ein markleysa. En vel að merkja, stóriðja er af hinu góða eða illa eftir því hvort fylgt er sölustefnu, sem svo er nefnd, eða nýtingarstefnu um orkuna, sem til hennar gengur. Er þá talað eins og orkan sé ekki nýtt í hvaða formi, sem hún kann að vera seld. Allan þennan flókna málatil- búnað þykir þurfa við, ef skjóta mætti stoðum undir fullyrðingar um það, að sjálfstæðismenn hafi viljað skaða íslenzka hagsmuni með því að láta útlendinga hafa eignaraðild að stóriðjufyrirtækj- um í landinu. Er þá gjarnan vitnað til álbræðslunnar í Straumsvík, þó að það sé nú alltaf að verða erfiðara og erfið- ara eftir því sem í ljós kemur betur þjóðhagsleg arðsemi þess fyrirtækis fyrir íslendinga og framsýni þeirra manna, sem ábyrgð báru á þeirri framkvæmd, eins og svo glögglega kom fram á orkuþinginu. En haldið er áfram að berja höfðinu við steininn. Á slíkum heilaspuna og ófyrirleitni byggjast leiðarar Þjóðviljans um Orkuþing '81, sem nú birtast dag eftir dag. Fer nú skörin að færast upp í bekkinn. Það er stefna Sjálfstæð- isflokksins og hefir alla tíð verið, að eignaraðild að stóriðju í land- inu eigi að fara eftir því, hvað henti með tilliti til fjármögnun- ar, tækni, markaðsmöguleika og rekstraröryggis. Við mat á þess- um atriðum verður ekki lagt til grundvallar annað en íslenzkir hagsmunir. Samkvæmt þessari stefnu hafa íslendingar ekki eignaraðild að álbræðslunni en meirihlutaaðild að járnblendi- verksmiðjunni. En nú hafa íslendingar aflað sér þeirrar þekkingar og reynslu í stóriðjumálum, sem er grundvöll- ur fyrir stórauknu eigin framtaki í þessum efnum. Það ber að þakka þeim, sem höfðu stórhug og djörfung til að beina atvinnu- lífi þjóðarinnar inn á brautir stóriðju. Þar hafði Sjálfstæðis- flokkurinn forustu en ekki þeir, sem vildu koma í veg fyrir framfarasókn þjóðarinnar til aukinnar hagsældar og velmeg- unar. Ef alþýðubandalagsmenn telja að nú verði ekki lengur staðið gegn staðreyndum og dómi reynslunnar og þeir hafi markað sér samstöðu með þeim, sem barizt hafa fyrir stóriðju, er þeim það ekki of gott. Batnandi manni er bezt að lifa. En um þetta er enn of snemmt að futlyrða nokkuð. Meira þarf að koma til en málskraf eitt. Verkin þurfa að tala. Enn hefir það ekki skeð. Þvert á móti lagðist t.d. iðnaðarráðherra gegn frumvarpi okkar sjálfstæðismanna um ný orkuver, þar sem kveðið var svo á að setja skyldi á stofn stóriðju á Austurlandi til að skapa forsendu fyrir hinni miklu virkjun í Jök- ulsá í Fljótsdal. Þar sýndi ráð- herrann glöggt hvað inni fyrir býr, jafnvel þótt hlut ættu að máli hans eigin umbjóðendur á Austfjörðum. Hér breytir engu véfréttin um sölu kísilmálms, sem ráðherrann lét út ganga fyrir síðustu helgi. Þó að iðnaðarráðherra kunni að vera hart keyrður vegna tví- skinnungsháttar Alþýðubanda- lagsins í stóriðjumálunum, ætti hann ekki að láta misnota Orku- þing ’81 til að búa sér ímyndað skjól í þeirri nepju, sem um hann næðir vegna ráðleysis í orkumál- unum. Nóg er nú samt. Elim-kórinn frá Eskilstuna Elim-kirkjukórinn frá Eskils- tuna í Svíþjóð kom hér í Reykjavík á leið sinni til Bandaríkjanna og söng i Háteigskirkju fyrir þá er sumarbiíðan hefur ekki megnað að rýja allri löngun til tónlistar. Á efnisskrá kórsins eru um 50 við- fangsefni þar á meðal sex píanó- verk, sem undirleikarinn Erna Hellsten leikur. Með í förinni er og einsöngvarinn Curt Skárberg, en hann syngur sérstaklega um tíu söngverk, sænsk verk og verk eftir Bach, Franck Schumann og Tosti. Á efnisskrá kórsins eru kórverk frá 16. til 20. aldar, þrjú verk frá hverri öld, sænsk kórtónlist og tækifærissöngvar frá ýmsum löndum. Stjórnandi kórsins er Jarl Einar Johansson. Kórinn á sér Tðnllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON langa sögu, allt frá 1868 og hefur auk þess að vera kirkjukór, staðið fyrir flutningi stærri tónverka eins og á óratóríu eftir Mendels- sohn og messu eftir Schubert. Af þessari margbreytilegu efnisskrá söng kórinn söngverk eftir Hánd- el, Rathbone, Ahlen, Stenhammar og tvö falleg lög eftir Peterson- Berger. Kórinn er mjög vel þjálf- aður og raddhljómur hans falleg- ur. Það sem vekur athygli er að næstu öll söngverk kórsins eru sungin á sænsku, nema nokkur er kórinn syngur á ensku. Eitt ís- lenskt lag er á efnisskránni og söng kórinn það á íslensku, en það er raddsetning á gömlu íslensku sálmalagi, Gloria tibi, sem kórinn söng mjög fallega. Elinsöngvarinn, Curt Skárberg, er góður söngmað- ur og flutti hann fjögur lög, tvö eftir Bach og tvö sænsk. Elim-kirkjukórinn frá Eskils- tuna í Svíþjóð er góður kór og leitt til þess að vita hversu fáir sóttu samsöng kórsins, en vonandi sæk- ir kórinn betur að er hann á leið um Island í annað sinn. ros og ljóð Rós er ljóð er eftir Jón úr Vör Á árunum milli heimsstyrj- aldanna sælu, eða kannski nánar tiltekið á þeim tímum sem Hem- ingway var að skrifa Vopnin kvödd og Klukkuna sem glymur, lenti hann í París í frægri ensk-amerískri lista- og bók- menntaklíku. Þar var skáldkon- an Gertrude Stein. Hún hefur orðið kunnust fyrir þuluna um rósina, sem er rós og rós og rós í sífelldri endurtekningu. Þau orð hljóma víst einkar fagurlega og jafnvel óvenju spaklega á enskri tungu. í stað rósar má eftir atvikum setja önnur orð. Ég hef leyft mér að setja ljóð hérna í fyrirsögnina. Ekki eru skrif mín að þessu sinni alveg tilefnislaus. I Vísi 4. júní sl. er hálfsiðugrein sem ber heitið Ljóðaóhljóð, — og kemur kvæði eftir undirritaðan þar við sögu, ef kvæði skyldi kalla, því greinarhöfundur segir: „Ég set hér sem dæmi ágæta frásögn úr þjóðsögum Jóns.“ Kannski hefur kenninafn mitt óvart fallið niður, en frekar er nafns míns ekki getið í þessu skrifi. En þeirrar miskunnar nýt ég og, þar sem ekki sé „um Ijóð að ræða sé ekki heldur hægt að tala um leirburð". Þakka. Nú er það ekki vani minn að gera athugasemdir við það, þótt mér auðnist ekki, eða þá með öðrum hætti en ég vildi, að ná sambandi við lesendur mína. Þá harma verða allir höfundar að bera í hljóði. En þetta vil ég segja: Rithöfundar eru sjálfskip- aðir í sín embætti og misjafn- lega kröfuharðir við sjálfa sig. En þeir, sem nokkurrar viður- kenningar hafa notið og jafnvel launa frá ríkinu, verða að orða það sem þeir senda frá sér með sæmilegum hætti, rétt eins og þegar bankastjóri birtir í blöð- um og öðrum fjölmiðlum skilj- anlegar og helst gagnorðar til- kynningar um peninga og við- skiptamál, þó hér sé óvenju- legum embættisverkum saman jafnað. Hinn sjálfskipaði á að- eins einn húsbónda: samvisku sína. Miklar umræður hafa farið fram á Islandi síðustu fjóra áratugi um nýjungar í íslenskri ljóðagerð. Ég hef þar stundum orðið fyrir svörum og þó nokkr- um sinnum verið skotspónn and- stæðinga hinna órímuðu ljóða. Hafa nokkrum sinnum verið birt mín eigin kvæði, höfundi til háðungar. Því hef ég ekki svar- að. Fyrir mörgum árum sagði Sigurður Nordal við mig um eitt þessara kvæða: „Ég skal nú segja þér, Jón. Ef ég væri beðinn að velja í bók tiitekna tölu ísl. úrvalsljóða, þar er venjulega ekki um mjög mörg kvæði að ræða, þá myndi ég taka þetta kvæði eftir þig með.“ Svona einkaummæli á maður nú auð- vitað ekki að vera að tiunda, kannski sögð í huggunarskyni. Afsakið. En nú verð ég að nefna það kvæði sem til umræðu er í Vísisgreininni. Það heitir Hreppstjórinn og birtist í Les- bók Morgunblaðsins 31. maí sl. Það er þar tekið sem dæmi um það hvernig ekki eigi að yrkja. Á þeim grundvelli kveður sér hljóðs nýr maður, raunar nokk- uð við aldur, í umræðunni um nútíma ljóðagerð. Um kvæði mitt segir hann: „Hreppstjórinn er frásögn í þjóðsagnastíl, en ekki ljóð. í kramvörubúð menn- ingarinnar verður þetta húmb- úkk, sem prangað er inn á saklausan sveitamanninn með rangri vörumerkingu." Ég tek þessi orð upp til þess að þau standi hér, en éj? ætla ekki að mótmæla þeim. Ég segi enn: Afsakið. Mér verður hinsvegar á að spyrja: Hversvegna birtir greinarhöfundur ekki eitthvert þeirra rímuðu kvæða, sem birst hafa í Lesbókinni hina síðustu mánuði og sýnir okkur, hvernig Jón úr Vör á að yrkja? Með því móti kynnt- umst við raunverulegum ljóð- smekk hans. En út í þessa sálma vil ég ekki fara nánar að þessu sinni. En það er margt fleira í grein þessari athyglisvert. Satt að segja minna þessi skrif mig óþægilega mikið á dægurþjark pólitíkusa, en þar hefur höfund- ur meir komið við sögu en í umfjöllun um bókmenntir og listir, þótt mér sé raunar vel kunnugt um fjölbreytilegt áhugasvið hans. Þetta er kunn- ingi minn frá fornu fari. Hér eru miklar tilvitnanir í nafngreinda menn. Stundum eru tilvitnanirnar sóttar í tilvitnanir annarra greinahöfunda. Og þeg- ar svo langsótt er viskan, kemur það fyrir, að upphafleg skoðun tilvitnaðs höfundar hefur skol- ast til, stakar setningar eru fluttar úr upphaflegu samhengi og misnotaðar sem barefli á samherja þeirra og skoðana- bræður, menn sem höfundar ritsmíðanna myndu síst af öllu vilja varpa hnútum að. Ég nefni sem dæmi það sem Magnús Torfi Ólafsson hefur sagt fyrir mörg- um árum í blaðagrein eða við- tali, og nú er notað mér til áfellis. Hann er þar alls ekki að tala um mig og mín ritstörf. Til gamans nefni ég auk Magnúsar Torfa, þá sem grein- arhöfundur vitnar í. Þeir eru: Gísli Jónsson menntaskólakenn- ari, Hannes Sigfússon skáld, Ellert B. Schram ritstjóri — og loks hefur hann þessa setningu eftir hinum gáfaða og íhalds- sama prófessor Guðmundi heitn- um Finnbogasyni: „Ljóð er það sem vér finnum að er ljóð.“ Undir þessi orð G.F. vil ég heilshugar taka. Ljóð er það sem ég kalla ljóð. Þetta á einnig við það ég sem ritar í Vísi. Sá hefur doktorsnafnbót í hagfræði. Hann ætti því að hafa vit á peningamálum. En þótt hann hefði fengið nafnbót sína í bók- menntum, eða jafnvel enga nafnbót hlotið, væri ekki þar með sagt, að hann hefði meira vit á skáldskap en annað mennt- að eða ómenntað fólk. Lærdóm- ur, fordómar eða menntahroki hjálpar engum manni til list- skilnings eða gefur mönnum góðan smekk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.