Morgunblaðið - 26.06.1981, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 26.06.1981, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1981 Sólskinsdagur í Reykjavík Það er ekki hægt að segja annað en að það hafi verið sumarlegt um að litast í borginni í gærdag. Hvert sem auga varð litið virtist fólkið njóta veðurblíðunn- ar, ígörðum sínum, við sundlaugarnar, á strætum úti og útivinnandi fólk víða um bæinn. Blaðamaður og ljósmyndari Mbl. spjölluðu við þá sem á vegi þeirra urðu og smelltu myndum. Bornin léku sér og busluðu í góða veðrinu i gær i sundlaug Breiðholts. Linda og Auður heita þessar myndarlegu stöllur sem blm. og Ijósmyndari hittu i Lækjargötunni. „Við eigum bara að nota góða veðrið á meðan það gefst. Annars erum við nýbyrjaðar að hjóla, sögðu þær aðspurðar og hurfu að þvi búnu á braut. En það voru ekki eingöngu börn og unglingar sem blm. og ljósm. sáu á ferð sinni um borgina. Hjá bænum Breið- holti bar fyrir augu okkar öldruð hjón, þau Bótólf Sveinsson og Margréti Er- lingsdóttur, sem voru í óða önn að raka saman heyi. Sögðust þau hafa búið þarna í rúm 45 ár. en nú i fyrradag hefðu siðustu dýrin verið að fara frá þeim þ.e.a.s. síðustu hestarnir þeirra. Hún Rannveig Kristjáns- dóttir var einnig að selja i Austurstrætinu á útimark- aðnum og tjáði hún okkur að það væri miklu betra að vinna svona undir beru lofti og einnig væri miklu meira að gera á svona sólríkum dögum. eins og var hjá okkur Reykvíkingum í gær- dag. Hún Birna B. Bernd- sen var að selja gang- andi vegfarendum í Austurstrætinu blóm þegar blaðamann bar að garði. Sagði Birna er hlaðamaður spurði hana um sölu á slík- um góðviðrisdegi að það væri áberandi meira af fólki sem verzlaði hjá sér þegar sólin skini og meira fólk væri einnig i bænum yfirleitt. Ljásm. Gmilfa. Maria Schneider og Brigitta Hullenberger sögðu aðspurðar að þær hefðu verið hérlendis i tíu daga og ferðast kringum landið. Kváðust þær vera frá Innsbruck og færu aftur heim á morgun. Þær voru að sögn undur hrifnar aí landinu og fólkinu og sögðust gjarnan geta hugsað sér að koma aftur til landsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.