Morgunblaðið - 26.06.1981, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 26.06.1981, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ1981 Vorum aðfá úrval af itölskum húsgögnum Leður sófasett Roccocosófasett Borðstofuborð og stóla Sófaborö Kómmóður Símaborð Roccocostóla á aöeins 1.450. SmiÖjuvegi 6 sími hhðhh- Kjörgarði Laugavegi 59, sími 16975 ^7$ Furusmávörur Nyjar send- ingar í eldhúsið 6 stk. eggjabikarar kr. Plattar fyrir heitt kr. Puntuhandkl. Hengi frá kr. Hnífaparahirsla kr. 115,- Brauðkassi Og ýmislegt fleira. kr. 141.- íbaðherbergið WC rúllustatíf frá kr. 57,- Sápustatíf frá Glasastatíf frá Skammel Snagar frá Handkl. Hengi kr. 27.- kr. 33.- kr. 98.-.- kr. 11.-L kr. 78.- J 9.Ýmislegt .Hornhillur frá kr. Furublómakassar litlir frá kr. 26,- Korktöflur frá kr. 72,- Kollur kr. 161.- Lítil furugróðurhús fyrir blóm frá kr. 156- Verkfæratöflur frá kr. Blaðagrindur — flösku- statíf — kassettustatíf — bekkir — hillur — borð- dúkar — setjarakassar — speglar með hillum — kriddhillur — Tágavörur, nýjar sendingar. Alls konar körfur, litlar og stórar strámottur. 78,- Furuspeglar maroar teg.frá kr. 143.- Eitthvað fyrir alla Opiö til kl. 8. Vörumarkaðurinn hf. Ármúla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-112 Páll Samúelsson og Elín Jóhannesdóttir eigendur Toyota-umboðsins, Óttar Kjartansson formaður styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og Sigurður óiafsson sem mun aka bifreiðinni. Styrktarfélagi lam- aðra og f atlaðra færður bíll að gjöf í GÆR var Styrktarfélagi lam- aðra og fatlaðra færð að gjöf sérhönnuð bifreið til flutnings á fötluðu fólki. Það voru Toyota- verksmiðjurnar i Japan og Toyotaumboðið hérlendis sem gáfu bifreiðina. Hún nefnist To- yota-Coaster. Bifreiðin er með 12 sætum og auk þess er í bifreið- inni pláss fyrir tvo hjólastóla. Á bifreiðinni aftanverðri eru vængjadyr sem gengið er inn um. Þak bifreiðarinnar hefur verið hækkað þannig að hægt er að ganga uppréttur í bifreiðinni. Páll Samúelsson eigandi Toyotaumboðsins á Islandi af- henti bílinn Óttari Kjartanssyni og kvaðst vona að hann kæmi í góðar þarfir og gæti orðið til að hjálpa til við flutninga á hreyfi- hömluðu fólki. Flutti hann kveðj- ur og árnaðaróskir frá Toyota- umboðinu og einnig frá verksmið- junum. Óttar Kjartansson formaður Styrktarfélags lamaðra og fatl- aðra veitti eins og áður var getið bílnum viðtöku og afhenti síðan bílstjóra styrktarfélagsins, Sig- urði Ólafssyni lyklana, en Sigurð- ur hefur frá upphafi annast flutn- inga á fötluðu fólki á vegum Styrktarfélagsins. Þakkaði Óttar Toyotaumboðinu og verksmiðjun- um fyrir þessa „stærstu og glæsi- legustu" gjöf sem félaginu hefur borist og sagði að hún kæmi að mjög góðum notum og væri eins og best væri á kosið fyrir hreyfi- hamlað fólk. RAX. Ilér á myndinni sést hvernig hægt er að koma lömuðum manni upp í bílinn en pallurinn sem hjólastóllinn er á lyftist upp og inn í bílinn. Grásleppan verk- uð í fóðurbæti Látrum. Rauóasandshrpppi. 25. júni. ÓVENJULEGA gott veður hef- ur verið hér undanfarna daga og er nú spáð áframhaldandi veðurblíðu, heimamönnum til mikillar ánægju. Eftir að góða veðrið kom hefur gróður tekið vel við sér og má eiginiega segja að menn sjái nú grasið vaxa. Sauðburði er lokið og gekk hann vel. Mikið var um tví- lembdar ær og líta lömbin vel út. Hrognkelsaveiðar eru tölu- vert stundaðar hér og hafa þær gengið vel að undanförnu. Hrognin eru verkuð og seld, en auk þess hirða sumir gráslepp- una sjálfa og vinna hana í fóðurbæti, sem kallaður er melta. Siík vinnsla er þó enn á byrjunarstigi, en hefur gefist vel það sem af er og virðist hafa góð áhrif á meltingu kýrpen- ings. Lélegir vegir eru það sem aðallega hrjáir okkur heima- menn, en segja má að þeir séu ekki mönnum bjóðandi. Fólk hefur ekki einu sinni geð í sér til að aka út á Látrabjarg, en telur að betra sé að geyma bílana heima en að fara með þá út á vegi og eiga það á hættu að þeir skemmist. Minna hefur verið um ferðamenn hér en oft áður, sem ef til vill stafar af því hve kalt hefur verið í veðri og auk þess hefur slæmt ástand vega örugglega eitthvað að segja í þeim efnum. — Fréttaritari. Leiðrétting ÞAU mistök urðu í grein um heimsókn forseta íslands í Dala- sjslu í Mbl. þ. 23. þ.m. að Eggert Ólafsson, bóndi á Skarði á Skarðsströnd, var sagður Kristjánsson. Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar á þess- um mistökum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.